Morgunblaðið - 15.09.1996, Side 9

Morgunblaðið - 15.09.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ráðstefna um sjálfbæra þróun á 21. öld Framtíð alheims- nágTemiisins rædd Á HÓTEL Sögu hófst á föstudag ráðstefna um sjálfbæra þróun á 21. öld og hlutverk íslands í henni, en ráðstefnunni lauk á Þingvöllum í gær. Hana sótti fjöldi eftirsóttra fyrirlesara, erlendra sem inn- lendra, en hún var haldin í tilefni af því að nýtt árþúsund rennur upp innan skamms og til að ræða hugmyndir um að haldinn verði alþjóðlegur fundur á Þingvöllum árið 2000, þar sem fjallað verði um framtíð mannkyns og leiðina í átt til sjálfbærrar þróunar og réttláts samfélags á jörð. Gerald 0. Barney er forseti The Millenium Institute í Washington, sem ásamt The Ghandi Foundati- on, umhverfisráðuneytinu og Framtíðarstofnuninni stendur að ráðstefnunni nú. Hann er einn helzti hvatamaðurinn á bak við ráðstefnuna, sem hann segir m.a. vera til þess fallna að veita Islend- ingum tækifæri til að öðlast betri skilning á því hvernig heimurinn kunni að þróast á næstu áratug- um. Hann segir ráðstefnuna vera eina af nokkrum ráðstefnum um hnattræn vandamál næstu aldar, sem halda eigi víða um heim í til- efni af alda- og árþúsundamótun- um. Ráðstefnan þjónar einnig þeim tilgangi að búa í haginn fyrir al- þjóðlegan fund, sem hugmyndin er að halda á Þingvöllum alda- mótaárið. Hugmyndina að fundi þessum fékk Barney árið 1986. Hann heillaðist af sögu Þingvalla sem staðar, þar sem menn komu saman kynslóð eftir kynslóð, öld eftir öld og fundu friðsamlegar lausnir á deilumálum landsmanna. „Það finnst varla betri staður á jörðinni til að halda fund sem þennan,“ segir Barney; staður, sem sameinar þau gildi, sem fund- urinn á að snúast um, á táknræn- an hátt. „En það er að sjálfsögðu háð vilja íslenzku þjóðannnar," segir hann, og bætir við, að íslend- ingar séu sérlega vel í stakk bún- ir til að vera gestgjafar slíks fund- ar. Fulltrúar varanlegra gilda Á þessum fundi er að sögn Barneys hugmyndin að saman komi „fulltrúar hinna varanlegu gilda“ (earriers of long-term valu- es), sem séu færir um að ræða aðkallandi vandamál mannkyns- ins af ábyrgð og miðla ungu kyn- slóðinni af reynslu sinni og þekk- ingu, gefa henni rétt vegarnesti til að tryggja frið og framfarir í heiminum á nýrri öld. Fulltrúar hinna varanlegu gilda eru að mati Barneys meðal ann- ars fulltrúar trúarbragða heims- ins, ásamt stjórnmálaleiðtogum og leiðtogum ýmissa frjálsra fé- lagasamtaka. Á ráðstefnunni sem lauk í gær voru staddir fulltrúar heimsþings trúarbragðanna, en það mun koma saman í S-Afríku árið 1999. Fulltrúar heimsþings- ins hafa sýnt því áhuga að eiga þátt í Þingvallafundinum, en að sögn Barneys verða forsvarsmenn félagasamtaka, sem starfa að lausn hnattrænna vandamála og sjálfbærri þróun boðnir velkomnir. Næsta skrefið eftir ráðstefn- una, sem nú stendur _yfir, segir Barney vera á valdi Islendinga. Þeir verði að ákveða, hvort þeir vilji taka að sér hlutverk gestgjaf- anna. Að Islendingar sómi sér vel í Gerald O. Barney John Huddleston Sir Sridath Ramphal hlutverki gestgjafa alþjóðlegrar samkundu sem þessarar er sann- færing Johns Huddleston, sem er meðal þekktustu fyrirlesara ráðstefnunnar. Hann var um 30 ára skeið í stjórnunarstöðu hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, en starfar nú fyrst og fremst að skrifum auk þess að vera í stjórn nokkurra samtaka. Hann hélt í gær erindi um heimsborgararétt og veginn til sjálfbærrar þróun- ar. Hann segir að það sem Margar- et Thatcher er þekkt fyrir að hafa sagt um Bretland, að landið hafi meiri áhrif en stærð þess sem slík bendj til, geti átt enn betur við um Island. Fyrir því segir hann liggja tvær ástæður. íslendingar öðrum þjóðum fordæmi í fyrsta lagi njóti ísland víð- tækrar virðingar í heiminum, og á þá sem virðingar njóta sé_ hlust- að. í öðru lagi geri lega íslands sem brú milli gamla og nýja heimsins, bæði landfræðilega og sögulega, það vel til þess fallið að þjóna sem vettvangur fyrir al- þjóðlega fundi. Þetta brúarhlut- verk sé styrkleiki, sem landið hafi yfir að búa. Honum virðist íslendingar enn- fremur geta verið öðrum þjóðum fordæmi með afstöðu sinni til heimsins; þeir hugsi hnattrænt. „Ef þú vilt breyta heiminum, er mikilvægast að gera fólki grein fyrir að það er þegnar heimsins alls,“ segir Huddleston og bendir á, að lýðræði sé nú við lýði í flest- um ríkjum heims. Það þýði, að ef meirihluti fólks leggur eitthvað upp úr þeim sjálfsskilningi, að það sé þegnar heimsins, munu stjórn- málamenn lýðræðisþjóðanna með tímanum einnig taka tillit til þessa og haga stefnu sinni og gjörðum eftir því. Huddleston segist trúa því, að framtíðarskipulag heimsbyggðar- innar muni byggjast á sambands- ríkjakerfi með þremur megin- stjórnarstigum. Efst verði heims- sambandsstjórnin, sem leggi sam- eiginlegar línur fyrir þjóðríkin, sem eftir sem áður verði grund- vallarskipulagseiningin. Innan þjóðríkjanna, undir ríkisstjórnun- um, verði síðan þriðja stjórnarstig- ið, héruðin. Reynslan af Evrópu- sambandinu geti þannig verið ein varðan á leiðinni til stofnunar heimsríkjasambands framtíðar- innar. Þessi framtíðarsýn er viðfangs- efni alþjóðlegs ráðs um alheims- stjórnun. Meðformaður þess er Sir Shridath Ramphal, fyrrverandi formaður Brezka samveldisins. Hann hélt framsögu um sameigin- lega framtíð mannkynsins á þröskuldi nýrrar aldar. Hann segir ráðstefnuna mikil- væga fyrir það eitt, að hún kemur á fundum fólks, sem ekki hefur kynnst íslandi áður en getur nú deilt með sér hugleiðingum um sameiginlega framtíð og hjálpað þannig hvað öðru til að breikka sjóndeildarhring sinn. „Ég er ættaður frá Karíbahaf- inu, sem er safn lítilla eyja“ segir Ramphal, en hann gegndi um hríð embætti utanríkisráðherra heima- lands síns, Guyönu. „Við skiljum vel veikleika, möguleika og metn- að smárra ríkja. Það eru mörg hlutverk, sem einungis lítil ríki geta leikið." Þau ógna engum, og sækjast ekki eftir yfirráðum yfir öðrum. Þetta gerir lítil ríki og íbúa þeirra vana því að taka tillit til annarra. „Ég held við eigum auð- veldara með að gera okkur grein fyrir þörfinni á alheimssamfé- lagi,“ segir hann. Heimurinn er nágrenni Ramphal bendir á, að skýrsla, sem ráðið um alheimsstjórnun (Commission for Global Govern- ance), sem hann stýrði í félagi við Ingvar Carlsson, gaf út, hefði borið titilinn „Alheimsnágrenni vort“. Það þýði, að heimurinn sé orðinn að einu nágrenni. Það sé ekki þar með sagt, að hann sé gott nágrenni. Það sé einfaldlega staðreynd. Markmiðið sé að gera hann að betra nágrenni. Að því marki beri að fylgja formúlunni: Nágrennið er ekki gott fyrir neinn, ef það er ekki gott fyrir alla. Þess vegna verði allir að læra að lifa samkvæmt þeim gildum sem fylgja skal í góðu nágrenni. Á þessu hafi litlar þjóðir betri skiln- ing en stórar. Varðandi Þingvallafundinn árið 2000 segist Ramphal sannfærður um að ráðstefnan nú muni lýsa fullum stuðningi við þá fyrirætlan. ísland sé kjörinn staður til að halda fund af þessu tagi. Hann segist aðspurður bjartsýnn á að af fundinum verði, „vegna þess að ég trúi á mátt fólksins, en ekki vald ríkisstjórna". ^Arfur horfinna kynslóða Jurtasmyrsl Erlings grasa- læknis fást nú í apútekum og heilsuln'iiSum inii land allt. • Græðismyrsl • Han«lálmrður • Gyllina'ðaráhurður Ki’ainl<HtSaii(li: Islnnsk lyl’jajínis Dmfínj': Lyljuvrrsliin Islamls lif. j SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 9 N ÍÞRÓTTASETT úr 100% bómull. Stærðin 34-38 Verð kr. 1.850 Stökktu til London 7. okt. frá kr. 16.930 Flug og hótel kr. 19.930 Nú seljum við síðustu sætin til London þann 7. október og bjóðum þér nú spennandi tilboð um leið og þú tryggir þér lægsta verðið á Islandi. Þú bókar á morgun og tryggir þér sæti til London þann 7. október, og þremur dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir í London. Svo bjóðum við auðvitað okkar frábæru hótel í október og nóvember fyrir þá sem enn hafa ekki tryggt sér sæti. Síðnstu 32 sœtin 7. okt. Verð kr. 16.930 Flugsæti með flugvallarsköttum, 7. okt., 3 nætur. Verð kr. 19.930 M.v. 2 í herbergi með morgunverðl, 7. okt., 3 nætur Verð kr. 29.930 Butlins hótel, 4 nætur, 3. okt. 2 í herbergi. Jfvi en*r «• bnt? uPpselt Zseeti 11 sæti 3°- s*Pt °3. okt °7- okt. W- okt l4okt. 17■ °kt. . *4- °kt. . 78- o kt. Enn er laust í brottfarir í nóvember. Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.