Morgunblaðið - 15.09.1996, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó sýnir bardagalistarmyndina The Quest með belgíska
vöðvabúntinu Jean-Claude Van Damme og gamla Bondinum Roger Moore í aðalhlutverk-
um. Þetta er fyrsta myndin sem Van Damme leikstýrir og fór hún beint á toppinn í
Bandaríkjunum þegar hún var frumsýnd þar í vor.
í fótspor
Tinna
STÓRSTJARNAN Jean-Claude
Van Damme reynir fyrir sér
sem leikstjóri í fyrsta skipti í bar-
dagamyndinni The Quest, en hann
fer að sjálfsögðu einnig með aðal-
hlutverkið í myndinni sem er af
svipuðu tagi og þær myndir sem
á sínum tíma komu undir hann
fótunum sem kvikmyndaleikara.
í myndinni leikur Van Damme
smáglæpamanninn Chris Dubois,
sem er á flótta undan lögreglunni
í New York þriðja áratugarins og
leiðir flótti hans hann í sérkenni-
legt ferðalag sjálfsskoðunar og
þroska um allan heim, allt frá
fátækrahverfum stórborgarinnar
til hinnar dularfullu Týndu borgar
í Tíbet hátt uppi í Himalayjafjöll-
um. Á þessu ferðalagi er Chris
rænt af vopnasmyglurum sem
hneppa hann í þrældóm, og hann
er seldur af sjóræningjum og
varpað inn í undirheima fjár-
hættuspils og sparkhnefaleika.
Ferðin berst meðal annars til
hinnar forboðnu Muay Thai-eyjar
þar sem banvæn bardagalist er
kennd, til afkima Bangkokborgar
og um afskekktar eyðimerkur þar
sem stríðsmenn Gengis Khan riðu
á sínum tíma illvígir um héruð
og loks til hinnar fomu Týndu
borgar.
í Týndu borginni verður Chris
að standa andspænis þeirri einu
þolraun sem sker úr um karl-
mennsku hans og hugrekki, en
það er hin ævaforna Ghan-gheng
keppni þar sem barist er til síð-
asta blóðdropa. Keppni þessi hef-
ur í aldaraðir laðað til sín alla
helstu bardagamenn heimsins
sem sýna stórkostlega hæfni sína
í bardagalist í því skyni að vinna
til eignar Gulldrekann eftirsótta.
En bardagahæfni Chris nægir
honum ekki ein til að vinna sigur
á þeim köppum sem mættir eru
til leiks, heldur verður hann að
kafa djúpt í sjálfan sig og ná
valdi á allri þeirri einbeitni og
þeim innri styrk og óeigingjörnum
heiðri sem hann býr yfir til að
sigrast á þessum síðasta þröskuldi
á langri heimferð sinni.
Líkt og aðalpersónan í The
Quest þurfti Jean-Claude Van
Damme að sigrast á ýmsum
þrautum á þeim íjórum árum sem
það tók hann að koma myndinni
á hvíta tjaldið. Það sem helst af
öllu laðaði hann að þessu við-
fangsefni var sá gamaldags ævin-
týrablær sem sagan býr yfir.
Hann segist hafa sökkt sér í
Tinnabækurnar þegar hann var
ungur drengur heima í Belgíu og
haft mikið dálæti á öllum þeim
ævintýrum sem söguhetjan rataði
í á ferðalögum sínum um heiminn
með félögum sínum.
„The Quest er einmitt af þess-
ari gerð. Chris er eltur af löggum
um borð í skip vopnasmyglara
sem er á leið til Tælands og bjarg-
að þaðan af sjóræningjum sem
selja hann í ánauð sem hnefaleik-
ara og síðan tekst hann á hendur
stórkostlega ævintýraferð til Tíb-
et til að keppa í leynilegri bar-
dagakeppni.“
Þegar hugmyndin að myndinni
var fullmótuð blasti fyrsta vanda-
málið við Van Damme, en það var
spurningin um hvort hann ætti
sjálfur að leikstýra myndinni.
Kappinn hafði löngu öðlast heims-
frægð fyrir leik í myndum á borð
við Sudden Death, Nowhere to
Run, Timecop, Streetfighter og
Universal Soldier og ekkert rak
svo sem á eftir honum að taka á
sig nýjar byrðar. Engu að síður
ákvað hann að slá til. „Það var
erfitt að setjast í stól leikstjórans
og hvert einstakt vandamál sem
upp kom varð mitt eigið vanda-
mál, en þetta varð ég að gera
vegna þess hve persónulegt við-
fangsefni The Quest var mér.“
Ein ástæðan fyrir því að Van
Damme kaus að láta The Quest
gerast á þriðja áratugnum var sú
að þá þurfti fólk ennþá að ferðast
í lestum, bátum og jafnvel á fílum
til að komast leiðar sinnar á þeim
slóðum þar sem myndin gerist, í
stað þess að skjótast á milli staða
í þotum eða hraðskreiðum bílum
eins og tíðkast í nútímanum.
FERÐALAG Chris Dubois ber hann meðal annars til eyjarinn-
ar Muay Thai þar sem kennd er banvæn bardagalist.
Þannig mætir til dæmis þýski
þátttakandinn til leiks í Ghan-
gheng keppninni i Zeppelin loft-
fari. Einnig réð það miklu að sögn
leikstjórans að á þessum tímum
hafði fólk ennþá háleit markmið
og barðist ekki einungis pening-
anna vegna. „Bardagamennirnir
í The Quest koma hvaðanæva úr
heiminum til að taka þátt í Ghan-
gheng keppninni og beijast jafnt
fyrir þann heiður sem fylgir því
að fara með sigur af hólmi og að
öðlast Gullna drekann."
Keppnin er í sjálfu sér þunga-
miðjan í myndinni, ekki aðeins
sem hápunktur myndarinnar held-
ur einnig sem virðingarvottur við
bardagaíþróttir og ekki síður virð-
ingarvottur leikstjórans við þann
aga sem hann þakkar velgengni
sína sem kvikmyndastjarna. Sext-
án bardagaafbrigði, bæði raun-
veruleg og skálduð, eru notuð í
The_ Quest.
„I þijú ár ferðaðist ég um gjör-
vallan heiminn í léit að bestu bar-
dagamönnunum sem frnnast. Ég
í KEPPNINNI um Gulldrekann verður Chris
Dubois að ná valdi á allri þeirri einbeitni og
þeim innri styrk sem hann býr yfir.
en
kvikmynd, en meg-
intími hans fer í a<
gegna starfi sérs-
taks sendiherra
Barnahjálpar
Sameinuðu
þjóðanna,
UNICEF, og
fetar hann þar í
fótspor leikara á
borð við Audrey
Hepum, Danny
Kaye og Peter
Ustinov. Ferð-
ast hann víða
um heim til að
vekja
á aðstæðum
barna sem
eiga um sárt
að binda.
Búntið frá
Brassel
JEAN-CLAUDE Van Damme
fæddist í Brussel í Belgíu
fyrir 35 árum og er hann oft
kailaður vöðvabúntið frá
Brussel. Fæðingarnafn hans er
Jean-Claude Van Varenberg,
en hann tók upp eftirnafn læri-
föður síns sem honum þótti
hafa sterkari hljóm. Van
Damrae hefur nú búið í bráðum
15 ár i Bandaríkjunum. Þangað
hélt hann í leit að frægð og
frama eftir að hafa lagt stund
á ballett, vöðvarækt, bardaga-
íþróttir og leiklist í fæðingar-
borg sinni en þar hafnaði hann
tilboði frá ballettflokki sem
vildi fá hann til liðs við sig.
Eftir að hafa unnið um hríð
sem þjónn og útkastari í Los
Angeles komst hann í kynni við
kvikmyndaframleiðandann
Menachim Golan, sem útvegaði
honum hlutverk, og hefur hann
nú leikið í 20 kvikmyndum og
er The Quest sú 17. í röðinni.
Síðar á þessu ári verða svo
frumsýndar myndirnar Maxim-
um Risk og The Exhange sem
hann hefur lokið við að leika í
og á næsta ári verður myndin
Abominable frumsýnd.
Fyrsta myndin sem Van
Darame lék í var Monaco Fore-
ver, sem gerð var 1984, en hann
sló hins vegar ekki í gegn fyrr
1987 þegar hann lék í
Bloodsport. Auk þess að
eiga heiðurinn að
söguþræðinum í
The Quest hefur
Van Damme
skrifað sögurn-
ar sem
Kickboxer
(1989), Lion-
heart (1990)
og Double
Impact
(1991)
byggðu á.
Van Damme
er kvæntur
fyrirsætunni
Darcy LaPier
og eiga þau
eins árs gamlan
son, en LaPier
er fjórða eigin-
kona Van
Damme.
hitti fjöldann allan af bardaga-
listamönnum og setti saman hóp
af þeim bestu, en við Moshe Diam-
ant framleiðandi myndarinnar
hljótum að hafa horft á þúsund
kynningarmyndbönd."
Roger Moore sem á að baki sjö
James Bond-myndir leikur sjó-
ræningjann Lord Edgar Dobbs í
The Quest. Moore hafði lengi ver-
ið í uppáhaldi hjá Van Damme
og því sá fyrsti sem honum kom
í hug í þetta hlutverk. Staðráðinn
í því að fá Moore í hlutverkið
hélt Van Damme með handritið
að myndinni heim til leikarans í
Sviss og eftir að hann hafði lesið
handritið sló Moore til.
Áður en Moore tók að sér hlut-
verk James Bond sem hann starf-
aði meira og minna við í 12 ár
hafði hann öðlast miklar vinsæld-
ir í hlutverki Dýrlingsins í sam-
nefndum sjónvarpsþáttum sem
hann lék í í sjö ár, en þeir þættir
eru enn sýndir í um 80 löndum
víða um heim. Moore tekur enn
að sér hlutverk í einni og einni