Morgunblaðið - 15.09.1996, Page 11

Morgunblaðið - 15.09.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 11 Sigrún var áður forstöðumaður félags- og þjónustumiðstöðvar aldr- aðra við Aflagranda og segir reynsl- an henni að betri félagslega þjónustu vanti fyrir þá sem dvelja alfarið heima, en einnig fyrir hina sem eru í dagvist. Hún bendir ennfremur á að félagslega þjónustan og heima- hjúkrun sé ekki samstýrð hér eins og í Danmörku og telur það mikinn galla. Vantar kvöldþjónustu Sigrún telur mikla þörf á kvöld- og helgarþjónustu fyrir heilabilaða og aðstandendur þeirra. Þegar þeir sem njóti dagvistar komi heim kl. 15-16 á daginn verði alltaf einhver að vera heima, því þeir geti farið sér að voða innanhúss eða týnst útivið. En einmitt á þessum tíma sé hvað mest um að vera í félagsmiðstöðvum aldraðra, þannig að heilbrigði mak- inn missir af þeirri tilbreytingu. „Þetta er allt öðru vísi en að vera með börn. Þau er hægt að setja í pössun," segir hún. Undir þetta sjón- armið taka Þór Halldórsson yfírlækn- ir og María Jónsdóttir. María segir að aðstandendur þurfí að geta lyft sér upp á kvöldin, til dæmis með því að fara í leikhús. Ekki væri verra að þeir gætu fengið að sofa óáreittir alla nóttina og jafnvel að sofa út daginn eftir. Ekki getur þó hver sem er gengið inn í þetta hlutverk, því sérstaka þekkingu þarf á eðli sjúk- dómsins. Vandi aðstandenda minnissjúkl- inga er sá að sjúkdómurinn heltekur fjölskylduna, sem getur ekki litið af hinum heilabilaða augnablik. Þeir ráfa um húsið allar nætur og hvíldin verður ákaflega skrykkjótt og lítil. Fleiri en einn aðstandandi benti á að umönnunin lenti yfirleitt á einum ættingja og þegar beðið væri um hjálp hentaði það yfirleitt ekki við- komandi á þeim tíma. Smám saman hættu menn að biðja um aðstoð. „Þetta sýkir líka fjölskyldur, því auð- vitað verður pirringur út í þá ætt- ingja sem veita litla aðstoð," sagði einn ættingi. „Okkur er sagt að það sé fyrst og fremst stefna heilbrigðisyfirvalda að fólk fái að vera heima sem lengst og fái jafnvel að deyja heima. En þá sárvantar helgarþjónustu og þá er ég að tala um að fólk geti lagt aðstandendur inn frá föstudags- kvöldi fram á sunnudagskvöld. Þann- ig gætu menn kannski haft a.m.k. eina fríhelgi í mánuði eða á tveggja mánaða fresti. Þegar ég tala um þetta fæ ég oft þau svör að fjölskyld- an eigi að hjálpast að. Það vitum við afskaplega vel. Það er bara þannig að einhver einn tekur starfið að sér og hinir taka ekki ábyrgðina með. Það verður að líta á hlutina eins og þeir eru en ekki eins og æskilegast væri,“ sagði María Jónsdóttir. Þór Halldórsson segir að í raun hefði kvöld og helgar- og næturþjón- usta átt að vera komin á fyrir löngu. Bein ákvæði séu um það í lögum um málefni aldraðra að sveitarfélögin eigi að sjá um þennan þátt, en því hafi ekki verið framfylgt. „Kannski kemur þetta með heimahlynningunni sem áætluð er að tengist hjúkrunar- deild á Landakoti," sagði hann. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir segir að Félagsmálastofnun veiti kvöld- og helgarþjónustu þar sem hennar er þörf og það sé matsatriði frá ein- um einstaklingi til annars hvenær geta heimaþjónustunnar endar. Þeirri þjónustu eigi að halda áfram þar sem því verður við komið. A heimili hafi einstaklingurinn teng- ingu við minningar, ef langtíma- minnið varir enn. Þannig fylgi því umhverfisöryggi, þó því fylgi einnig óöryggi aðstandenda að vita af ein- staídingnum einum. „Þegar hins veg- ar um er að ræða vandamál á næt- urnar verðum við að hugsa til sólar- hringsvistunar. Stundum er skamm- tímadvöl úrræði og raunar er það lausn sem við komum til með að nota mun meira í náinni framtíð," sagði Sigurbjörg. Hún segir að þau pláss séu fyrir hendi í takmörkuðum mæli núna en hugmyndir séu uppi um að Qölga rýmum inni á stofnun- um í þessu skyni. Breytingar framundan Samkvæmt samkomulagi sem heilbrigðisráðherra, fjármálaráð- herra og borgarstjóri undirrituðu 28. ágúst sl. standa fyrir dyrum ýmsar breytingar á skipulagi öldrunarmála Sjúkrahúss Reykjavíkur og Land- spítalans. Þór Halldórsson yfirlækn- ir öldrunarlækningadeildar Landsp- ítalans og Pálmi V. Jónsson for- stöðulæknir öldrunarlækningasviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur eru báðir sannfærðir um að þjónusta við minn- issjúklinga verði betri eftir breyting- ar. Jón Snædal öldrunarlæknir hefur hins vegar áhyggjur af því að pláss- in verði færri og bendir á að einni deild Hátúns hafi verið lokað í sparnaðarskyni fyrir skömmu, þannig að í stað 57 plássa sem voru áður í Hátúni flytjist einungis 38-40 pláss. María Jónsdóttir segir að félagar í FAAS beri mikinn kvíðboga fyrir hvað verður þegar starfsemin verði lögð af í Hátúni. Hún bendir á að fram hafi komið í fjölmiðlum að öllu starfsfólki verði sagt upp og endur- ráðið yrði eftir þörfum. „Þarna er sumt starfsfólk ómenntað en er orðið sérhæft af langri og góðri reynslu. Það væri mikill missir ef þetta fólk fengi til dæmis ekki vinnu við umönnun heilabilaðra," sagði hún. Jón Snædal segir að misvísandi orðalag sé í samkomulagi sem heil- brigðis- og fjármálaráðherra skrif- uðu undir ásamt borgarstjóra. „Ann- ars vegar er talað um að starfsfólk haldi öllum réttindum en hins vegar er líka sagt að fólk verði endurráðið á Sjúkrahús Reykjavíkur eftir þörf- um. Við vitum ekki hvort orðalagið á að gilda. Mér er þó tjáð að þetta ófaglærða fólk, sem hér starfar, fái áfram vinnu á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur, hvað sem verður svo í reynd,“ sagði hann. Finna þarf pláss á Landspítala Undirbúningur breytinganna er hafinn og stendur til að fyrsta deild- in verði flutt í janúarbyijun 1997 og á tilfærslum að vera lokið í apríl sama ár. „Að mínu áliti er þetta fyrsta alvarlega tiiraunin til að sam- eina sjúkrahúsin," sagði Þór. Hann segir að enginn ágreiningur sé með- al fagfólks í öldrunarþjónustu þó að um ágreining geti verið að ræða milli spítalanna um peningastjórnun. Hugmyndin er að öll starfsemi sem nú fer fram í Hátúni og á Hvíta- bandi muni flytja ýmist á Landakot eða á Landspítala. Samkvæmt sam- komulaginu á að verða 20 rúma deild á Landspítala alveg eins og er á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Fossvogi og er það verkefni stjórnar Ríkisspít- alanna að finna þessa deild. Deildim- ar á Landspítala og í Fossvogi verða eins konar móðurdeildir. Þangað koma þeir sem veikastir eru líkam- lega og þurfa á náinni greiningar- vinnu, eftirliti og öryggi að halda. Þar fer fram frumgreining öldrunar- teymisins. Þangað flytast einnig aldraðir frá öðrum deildum sjúkra- húsanna, sem þurfa á hinni sérstöku teymisvinnu að halda. Þá er meining- in að á Landakoti verði þriðja eining- in, sem tekur við þeim sem eru ekki bráðveikir, t.d. þeim sem þurfa á endurhæfingu að halda. Þar verður dagspítali og tvær heilabilunardeild- ir, önnur frá Hátúni og hin frá Hvíta- bandi, auk móttökudeildar eða göngudeildar. Þar á meðal er minn- ismóttaka og fyrirhuguð móttaka fyrir einstaklinga með byltur og fleiri vandamál. Heimahlynning Á Landakoti verður ennfremur sjúkrahústengd heimahlynning, sem er nýmæli hér á landi í öldrunargeir- anum, heimahlynning krabbameins- sjúkra er þekkt starfsemi og ekki ósvipuð. „Sjúkrahústengd heima- hlynning hefur verið umdeild meðal hjúkrunarfræðinga, því þeim finnst sumum að farið sé inn á þeirra svið í heimahjúkrun. Það er misskilning- ur, því þarna er í raun tekið við þar sem þeir enda. Ef svo væri ekki yrði næsta skref að senda sjúklingana inn á bráðamóttöku. Þessi starfsemi mið- ar að því að leyfa fólki að vera heima og deyja þar,“ sagði Þór og kvað heimahlynningu einnig geta átt við um heilabilaða, sérstaklega ef þeir ættu fjölskyldu sem gæti hugsað um þá. Þór segir að á Norðurlöndum sé komin mikil reynsla á þessa starf- semi og hún spari mikið af hjúkrun- arheimilisplássum og kosti þar að auki aðeins brot af dvöl á hjúkrun- arheimili. Reynslan sýni að spurn eftir heimahlynningu þar hafi verið meiri en hægt sé að anna. „Hefð- bundin heimahjúkrun yrði starfrækt áfram, en þetta er í raun og veru Áætlað algengi heilabilaðra árin1995-2030 Heildarfjöldi minnissjúklinga á mismunandi stigi 3375 2968 80 ára og eldri 2030 2318 65 til 79 ára 938 1057 5973 árið 1995 2000 2010 2020 2030 Forsendur útreikninganna byggist á þeirri kenningu sem sýnt hefur verið fram á með rannsóknum, að með hverjum fimm árum eftir að 65 ára aldri er náð tvölfaldast tíðni þeirra sem greinast með einhverja heilabilun. Menn greinir þó á um hvaða tölur skuli notaðar í upphafi eða allt frá 1 % upp í 5%. Til að reikna út fjölda sjúklinga var tekin mannfjöldaspá fyrir tímabilið og gengið út frá því að 2% fólks á aldrinum 65-69 ára væri með heilabilun, 4% allra á aldrinum 70-74 ára, 8% þeirra sem væru 75-79 ára og þannig áfram. Gera má ráð fyrir frávikum frá þessum tölum en þær eiga þó að geta gefið hugmyndir um hvað við er að glíma. Sérstök úrræði fýrir heilabilaða á höfuðborgarsvæðinu Dagvistun Hlíðabær við Flókaqötu 18 Vitatorq við Lindaqötu 18 Sambýli Stoðheimilið Foldabær við Logafold Jfc. 7-8 Sambýlið Laugaskjól (útibú frá Skjóli) 9 Sérstakar deildir fyrir heilabilaða Grund, Rvk. vrLjr 20 Hrafnista, Rvk. {t VÉIií 30 Hvítabandið J mi 19 Hjúkrunarheimilið Eir 1) öj J Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð -Jsrnm 10 Hrafnista, Hafnarf. 1 rrr? 11 Hátún 2) , JJLMJ 18 Skjól 24 Skógbær í Mjódd 3) 19 Öldrunardeildir Víða eru heilabilaðir vistaðir inni á almennum öldrunardeildum, jafnvel á stofnunum þar sem fyrir eru sérstakar deildir ætlaðar heilabiluðum vegna þess að þær eru þá yfirfullar. Úti á landi eru heilabilaðir yfirleitt eingöngu inni á almennum deildum eða elliheimilum, en engartölur eru til um þann fjölda. Komið hefur í Ijós að um 60% sjúklinga á almennum öldrunardeildum eru með minnissjúkdóma. 1) Eina deildin sem er sérhönnuð fyrir minnissjúka frá upphafi. Allar hinar deildir hafa verið tilkomnar þannig að verið erað forða friska fólkinu frá þvi óhjákvæmilega ónæði sem verður af óróleika og rápi hinna minnislausu. 2) Ekki hugsuð sem hjukrunardeild fyrir heiiabilaða heldur að þar fari fram rannsóknir og hvildarinnlögn. 15 manns liggja nú þar inni sem biða eftir plássi á hjúkrunardeildum. 3) Hjúkrunarheimili fyrir aldraða sem verður tekið i notkun á næsta ári. Tvær deildir verða fyrir heilabilaða. Innsýn í umhverfi aðstandenda „ÞEGAR mömmu fannst hún vera farin að gera svo margar vitleysur í starfi sínu hætti hún að vinna. Þá var hún 66 ára en hafði ætlað að vinna til 67 ára aldurs. Við vorum fljót að finna skýringar og töldum að hún væri þreytt eða að aldurinn var að færast yfir, nú eða einhver önnur skýring var fundin. Það var ekki fyrr en tveimur árum síðar, þeg- ar hún týndist í nokkra klukku- tíma í hverfi sem hún þekkti vel, að fjölskyldan áttaði sig á að eitthvað alvarlegt var að,“ segir viðmælandi Morgunblaðs- ins, sem er á fimmtugsaldri. Ferlið var hefðbundið, fyrst var fengin heimilishjálp, síðan komst sjúklingurinn inn á dagvist og að lokum inn á hjúkrunar- deild. Þá hafði sjúkdómurinn gengið í mörg ár og eiginmaður- inn orðinn úrvinda. „Pabbi fór í skurðaðgerð meðan mamma var heima, svo ég tók hana að mér á meðan hann var á spítalanum. Eg hafði reyndar ætlað að taka hana heim til mín þegar hann gat ekki meira. En eftir að Iiafa ver- ið með liana þessa viku sá ég að það gekk ekki. Hún hafði misst fjarlægðar- og dýptarskyn og var sífellt að detta í stiganum." Varnar- og umkomuleysi Það sem viðmælanda blaðsins fannst þó verst var að horfa upp á varnar- og umkomuieysi móður sinar. Þó að tvö ár séu liðin frá láti hennar er greinilegt að dótt- irin á erfitt með að rifja upp þetta tímabil og hún berst við tárin. Það kemur henni sjálfri á óvart, því hún hélt hún væri búin að vinna sig út úr sorginni. „Eg tók hana stundum til mín á sunnudögum og þegar ég kom aftur með hana á deildina, stöðv- aði hún, horfði á mig hnípin eins og tveggja ára barn og sagði: „Hvað á ég svo að gera? Hvenær fer ég heim? A ég heima hér?“ Það var rosalega erfitt að horfa upp á hana þannig. Pabbi dó viku eftir að mamma var komin inn á hjúkrunarheim- ili. Við sáum eftir á að við höfð- um gert alltof miklar kröfur til hans. Hann varð útundan. Okkur fannst hann skilningslaus og óþolinmóður. Auðvitað áttum við að hlúa meira að honuni, en maður gat það ekki. Það var nóg að gera við að sinna mömmu, eigin fjölskyldu og svo að eiga við „kerfið“, hafa samband við lækna og fleira," segir hún. framlenging á þeirri aðstoð," sagði hann. Pálmi V. Jónsson segir að eftir allar breytingarnar verði búið að opna aftur nánast sama fjölda plássa og var áður. „Skerðing á plássum verður sú að sjúklingar af Heilsu- verndarstöð fara yfir á deild sem er fyrir á Landakoti. Vonandi getum við bætt okkur það upp með betra aðgengi að elliheimilis- og hjúkrunar- plássum.“ Hann segir að framan- greindar breytingar eigi við um alla öldrunarsjúklinga. Sé litið á hlut heilabilaðra sést að samkvæmt vist- unarmati er u.þ.b. helmingur allra sem fara á stofnun með heilabilun. Sé það síðan brotið niður má sjá að 80% þeirra sem fara inn á hjúkrunar- deildir eru með heilabilun á einhveiju stigi og um þriðjungur þeirra sem fara inn á þjónusturými. „Heilabilun er þannig mjög stór þáttur í viðfangs- efnum sem við erum með,“ sagði hann. Ungir með öldruðum Þeir sem greinast ungir með minn- issjúkdóma eiga hvergi sérstakt at- hvarf og verða því að dveljast á hjúkrunarheimilum eða -deildum með öldruðum. í Reykjavík greinast kannski 1-2 undir 50 ára aldri með slík einkenni á ári og_ heldur fleiri á aldrinum 50-65 ára. í farvatninu er að yngra fólki fái að dvelja á hjúkrun- arheimilinu Skógarbæ, sem Reykja- víkurborg er að byggja í Mjódd í samvinnu við Reykjavíkurdeild Rauða krossins. Reiknað er með að um mitt árið 1997 verði meðal ann- ars komin 19 rými þar fyrir heilabil- aða í tveimur mismunandi deildum. Stoðbýlið Foldabær er þriggja ára tilraunverkefni sem hófst í júní 1994. Um er að ræða einbýlishús í eigu Reykjavíkurdeildar Rauða krossins þar sem dveljast 7-8 konur og greið- ir Reykjavíkurborg laun starfsmanna samsvarandi þeirri heimaþjónustu sem konurnar hefðu fengið. Þær greiða ennfremur 55 þúsund krónur á mánuði sem dugir fyrir mat og húsaleigu, en Reykjavíkurdeildin greiðir um 1,5 milljónir króna með starfseminni á ári. Allir viðmælendur Morgunblaðsins lýstu yfir ánægju með sambýli og segja það ákjósanlegt form fyrir þá sem geta ekki lengur notast einung- is við dagvist en eru ekki komnir í þörf fyrir hjúkrunarheimili. Þór Hall- dórsson og Sigurbjörg Sigurgeirs- dóttir telja jafnvel að þörfín fyrir stoðbýli (rekin af eigin fé og með heimilishjálp) eða sambýli (rekin af daggjöldum) sé meiri en fyrir dag- vist. Þór lítur mjög til Svía í þessum efnum, en þeir hafa, eftir margra ára rannsóknir, komist að þeirri nið- urstöðu að lítil sambýli séu hentug- ust fyrir heilabilaða. Hafa Svíar byggt 300-400 sambýli á hveiju ári undanfarin ár og segir Þór það sam- bærilegt því að Islendingar opnuðu 10 sambýli árlega. Þór getur sér þess til að brýn þörf sé nú þegar fyrir 10 sambýli. Truflandi áhrif á aðra Sigurbjörg segir að heilmikla að- .stoð sé hægt að veita með dagvist og heimilisþjónustu en næturnar séu vandamál. „Það er að verða ansi brýnt að fá úrbætur fyrir þann hóp sem er heilabilaður en vel líkamlega á sig kominn. Það hefur reynst mjög erfitt að hafa slíkt fólk inni á almenn- um hjúkrunarheimilum. Það fer ekki vel saman, því það hefur slæm áhrif á sjúkdóminn og eykur ýmis erfið sjúkdómseinkenni, auk þess sem óró- leiki sem kann að fylgja sjúkdómun- um hefur truflandi áhrif á aðra íbúa.“ Það sem gerir sambýli m.a. svo ákjósanlegt er að þar geta vistmenn haft sérherbergi með eigin hlutum, sem er kannski það eina sem tengir þá við einhverjar minningar. Einnig er um að ræða heimili en ekki stofn- un. „Það má kannski lýsa því þannig að á hjúkrunarheimili dveljast vist- menn á vinnustað hjúkrunarfólksins en á sambýli vinnur hjúkrunarfólkið á heimiii vistmannanna," sagði einn aðstandandi. „Ég hefði gefið mikið fyrir að móðir mín hefði haft kost á að komast á sambýli. Ég veit að þar hefði henni liðið vel og þá hefði mér liðið vel. Samviskubitið nagar mann löngu eftir að viðkomandi er látinn, því maður veltir alltaf fyrir sér hvorí ekki hefði verið möguleiki að hafa sjúklinginn lengur heima eða gera eitthvað meira fyrir hann,“ sagði annar ættingi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.