Morgunblaðið - 15.09.1996, Page 31

Morgunblaðið - 15.09.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 31 ASOLFUR PÁLSSON + Ásólfur Pálsson fæddist í Reykjavík 10. júní 1915. Hann lést á Borgarspítalanum 2. september síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Stóra-Núpskir kj u 14. september. Þar segir í Eglu, að Haraldur konungur var beðinn að taka við „Þórólfi vegsamlega og gera hann mikinn mann með yður“. Konungur kvað svo gera skyldu, „ef mér reynist Þórólfur jafnvel mannaður sem hann er sýnum fulldrengilegur". Ég hefi lengi elt Ásólf frænda minn þessu ljósi; í það fyrsta að hann líktist á efri árum föður mín- um í útliti, og má það mér til vor- kunnar verða. Hitt, að ekki þynnast íslendinga ættir þótt nokkuð sé til Þórólfs frænda okkar. Mannaður reyndist hann ævina alla, kátur, léttur, söngvinn og viðræðufijór með sína góðu konu og barnafjöld á Ásólfsstaðabúi. Fulldrengilegur, því hann var velþenkjandi án hræsni, vildi ávallt vita hið betra og bar skjöldu fyrir menn og mál- leysingja, þótt hér sé ekki frekar rakið nema kanske í þeim léttari dúr, er endurreisa skyldi Skaft- holtsrétt fyrir 40 árum og hleðslan að hruni komin. Vildi hreppsnefndin ræða, hvort ekki væri ráð að steypa veggi. Þótti það ódýrara og að kröf- um tímans. En, spurði Asi, hvar eiga þá börnin að vera? Og hund- arnir? Gamla hraungrýtisréttin var síð- an endurhlaðin og veggir þriggja fóta breiðir eins og áður. Ásólfur líktist föður sínum Páli í öllu fasi. Um hann var sagt, að þá var sjón, er hann stóð teinréttur á hlaði gistihússins með rauðbirkið hökuskeggið út í vindinn, ræddi við hvern mann sem höfðingja og höfð- ingi sjálfur. Rétt skal drepið á ættir Ásólfs, amma hans og afi í föðurætt voru Helga Jónsdóttir, fædd 1848, og Stefán Höskulds- son, fæddur 1840, bændur á Ásólfsstöð- um. Hann var fimmti maður frá Þorvaldi prófasti Böðvarssyni frá Holti, fimmti frá Önnu, systur Jóns Steingrímssonar kon- ferensráðs, og fjórði frá Guðrúnu, systur Steingríms biskups. Móðir hans var Guðný Jónsdóttir, dótt- ir Jóns bónda á Núpi á Beruljarðar- strönd og konu hans, Þrúðar Sveinsdóttur. Ásólfur tekur við búi af föður sínum á fardögum árið 1943 og kvænist Ragnheiði Gestsdóttur frá Hæli, f. 7.2. 1918. Um hana sagði hann: Ég ætlaði mér hana alltaf. Og svo varð. í hamingjusömu lífi áttu þau börn og buru, fyrst á Ásólfsstöðum, í Reykjavík um tíma en síðan á Ásólfsstöðum aftur vel yfir hálfa öld. Dvöl þeirra hjóna í Reykjavík varð að sönnu ekki löng og farin af nauðsyn. En þau kunnu aldrei við sig í borginni og fluttust aftur austur, er heilsa leyfði, kunni og alrei við það að engin svör gáfust þegar hann bauð góðan dag í fisk- búðinni og ekki allir jafnvel mann- aðir sem áður segir. Þau hjón bjuggu síðan fyrir austan við börn og frændgarð, gesti og gangandi, frið og spekt frá miðjum aldri. Sorgin hlífði þeim lengst af, en enginn flýr hana alla. Hlýtt var ávallt með mágfólki þeirra á Hæli. Þangað ræktust vin- ar- og frændsemisböndin, og nú er yngri kynslóðin þaðan sest að sumarlangt í túnfætinum þar, sem fjölskylda Sigurðar stendur báðum fótum. Nú er þessi fulldrengilegi frændi minn genginn. Hann gat þakkað gott líf og langt, við fyrir að hafa hann. Hreggviður Stefánsson. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PETREA JÓHANNSDÓTTIR, Seljahlíð, áður Gnoðarvogi 38, lést á Borgarspítalanum þann 14. september. Útför auglýst síðar. Þorsteinn Ólason, Doris Ólason, Kristín Guðjónsdóttir, PéturÞorsteinsson, Ásdis Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sérfræðingar t Elskulegur eiginmaður og faðir okkar, ISAK SIGURÐSSON múrarameistari, Jakaseli 30, lést að heimili sínu að morgni 13. september. Gróa Sigurðardóttir, Brynjar ísaksson, Elvar fsaksson, Agnar fsaksson. í blóniaskreytinguni við öll tækilæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 t Eiginmaður minn og fósturfaðir, SKAFTI BENEDIKTSSON bóndi Hraunkoti, verður jarðsunginn frá Stafafellskirkju í Lóni, þriðjudaginn 17. september kl. 14.00. Blóntaslofa Friðjinns Suðuijandsbraut 10 108 Reykjavík * Sími 553 1099 Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um hclgar. Skreytingar fyrir öll fílefní. ..... Sigurlaug Árnadóttir, Friðrik Friðriksson og aðrir aðstandendur. Til höfunda greina TÖLUVERÐUR fjöldi aðsendra greina bíður nú birtingar í Morgun- blaðinu. Til þess að greiða fyrir því að biðtími styttist og greinar birtist skjótar en verið hefur um skeið, eru það eindregin tilmæli Morgunblaðsins til greinahöfunda, að þeir skrifí að jafnaði ekki lengri greinar en sem nemur tveimur A-4 blöðum með mesta línubili eða að hámarki 6.000 tölvuslögum. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vélrituð og vel frá gengin. Ákjósanlegast er að fá greinarnar jafnframt sendar á diskl- ingi, þ.e. að blaðinu berist bæði handrit og disklingur. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Þeir, sem þess óska, geta fengið disklingana senda til baka. Merkið disklingana vel og óskið eftir endursendingu. Ritstj. t Eiginkona mín og frænka, JARÞRÚÐUR BJARNADÓTTIR, áður Hólmgarði 39, Reykjavik, andaðist á Arnarholti föstudaginn 13. september. Sveinn Bæringsson, Reynir Ásmundsson og aðrir aðstandendur. t Systir okkar og mágkona, KATRÍN KRISTJÁNSDÓTTIR, sem lést á Hrafnistu 10. september sl., verður jarðsett frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 17. september kl. 13.30. Sigríður Kristjánsdóttir, Ragna Þ. Kristjánsdóttir, Sigrún K. Denegan, Ingveldur Guðmundsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar, ÓLAFS JÓHANNESSONAR frá Svínhóli, Systkini hins látna og fjölskyldur þeirra. + Þökkum alla þá ást, hlýju og vináttu sem okkur var sýnd við andlát og útför elskulegs sonar okkar og bróður, MAGNÚSAR ÖRLYGS LÁRUSSONAR Lárus Kjartansson, Ragnhildur Jónsdóttir, Jónfna Osk Lárusdóttir, Matthildur Lárusdóttir. + Þökkum samúð og hlýhug vegna and- láts og útfarar móður okkar, GUÐRÚNAR ÞORBJÖRNSDÓTTUR frá Siglufirði. Fyrir hönd aðstandenda Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, Björn Ingvi Sigurbjörnsson, Kjartan Orn Sigurbjörnsson. + Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, fósturmóður, tengda- móður, ömmu og tangömmu, BRYNJU SIGURÐARDÓTTUR, Eyrarvegi 20, Akureyri. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks lyflækningadeildar á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri. Magnús Stefánsson, Sigríður Jónsdóttir, Bára Stefánsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Smári Sigurðsson, Sigríður H. Stefánsdóttir, Tommy Asp, Hrafnhildur Stefánsdóttir, Kári í. Guðmann, Halldóra Stefánsdóttir, Grimur Laxdal, Gerður Oiofsson, Daði Valdimarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.