Morgunblaðið - 15.09.1996, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
HéKEFZéá {fifsmPyOAfirfA-
KÖNGU/?/^JriGg.% MBOAH
_ AUÐ.WOW
'JÓNN fZQllAZ
ÚT KAOOA
Tommi og Jenni
Ég er að velta því fyrir mér hvort ég hafi ekki Eins og, ef ég ætti bíl þyrfti ég að öllum líkindum
áhyggjur að ástæðulausu. að fara með hana i 500 km skoðun.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Eftir upp-
sagnir heilsu-
gæslulækna
Frá Guðrúnu G. Eggertsdóttur:
HVERNIG er nú staðan í Norður-
Þingeyjarsýslu, í litlum læknishér-
uðum sem m.a. hafa verið talin
byggileg vegna góðrar og öruggr-
ar heilbrigðisþjónustu? Eru þau
það énnþá? Fólk er tilbúið að flytj-
ast á þessa útkjálkastaði, sem
þeir eru gjaman nefndir, ef það
fær vinnu, húsnæði, heilbrigðis-
þjónustu og skóla, oft í þessari
forgangsröð.
Síðasta mánuð hefur heil-
brigðisþjónustan verið í upplausn.
Það hefur verið sagt: Þetta er
ekki verra ástand en það var fyrir
10 eða 15 árum. En sættir fólk
sig nú við það ástand og/eða vilj-
um við heilbrigðisstarfsmenn og
forráðamenn þjóðarinnar að það
fari í fyrra horf? Málið er, að það
er verra nú en fyrir 10-15 árum.
Á Kópaskeri, í mínu héraði, hefur
ástand ekki verið svona slæmt í
mörg ár hvað varðar læknisþjón-
ustu. Sl. 12 ár hefur verið þar
læknir staðsettur eða héraðinu
verið þjónað frá Raufarhöfn og
nokkur ár þar áður komu læknar
frá Húsavík einu sinni í viku.
Hvernig líður skjól-
stæðingum okkar?
Þeir eru óöruggir, það segja
allir, lasburða fólk sofnar ekki
rólegt, veit að það eru allt að 150
km í næsta lækni sem það veit
ekkert hver er og því síður að
hann þekki nokkuð þeirra hagi eða
fyrri sögu.
Þetta verður til þess að margir
láta sig hafa það að bíða með að
leita hjálpar, vona að læknirinn
komi einhvern tíma aftur, og þeir
hljóti að lifa þetta af.
Hvert er hlutverk starfsfólks
á heilsugæslu?
Það vitum við öll, við getum
lesið skráð markmið og við höfum
byggt upp mjög gott kerfi víðast
hvar til að ná þeim markmiðum,
meira að segja hér, á hjara verald-
ar. En nú vantar stóran hlekk í
keðjuna þannig að hjólið snýst
ekki lengur í rétta átt. Læknirinn
er farinn. Það er vonandi áfram
hægt að bjarga mannslífum, en
öll meðferð og eftirlit með sjúk-
um verður ómarkviss og sundur-
slitin.
Hvernig líður svo okkur
hjúkrunarfræðingunum sem erum
komnar á bundna gæsluvakt (eða
gíslavakt) og eigum að vera til
taks til að bjarga lífi, greina hvað
er brátt og ekki brátt, segja fólki
að það geti skroppið til Akureyrar
(sem eru 400 km fram og til baka)
t.d. til að láta líta í eyrun á barn-
inu sínu eða hvað vill og má hjúkr-
unarfræðingurinn/ljósmóðirin
gera? Má hún núna gera hluti sem
fólkið veit að hún getur og kann
og hefur áður gert undir eða eftir
leiðsögn læknis eða er hún að
ganga inn í störf læknisins? Þó
að Landlæknisembættið hafi sent
dreifibréf, dags. 31.7. 96, um
starfslýsingu hjúkrunarfræðinga
vegna uppsagna heilsugæslu-
lækna er þetta ekki alveg svona
auðvelt í framkvæmd. Ekki má
gleyma móttökuriturum, sem hafa
oft fengið misjöfn viðbrögð frá
skjólstæðingum stöðvanna, sem
vonlegt er, þegar þeim er bent á
að leita læknis einhvers staðar
annars staðar.
Vinnu við svona aðstæður er
erfitt að lýsa með orðum, en
ábyrgðin er mikil, binding algjör
við síma, þar sem að símboðar og
GSM-símar virka ekki alls staðar
í N-Þingeyjarsýslu, og það sem
er kannski sárast, er að fylgjast
með að vel uppbyggt kerfi með
góðri samvinnu starfsmanna getur
auðveldlega hrunið - og við hverja
er þá að sakast? Það kostar þjóð-
ina eitthvað að hækka grunnlaun
lækna, en fólkið metur öryggið
hærra verði en nokkrar krónur og
okkur hjúkrunarfræðingum var
kennt að öryggi væri eitt af grunn-
þörfum mannsins. Því vil ég að
lokum skora á þá aðila sem sitja
við samningaborð í þessari deilu
að komast að ásættanlegu sam-
komulagi og leysa hana hið bráð-
asta.
GUÐRÚN G. EGGERTSDÓTTIR,
hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir,
Kópaskeri.
Hvað skal segja? 13
Væri rétt að segja: Hann sagði, að báðar leiðirnar séu færar?
Svar: í slíkum dæmum þykir oftast betur fara, að annað hvort
séu báðar sagnirnar í nútíð eða báðar í þátíð. Hér færi vel að
segja annað hvort: Hann segir, að báðar leiðirnar séu færar,
eða: Hann sagði, að báðar leiðimar væru færar.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt f upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sérrétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.