Morgunblaðið - 15.09.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.09.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 37 BRÉF TIL BLAÐSINS Ný lækningastofa Sannleikanum hagrætt Frá Samtökunum Lífsvog: VEGNA athugasemdar frá land- lækni sem birtist í Morgunblaðinu þann 14. ágúst sl. þar sem vegið er að Guðmundi Karli Snæbjörnssyni á ómaklegan hátt, að mati íbúa í um- ræddu bæjarfélagi, vilja Samtökin Lífsvog koma á framfæri athuga- semdum íbúa á staðnum um málið, er hafa borist Lífsvog. Þar er vakin athygli á því að íbúar í umræddu bæjarfélagi þekki vel til þessa máls, og óski eftir því að eftirfarandi stað- reyndir komi fram. 1. í fjögur ár starfaði Guðmundur Karl hér og hafði Landlæknisemb- ættið allan þann tíma vitneskju um áfengissýki starfsbróður hans. Ég og fjöldi annarra hér vitum að þrátt fyrir ítrekaðar kvartanir aðhafðist Landlæknisembættið ekkert í mál- inu. Einnig er okkur fullkunnugt um hversu ítrekað Guðmundur Karl reyndi að koma sjúkum starfsbróður sínum í áfengismeðferð en án árang- urs. Til viðbótar þurfti Guðmundur Karl að leggja á sig margfalda vinnu við að taka vaktir sem starfsbróðir ■hans var ekki fær um að sinna sökum sjúkleika síns.“ 2. í svargrein Landlæknis er sannleikanum hagrætt á villandi hátt landlækni í hag. Samanber svar land- læknis í 2. lið um að landlæknir hafi kallað hinn áfengissjúka lækni úr starfi og hann gengist undir meðferð. Við íbúar hér vitum um aðdrag- anda þess að viðkomandi var lagður inn á sjúkrahús. Aðdragandinn var sá, að litlu mátti muna að voðaat- burður gerðist hér af hans völdum. Öllum er kunnugt um að það voru löggæslumenn bæjarins sem urðu að grípa til sinna ráða og síðan færa viðkomandi á sjúkrahús. Landlækn- isembættið kom þar hvergi nærri og kallaði manninn ekki úr starfí þrátt fyrir atburði þessa. Umræddur lækn- ir hóf síðan störf að nýju að lokinni stuttri dvöl á sjúkrahúsi. Vert er að taka fram að fyrrgreint gerist rúmu ári eftir að Guðmundur Karl sendir skriflega tilkynningu til landlæknis um vímuefnavandamál umrædds læknis, en hann var þá hættur störf- um hér og farinn til Svíþjóðar, er þessir atburðir gerast. Við erum mörg hér í bæjarfélaginu er vitum staðreyndir málsins, þar sem segja má að neyðarástand hafi ríkt þegar verst var. Sannleiksgildi staðhæfinga þessara má því stað- festa á ýmsan hátt, meðal annars urðu þessir atburðir tilefni blaða- frétta og skrifa um ástandið hér.“ 3. Varðandi 4. lið í svari land- læknis, segir íbúi þau ósannindi. Það bárust kvartanir til landlæknis vegna aðgerðaleysis þeirra. Þessar kvartan- ir bárust meðal annars frá heilbrigð- isstarfsfólki hér á staðnum. Einnig kemur 5. liður í svari landlæknis mér og fleirum spánskt fyrir sjónir og sýnist sem verið sé að reyna að klóra yfir sannleikann á sömu nótum og ofangreind svör sýna.“ 4. í kjölfar svargreinar landlækn- is í Morgunblaðinu var haft samband við Matthías Halldórsson aðstoðar- landlækni, þar sem landlæknir var í sumarfríi erlendis frá og með 11. ágúst. Sem íbúi þessa staðar blö- skraði mér við að lesa svör landlækn- is. Reyndi því að ræða þessi svör við Matthías aðstoðarlandlækni. Hann brást hinn versti við og skellti síman- um á. Orðbragð hans er ekki til að hafa eftir og ekki sæmandi opinber- um starfsmanni. Það að erindi mitt ylli honum slíku uppnámi kom mér á óvart. Réttlætiskennd minni var misboðið, og sá ég mig til þess knú- inn að koma upplýsingum um málið á framfæri." 5. Vil ég fyrir hönd margra þakka Guðmundi Karli Snæbjömssyni lækni fyrir drengskap og samvisku- semi í starfi sínu hér. Vann hann starf sitt af dug samanber þau fjöl- mörgu björgunarstörf sem hann hef- ur giftusamlega innt af hendi við erfiðar og hættulegar aðstæður. Það þarf mikið hugrekki og þor til þess að horfast í augu við sann- leikann og í framhaldi af því sýna sanna umhyggju. Eiginleika þessa þarf í ríkum mæli þegar við er að etja hinn illvíga marghöfða þurs áfengissýkinnar og afleiðingar hans, ekki síst á þetta við þegar hann hef- ur tekið sér sæti ofarlega í þjóðfé- lagsstiganum." Samtökin Lífsvog koma hér með á framfæri upplýsingum íbúa í bæj- arfélagi því er Guðmundur Karl Snæ- björnsson starfaði í, áður en hann hóf störf í Svíþjóð. Bæjarbúar treysta sér ekki til þess að birta nöfn sín í þessu tilviki af ótta við álíka afleið- ingar og Guðmundur Karl rakti ítar- lega í greinum sínum í Morgunblað- inu, þ.e. að hlutaðeigandi verði flæmdir burt úr bæjarfélaginu. Lífsvog hefur haldið þeirri skoðun hátt á lofti að hér skorti mjög á að virku eftirliti sé sinnt sem sjtyldi, gagnvart læknum og heilbrigðis- starfsfólki, er einhverra hluta vegna eru ekki starfi sínu til sóma. Hlutverk Landlæknisembættisins er að sinna slíku eftirliti og ber að standa sig samkvæmt Iögum þar að lútandi, geri embættið það hins veg- ar ekki sem skyldi, hlýtur ráðherra að þurfa að taka slíkt til endurskoð- unar. Sparnaður sannleikans í þess- um efnum mun því fyrr eða seinna ferðast heim til föðurhúsanna. Emb- ætti landlæknis, líkt og önnur opin- ber embætti, hlýtur að þurfa að að- laga starfshætti sína að kröfum nú- tímans, ekki hvað síst ætti gildi þjón- ustulundar við borgarana að vera í hávegum haft á þessum vettvangi. Á þessu sviði jafnt sem öðrum þarf að breyta um og bæta, og því fyrr því betra. F.H. SAMTAKANNA LÍFSVOGAR, GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR, ÁSDÍS FRÍMANNSDÓTTIR. Höfum opnað lækningastofu í Domus Medica, Egilsgötu 3. Tfmapantanir eru teknar daglega frá kl. 9—17, í síma 563 1055. Hildur Harðardóttir, læknir. Sérgrein: Kvenlækningar. Karl Ólafsson, læknir. Sérgrein: Kvenlækningar og krabbameinslækningar kvenna. Kvöld- og helgarnámskeið. Upplýsingar í síma 554 4637 eða í náttúruvöruversluninni Yggdrasil, Kárastíg 1, Rvík., sími 562 4082. Hildur Guðmundsdóttir. r Topptilboð Öklaskór úr rúskinni Teg: LA BASH , Litur: Svartur #| Stærðir: 31-40 Líka barnastærðir 2.495,- Verð kr. Ath: Einníg til öklaskór úr striga P ó s t s e n d u m s a m d æ g u r s l)ppskórinn 'oppskórinn ■ Veltusundi við Ingólfstorg Sími 552 1212. Austurstræti 20 Sími 552 2727. * Ford Escort Ghia '97 Það er notalegt að vera vel búinn! Ghia er heitið á lúxusútgáfu Ford Escort. Hann stendur vissulega undir nafni þar setn liann er órúlega vel búinn eins og sést á búnaðarlýsingunni hér til hliðar. Þrátt fyrir þennan ríkulega búnað er Escort Chia á verði sem stenst hvaða samanburð sem er. Esœrt Ghia er fáanlegur með tvciniurvélarsfaerðum, 1,4 og 1,6 Iítra, baeði 5 gíra og sjálfskiptur. Það er sannarlega notalcgt að aka um á vel búnum Ford Escort Ghia. Hafðu stunband við sölumcnn okkar og reynsluaktu einum strax! Vökvastýri Rafknúnar rúöur að framan Fjarstýrö Höfuðpúöar samiæsing framan og aftan Upphituð framruða aðeins hjá Ford! Utvarp og geislaspiiari með þjófovörn Viðarlíki é mæíaborðí Ltknarbolgur \ styri Upphttoöír og rafknúntr hítöars.pegiar Bein fjóí/nnspýtlng - fyrir alla! Ford Escort Ghia '97 kostar frá: 1.438.000 kr. Fyrstir koma fyrstir fá... ...kaupauka! BRIMB0RG FAXAFENI 8 • SlMI 515 7010 I » I i f t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.