Morgunblaðið - 15.09.1996, Síða 52

Morgunblaðið - 15.09.1996, Síða 52
varða víðtæk fjármálaþjónusta Landsbanki íslands Banki allra landsmanna MGRGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl I SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Yfirgnæfandi líkur taldar á samningum við Columbia um álversbyggingu Framkvæmdir gætu hafist í ársbyrjun ’97 YFIRGNÆFANDI líkur eru nú taldar á að samn- ingar takist milli bandaríska fyrirtækisins Col- umbia Ventures Corporation og íslenskra stjórn- valda um byggingu 60 þúsund tonna álvers á Grundartanga og standa vonir til að fram- kvæmdir geti hafist þegar í janúar á næsta ári. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgun- blaðsins liggja nú þegar fyrir drög að raforku- samningi sem aðilar telja viðunandi. En legið *hefur fyrir að heildarsamningarnir um álvers- bygginguna muni fyrst og fremst ráðast af orku- samningnum og því er talið ólíklegt að samning- ar um aðra þætti komi í veg fyrir framkvæmdina. Stjórn Landsvirkjunar hefur í vikunni fjallað um niðurstöður fundar sem forstjóri og aðstoðar- forstjóri Landsvirkjunar áttu í síðustu viku með stjórnendum Columbia. Þá hefur ríkisstjórninni verið gerð grein fyrir stöðu málsins og er búið að setja upp áætlun um næstu skref á samninga- ferlinum. 10 -11 milljarða fjárfesting Heildarfjárfesting vegna álvers Columbia Ventures á Grundartanga, ef af verður, er áætl- uð um 10-11,5 milljarðar króna og yrði starfs- mannafjöldi þess um 100. Um er að ræða 60 þúsund tonna álver sem samsvarar stækkun álversins í Straumsvík. Al- verið var keypt í Þýskalandi en hefur verið tek- ið niður og bíður þess að verða reist á nýjum stað. Miðað er við að það geti hafið framleiðslu árið 1998 og er orkuþörfin áætluð 900 gígavatt- stundir á ári. Til þess að tryggja orku fyrir álverið, og fyrir- hugaða stækkun Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, þarf Landsvirkjun að ráðast í töluverðar framkvæmdir og að auki er gert ráð fyrir að semja við Reykjavíkurborg um raforku frá Nesjavöllum. í áætlunum Landsvirkjunar er gert ráð fyrir að ef af þeim samningum verði geti Nesjavellir I hafíð raforkuframleiðslu haustið 1988 og Nesjavellir II í ársbyrjun 1999. Einnig er miðað við að Kröfluvirkjun verði stækkuð og Sultar- tangavirkjun komist í gagnið síðla árs 1999. Heilabilun Faraldur næstu aldar MEÐ VAXANDI lífslíkum og þar með auknum fjölda aldraðra fer heilabiluðum eða minnissjúkum jafnt og þétt fjölgandi. Pálmi V. Jónsson forstöðulæknir öldr- unarþjónustu Sjúkrahúss Reykjavíkur heldur því fram að heilabilun verði faraldur 21. ald- arinnar. Engin heildarúttekt hefur far- ið fram á íslandi á tíðni heilabil- unar en sé miðað við nágranna- löndin má gera ráð fyrir að á íslandi sé fjöldinn 1.500-3.000 manns. Ef skoðuð er mannfjöldaspá fram til ársins 2030 og miðað við sömu tíðni heilabilunar er áætlað að um aldamótin verði fjöldi minnissjúklinga orðinn 1.600-3.200 og árið 2030 verði þeir í kringum 3-6 þúsund. ■ Faraldur/10-ll Stóraukinn útflutningur Borgarplasts Ný vél þrefald- ar fram- leiðsluna BORGARPLAST á Seltjarnamesi hefur á fyrstu 8 mánuðum þessa árs flutt út 170% meira af vörum en það gerði á sama tíma á síð- asta ári. Aðallega eru flutt út fiski- ^ker, hefðbundin og endurvinnan- leg, og nemur sá útflutningur 36% af heildarframleiðslu fyrirtækis- ins. Einnig er fyrirtækið að taka í notkun eina stærstu og öflugustu hverfisteypuvél í Evrópu. Búnað- urinn þrefaldar núverandi fram- leiðslugetu fyrirtækisins. Borgarplast hefur einnig sterka stöðu á innanlandsmarkaði því árið 1991 var markaðshlutdeildin 22% en er nú um 60%. Að sögn Guðna Þórðarsonar framkvæmda- stjóra Borgarplasts hefur þessi árangur náðst fyrst og fremst með stöðugri vöruþróun og með því að tekið var upp gæðakerfi. Velta fyrirtækisins hefur aukist um 30% frá því á sama tíma í fyrra. Fyrir- tækið er 25 ára um þessar mundir. ■ í mikilli sókn/22. Morgunblaðið/Árni Sæberg Metaðsókn að sjáv- arútvegssýningu MIKLAR skemmur hafa verið reistar fyrir austan Laugardals- höll vegna sjávarútvegssýningar- innar sem hefst þar á miðvikudag- inn. Allt stefnir í metaðsókn að sýningunni og búist er við 2.500 erlendum gestum. Um 700 innlend og erlend fyrir- tæki taka þátt < sýningunni. Öll hótel og gistiheimili á höfuð- borgarsvæðinu eru fullbókuð sýn- ingardagana. Magnús Oddsson ferðamálastjóri áætlar að gjald- eyristekjur af útlendingum sem koma á sýninguna verði á bilinu 3-400 milljónir. ■ Útlit fyrir/Cl Morgunblaðið/Golli Blíðuveður á Húsavík EINMUNA veðurblíða hefur verið á Norður- og Austurlandi að und- anförnu eða Majorkaveður eins og heimamenn kalla það. Gróður er venju fremur blómlegur og berjaspretta góð. Hefur fólk not- fært sér það óspart. Þá gerist veður og ekki betra til leita. Húsa- vík er að flestra mati með falleg- ustu bæjum á Islandi. Höfnin er spegilslétt og kvöldbirtan gefur bænum magnaðan svip.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.