Morgunblaðið - 25.09.1996, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Tvískiptar vaktir í Ráðhúsbakaríinu á Akranesi
Baka kaffí-
snúða fyrir
höfuðborg-
arbúa
Akranesi. Morgunblaðið.
RÁÐHÚSBAKARÍIÐ á Akra-
nesi, sem fyrr á þessu ári hóf
starfrækslu sína, hefur að
undanförnu annast framleiðslu
á kaffisnúðum fyrir Kexverk-
smiðjuna Frón hf. sem seldir
eru í stórmarkaði á Reykjavík-
ursvæðinu. Þessi framleiðsla
hefur skapað mikla atvinnu hjá
fyrirtækinu og er að jafnaði
unnið á tvískiptum vöktum
hvern dag.
Það eru þrír athafnamenn
sem eiga og reka Ráðhúsbak-
aríið hf. og vinna þeir allir að
framleiðslunni. Þeir hafa komið
sér vel fyrir í hinu nýja sljórn-
sýsluhúsi við Stillholt í rúmgóðu
og vistlegu húsnæði og búið
fyrirtæki sitt fullkomnum tækj-
um til rekstursins. Auk hefð-
bundinnar framleiðslu hafa þeir
séð um bakstur á pitsubotnum
fyrir Engjaás hf. í Borgarnesi
sem framleiðir „Óla partí pits-
ur“. Þá hafa þeir nú einnig haf-
ið framleiðslu á kaffisnúðum í
ákveðinni sölulinu sem Kex-
verksmiðjan Frón hefur sett af
stað í samvinnu við Hagkaup
hf. og Bónusverslanirnar.
Að sögn Hafsteins Gunnars-
sonar, eins eiganda Ráðhúsbak-
arísins, hefur mikið verið að
gera þjá þeim frá því þeir opn-
uðu í byijun ársins og eftir að
þessi nýja framleiðslulína fór
af stað hafa þeir vart haft und-
an á venjulegum vinnutíma og
því orðið að vinna á tvískiptum
vöktum.
Andlát
OLAFUR
BJÖRNSSON
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
EIGENDUR Ráðhúsbakarísins. Áki Jónsson,
Heimir Jónsson og Hafsteinn Gunnarsson.
Refsivert að neita
um aðgang vegna
litarháttar
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær
fyrir sitt ieiti frumvarp tii breytinga
á lögum sem gerir refsivert að neita
fólki um aðgang, vörur eða þjónustu
á grundvelli þjóðernis, litarháttar,
trúarbragða eða kynhneigðar. Varð-
ar slíkt athæfi sektum eða allt að
sex mánaða varðhaldi verði frum-
varpið að lögum.
Um er að ræða breytingu á lögum
um vernd gegn mismunun og verður
greinin númer 180 í almennum
hegningarlögum ef frumvarpið hlýt-
ur samþykki á þingi að sögn Bjarg-
ar Thorarensen, lögfræðings og
deildarstjóra í dómsmálaráðuneyti.
Einnig felur frumvarpið í sér við-
bót við 233. grein A í hegningarlög-
um. Þar er nú gert refsivert að ráð-
ast opinberlega á mann eða hóp
manna með háði, rógi, smánun, ógn-
un eða á annan hátt vegna þjóðem-
is, iitarháttar, kynþáttar, trúarbragða
eða kynhneigðar. Varðar brotið sekt-
um eða varðhaldi til allt að tveggja
ára. í eldra ákvæði er einungis minnst
á hóp manna og kynhneigðar ekki
getið að Bjargar sögn.
Hagfræðingar Alþýðusambands íslands og Vinnuveitandasambands íslands
Skiptar skoðanir á aðgerð-
um Seðlabanka Islands
GYLFI Arnbjörnsson, hagfræðingur
ASÍ, telur aðgerðir Seðlabankans
full harkalegar miðað við tilefni en
Hannes G. Sigurðsson, hagfræðing-
ur VSÍ, segir aðgerðirnar skiljanleg-
ar og í samræmi við þau varnaðar-
orð sem VSÍ setti fram í seinasta
mánuði í bréfi til fjármálaráðherra.
Skilaboð til sljórnvalda
„Við bentum á að ef fjárlögin
yrðu ekki afgreidd með umtalsverð-
um afgangi, væri hætta á því að
vextir myndu hækka, til þess að
hamla á móti þessum þenslueinkenn-
um sem hafa verið í hagkerfinu og
miklum og vaxandi viðskiptahaila.
Hann stafar einkum af verulegri
aukningu einkaneyslu. Þótt kaup-
mátturinn hafi aukist á síðasta ári
og sé að aukast á þessu ári þá er
aukningin á neyslunni langt umfram
það, þannig að þarna virðist vera
um að ræða verulega lánsfjármagn-
aða neysluaukningu. Jafnframt
hljóta þetta að vera skilaboð frá
yfirvöldum peningamála til þing-
manna og stjórnvalda að beita rík-
isfjármálunum til þess að vega á
móti því jafnvægisleysi sem er í
hagkerfinu," segir Hannes.
Gera má ráð fyrir
verðlagshækkun í kjölfarið
„Ég tel þessar aðgerðir full harka-
legar miðað við efni og ástæður. Það
eru uppi mjög óvissar vísbendingar
um það sem liggur til grundvallar
þessum ákvörðunum," segir Gylfi.
Hann segir að eðlilegra hefði verið
að Seðlabankinn beindi því til bank-
anna að halda aftur af lánveitingum
til neyslu. Hann bendir á að Seðla-
bankinn styðjist við tiltölulega veikar
vísbendingar. Menn hafi áhyggjur
af því að verðbólgan sé lítillega
meiri hér á landi en í nágrannalönd-
unum. Hann segir að ASI hafi einn-
ig lýst áhyggjum af verðlagsþróun-
inni og bent á aðra þætti sem stjórn-
völd ættu að taka á í tengslum við
framkvæmd GATT-samninga og
verðlag á landbúnaðarvörum.
„Þessar aðgerðir hafa áhrif á
greiðslubyrði heimila og fyrirtækja.
Aðgerðirnar auka kostnað þeirra og
gefa tilefni til enn frekari kostnaðar-
hækkana. Á einhvern hátt verður
verslunin, sem kaupir út á vöruvíxla
að fjármagna þetta ef bankarnir
hækka vextina um mánaðamótin.
Það er því eðlilegt að gera ráð fyrir
verðlagshækkun fyrst í stað en lang-
tímaáhrifin kunna hins vegar að
verða minni eftirspurn og hugsan-
lega minni verðlagsáhrif til lengdar
litið,“ segir Gylfi.
Hann segist ekki hafa orðið var
við ótvíræð hættumerki í gengismál-
um. „Við gerum ekki athugasemdir
við að Seðlabankinn sinni sínu hlut-
verki og hafi áhyggjur af verðlags-
málum en það er hins vegar engin
þensla í hagkerfinu, í þeim skilningi
sem menn leggja í það torráðna
hagfræðilega hugtak,“ segir hann.
ÓLAFUR Bjömsson, prentari, er
látmn á 54. aldursári.
Ólafur var fæddur 27. september
árið 1942 í Reykjavík. Hann hóf
prentnám í Prentsmiðju Þjóðviijans
árið 1964. Sveinspróf í setningu tók
hann í Prentsmiðju Þjóðviljans árið
1968. Hann vann áfram í Prent-
smiðju Þjóðviljans þar til prent-
smiðjan var lögð niður árið 1992.
Ólafur hætti þá störfum vegna veik-
inda.
Hann var í ritstjórn Prentnemans
1966, í stjórn Iðnnemasambands
íslands 1967-68 og í ritstjóm Iðn-
nemans 1967-1968. í bókasafns-
nefnd Hins íslenska prentarafélags
var hann árið 1969.
Ólafur var meðstjórnandi í stjóm
HÍP 1974-1978 og gjaldkeri 1978-
1980. Hann var í varastjóm Félags
bókagerðarmanna árið 1980 og
1983-1988 og meðstjómandi 198U
1982 og gjaldkeri 1990-1991. í
trúnaðarráði FBM var Ólafur 1983-
1989 og í laganefnd frá 1980.
Eftirlifandi eiginkona Ólafs er
Elínborg Jónsdóttir.
Sýslumaðurinn
á ísafirði
Innbrota-
málum að
fjölga
ÓLAFUR Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Isafirði, segir
að flest bendi til að þjófnaður
sé vaxandi vandamál á lands-
byggðinni. Fimm nokkuð stór
þjófnaðarmál hafa komið upp
á Isafirði og nágrenni á síð-
ustu 12 mánuðum, þar af er
eitt óupplýst.
„Það sem er að gerast er
að innbrot, þar sem stolið er
allmiklum verðmætum, sem
manni sýnist hafa verið bund-
in við höfuðborgarsvæðið
fram undir síðasta ár, eru að
færast út á land. Þetta er
vandamál sem er í vexti. Ég
treysti mér ekki til að svara
því hvort það er meira um
innbrot á ísafirði en í svipuð-
um bæjarfélögum annars
staðar á landinu, en þau virð-
ast hafa verið fleiri síðustu
mánuðina," sagði Ólafur
Helgi.
Olafur Helgi sagði að flest
þessara stærri innbrotamála,
sem komið hefðu upp á
ísafirði, tengdust fíkniefna-
notkun. Menn væru að brjót-
ast inn til að fjármagna fíkni-
efnakaup.
AIls hafa 69 innbrotamál
verið tilkynnt til lögreglunnar
á ísafirði frá ársbyrjun 1995.
Atvinnuleysi I júní, júlí og ágúst 1996
Hlutfall atvinnulausra
af heildarvinnuafli
Á höfuðborgarsvæðinu standa
3.587 atvinnulausir á bak
viðtöluna 4,4% í ágúst
og fækkaði um 251
fráþvííjúlí. tt,5s 0,6v. H VEST-
Alls voru 5.325 atvinnu- ■ I B FIRÐI(
lausirálandinuöllu j J Á
i júli og hafði
fækkað um 66
2,6% 2,6%
LANDS-
BYÖGOIN
\ 1 \ J
3K NORDUR-
7% 2j% á
EYSTRA AUSTURLAND
frá þvi í júlí.
J J Á
Atvinnulausir færri
I ÁGÚSTMÁNUÐI síðastliðnum voru
skráðir rúmlega 115 þúsund atvinnu-
leysisdagar á landinu öllu, rúmlega
41 þúsund dagar hjá körlum og tæp-
lega 74 þúsund dagar hjá konum.
Skráðum atvinnuleysisdögum hefur
fækkað um rúmlega eitt þúsund frá
mánuðinum á undan og um rúmlega
12 þúsund frá ágústmánuði 1995.
Atvinnuleysisdagar í ágúst síðast-
liðnum jafngilda því að 5.325 manns
hafi að meðaltali verið á atvinnuleys-
isskrá í mánuðinum. Þar af eru 1.914
karlar og 3.411 konur. Þessar tölur
jafngilda 3,8% af áætluðum mann-
afla á vinnumarkaði samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunar eða 2,4% hjá körl-
um og 5,9% hjá konum. Það eru að
meðaltali um 66 færri atvinnulausir
en í síðasta mánuði en um 555 færri
en í ágúst í fyrra. Síðasta virka dag
ágústmánaðar voru 5.635 manns á
atvinnuleysisskrá á landinu öllu en
það er um 12 færri en í lok júlímán-
aðar. Síðastliðna 12 mánuði voru um
5.925 manns að meðaltali atvinnu-
lausir eða um 4,5% en árið 1995
voru um 6.538 manns að meðaltali
atvinnulausir eða um 5%.
Atvinnuástandið versnar alls stað-
l
i
l
i
i
I
i
í
I
ar eitthvað á öilum atvinnusvæðum
frá því í júlí nema á höfuðborgar-
svæðinu en fækkunin þar vegur upp
fjölgunina á landsbyggðinni. Hlut-
fallsleg fjölgun atvinnulausra er
mest á Vestfjörðum. Hlutfallslegt
atvinnuleysi er enn mest á höfuð-
borgarsvæðinu og minnst á Vest-
fjörðum. Atvinnuleysið er nú alls
staðar minna en í ágúst í fyrra nema
á Austurlandi, á Norðurlandi-vestra
og á Vestfjörðum.
Búast má við að atvinnuleysi
minnki nokkuð í september og geti
orðið á bilinu 3,2% til 3,6%.