Morgunblaðið - 25.09.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996 21
Norrænir músíkdagar hefjast í kvöld
Sinfóníuhljómsveit-
in ríður á vaðið
NORRÆNIR músíkdagar 1996
hefjast í kvöld klukkan 20 með
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Háskólabíói. Á hátíðinni,
sem stendur til 1. október, verða
sextán tónleikar með verkum fyrir
einleikshljóðfæri, sinfóníuhljóm-
sveit og allt þar á
milli.
Á efnisskrá tón-
leikanna í kvöld verða
verkin Árhringur eft-
ir Hauk Tómasson,
Regenbogen eftir
Bent Lorentzen, Oaije
eftir Per Lindgren og
Sinfónía nr. 2 eftir
John Speight. Hljómsveitarstjóri
verður Anne Manson, einleikari
Martin Schuster og einsöngvari
Julie Kennard.
Sinfóníuhljómsveitin hefur
ákveðið að bjóða áskrifendum sín-
um ókeypis aðgang á tónleika á
meðan húsrúm leyfir. Nægilegt
verður að framvísa áskriftarskír-
teinum við innganginn, en tekið
skal fram að sæti verða ekki núm-
eruð.
Hátíðinni verður
síðan fram haldið í
hádeginu á morgun,
fimmtudag, á tónleik-
um í Norræna húsinu,
þar sem Snorri Sigfús
Birgisson, tónskáld
og píanóleikari, Steef
van Oousterhoot
slagverksleikari og Þórhallur Birg-
isson fiðluleikari verða í sviðsljós-
inu. Hefjast tónleikarnir klukkan
12.30.
Evrópsku bókmennta-
verðlaununum úthlutað
Bjornvig, Rushdie
og Ransmayer
hrepptu hnossið
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DANSKA skáldið Thorkild Bjornvig
hlaut þýðingarverðlaun Evrópu-
sambandsins, Aristeion-verðlaunin,
fyrir þýðingar á verkum þýska
skáldsins Rainer Maria Rilke.
Breski rithöfundurinn Salman
Rushdie og austurríski rithöfundur-
inn Christoph Ransmayer skipta í
þetta skipti bókmenntaverðlaunun-
um með sér. Þetta er í sjöunda
skiptið sem verðlaununum er út-
hlutað. Hver verðlaunahafi fær
rúma 1,5 milljónir íslenskra króna.
Verðlaununum verður úthlutað í
Kaupmannahöfn um miðjan nóvem-
ber, þar sem Kaupmannahöfn er í
ár menningarhöfuðborg Evrópu.
Thorkild Bjornvig er fæddur
1918 og er bæði þekkt skáld og
þýðandi í heimalandi sínu. Bjornvig
batt snemma trúss sitt við skáld-
skapargyðjuna og var einn af
nokkrum ungum skáldum, sem voru
nánir vinir dönsku skáldkonunnar
Karen Blixen. Um þá vináttu og
vináttuslitin hefur Bjornvig síðan
skrifað bókina Pagten, Sáttmálann.
Bjornvig hefur fyrir löngu hlotið
viðurkenningar fyrir ævilanga
glímu við þýðingar sínar á þýskum
skáldum eins og Rilke og Hölderlin.
Salman Rushdie,_ rithöfundurinn
sem prestaveldið í íran vill feigan,
þarf ekki að kynna lesendum. Verð-
launin nú hlýtur hann fyrir skáld-
sögu sína The Moor’s Last Sigh,
sem væntanleg er í íslenskri þýð-
ingu undir heitinu Síðasta andvarp
márans. Christoph Ransmayer
vakti nánast óttablandna hrifningu
í hinum þýskumælandi heimi þegar
skáldasaga hans Morbus Kithara
kom út á síðasta ári. Sagan gerist
í Þýskalandi eftirstríðsáranna en á
þeirri forsendu að Marshall-hjálpin
fengist ekki. í Þýskalandi sögunnar
varð því ekkert efnahagsundur og
sýnin er heldur myrk.
Aristeion-verðlaunin verða af-
hent við hátíðlega athöfn í Glypo-
tekinu í Kaupmannahöfn 14. nóv-
ember þegar danska bókamessan í
Forum verður haldin. Ekki er ljóst
hvort Rushdie mætir. Hann hefur
reyndar nokkrum sinnum skotið
upp kollinum í Kaupmannahöfn og
sést nú oftar á opinberum vettvangi
en áður enda segist hann beijast
fyrir að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir
hótunina sem hann á yfir höfði sér.
Verk Halldórs Péturs-
sonar í Ráðhúsinu
OPNUÐ VERÐ-
UR sýning á
verkum Halldórs
Péturssonar,
myndlistar-
manns, í Ráðhúsi
Reyjavíkur á
morgun, fimmtu-
dag, en hann
hefði orðið 80 ára
þann dag.
Halldór nam
myndlist við
Kunsthaandvær-
kerskolen í
Kaupmannahöfn
en hélt svo til
frekara náms í
Bandaríkjunum.
Eftir fjögurra ára
dvöl þar fór hann
íslands þar sem hann stundaði list
sína í meir en 30
ár. Verk hans
eiga rætur sínar
í íslenskri sagna-
hefð; myndefni
hans vom fengin
bæði úr fornsög-
unum og þjóð-
sögunum en
einnig úr daglega
lífinu. Einkum
var hann þekktur
fyrir hestamynd-
ir sínar og teikn-
ingar sem birtust
_ . , í blöðum og tíma-
HESTAR voru e.tt af uppa- ritum svo sem
haldsmyndefnum Haildors af einvígi pishers
Péturssonar. og Spasskys f
Reykjavík.
aftur heim til Sýningin stendur til 10. október.
Risaflauta
TÓNLISTARMENN við æfingar fyrir Colourscape- ið hefur verið á en hugmyndina áttu tónskáldin De-
tónlistarhátíðina, sem útleggjast má sem Litalags- sorger og Casserley. Flutningur verksins fór svo fram
hátíðin. Leika þeir m.a. á stærstu panflautu sem leik- í 100 herbergja völundarhúsi sem reist var á hátíðinni.
Tónlist fyrir alla
I fimmta sinn
FIMMTA starfsár verkefnisins Tón-
list fyrir alla er hafið með tónleika-
syrpum tveggja danskra tónlistar-
hópa.
Ny Dansk Saxofonkvartet leikur
fyrir öll skólabörn í Árnessýslu tii
föstudags og heldur svo almenna fjöl-
skyldutónleika í lok heimsóknarinnar
í Fjölbrautaskóla Suðurlands föstu-
daginn 27. september kl. 20.30.
Einnig hélt kvartettinn tónleika í
Listasafni Siguijóns Ólafssonar á
þriðjudagskvöld.
New Jungle Trio ásamt trommu-
leikaranum Hamid Drake frá Banda-
ríkjunum leikur í vikunni fyrir skóla-
börn í Reykjanesbæ og Grindavík og
heldur jafnframt almenna tónleika
fyrir böm og fullorðna í Menning-
armiðstöðinni í Grindavík miðviku-
daginn 25. september kl. 20 og í
Flughóteli Keflavíkur föstudag 27.
september kl. 20.
Islenskir tónlistarmenn hefja svo
tónleikasyrpur sínar fyrir börn í
Kópavogi, á Vesturlandi og í Árnes-.
sýslu í nóvembermánuði en umfang
verkefnisins verður með áþekkum
hætti og síðastliðinn vetur þegar
haldnir voru tæplega 200 tónleikar
fyrir á níunda þúsund skólabarna.
Ny Dansk Saxofonkvartet var
stofnaður 1986. Kvartettinn skipa
Jorgen Bove sópransaxófón, Christi-
an Hougaard altsaxófón, Torben
Enghoff tenórsaxófón og Per Eg-
holm barítonsaxófón.
New Jungle Trio með gítarleikar-
ann Pierre Dorge fremstan í flokki.
Með Dorge leika þar Irene Becker
píanó og hljómborð og Morten Carls-
en saxófón o.fl. en auk þess kemur
gestur frá Chicago til liðs við tríóið,
Hamid Drake trommuleikari.
* * *
SONCVARAR ELDGLEYPAR ’
CRÍNARAR SJÓNHVERFINGAR
DANSARAR Xf~
msmmmmm
FYRSTA KVÖLDIÐ í HÆFILEIKAKEPPNINNI & ■ A
„STJÖRNUR MORGUNDAGSJNS" . * *
FOSTUDAGINN 2J. SEPTEMBER N.K. A HOTEL ISLANDI á fyrsta kvöidinu
Bjartmann Þórðarson,
söngvari
Davíð Art Sigurðsson,
söngvari
Cuðfinna Hugrún lónasdóttir, Cuðrún Óla lónsdóttir,
söngkona söngkona
lórunn Díana Olsen, Albert C. (ónsson og Magnús Nanna Kristín Jóhannsdóttir, Sólveig Kaldalóns,
söngkona G. Jónsson, söngvarar söngkona songkona
LTVÍatse&ill
Stroqanoff í rjómasósu
með kartöjluskífum,
salati oij brauði.
-----•-------
Hrranskur
fcirsuberjaístoppur
með súkkulaðisósu.
Verð aðeins kr. 1.950.- í mat
og á sýningu.
Verð kr. 1.000,- á sýningu.
Húsið opnað kl. 20:00.
Sýningin hefst kl. 22.00.
KYNNIR:
Hrafnhildur Halldórsdóttir.
ENCIN DÓMNEFND:
Cestir í sal daema um
hæfileika keppendanna!
UNDIRLEIKUR:
Hljómsveit Cunnars Þórðarsonar.
Nýir
keppendur
geta enn látið
skrá sig,
í síma 568-7111
HOTU, jATAND
Miða- og borðapantanir í síma 568-7111
Hljomsveitm Sixties
leikur fyrir dansi
eftir sýningu.
Birgitta Huld Brynjarsdóttir,
söngkona
Hverjir fjórir keppenda komast á úrslitakvöldið?