Morgunblaðið - 25.09.1996, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Evrópskt menningar-
setur í Reykholti?
Á RÁÐSTEFNU um menningararf-
inn í tilefni menningararfsdags
Evrópu sem haldinn var í Þjóð-
minjasafninu um helgina varpaði
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra fram hugmynd um menning-
arsetur í Reykholti. Björn sagði
m.a. í ræðu sinni:
„Spyija má, hvort ekki sé ástæða
til þess hér á landi að koma á fót
evrópsku menningarsetri þar sem
stunduð væru miðaldafræði í svip-
uðu náttúrulegu umhverfi og fræði-
menn fortíðar nutu en þar sem
nýjustu upplýsingatækni yrði beitt
til að treysta alþjóðleg tengsl. Á
slíkum stað væri unnt að stunda
rannsóknir á fornleifum og öðrum
minjum. Finnst mér ástæða til að
velta því fyrir sér hvort í Reykholti
í Borgarfírði mætti ekki stofna slíkt
menningarsetur. Hvergi ætti það
frekar heima en þar sem Snorri bjó
forðum."
Merki Snorra á loft
í ræðu sinni hvatti Björn Bjarna-
son þá sem taka þátt í menningar-
samstarfi Evrópuþjóða að leggja á
ráðin um hvernig best verði unnið
að framkvæmd slíkrar hugmyndar.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þar sem óljóst væri um
framtíð skólastarfs í Reykholti yrði
að finna ný viðfangsefni fyrir stað-
inn. Bókmenntir og miðaldafræði
ættu þar vel heima. Mikils virði
væri að halda merki Snorra Sturlu-
sonar á loft.
í Bifröst í Borgarfirði væri há-
skóli og menntastofnanir á háskóla-
stigi á Varmalandi og Hvanneyri.
SAMANTEKT FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR Á SÖLU BÓKA í ÁGÚST 1996. UNNIÐ
FYRIR MORGUNBLAÐIÐ, FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA OG FÉLAG BÓKA-
OG RITFANGAVERSLANA.
Bóksölulisti
1SNJALLYRÐI
Kjartan Öm Ólafsson tók saman. Útg. Vaka-Helgafell.
6VID URÐARBRUNN
Vilborg Davíðsdóttir. Útg. Mál og menning.
2PAN0RAMA
Páll Stefánsson. Útg. Iceland Review.
7-8
HÆGUR VALS í CEDAR BEND
Robert James Waller. Útg. Vaka-Helgafell.
3ENGLAR ALHEIMSINS
Einar Már Guðmundsson. Útg. Mál og Menning.
7-8
STÓRA GARÐABÓKIN
Ritstj. Ágvst H. Bjarnason. Útg. Forlagið.
4ÍSLENSKA vegahandbókin
Ritstj. Örlygur Hálfdanarson. Útg. íslenska bókaútgáfan.
VILLTIR MATSVEPPIR Á ÍSLANDI
Ása Margrét Ásgrímsdóttir og Guðrún Magnúsdóttir. Myndir:
Anna Fjóla Gísladóttir. Útg. Mál og menning.
9ICELAND THE WARM COUNTRY
Torfi H. Tulinius. Myndir: Sigurgeir Sigurjónsson.
Útg. Forlagið.
4 A SKUGGAVERUR
B Charles Grant. Útg. Prenthúsið.
Einstakir flokkar:
Skáldverk
1 ENGLAR ALHEIMSINS
Einar Már Guðmundsson.
Útg. Mál og menning.
2 VIÐ URÐARBRUNN
Vilborg Davíðsdóttir.
Útg. Mál og menning.
3 HÆGUR VALS í
CEDAR BEND
Robert James Waller.
Útg. Vaka-Helgafell.
4 SKUGGAVERUR
Charles Grant.
Útg. Prenthúsið.
5 CONTES POPULAIRES
Útg. Iceland Review.
6 HÁVAMÁL
Útg. Vaka-Helgafell.
7 ÍSLANDSKLUKKAN
Halldór Kiljan Laxness.
Útg. Vaka-Helgafell.
8 FALSARINN
Björn Th. Björnsson.
Útg. Mál og menning.
9 FUGLÁ GARÐSTAURNUM
Halldór Kiljan Laxness.
Útg. Vaka-Helgafell.
10 DJÁKNINN Á MYRKÁ 09
flslri islenskar þjóðsögur.
Útg. Vaka-Helgafell.
Almennt efni
1 SNJALLYRÐI-
tllvitnanlr og spakmæli frá
ýmsum tlmum
Kjartan Örn Ólafsson tók saman.
Útg. Vaka-Heigafell.
2 PANORAMA
Páll Stefánsson.
Útg. Ieeland Review.
3 ÍSLENSKA VEGA-
HANDBÓKIN
Ritstj. Örlygur Hálfdanarson.
Útg. íslenska bókaútgáfan.
4 VILLTIR MATSVEPPIR
Á ÍSLANDI
Ása Margrét Ásgrímsdóttir og
Guðrún Magnúsdóttir.
Myndir: Anna Fjóla Gísladóttir.
Útg. Mál og menning.
5 STÓRA GARÐABÓKIN
Ritstj. Ágúst H. Bjarnason.
Útg. Forlagið.
6 ICELAND THE WARM
COUNTRY
Torfi H. Tulinius.
Myndir: Sigurgeir Siguijónsson.
Útg. Forlagið.
7 HVAÐ SEGJA STJÖRN-
URNAR UM ÞIG?
Grétar Oddsson tók saman.
Útg. Vaka-Helgafell.
8 STJÓRNARSKRÁ
LÝÐVELDISINS ÍSLANDS
Útg. Vaka-Helgafell.
9 ISLANDE LE PAYS
CHALEUREUX DU NORD
Torfí H. Tulinius.
Myndir: Sigurgeir Sigurjónsson.
Útg. Forlagið.
-f O ÍSLAND - TÖFRANDI LAND
Útg. Örn og Örlygur.
Börn og unglingar
1 LÚLLI LITLI LUNDI Kristín Marti. Útg. Fjölvaútgáfan.
2 STÚFUR Harald Öglænd. Útg. Bókaútgáfan Björk.
3 HLINI KÓNGSSON OG FLEIRI ÍSLENSK ÆVINTYRI Sverrír Jakobsson tóksaman. Útg. Vaka-Helgafell hf.
4 PALLI VAR EINN í HEIMINUM Jens Sigsgaard. Útg. Bókaútgáfan Björk.
5 ÍSLENSKU DÝRIN Myndir. Halldór Pétursson. Útg. Setberg.
6 DODDI í ÞJÓFALEIT Enid Blyton. Útg. Myndabókaútgáfan.
7-8 FLOWERS ON THE ROOF Ingibjörg Sigurðardóttir. Myndir: Brian Pilkington. Útg. Mál og menning.
7-8 LITLI PRINSINN Antoine de Saint-Exupéry. Útg. Mál og menning.
9 TOMMI OG JENNI — LEIKFÉLAGAR Útg. Myndabókaútgáfan.
10-11 HJÁ AFA OG ÖMMU Lawrence diFiorí. Útg. Bókaútgáfan Björk.
10-11 STUBBUR Bent og Grete Janus Nielsen. Útg. Bókaútgáfan Björk.
Borgarsteingervingur
BRESKI listamaðurinn Donald Hyams spókar sig fyrir framan
„Borgarsteingerving" sinn. Listaverkið er VW-bjalla frá árinu
1965 sem þakin hefur verið steinsteypu. Henni hefur verið komið
fyrir við St. James Street í miðborg Lundúna.
John 220volta
KVIKMYNPIR
Bíóborgin, Bíóhöllin
FYRIRBÆRIÐ („PHENO-
MENON'j ★★ Vi
Leikstjóri John Turtletaub. Handrits-
höfundur Gerald Di Pago. Kvik-
myndíitökustjóri Phedon Papamic-
hael. Tónlist Thomas Newman. Aðal-
leikendur John Travolta, Kyra
Sedgwick, Forest Whitaker, Robert
Duvall, Richard Kiley, Tony Guaro.
Touchstone. Bandarísk. 1996.123 m.
ÞAÐ ER mikið stuð á John Trav-
olta í Fyrirbærinu, bæði er allur
leikur og framkoma þessarar aðlað-
andi stórstjörnu sannarlega raf-
mögnuð, aukinheldur fær persónan
sem hann túlkar, bifvélavirkinn
George Malley, strauma utanúr
himinhvolfínu sem eiga eftir að
gjörbylta lífi hans. Það gerist á 37.
afmælisdag Georges sem bregður
sér úr veislunni að fá sér frískt loft,
abrakadabra, ljós birtis á himni sem
lýstur afmælisbarnið og hleður
hann afburðagáfum og alvísum
skilningi. Atburðurinn hefur hinar
nargvíslegustu breytingar í för með
sér. George verður afar fróðleiks-
fús, les fjöldann allan af fræðibók-
um um hin ólíklegustu efni, lærir
portúgölsku á dagstund, gerist fjöl-
hæfur uppfinningamaður, finnur á
sér yfirvofandi náttúruhamfarir,
o.s.frv. Er þó alltaf sami ljúflingur-
inn og vill hvers manns götu greiða.
Gengur þó illa að vinna hjarta Lace
(Kyra Sedgwick), sinnar drauma-
dísar. Hin nýfengna viska hefur
einnig slæmar hliðar. Gömlu vinirn-
ir hans og nágrannarnir fara að líta
á hann sem fyrirbæri og þá lendir
hann í útistöðum við Alríkislögregl-
una.
Innblásturinn er greinilega úr
smiðju Capra, umgjörðin og inni-
haldið. Turtletaub kemst þó ekki
með tærnar þar sem Capra hafði
hælana, engu að síður er Fyrirbær-
ið um margt prýðisgóð skemmtun,
hlý og notaleg. Handritið þó yfir-
borðskennt og myndin tekur stefnu
sem er ekki sem heppilegust þegar
Alríkislögreglan kemur til skjal-
anna og væmnin heldur innreið
sína. Hún ristir ekki djúpt (sú hefur
örugglega aldrei verið ætlunin),
hinsvegar er hún dæmigerð „feel-
good“-mynd, einog þeir segja fyrir
vestan, og gjörsamlega áhættulaust
að mæla með henni fyrir alla fjöl-
skyldumeðlimi.
Langstærsti kostur Fyrirbærisins
er Travolta, það geislar frá honum
góðmennskan, George bifvélavirki
er aðlaðandi strákur í túlkun Tra-
volta, sem gerir hann heilan og trú-
verðugan, þrátt fyrir öll ólíkindin.
Hann á skilið Óskarsverðlaunatil-
nefningu, en sjálfsagt verður mynd-
in of léttvæg fundin til að komast
í slíkt úrtak. Annar kostur við Fyrir-
bærið er vinahópurinn sem saman-
stendur af George, héraðslækninum
„Doc“ (Robert Duvall), og Pope
svínabónda, en Forest Whitaker fer
einkar vel með hlutverk hans. Á
hinn bógin er Sedgwick alltof
kuldaleg og fjarlæg lengst af sem
óskadraumurinn til að vera sann-
færandi, það skrifast að hluta til á
fráhrindandi persónugerð handrits-
höfundar.
Myndir um „fyrirbæri" skjóta af
og til upp kollinum, skemmst að
minnast Powder, sem gefur þessari
að sumu leyti lítið eftir. Ein sú
besta var þó Charly, þar sem Cliff
Robertson fór á kostum í hlutverki
einfeldnings sem hlýtur ofurgáfur
(líkt 0g Geoprge) um sinn fyrir til-
stuðlan vísindanna.
Sæbjörn Valdimarsson
Málþing um
Birting
FELAG íslenskra háskólakvenna
heldur í samvinnu við Heimspeki-
deild Háskóla íslands málþing um
Voltaire og Birting í Odda, fimmtu-
daginn 26. september kl. 20 í stofu
101. Fyrirlesari er Þorsteinn Gylfa-
son prófessor.
Tilefni þessa málþings um Volta-
ire er, að Hafnarfjarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör ætlar í byijun
október að frumflytja leikgerð að
Birtingi. Hilmar Jónsson leikari og
leikstjóri, sem annaðist leikgerðina
ásamt Gunnar Helgasyni og Erling
Jóhannessyni og leikhópnum, mun
einnig segja frá því hvernig leik-
gerðin var unnin.
Birtingur kom fyrst út árið 1759
í Oarís, Genf og víðar. Halldór Lax-
ness þýddi verkið árið 1945. Útgef-
andi var Helgafell. Hið íslenska
bókmenntafélag gaf svo Birting út
árið 1975 með inngangi og skýring-
um eftir Þorstein Gylfason.
Fundurinn er öllum opinn og
aðgangseyrir er enginn.