Morgunblaðið - 25.09.1996, Qupperneq 52
•UYIINDAI
HÁTÆKNI TIL FRAMFARA
M Tæknival
SKEIFUNNI 17
SlMI 550-4000 • FAX 550-4001
Happaþrennu fyrír afganginn
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
51 íbúðí
byggingu
Fyrirhugað álver Columbia Ventures Corp. á Grundartanga
Samkomulag um aðal-
atriði orkusamnings
LANDSVIRKJUN og Columbia
Ventures Corp. hafa náð samkomu-
lagi um grundvallaratriði raforku-
samnings vegna fyrirhugaðrar
60.000 tonna álverksmiðju Columb-
ia á Grundartanga. Samningurinn
var samþykktur í stjórn Landsvirkj-
unar í fyrradag. Kenneth Peterson,
eigandi og forstjóri Columbia Vent-
ures, segir að þar með sé einn erfið-
asti hjallinn að baki, en enn sé eft-
ir að ganga frá ýmsum öðrum þátt-
um.
Fyrirhugaður raforkusamningur
við Columbia mun gilda til ársloka
2018. Fyrirtækið hyggst hefja rekst-
ur álversins á miðju ári 1998. Því
verður aðeins tryggð orka ti! að reka
verksmiðjuna með hálfum afköstum
í fyrstu, en með fullum afköstum frá
ársbyijun 1999. Orkuþörf álversins
verður um 900 gígavattstundir á
ári, eða álíka og vegna stækkunar
álversins í Straumsvík.
Orkuverðið leyndarmál
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir orkuverð til
Coiumbia viðskiptaleyndarmál og að
það verði ekki gert opinbert af sam-
keppnisástæðum. Það verði hins veg-
ar tengt alþjóðlegri þróun á álverði
og muni skila Landsvirkjun viðunandi
hagnaði af fjárfestingum vegna raf-
orkusamningsins á komandi árum.
Landsvirkjun mun ráðast í virkj-
unarframkvæmdir víða um land til
að tryggja orku til nýja álversins og
anna vaxandi orkuþörf.
Rafmagnið aðeins einn þáttur
Kenneth Peterson sagði í samtali
við Morgunblaðið að viðræður Col-
umbia og Landsvirkjunar undanfarn-
ar vikur hefðu borið góðan ávöxt.
„Árangurinn er samkomulag um
grundvallaratriði samnings um verð-
lagningu orkunnar til nýja álversins,
sem við viljum byggja á íslandi,"
segir Peterson. „Þetta þýðir ekki að
það sé hafið yfir vafa að verksmiðjan
verði byggð. Rafmagnið er mikilvæg-
ur þáttur, en ekki sá eini.“
Peterson segir að meðal óleystra
þátta séu t.d. skattlagning, aðföng
verksmiðjunnar og verkalýðsmál.
„Sumir þessir þættir eru á valdi ís-
lenzkra aðila, aðrir ekki,“ segir hann.
„ísland hefur sýnt fram á samkeppn-
ishæfni sína og við stefnum eindreg-
ið að því að verksmiðjan verði byggð
á íslandi.“
Samið um orku frá Reykjavík
Borgarráð samþykkti í gær samn-
ing Reykjavíkurborgar við Lands-
virkjun um raforkuframleiðslu á
Nesjavöllum, þar sem Hitaveita
Reykjavíkur mun reisa tvær virkjan-
ir. Hitaveitan skuldbindur sig til að
sjá Landsvirkjun fyrir rafmagni, sem
meðal annars verður endurselt til
álversins.
Stjórn Landsvirkjunar samþykkti
þennan samning í fyrradag með at-
kvæðum allra stjórnarmanna nema
Sturlu Böðvarssonar, sem greiddi
atkvæði á móti, og Svavars Gests-
sonar, sem sat hjá. Sturla segir að
Reykjavíkurborg fái of mikið í sinn
hlut með samningnum, en fjárhags-
staða Landsvirkjunar veikist og af
þeim sökum geti hún ekki lækkað
verð á almennum raforkumarkaði
eða sinnt skyldu til að jafna orku-
verð.
■ Stofnkostnaður/4
Súðavík. Morgunblaðið.
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
51 íbúð í nýju Súðavíkurþorpi.
Ágúst Kr. Björnsson sveitarstjóri
vonast til að hafin verði vinna
við 55 íbúðir fyrir jól og flutt inn
í 37. Talið er að búið hafi verið
í urn 60 íbúðum í Súðavík fyrir
snjóflóð.
Tveir smiðir frá Selfossi,
Erlingur Haraldsson og Gísli Á.
Jónsson, voru í gær að smíða
grind að húsi i nýja þorpinu.
„Það var lítið að gera heima svo
við komum hingað í hálfan mán-
uð í nóvember í fyrra en höfum
ekki farið enn,“ sagði Erlingur.
Þeir hafa unnið á vegum staðar-
smiðsins, Garðars Sigurgeirsson-
ar, við að færa hús og byggja
ný og segja skemmtilegt að fá
að taka þátt í að byggja nýtt
þorp alveg frá grunni. Þá brugðu
þeir sér niður í togarann Bessa
í fyrravetur þegar lítið var að
gera og tóku þátt í breytingum
á honum.
Fyrsti snjórinn kom í fjöllin
við Álftafjörð í fyrrinótt en þeir
félagar vonuðu að tíðin héldist
góð áfram. Að neðan sjásttví-
menningarnir við vinnu sína.
Sljórn Dagsbrúnar markar stefnu
í komandi samningaviðræðum
Veitír VMSÍ
ekki umboð
HALLDÓR Björnsson, formaður
Dagsbrúnar, segir að stjórn félags-
ins hafí markað þá stefnu að af-
henda Verkamannasambandi ís-
lands ekki samningsumboðið að svo
stöddu heldur stefna að því að ná
kjarasamningum án samflots með
öðrum félögum. Dagsbrún stefni
hins vegar að því að vera samstiga
verkakvennaféiaginu Framsókn, en
félögin hafa verið í viðræðum um
sameiningu.
Verkamannasambandið hefur
sent aðildarfélögum sínum bréf þar
sem óskað er eftir að þau veiti sam-
bandinu umboð til að gera viðræðu-
áætlanir við vinnuveitendur. Stjórn
Dagsbrúnar, en félagið er stærsta
félagið innan VMSÍ, hefur flaliað um
málið og segir Halldór að stjórnin
hafí samþykkt að láta umboðið ekki
frá sér heldur óska sjálft eftir um-
ræðum við vinnuveitendur um gerð
viðræðuáætlana. Bréf þessa efnis
verði sent vinnuveitendum í næstu
viku. Stjórn Framsóknar er enn með
málið til skoðunar.
Halldór segir að innan stjórnar
Dagsbrúnar sé það sjónarmið ríkj-
andi að rétt sé af félaginu að fara
sjálft með samningsumboðið í kom-
andi kjaraviðræðum. Samningsstað-
an geti hins vegar breyst og það
kunni að vera að félagið endurskoði
afstöðu sína síðar.
Stærsta verkalýðsfélag landsins,
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur,
hefur einnig markað þá stefnu að
semja sjálft við vinnuveitendur um
gerð viðræðuáætlunar.
■ Fylgi viðleiðsígandilukku/12
Morgunblaðið/RAX
130 hóp-
ferðabílar
óskoðaðir
ÁÆTLAÐ er að trassað hafi
verið að fara með hátt í 130
fólksflutningabíla, þar á með-
al nokkra skólabíla, í aðal-
skoðun á tilskildum tíma.
í skólabílaskoðun er athug-
að hvort sérreglur um skóla-
bíla séu uppfylltar. Heimilt
er að flytja fleiri börn í skóla-
bílum en farþegatala gefur
til kynna. Engu að síður verða
að vera öryggisbelti í skóla-
bílum og þeir verða að vera
sérstaklega merktir.
80% hlutabréfa Norður-
tangans boðin til sölu
EIGENDUR 80% hlutafjár í Hraðfrystihúsinu
Norðurtanganum hf. á ísafirði hafa boðið hluta-
bréf sín til sölu. Ekki er vitað hvaða árangri sölu-
tilraunir hafa skilað.
Bréfin boðin völdum fjárfestum
Stjórnendur Norðurtangans vilja ekki veita upp-
lýsingar um málið en samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hafa forsvarsmenn fjögurra hluthafa-
hópa af fimm veitt Ráðgjafarþjónustu Jóns Atla
Kristjánssonar umboð til sölu á eignarhlutum sín-
um sem samtals nema um 80% hlutafjár. Hafa
bréfin þegar verið boðin völdum fjárfestum, bæði
á höfuðborgarsvæðinu og á Vestfjörðum, meðal
annars í tengslum við sjávarútvegssýninguna.
Auk mikilla fasteigna á ísafirði og eignarhluta
í öðrum félögum á Norðurtanginn frystiskipið
Orra og tæplega 3.000 lesta kvóta í þorskígildum
reiknað. Fyrirtækið hefur átt í rekstrarerfiðleikum,
m.a. vegna mikilla skulda, lélegrar afkomu land-
frystingar og bilana í skipinu. Þannig varð mikið
tap á rekstrinum á síðasta ári. Norðurtanginn
hefur ekki verið þátttakandi í viðræðum um sam-
einingu sjávarútvegsfyrirtækja á Vestfjörðum að
undanförnu en samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins má líta á sölutilraunimar sem innlegg í
sameiningarumræðuna fyrir vestan, auk þess sem
eigendurnir séu tilbúnir til að selja.
Ásgeir og Hörður Guðbjartssynir skipstjórar eru
í forsvari fyrir þá hluthafa sem ekki hafa boðið
bréf sín til sölu. Til snarpra orðaskipta kom á
aðalfundi Norðurtangans í fyrrakvöld í framhaldi
af gagnrýni þeirra bræðra. Ásgeir segir að gagn-
rýni þeirra beinist að fyrri stjórnendum fyrirtækis-
ins fyrir margvísleg mistök í rekstrinum en teng-
ist ekki sölutilraunum meirihlutans. Segist hann
verða glaður ef þeim tekst að selja en málið snú-
ist ekki um það. Mistök liðinna ára komi nú fram
í miklu tapi sem hann vill þó ekki segja frá.