Morgunblaðið - 29.09.1996, Qupperneq 1
128 SÍÐUR B/C/D/E
222. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Pilti refsað
fyrir koss
New York. The Daily Telegraph.
SEX ára dreng hefur verið refsað fyr-
ir „kynferðislega áreitni" í skóla í
Norður-Karólínu eftir að hafa kysst
bekkjarsystur sína á kinnina. Pilturinn
hélt því fram að stúlkan hefði beðið
um kossinn en því trúði skólastjórinn
ekki. Hann úrskurðaði því að drengur-
inn hefði brotið reglur skólans um kyn-
ferðislega áreitni, en þær ná til allra
nemendanna sem eru á aldrinum 6-18
ára.
Piltinum var gert að vera einn í ann-
arri skólastofu daginn sem hann var
staðinn að verki og hann varð því af
leikjatíma og ísveislu fyrir nemendur
með hæstu einkunn fyrir mætingu.
„Það er ekki við hæfi að sex ára
barn kyssi annað sex ára barn. Óviðun-
andi hegðun er óviðunandi hver sem
aldurinn er,“ sagði talsmaður fræðslu-
yfirvalda í umdæmi skólans. Hann bætti
við að reglurnar kæmu skýrt fram í
handbók skólanna. Allir foreldrarnir
hefðu undirritað eyðublöð þar sem þeir
féllust á að börn þeirra yrðu að virða
reglurnar.
Móðir drengsins kvaðst ætla að óska
eftir því að öll tíu ára börn og yngri
yrðu undanþegin reglunum. Hún sagði
að ef drengurinn yrði staðinn að því
að kyssa stúlku aftur kynni honum að
verða vísað úr skólanum. „Hvað veit
sex ára barn um kynferðislega áreitni?"
Palestínskir lögreglumenn reyna að hindra átök við ísraela
HAUST
Morgunblaðið/RAX
Kapp lagt á að knýja
fram leiðtogafund
Jerúsalem. Reuter.
PALESTÍNSKIR lögreglumenn reyndu að
koma í veg fyrir frekari átök á Vesturbakk-
anum og Gaza-svæðinu í gær og bandarísk-
ir embættismenn lögðu kapp á að knýja fram
leiðtogafund ísraela og Palestínumanna til
að binda enda á blóðsúthellingarnar.
Palestínsku lögreglumennirnir komu í veg
fyrir að hundruð palestínskra ungmenná
gætu gengið að ísraelskri varðstöð í Ram-
allah, norður af Jerúsalem, þar sem mann-
skæðustu átökin síðustu íjóra daga áttu sér
stað. Átökin hafa kostað 68 manns lífið -
54 Palestínumenn og 14 ísraela - frá því
þau hófust á miðvikudag vegna þeirrar
ákvörðunar Israelsstjórnar að opna jarðgöng
í námunda við helgan stað múslima í
Jerúsalem.
Bandarískir embættismenn héldu til Gaza
i því skyni að hvetja Yasser Arafat, leiðtoga
palestínsku sjálfstjórnarsvæðanna, til að fall-
ast á fund með Benjamin Netanyahu, forsæt-
isráðherra Israels.
Haft var eftir stjórnarerindrekum að Net-
anyahu hefði hafnað tillögu Egypta um að
fundurinn yrði í Kaíró. Arafat hefði neitað
að ræða við Netanyahu einan og vildi að
utanríkisráðherra Bandaríkjanna eða fulltrúi
hans sæti fundinn. Netanyahu vildi hins
vegar aðeins tvíhliða viðræður.
Arafat var ennfremur sagður hafa sett
það skilyrði fyrir fundinum að Netanyahu
lokaði jarðgöngunum.
Aftökur í Kabúl
Kabúl. Reuter.
ÍSLAMSKA hreyfingin Taleban, sem náði
Kabúl á sitt vald á föstudag, kvaðst í gær
hafa tekið tvo samstarfsmenn Najibullah,
fyrrverandi forseta Afganistans, af lífi og
sagði að leit væri hafin að eftirmanni hans,
Burhanuddin Rabbani, norðan við afgönsku
höfuðborgina.
Útvarpið í Kabúl sagði að tveir „glæpa-
menn“ úr röðum samstarfsmanna Naji-
bullah, lífvörður og ráðgjafi, hefðu verið
hengdir á föstudagskvöld. Najibullah og
bróðir hans voru teknir af lífi á föstudag
og lík þeirra voru enn höfð til sýnis í Kabúl
í gær.
Stjórn Rabbanis hvatti ráðamenn í ríkjum
heims til að viðurkenna ekki íslamska ríkis-
ráðið sem Taleban hefur skipað til að stjórna
landinu. Liðsmenn hreyfingarinnar héldu
uppi eftirliti á götum Kabúl en ekki kom til
átaka.
Stórgrýtismelur 22
varö að sælureit
Fórnum ekki ðmetan-
legum verðmætum
Ofnasmiðjan hf
minnst í ofnum