Morgunblaðið - 09.10.1996, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.10.1996, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Kolbeinseyjardeilan Viðræður í dag VIÐRÆÐUR danskra og ís- lenzkra embættismanna, um af- mörkun hafsvæðanna milli ís- lands og Grænlands annars veg- ar og Islands og Færeyja hins vegar, fara fram í utanríkisráðu- neytinu í Reykjavík í dag. Þetta er þriðji fundur emb- ættismanna ríkjanna eftir að Danir kvörtuðu undan því að dönskum fiskiskipum var vísað af umdeildu hafsvæði norður af Kolbeinsey í sumar. Danir viður- kenna ekki Kolbeinsey og Hval- bak sem grunnlínupunkta ís- lenzku lögsögunnar. Þátttakendur í viðræðunum fyrir íslands hönd eru þeir Tóm- as H. Heiðar, aðstoðarþjóðrétt- arfræðingur utanríkisráðuneyt- isins, og Hannes Heimisson sendiráðunautur. í dönsku við- ræðunefndinni eru tveir emb- ættismenn utanríkisráðuneytis- ins, þau Tyge Lehmann og Vi- beke Pagh, Gideon Jeremiassen frá grænlenzku heimastjórninni og Klaus Kappel, sendiherra Danmerkur á lslandi. Frumvarp um brunatrygg- ingagjald IÐNAÐAR- og viðskiptaráð- herra kynnti í gær í ríkisstjóm frumvarp um breytingar á lögum um brunatryggingar. Að sögn Halldórs J. Kristjáns- sonar ráðuneytisstjóra er til- gangurinn að skjóta styrkari lagastoðum undir sérstakt gjald á brunatryggingar. Menn hafi talið sig vera búna að styrkja ákvæði þar að lútandi með lögum frá 1994, en þau hljóðuðu þannig að heimilt væri með reglugerð að húseigendur greiddu umrætt gjald. Það gangi hins vegar ekki nú og þurfi af- dráttarlausar lagaheimildir til skattlagningar. Umboðsmaður Alþingis hafí gert athugasemdir og brugðist sé við þeim með þessum hætti. Gjald þetta nemur 0,025 prómillum af brunatryggingum og hefur verið innheimt í tals- verðan tíma, en það rennur til fasteignaskráningar sem er í höndum Fasteignamats ríkisins. Tvö innbrot TVÖ innbrot voru tilkynnt til lögreglu í fyrrakvöld og var tals- verðum verðmætum stolið í báð- um tilvikum. Annað innbrotið var framið á Njálsgötu og var tilkynnt um það skömmu fyrir klukkan 23 á mánudagskvöld. Höfðu þjófarnir þar á brott með sér sjónvarp, hljómflutningstæki, málverk og geisladiska. Hitt innbrotið var framið á Óðinsgötu, þar sem stoiið var skartgripum, útvarpi, GSM-síma og fleiru. MEÐ blaðinu í dag fylgir fjögurra síðna auglýsingablað frá BYKO. FRÉTTIR Morgunblaðið/Þorkell STARFSMENN Orkustofnunar hafa útbúið svokallað orgel, en það eru vinnuvettlingar sem eru fylltir af steinum og hengdir í mismun- andi hæð neðan á brýrnar svo hægt sé að fylgjast með hvort vatn vex í Skeiðará. Meðal erlendra fréttamanna sem fylgjast með fram- vindu mála á Skeiðarársandi eru þýskir sjónvarpsmenn frá ZDR sem hér sjást mynda Skeiðará. Bráðnauðsynlegt að mæla hæð Grímsvatna HELGI Björnsson, jöklafræðing- ur á Raunvísindastofnun Háskól- ans, segir bráðnauðsynlegt að mæla yfirborðshæð Grímsvatna hið fyrsta til þess að fá betri vís- bendingar um hvað sé að gerast þar og á gossvæðinu á Vatna- jökli, en ekki hefur verið hægt að mæla vatnshæðina vegna veð- urs síðan á laugardag. Ekki reyndist unnt að fljúga upp að Grímsvötnum í gær en vonast er eftir því að hægt verði að mæla vatnshæðina i dag. Á laugardag áætluðu vísinda- menn hæð Grímsvatna um 1.485 metra. Vatnshæðin hafði þá risið 10-15 metra að jafnaði á dag frá þvi gos hófst. Helgi Björnsson sagði þá að héldist óbreytt ris og innrennsli til Grímsvatna myndi ísstíflan, sem varnar því að hlaup hefjist, fljóta upp fyrir miðja þessa viku. Slíkt hefur ekki gerst í hefðbundnum Skeið- arárhlaupum því að áður en til þess hefur komið hefur vatnið náð að brjóta sér leið í gegnum veikleika undir ísstíflunni. Helgi sagði í gær að yfirborðs- hæð Grímsvatna þyrfti að ná rúmlega 1.500 metra hæð áður en stíflan flyti upp. Það sem menn vissu ekki væri hvort vötn- in hefðu náð þessari hæð eða yfirleitt hvort þau gætu það. í fyrsta lagi væri ekki vitað hvort innrennsli í Grímsvötn hefði haldist óbreytt síðustu daga. í öðru lagi væri hugsanlegt að vatnsstaða yfir eldstöðvunum norðan við Grímsvötn væri ekki nógu há til þess að Grímsvötn gætu lyfst upp í 1.500 metra. Aukið bræðsluvatn myndi þá ein- göngu auka flatarmál vatns- geymisins og ekki hæð hans. Ef svo væri gæti ísstíflan ekki flotið upp. Hlaup myndi þá hefjast á sama hátt og í síðustu hlaupum, þ.e.a.s. þegar vatnið hefði náð að bijóta sér leið í gegnum veik- leika undir ísstíflunni. Hvað það tæki langan tima vissu vísinda- menn ekki. Menn gætu komist nær því sem væri að gerast und- ir jöklinum með því að mæla hæð Grímsvatna og vonandi yrði hægt að gera þar mælingar síðar ídag. Jökullinn hækkar Stefán Benediktsson, þjóð- garðsvörður í Skaftafelli, sagði að greina mætti að Skeiðaráijök- ull hefði hækkað síðustu daga. Sagnir eru langt aftur í aldir um að jökullinn hækki áður en hlaup hefjist. Helgi Björnsson sagðist ekki bera brigður á þessar upp- lýsingar heimamanna og reynslu þeirra. Vísindamenn gerðu sér hins vegar ekki grein fyrir hvemig þetta gæti tengst opnun ísstíflunnar. Mælingar á landi undir Skeiðaráijökli hefðu leitt í ljós að um 2 km innan við jökul- sporðinn væri mjög djúp lægð, eins konar fjörður, sem næði nið- ur fyrir sjávarmál. Hreyfingar á jöklinum í aðdraganda hlaups leiddu hugsanlega til þess að hann Iyftist upp framan við þenn- an fjörð. |í » I I Engar almennar augnaðgerðir verða framkvæmdar í einn og hálfan mánuð Biðlistar tvöfaldast , fram að áramótum EINN Iiður í nýkynntum sparnaðar- aðgerðum Sjúkrahúss Reykjavíkur upp á 80,5 milljónir felur í sér að hætt verður að gera aðrar augnað- gerðir en bráðaaðgerðir á Landakoti einum og hálfum mánuði áður en gert er ráð fyrir að taka augnaðgerð- imar upp á Landspítalanum. Einar Stefánsson, yfírlæknir augndeildar Landakots, segist gera ráð fyrir að afleiðingin verði sú að fjöldi einstakl- inga á biðlista aukist úr um 250 manns í um 400 til 500 manns um áramót. Einar sagði að augndeildin á Landakoti væri eina almenna augn- deildin á landinu. „Varla var hægt að tala um að biðlistar væru í aðgerð- ir á deildinni fram á þetta ár. Nú höfum við hins vegar eins og aðrir lent undir niðurskurðarhnífnum. Harkalegasta spamaðaraðgerðin var að steypa legudeildinni saman við aðra deild í vor. Afleiðingin hefur orðið sú að 250 manns bíða núna eftir að komast í aðgerð," sagði hann. Á bilinu 1.200 til 1.300 skurðaðgerð- ir og um 800 leysiaðgerðir eða alls um 2.100 aðgerðir vom gerðar á augndeildinni á síðasta ári. Einar sagði að eftir 94 ára starf- semi á Landakoti hefði verið ákveðið að flytja deildina yfir á Landspít- alann. „Heilbrigðisráðherra staðfesti flutninginn formlega 28. ágúst sl. Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir að flutningurinn yrði 1. nóvember. Nú hefur hins vegar komið í ljós að að- staðan verður varla tilbúin fyrr en mánuði síðar,“ sagði hann og tók fram að komið hefði á óvart að stjóm SHR hefði tekið ákvörðun um að augnaðgerðum yrði hætt 15. október á síðasta stjórnarfundi sínum, 4. október. Ákvörðunin hefði verið kynnt fyrir starfsmönnum á mánu- dag eða viku áður en tímabundið verður hætt að framkvæma aðrar aðgerðir en bráðaaðgerðir. Aðspurður um hvað tæki við hjá starfsfólki augndeildarinnar þar til augnaðgerðir yrðu hafnar á Landspít- alanum sagði Einar að hjúkmnarfólk myndi að einhveiju leyti sinna sjúkl- ingum á öðmm deildum á meðan. Læknar myndu sinna göngudeildar- sjúklingum, bráða- og slysatilfellum. Alvarlegir brestir í grunnstarfseminni Einar sagðist eiga von á því að ákvörðunin hefði í för með sér að biðlisti í augnaðgerðir yrði orðinn 400 til 500 manns um áramót. Biðin yrði því um íjórir mánuðir að meðal- tali. „Lengi hefur brakað í heilbrigð- iskerfínu. Nú emm við hins vegar f að sjá alvarlega bresti koma fram í gmnnstarfseminni. Fleiri en við, t.d. I háls-, nef- og eymadeildin á Sjúkra- | húsi Reykjavíkur, þurfa að þola vem- lega tmflun á rekstrinum," sagði Einar. Hann tók fram að af 24 OECD- löndum væm íslendingar í 16. sæti í framlögum til heilbrigðisþjónustu. „Og auðvitað segir sig sjálft að ekki er hægt að reka heilbrigðisþjónustu í fyrsta til þriðja sæti fyrir fjárfram- f lög í 16. sæti. Við emm einfaldlega > að komast að því stig af stigi,“ sagði ( hann. t ■ Úrbóta/4 Akvörðun um friðun Mið- bæjarskóla tekin upp á ný Menntamálaráðherra hefur ákveðið að taka upp á ný ákvörðun um friðun Miðbæjarskóians að inn- an í þvi skyni að taka af allan vafa um meðferð málsins. Er borgaryfír- völdum þar með gefinn kostur á að koma á framfæri formlegum og efnislegum athugasemdum við frið- un hússins. Tekið er fram að ákvörðun um friðun frá 22. apríl standi óhögguð þar til ný ákvörðun hefur verið tekin. Borgarlögmaður hefur fyrir hönd borgarinnar kvartað til umboðs- manns Alþingis vegna ákvörðunar menntamálaráðuneytis um friðun Miðbæjarskólans að innan er tekur til herbergjaskipunar í suður- og vesturálmu á báðum hæðum, nánar tiltekið til ganga, stiga og skóla- stofa. Auk þess leikfimisalarins í norðurálmu, baða og búningsklefa í kjallara norðurálmu og smíðakjall- ara í norðurálmu. í rökstuðningi borgaryfirvalda kemur meðal annars fram að ráð- herra hafi ekki eins og honum bar samkvæmt stjórnsýslulögum til- kynnt borgaryfirvöldum að málið væri til meðferðar. Borgaryfírvöld hafí átt rétt á að tjá sig og ráð- herra hafí borið að hafa frumkvæði að því að þau fengju tækifæri til þess. í bréfí ráðuneytisins er tekið fram að þess sé vænst að svar ber- ist fyrir 15. október. Hefur borgar- ráð falið borgarlögmanni að senda inn athugasemdir borgaryfírvalda. - 0,02% upp í kröfur SKIPTUM í þrotabúi útgerðarfélags- 1 ins Kleifa hf. í Vestmannaeyjum, ( sem gerði m.a. út Gjafar VE, lauk . fyrir skömmu, en búið var tekið til ’ gjaldþrotaskipta í nóvember 1994. Rúmar 34 þúsund krónur greidd- ust upp í almennar kröfur, sem sam- tals námu tæpum 170 milljónum króna. Með vísan til heimildar í lög- um tók skiptastjórinn, Þorsteinn Ein- arsson hdl., aðeins tillit til krafna tveggja stærstu kröfuhafa í búinu, íslandsbanka og Skeljungs. Kröfur :( þeirra voru samtals rúmar 129 millj- < ónir og greiddust rúmar 34 þúsund kr. upp í kröfurnar, eða 0,026 af ‘ hundraði. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.