Morgunblaðið - 09.10.1996, Side 20

Morgunblaðið - 09.10.1996, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Snúa bök- um saman gegn Taleban BURHANUDDIN Rabbani, sem hrakinn var af forsetastóli í Afganistan á dögunum, fund- aði í gær með stríðsherranum Abdul Rashid Dostum í bænum Mazar-i-Sharif í þeim tilgangi að sveitir þeirra sameinuðust í bardögum gegn sveitum Tale- bana, sem náðu völdum í land- inu fyrir hálfum mánuði. Búist var við að Ahmad Shah Mas- ood, herstjóri Rabbanis, kæmi til fundar við þá í dag, miðviku- dag, og jafnvel leiðtogar fleiri fylkinga, sem andstæðar eru Taleban-fylkingunni. Sveitir Masoods börðust í gær við sveitir Taleban í Salang-skarð- inu í Pansjir-dal. Á myndinni munda Talebanar vopnin í Golbahar við mynni dalsins. Tyrkir felldu 118 Kúrda TYRKNESKAR hersveitir felldu í gær 118 kúrdíska skæruliða í átökum í héruðun- um Simak og Hakkari, sem eru fjallahéruð á landamærum Tyrklands og íraks, að sögn opinberrar fréttastofu landsins. Hermt var, að 11 tyrkneskir hermenn hefðu fallið í átökun- um. Biskupinn kvænist RODERICK Wright, sem sagði af sér biskupsdómi í Argyll í Skotlandi, kom fram í dagsljós- ið í gær mánuði eftir að hann fór í felur, baðst afsökunar og sagðist ætla að kvænast Kathl- een Macphee, fráskilinni þriggja bama móður er verið hefur ást- kona hans til margra ára. Samráð gegn bifhjóla- gengjum BJÖRN Westh, dómsmálaráð- herra Danmerkur, hefur boðað norræna starfsbræður sína til fundar í Kaupmannahöfn nk. föstudag til þess að leggja á ráðin um sameiginlegar að- gerðir gegn mótorhjólagengj- um, sem átt hafa i innbyrðis átökum og breytt einhverjum friðsömustu svæðum Evrópu í vígvöll. 40 farast í gljúfri RÚTA með um 70 manns inn- anborðs ók fram af bugðóttum fjallvegi og hrapaði ofan í gljúf- ur við bæinn Carpatata í And- esfjöllum, 320 km norður af Lima, í Perú í gær með þeim afleiðingum að minnst 40 manns biðu bana. Ekki er vitað hvað slysinu olli. Umfjöllun erlendra fjölmiðla um eldsumbrotin í Vatnajökli „Leikvöllur j ar ð ví sindamannau Öþolinmæði gætir hjá erlendum fréttamönnum á Skeiðarársandi ELDSUMBROTIN í Vatnajökli hafa dregið hingað til lands fjölda erlendra fréttamanna, sem flestir hafa komið sér fyrir í nágrenni Skeiðarár, þar sem þeir bíða þess að áin hlaupi. Eldgosið varð leiðara- höfundi The Times tilefni til um- fjöllunar um ísland, sem hann lýsir m.a. sem „leikvelli jarðvísinda- manna“. Fréttir af gosinu hafa birst í fjölmiðlum um alla Evrópu og í Norður-Ameríku, og hafa fjölmörg blöð birt myndir ljósmyndara Morg- unblaðsins af gosinu á forsíðu. Vel á annan tug erlendra frétta- manna er staddur í Freysnesi aust- an við Skaftafell, og svipaður fjöldi er á Kirkjubæjarklaustri, og bíður þess að hlaup bijótist fram á Skeið- arársand. Nokkrir hafa beðið hlaups frá því fyrir helgi og er óþolinmæði farið að gæta hjá sumum. Einhveij- ir ætla heim í dag. Mikill áhugi hefur verið á hlaup- inu á Norðurlöndum og hafa sjón- varp og útvarpsstöðvar I Dan- mörku, Svíþjóð og Noregi sent fréttamenn og tæknimenn í Skafta- fell. Þar eru einnig fréttamenn og ljósmyndarar frá Reuters, NBC- sjónvarpsstöðinni og þýsku sjón- varpsstöðvunum ARD og ZDF. Þá má nefna lið frá RBC-stöðinni og blaðamenn frá Hollandi og Frakk- landi. Sumir fréttamenn pöntuðu far til íslands í nokkra daga og var á þeim að heyra í gær að þeir myndu ekki framlengja dvöl sína hér á landi nema eitthvað gerðist á allra næstu klukkutímum. Þannig fer fréttamaður sænska sjónvarpsins heim í dag. Flestir ætla þó að bíða áfram enda virðist áhugi þeirra á boðuðum hamförum á Skeiðarár- sandi vera mikill. Áhrif á evrópskt ímyndunarafl Leiðarahöfundur The Times er greinilega ágætlega að sér um ís- land og íslendinga, sem hann ber vel söguna. „Sé horft til þess hversu stijálbýlt, bert og eyðilegt landið er, hefur það haft mikil og varanleg áhrif á evrópskt ímyndunarafl. Á miðöldum töldu menn þessa norræu eyju, umlukta eldsumbrotum, vera hliðið til helvítis.“ Og áfram er hald- ið. „ísland er enn land þar sem •; assáss*”""' “~r‘" ðsbb Gun carnpaign motner ~iS= caudit in the crossfire Slipre puU= tí* sex imo íKÍitk? y,„it li’i-l w.m1 tiMiHillviK'*1'"'', 10 MYND Árna Sæberg, Ijósmyndara Morg- unblaðsins, af gosinu í Vatnajökli, hefur birst á forsíðum fjölmargra blaða, m.a. The Independent í Bretlandi. Gulf snldicrs Topjudge lambasts Howard 'poíson vktíms náttúran geisar ótam- in. Drunur mikils eld- fjalls sem grafið er nærri því heila mílu undir gríðarstórum jökli, segja fyrir um tortímandi gos. Gríð- arlegt afl safnast fyrir er vatn neðanjarðar þrýstist að íshellunni og himinhá súla ösku og gufu spýtist upp úr kraumandi jöklinum." Leiðarahöfundur nefnir sögu Alþingis, kjör fyrsta kvenfor- setans og að á þessum „leikvelli jarðvísinda- manna“ sé það al- gengt að menn gegni tveimur til þremur störfum. íslendingar gæti vel tungunnar og þjóðtrúarinnar og svo mætti lengi telja. „Þeir sem flykkjast að til að virða fyrir sér ógnir náttúrunnar geta ekki annað en undrast þrautseiglu þjóðarinnar sem býr á siðmenntaðan hátt á einum af hijóstrug- ustu stöðum jarðar.“ Sun fullt iðrunar vegna myndbands með Díönu og ástmanni Páfi í aðgerð „Fullkomnustu svik áratugarins“ London. Reuter. MYNDBAND, sem sýnir Díönu prinsessu skemmta sér á stuttbux- um og bijóstahaldara með fyrrver- andi ástmanni sínum, James Hew- itt, var sýnt hvað eftir annað í bresku sjónvarpi í gær og vakti gríðarlega athygli. Þessi nýjasta uppákoma í framhaldssögunni um bresku konungsfjölskylduna fékk þó sneypulegan endi er dagblaðið sem kom myndbandinu á framfæri varð að viðurkenna að svikahrappar hefðu leikið á það. Götublaðið Sun, sem sagði fyrst frá myndbandsupptökunni, sem er 80 sekúndna löng, sagði í gær, að hún hefði styrkt grunsemdir Díönu um, að njósnað hefði verið um sig en talsmaður konungsfjölskyldunn- ar neitaði því, að upptakan hefði verið notuð í samningaviðræðum um skilnað Díönu og Karls. Tals- menn blaðsins báðu prinsessuna og Hewitt afsökunar í gærkvöldi og sögðust hafa verið fómarlömb „snjallra svikahrappa" sem staðið hefðu fyrir einhveijum „fullkomn- ustu svikum áratugarins“. Tveir menn hefðu hitt ritstjóra blaðsins á laun og boðið honum myndina til kaups, sagst vera milligöngumenn. „Við gerðum okkar besta til að fá staðfest að myndin væri ósvikin með því að ræða við fólk sem taldi víst að um prinsessuna og Hewitt væri að ræða,“ sagði í yfirlýsingu The Sun. „Við fengum einnig sér- fræðinga til að kanna og meta fyr- ir okkur uppruna myndarinnar“. Stuart Higgins ritstjóri sagðist taka á sig alla ábyrgð á mistökunum. Kossar og koddaslagur SAy-sjónvarpsstöðin sýndi mynd- bandið í gær og þar sést kona er Iíkist mjög Díönu þar sem hún af- klæðist öðru en stuttbuxunum og bijóstahaldaranum eða toppnum. Síðan kyssir hún „Hewitt", sest á bak honum eins og reiðskjóta, fer svo í koddaslag við hann. Er mynd- JAMES Hewitt in sögð tekin í gegnum einn svefn- herbergi sgluggan n. Þrátt fyrir allt umtalið, sem sýn- ing myndbandsins hefur vakið, var Díana brosmild og róleg þegar hún kynnti í gær nýstofnaðan sjóð á vegum kunnra alnæmissamtaka í Bretlandi. Sambandi hennar við Hewitt er löngu lokið og hann var almennt fordæmdur sem hinn mesti þorpari þegar hann sagði frá sam- bandi sínu við Díönu í bók, sem blaðakonan Anna Pasternak skrif- aði og kallaði „Ástfangna prins- essu“. Hewitt sagði í viðtali við Sun í gær, áður en svikin komust upp, að hann væri viss um, að njósnað hefði verið um þau. „Eg heyrði talað um hljóð- og myndbandsupptökur af okkur sam- an og ég hef heyrt því fleygt, að við skilnaðinn hafi Díana aðeins DÍANA prinsessa fengið helminginn af því, sem hún vildi fá, vegna þessara upptakna,“ sagði Hewitt. Talsmaður Buckinghamhallar neitaði í gær, að einhveijir úr kon- ungsfjölskyldunni hefðu átt þátt í að njósna um Díönu og sagði, að hún hefði játað framhjáhaldið með Hewitt í sjónvarpi og því hefði ekki verið hægt að nota myndbandið gegn henni. Elísabet og tengdadæturnar Elísabet drottning hefur haft í nógu að snúast vegna lýsinga ámætti lengi telja. „Þeir sem flykkj- ast að til að virða fyrir sér ógnir náttúrunnar geta ekki annað en undrast þrautseiglu þjóðarinnar sem býr á siðmenntaðan hátt á ein- um af hijóstrugustu stöðum jarð- ar.“ Uppskurður- inn gekk eins og í sögu Róm. Reuter. BOTNLANGI Jóhannesar Páls páfa var í gær fjarlægður með skurðaðgerð, sem gekk að ósk- um, að sögn lækna. Fundust engin merki ill- kynja æxlis við aðgerðina, eins og orðrómur hafði verið um. „Aðgerðin gekk nákvæm- lega eins og fræðin gera ráð fyrir,“ sagði Francesco Crucitti, læknir, sem stjórnaði aðgerðinni. Tók hún 50 mínútur og var páfi sagður við góða heilsu. Er búist við að hann hafi fótaferð í dag, mið- vikudag. „Þetta er ekki á mínu sviði, það eru aðrir sérfræðing- ar sem fylgjast með þessu,“ svaraði Crucitti. í síðasta mánuði skýrði Vatikanið frá því, að páfi hefði þrisvar sinnum fengið hitaköst það sem af er ári og var það útskýrt með þeim hætti, að botnlanginn hefði bólgnað í öll skiptin. Þessi skýring mætti miklum efasemdum og veikindi páfa nú eru vatn á myllu þeirra áhrifa- manna innan kaþólsku kirkjunn- ar, sem vilja ýmist setja hámark á þann tíma sem sami maður getur gegnt páfadómi eða ald- urshámark. Vilja þeir sömu, að páfi segi af sér vegna hrörleika og gerðar verði róttækar um- bætur innan kirkjunnar, sem þeir segja steinrunna, andlausa og óstarfhæfa. Læknar véku sér lyá því í gær, að fjalla um mikinn skjálfta vinstri handar páfa, hvers vegna hann gengur svo lotinn, og hvers vegna andlit hans virðist frosið. Allt þetta hefur þótt benda til þess, að hann sé með einkenni Parkinsonsveiki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.