Morgunblaðið - 09.10.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.10.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 23 Morgunblaðið/Kristinn TÓNLISTARMENNIRNIR Gunnar Kvaran sellóleikari, Loftur Erl- ingsson tenórsöngvari og Hilmar Örn Agnarsson organisti standa fyrir kirkjutónleikakvöldi í Skálholti á fimmtudagskvöld kl. 21. Bæna- og tónlistarkvöld í Skálholtskirkju TÓNLISTARMENNIRNIR Gunn- ar Kvaran sellóleikari, Loftur Erlingsson tenórsöngvari og Hilmar Örn Agnarsson organisti standa fyrir kirkjutónleikakvöldi í Skálhoíti, fimmtudagskvöldið 10. október. Þetta eru þriðju og síðustu sam- eiginlegu tónleikar þeirra þriggja að sinni en áður hafa þeir komið fram með svipuðum hætti. „Tónlistarmennirnir flytja mörg af fallegustu og hugljúfustu lögum úr íslenskri og erlendri kirkjutónlist. Nægir sem dæmi að nefna Litaníu og Ave maríu eftir Schubert og Celló Svítu nr. 1 í G-dúr eftir Joh. Seb. Bach. Tónlistarmennirnir leggja áherslu á að dagskrá þeirra beri ekki að skoða sem tónleika í venjulegum skilningi þess orðs, heldur sé markmið þeirra fyrst og fremst að gefa fólki tækifæri að koma saman í sinni kirkju og njóta samvistar og friðar í bæn við undirleik sem hentar slikri athöfn,“ segir i kynningu. Bæna- og tónlistarkvöldið í Skálholtskirkju hefst kl. 21. Verð kr. 39.930 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, 20. okt., 30 nætur. Verð kr. 49.960 M.v. 2 í íbúð, 20. okt., skattar innifaldir. Sigurður Guðmundsson Nú seljum við síðustu sætin þann 20. október til Kanarí í glæsilega 30 daga ferð með Sigurði Guðmundssyni, þar sem þú tekur þátt í spennandi dagskrá alla daga, hvort sem er leikfimi, kvöldvökur eða spennandi kynnisferðir og nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Nú getur þú tryggt þér spennandi tilboð, þú bókar ferðina á mánudag eða þriðjudag á tilboðsverði og viku fyrir brottför staðfestum við gististaðinn, góðan gististað á ensku ströndinni. (M) s HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562 4600 LISTIR Tunganí tímans straumi BOKMENNTIR Málf ræði ÍSLENSKT MÁL eftir Gisla Jónsson. 303 bls. Bókaútgáfan Hólar. 1996. GISLA Jónssyni hefur jafnan tekist að ná til hins almenna les- anda. Þættir hans um íslenskt mál hafa alltaf vakið verðskuldaða at- hygli. Til þess liggja augljósar ástæður. Margur hefur áhuga á móðurmálinu og fylgist grannt með öllu sem sagt er og skrifað um þau efni. Þættirnir eru per- sónulegir; höfundur segir hug sinn umbúðalaust; mannlega sjónarm- iðið er alltént samstillt hinu fræði- lega. Kennarinn veit af reynslu sinni — en Gísli Jónsson kenndi íslensku um áratuga skeið — að jafnvel hið flókna má einfalda svo að það verði að lokum auðskilið. Þá gerir kennarinn sér ljóst að fræðimannlegum strangleika verður að stilla í hóf og ekkert skyldi úrskurðað rétt eða rangt fyrr en að gaumgæfilega athug- uðu máli. Kennarinn vekur og til- trú að meiri ef hann kannast við að hann viti ekki sjálfur allt! Gísli Jónsson er eindreginn málvöndun- armaður en telur samt að mál- vöndun geti keyrt úr hófi og kall- ar það »ofvöndun«. Hann leitast við að hafa áhrif á tíðarandann fremur en ganga gegn honum. Gísli Jónsson tilfærir dæmi þess hvernig torskilin orðasambönd geta vafist fyrir manni þar til seint og um síðir að skilningsljósið kviknar eins og af sjálfu sér. Oft- ar en ekki hefur hann Ieitað til lesenda sem þá hafa brugðið við skjótt og vel. Þannig hefur fjöldi manns komið að þáttum hans gegnum tíðina. Og þannig hefur hann og þeir bjargað frá gleymsku orðum og orðtökum sem fylgdu fyrri tíma lífsháttum en eru nú horfin úr daglegu máli. Sumir, sem skrifa til þáttarins, leyna ekki áhyggjum sínum á þessum síð- ustu og verstu tímum. Einn kveður leitt »til þess að hugsa að börnin manns muni tala annað móðurmál en við lærðum æsku«. Gísli Jónsson brýnir fyrir slíkum að láta ekki hugfallast; horfumar séu varla svo dökkar! Hann skírskotar oft til ung- skálda jafnt og þjóð- skáldanna, lífs og liðinna. Til skemmtunar hefur hann ennfrem- ur — og stundum líka efnisins vegna — látið fljóta með eina og eina stöku eða limru. Hefur sá kveðskapurinn brugðið léttum og alþýðlegum svip yfir þættina. Víst er að lesendunum hefur ekki fækk- að fyrir bragðið! Þættir hans hafa notið þess að hann hefur höfðað jafnt til þeirra, sem lifa fyrir líð- andi stund, og hinna, sem horfa með söknuði til gömlu góðu dag- anna. Fátt mun hafa undan gengið í þáttum þessum, það sem móður- málið varðar, enda orðnir margir. Orðsifjafræðin er títt í sjónmáli, enda verður hin dýpri merking hugtaks svo best skýrð að hliðsjón sé höfð af uppruna orðs og skyld- leika þess við önnur orð. Framburð málsins hefur líka borið á góma. Bréfritari nokkur telur þó að betur hefði átt að sinna þeim þættinum. Nokkuð hefur sá til síns máls. En tilmælum af því taginu má víst beina til fleiri, lík- lega flestra málfræðinga. Að- spurðir svara þeir gjarnan að eng- inn einn framburður sé öðrum rétt- hærri og því skuli hvetjum og ein- um leyfast að tala það mál sem hann nam við móðurkné. Hvað- eina, sem sagt er um íslenskan framburð í þáttum þessum, er þó orð í tíma talað. Sú tilhneiging að færa aðaláherslu frá fyrsta atkvæði til annars eða þriðja er til að mynda lúmskari en margur hyggur; kann enda að hafa meiri breytingar í för með sér en tíma- bundnar slettur eða latmæli einstaklinga og hópa sem hvort tveggja er þó nógu hvimleitt. Undirritaður er oft- ast eða alltaf sammála höfundi. Enda getur málvöndun tæpast orðið að ágreiningsefni með þeim sem á annað borð vilja veg ís- Ienskrar tungu sem mestan. Varð- veisla móðurmálsins mun kosta bæði fyrirhöfn og stríð. Að sjálf- sögðu! Ádrepur Gísla Jónssonar varðandi einstök orð og orðasam- bönd eru orðnar margar og skal hér vikið á einungis einni en það er orðið fjallalamb sem svo var auglýst á tímabili. Lamb, sem gengur undir á, heitir dilkur. Til skamms tíma var kjötið aldrei kallað annað en dilkakjöt, jafnt í auglýsingum sem í mæltu máli. Nú lítur út fyrir að dilkurinn sé að týnast úr málinu, vafalaust fyrir áhrif frá enskunni; en dilka- kjöt kalla þeir einfaldlega lamb. Minna má á að í bók þessa hef- ur aðeins verið tekið upp sýnishom þeirra fjölmörgu þátta Gísla Jóns- sonar sem birst hafa í Morgun- blaðinu. Sumt blaðaefni miðast einungis við málefni líðandi stund- ar. Annað hefur varanlegra gildi, þar með taldir þessir ágætu þætt- ir sem eiga jafnbrýnt erindi til okkar nú og þeir áttu fyrir fimm, tíu eða fimmtán árum. Erlendur Jónsson Gísli Jónsson Fondue á rimmtudögum í Skrúði A fímmtudagskvöldum í vetur geta fondue aðdáendur komið í Skrúð og gætt sér á þessum skemmtilegu og ljúffengu réttum. Boðið verður upp á kjötfondue, ostafondue, flskifondue, grænmetisfondue, kabarettfondue og eftirréttafondue. Til að gera kvöldið enn ánægjulegra leikur Jóna Einarsdóttir ljúfa tónlist á harmonikku. -þín saga!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.