Morgunblaðið - 09.10.1996, Page 27

Morgunblaðið - 09.10.1996, Page 27
26 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 27 + STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FJARMAL FOR- SETAFRAMBOÐA GUÐRÚN Agnarsdóttir, sem bauð sig fram til embætt- is forseta íslands, hélt í fyrradag blaðamannafund, þar sem hún gerði opinbera endurskoðaða reikninga fram- boðs síns. Þessi háttur Guðrúnar á uppgjöri fjármála fram- boðsins er til fyrirmyndar og væntanlega fylgja aðrir frambjóðendur í kjölfarið. Það þykir nú eðlilegt að forsetaframbjóðendur geri grein fyrir fjármálum framboða sinna með opinskáum hætti. Það er jafnframt sjálfsagt að gera sömu kröfu til þeirra, sem bjóða fram í þingkosningum, stjórnmálaflokk- anna. í lýðræðisþjóðfélagi getur t.d. verið eðlilegt að settar verði reglur um að einstaklingar og fyrirtæki megi ekki leggja fram fé til stuðnings stjórnmálaflokkum um- fram ákveðna fjárhæð en slíkar reglur eru t.d. í gildi í Bandaríkjunum. Ástæðan fyrir því er auðvitað sú, að stjórnmálaflokkar eða öllu heldur trúnaðarmenn þeirra taka ákvarðanir, sem geta haft mikil áhrif á hag einstak- linga og fyrirtækja. Upplýsingar um kostnað við framboð Guðrúnar Agnars- dóttur og annarra forsetaframbjóðenda vekja einnig upp spurningar um það, hvort það sé hreinlega að verða ein- staklingum fjárhagslega ofviða að bjóða sig fram til for- seta. Fram hefur komið að hjá flestum frambjóðendunum vantar talsvert upp á að endar nái saman og að fyrir- tæki hafi verið fremur treg til að greiða háar fjárhæðir í kosningasjóði þeirra. Hér skal ekki lagt til að hið opinbera veiti frambjóðend- um fjárstyrki. Hins vegar hlýtur að koma til greina, eins og Friðrik Sophusson fjármálaráðherra nefnir í Morgun- blaðinu í gær, að framlög fyrirtækja til frambjóðenda í forsetakosningum njóti sömu skattfríðinda og framlög til stjórnmálaflokka. FRELSI í F J ARSKIPTUM ARÁÐSTEFNU, sem haldin var í tilefni af því að níu- tíu ár eru liðin frá því að sæsími var lagður til lands- ins, kunngerði Halldór Blöndal samgönguráðherra merk framfaraspor í fjarskiptum okkar. Næstu daga verður lagt fram á Alþingi frumvarp að nýjum fjarskiptalögum, sem taka eiga mið af tilskipunum Evrópusambandsins um fullt frelsi í fjarskiptum frá og með áramótum 1997/1998. Ráðherra sagði vilja sinn standa til útboðs á starfsleyfi til reksturs annars GSM-farsímakerfis fyrir áramót, til viðbótar við kerfi Pósts og síma. Nýtt GSM- þjónustufyrirtæki á því að geta tekið til starfa um mitt næsta ár, sem er hálfu ári fyrr en búizt hafði verið við. Framvindan í fjarskiptum og fjarskiptatækni umheims- ins gerir þróun af þessu tagi óhjákvæmilega. Engu að síður er ástæða til að fagna þessari ákvörðun samgöngu- ráðherra. Reynslan sýnir að öll samkeppni kemur neytend- um til góða. FUNDARSTAÐURINN REYKJAVÍK ATHYGLISVERÐAR hugmyndir komu fram í hópi þátttakenda á málþinginu, sem haldið var í tilefni tíu ára afmælis leiðtogafundar Reagans og Gorbatsjovs, um að Reykjavík verði gerð að vettvangi fyrir regluleg skoðanaskipti Rússa og Bandaríkjamanna um samskipti ríkjanna. Það myndi stuðla að því að halda nafni Reykjavíkur á lofti, ef hér kæmu saman á fárra ára fresti ýmsir helztu sérfræðingar um samskipti Rússlands og Bandaríkjanna og bæru saman bækur sínar. Slíkt gæti ekki síður orðið hinu smáa fræðasamfélagi á sviði alþjóðamála, sem er að finna hér á landi, mikil lyftistöng. Vel kæmi til greina að reglulegt ráðstefnuhald af þessu tagi yrði haldið í samstarfi við Háskóla íslands, til dæm- is Alþjóðamálastofnun hans. Æskilegt er því að hugmynd- ir þessar verði kannaðar til þrautar, meðal annars með tilliti til þess hvort tryggja megi fé til slíkrar starfsemi. Fyrsta umræða á Alþinffl um fj árlagafrumvarp ríkisstiórnarinnar fyrir árið 1997 Fjarlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að rúmlega eins milljarðs króna af- gangur verði á rekstri rík- issjóðs á næsta ári, og sagði Frið- rik Sophusson fjármálaráðherra að það yrði í fyrsta sinn í þrettán ár, sem ekki yrði halli á rekstri ríkis- sjóðs. Fjármálaráðherra rakti ástæður þess, hvers vegna jafnvægi í ríkis- fjármálum væri svo mikilvægt. Brýnt sé að nýta efnahagsbatann til þess að skila ríkissjóði með af- gangi. Það sé öruggasta leiðin til að tryggja áframhaldandi stöðug- leika í efnahagsmálum, efla hag- vöxt og bæta lífskjör heimilanna. Af þessu leiðir, sagði ráðherrann, að ekki séu rök fyrir því að slaka á aðhaldi í ríkisfjármálum að svo stöddu. Þvert á móti megi færa rök fyrir hinu gagnstæða, þ.e. að auka aðhald enn frekar. íslenzk hagsaga geymi of mörg dæmi um lausatök í hagstjórn þegar vel árar. Afleið- ingin hafi ávallt verið þensla, verð- bólga, gengisfellingar og versnandi lífskjör almennings. Það hljóti því að vera sameiginlegt markmið landsmanna, að falla ekki í þessa gryfju á nýjan leik. Á næstu árum verði þjóðin að byrja að greiða niður erlend lán, sem séu henni þungur baggi. Halla- laus fjárlög næsta árs geti því að- eins verið eitt skref í áttina. Ríkis- sjóður verði að skila umtalsverðum afgangi á næstu árum til að ná settum markmiðum. Breyttar áherslur Helztu breytingar á gjaldahlið íjárlagafrumvarpsins, auk flutnings grunnskólans til sveitarfélaga, eru áform um breyttar áherzlur í rekstri fjölmargra ríkisstofnana. Framfarir í samgöngum og fjarskiptum gefi færi á að stækka þjónustusvæði einstakra ríkisstofnana og þannig fækka stofnunum. Jafnframt verði stofnanirnar færari að sinna hlut- verki sínu. Tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins markast af þeirri stefnu ríkisstjórn- arinnar, sagði ráðherrann, að auka ekki skattbyrði. Verið sé að vinna að heildarendurskoðun á tekju- skatti einstaklinga og ýmsum bóta- greiðslum, meðal annars með það fyrir augum að draga úr svonefnd- um jaðaráhrifum. Ýmis atriði í álagningu á fyrirtæki munu einnig vera til skoðunar. Um næstu ára- mót kemur ennfremur til fram- kvæmda skattlagning vaxtatekna og samræmd skattlagning íjár- magnstekna. Ráðherra sagði loks, að mikil- vægt væri að halda áfram á braut þjóðarsáttar um samstillt átak launafólks, vinnuveitenda og stjórnvalda til að hindra kollsteypur í efnahagslífinu. Friðrik tók þó fram, að hann væri ekki að tala gegn launahækkunum í næstu kjarasamningum. Sem betur fer séu fyrirtækin nú betur í stakk búin en oft áður að hækka laun án þess að hleypa verðbólgunni af stað. Mestu máli skipti að þjóðartekjur haldi áfram að vaxa og stuðli þann- ig að fjölgun nýrra starfa. í kjölfar framsögu ijármálaráð- herra talaði formaður fjárlaga- nefndar, Jón Kristjánsson, Fram- sóknarflokki, um frumvarpið og forsendur þess. I máli hans kom fram, að á þessu ári skili aukin velta í þjóðarbúinu 18,9% hærri tekju- og eignarskattstekjum af einstaklingum en ráð hafði verið fyrir gert á fjárlögum. Veltuaukning- in kemur hins vegar ekki fram í auknum tekjum af virðisauka- skatti, sem aðeins er áætlaður um 0,4%, á meðan veltuaukningin er um 12%. I fjármálaráðuneytinu mun nefnd vera að rannsaka þetta misræmi, en breytingar á innskatti, endur- greiðslur á virðisaukaskatti til sjáv- arútvegsins og vegna bifreiðakaupa Hallalaus fjárlög og hindrun þenslu Fjármálaráðherra mælti fyrir fj árlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 1997 á Alþingi í gær. Hann sagði frumvarpið endurspegla megináherzlur efnahagsstefnu ríkisstjómarinnar, en eitt af mikilvæg- ustu markmiðum hennar væri að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi og skila fjárlögum án halla. Auðunn Amórsson fylgdist með fyrstu umræðu um fjárlagafrumvarpið. Morgunblaðið/Árni Sæberg FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra flytur fjárlagaræðu sína á Alþingi í gær. Mikilvægt að halda áfram á braut þjóðar- sáttar munu skýra misræmið að hluta, að sögn Jóns. Jaðaráhrif tekjuskatts og sparnaður í skólakerfi Gagnrýni stjórnarandstæðinga á fjárlagafrumvarpið skiptist í gróf- um dráttum í tvennt: Annars vegar að tekjuhlið laganna og hins vegar að útgjaldahliðinni. Hvað tekjuhliðina varðar beind- ist gagnrýnin fyrst og - fremst að jaðaráhrifum tekjuskatts, sem enn ekki liggja fyrir neinar breytingartillögur á af hálfu ríkisstjórnarinnar. Hvað út- gjaldahliðina snertir varð gagnrýn- isröddum tíðrætt um spamaðará- form í skólakerfinu. Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins - Jafnaðar- mannaflokks íslands, sagði það mjög gagnrýnivert, að fjármálaráð- herra skuli ekki enn koma fram með frumvarp, þar sem hann sýni fram á hvernig hann ætli að leysa lág- og millitekjuhópa út úr víta- hring jaðarskattsáhrifanna, sem sé vinnuletjandi og komi í veg fyrir að þessar fjölskyldur geti sótt sér hlutdeild í góðærinu. Á sömu nótum var málflutningur Steingríms J. Sigfússonar, Alþýðu- bandalagi, Gísla S. Ein- arssonar, Alþýðuflokki, og Kristínar Ástgeirsdótt- ur, Kvennalista. Fjárlög og þensla Jón Baldvin dró í gagnrýni sinni í efa, að forsendur fjárlagafrum- varpsins séu byggðar á nægilega traustum grunni. Áætlaður tekjuaf- gangur ríkissjóðs sé ekki reiknaður af auknum tekjum af veltu fyrir- tækjanna í landinu, heldur standi Launþegarfái sanngjarna sneið af efna- hagsbatanum til að innheimta hann af vexti þjóð- arútgjalda, aukinni einkaneyzlu og innflutningi, þ.e.a.s. þenslu. Sam- tímis sé það eitt af aðalatriðunum í yfírlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar, að draga úr þenslu. Þessi þversögn bjóði efasemdum um það heim, hversu traustar forsendur áætlaðs tekjuafgangs séu. Jón Baldvin spurði, hvort stefna ríkisstjórnar- innar í ríkisfjármálum, sem lýsti sér í fjárlaga- frumvarpinu, væri líkleg til að vera haldbær í góðæri, þegar hætta á þenslu er mikil. Þetta sé sérlega mikilvægt vegna þess, að nú sé það eitt af meginverkefnum fjármála- ráðherra að byggja upp traust al- mennings og launþegahreyfingar- innar sérstaklega á því að svo sé. Launþegar séu nú búnir að ganga I í gegn umiangt þrengingaskeið og eigi nú heimtingu á að fá notið sanngjarnrar sneiðar af efnahags- batanum. Nú í góðærinu sé kominn tími til að fá að sjá hvernig stjórn- völd ætla að tryggja að góðærið haldi og hvernig þau ætli að tryggja að nú, þegar meira sé til skipt- anna, verði eitthvað gert til að stuðla að réttlátari tekjuskiptingu. Sú uggvænlega þróun hafí átt sér stað að undanförnu, að launamis- munur hafí verið að aukast. Jón Baldvin sagðist sakna þess í fjár- lagafrumvarpinu, að í því finnist tillögur að úrræðum á þessu sviði. Þetta sé glæfralegt, nú þegar stað- ið er frammi fyrir allsheijar kjara- samningum við gerbreytt skilyrði í nýju góðæri eftir samdráttarskeið- ið. Við slíkar aðstæður sé það fyrsta skilyrðið fyrir árangri stjórnvalda að þau leggi fram efnahagsstefnu í búningi fjárlagafrumvarpa og skattafrumvarpa, sem sannfæri launþega um að ríkisstjórninni sé alvara um að gera hvort tveggja: Að breyta skattakerfinu í þá átt, að það verði vinnuhvetjandi í stað -letjandi, að vinna gegn óréttlátri tekjudreifingu og að sýna fram á að þessi stefna verði haldbær á krepputíma sem í góðæri. Ánnað teikn sagði Jón Baldvin vera á lofti, sem réttlætti efasemd- ir um áreiðanleika þeirra forsendna, sem ljárlagafrumvarpið byggi á, en það sé vaxtaþróunin. Nýlega hafi Seðlabankinn hækkað vexti. Skila- boðin sem Seðlabankinn sendi með vaxtahækkuninni væru þau, að hún væri nauðsynleg m.a. vegna þeirrar óvissu sem ríkti um það, hvort rík- isfjármálastefnan héldi. Vonir manna um lækkun vaxta séu bundnar því, að fjárfestar og aðrir hafi trú á forsendum fjárlagafrum- varpsins. Þessar vonir væru með þessu fjárlagafrumvarpi veikar. Að mati Jóns Baldvins vanmetur frumvarpið ennfremur innbyggðan útgjaldavöxt m.a. í heilbrigðiskerf- inu. Áhyggjur af sparnaði í menntamálum Bryndís Hlöðversdóttir og Stein- grímur J. Sigfússon, Alþýðubanda- lagi, Kristín Halldórsdóttir, Kvennalista, og fleiri talsmenn stjórnarandstöðunnar, lögðu áherzlu á gagnrýni á fyrirhugaðan sparnað í skólakerfinu. Bryndís Hlöðversdóttir vakti at- hygli á því, að sérstök nefnd hefði frá því í fyrra unnið að endurskoð- un reglna um Lánasjóð íslenzkra námsmanna. Ekkert tillit er tekið til þarfa námsmanna í fjárlaga- frumvarpinu. Steingrímur J. Sig- fússon og Kristín Ástgeirsdóttir lýstu áhyggjum yfir því hvernig ýmsum skólastofnunum reiddi af í sparnaðaráformum ríkisstjórnar- innar. Ágúst Einarsson, Þjóðvaka, sagði menntastefnu ríkisstjórnar- innar koma skýrast fram í fjárlaga- frumvarpinu. Það sýndi, að mennta- mál nytu einskis forgangs, þrátt fyrir yfirlýsingar í þá átt í stjórnar- sáttmálanum. Kristín Halldórsdóttir, Samtök- um um kvennalista, fagnaði því að stefnt skyldi að hallalausum fjár- lögum. Hún minnti á, að af þeim 13,5 milljörðum króna, sem áætlað er að fari til greiðslu afborgana og vaxta af erlendum lánum ríkissjóðs á næsta ári, er einn og hálfur millj- arður til kominn vegna byggingar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Á næsta ári sé ennfremur áætlað að ráðast í breytinga- og viðbygging- arframkvæmdir við flugstöðina fyr- ir 500 milljónir, en framkvæmdirn- ar eiga að kosta um 800 milljónir er upp er staðið. Það fara því tveir milljarðar í greiðslur vegna bygg- ingakostnaðar Leifsstöðvar, þó tæpur áratugur sé frá því flugstöð- in var tekin í notkun. Þannig sé þessi bygging tákn um óráðsíu, sem og um persónulegan metnað og minnisvarðastefnu stjórnmála- manna. Strútaeldi á fallanda fæti í Þýskalandi STRÚTAR á þýsku búi. Þeir éta nagla, hnífa og smámynt. Verð á strúts- eggjum hefur hrunið Þýskir strútabændur hafa margir selt strúta sína úr landi, því reglugerðir um aðbúnað þeirra verða stöðugt strangari og eldið því óhagkvæmara. Verð á strútaeggjum hefur fallið úr um 27 þúsund krón- um stykkið í tæpar sjö þúsund. Sambandsráð þýskra dýralækna vill banna strútaeldi. Sáralítill möguleiki á hagnaði hér á landi BRYNJÓLFUR Sandholt yf- irdýralæknir segist telja litla möguleika á hagnaði af strútaeldi hér á landi, eftir að settar hafa verið reglur um aðbúnað strútanna. ís- lenskar reglur verða byggð- ar á reglugerð sem Dýra- verndunarnefnd Evrópu- ráðsins er að vinna að og verða sennilega tilbúnar í byijun næsta árs. „Upplýsingarnar frá Þýskalandi samræmast því sem ég hef alltaf haldið fram,“ segir Brynjólfur. „Eg hef líka heyrt af neikvæðri reynslu á Norðurlöndum, sérstaklega frá Noregi og Danmörku. í Noregi hefur siðanefnd dýralækna verið á móti eldinu, í ljósi þess að ekki væri hægt að hagnast á því ef öllum verndunarskil- yrðum væri fullnægt. Þeir einir munu græða sem tekst að selja lífstrúta til ræktun- ar.“ Brynjólfur segir að upp- kast að reglum Evrópuráðs- ins hafi verið sent út til um- sagnar í ágúst, og að hann muni senda það til þeirra sem sótt hafa um. „Þá geta þeir sem hafa sýnt á þessu áhuga vegið það og metið hvort þeir vilja leggja í þann kostn- að sem aðbúnaðinum fylgir. Ég held að rekstrargrund- völlurinn verði annar en þeg- ar menn héldu að þeir gætu staðið í þessu eins og þeir vildu.“ AÐ SÖGN dr. Konrad Köst- ers, yfirmanns fuglasjúk- dómastofnunar við Háskól- ann í Miinchen, er strúta- eldið ekki lengur mikið deiluefni í Þýskalandi, því almennt er álitið að það sé búið að vera. „Strútar þurfa þurrt loftslag og Þýskaland hentar þeim því ákaflega illa. Reynt hefur verið að mæta þessu með því að byggja hús fyrir þá, en þau þurfa að vera það stór, að eldið hættir að borga sig. Ríkisstjórnin gaf út reglur um strútahald fyrir 2-3 árum og þær lágmarksskröfur sem gerðar eru þar hafa í raun gert strútaeldið ómögulegt, því kröfurnar eru of miki- ar til að það borgi sig. Lagt hefur verið fram frumvarp um enn nákvæm- ari skilyrði. Enn eru eftir nokkur lítil strútabú, en margir hafa þegar selt strútana til annarra landa.“ Hentar ekki fyrir Island Kösters segir að suðlæg lönd Evr- ópu, til dæmis Spánn, Portúgal, Italía og hugsanlega Suður-Frakkiand henti til strútaeldis, en Norðurlönd, England og Þýskaland ekki. Miðað við lýsingar á loftslagi á suðurhluta Islands, taldi hann litlar líkur til að það myndi henta þar. „Þeir sem láta hafa sig: út í þetta, munu án efa verða fyrir miklum fjár- hagslegum skakkaföllum. Verðið var hátt í byrjun hér á landi, en hefur hrunið eftir að markaðurinn fyrir eld- isdýr dróst saman. Kjöteldið borgar sig alls ekki, og strútsleðrið hefur heldur ekki reynst sú gróðalind sem talið var. Til þess að sérstök einkenni og gæði leðursins haldist þarf að reyta strútana lifandi 2-3 dögum fyrir slátr- un. Það er bannað hér á landi, og því fæst lítið fyrir leðrið." Kösters segir að strútsfjaðrirnar hafi einnig gefíð minna af sér en búist var við, því þegar eldisstrútunum er slátrað eru þeir það ungir að fjaðrirnar eru ekki orðnar fullþroskaðar. Við stofnunina í Miinchen hafa heilbrigðisvandamál strúta sem aldir eru í Þýskalandi verið rannsökuð. í 90% þeirra tilfella sem hægt hefur STRUTAR éta úr Iófa þýsks strútabónda. verið að greina mátti rekja vanheilsu þeirra til slæms aðbúnaðar, fóðurs eða loftslags. Ofkæling, hálsbrot, önnur beinbrot og nýmasjúkdómar voru al- geng heilbrigðisvandamál. Strútsung- ar voru oft með gallaða beinabyggingu af völdum slæms fóðurs eða vöntunar á hreyfingu. Þýska dýraverndunarsambandið hefur barist hart gegn strútaeldinu. Dýraverndarsinnar segja að strútar þrífíst ekki í Mið-Evrópu vegna kald- ara loftslags og meiri vætu heldur en er í náttúrulegum heimkynnum þeirra í Afríku. Þeir benda á að strútar myndi ekki fitu á fjöðrum sínum til varnar vætu eins og fuglar á norðlæg- um slóðum gera. Raki og kuldi valdi því oft lungnabólgu. Einnig kvarta þeir yfir aðbúnaði eldisfuglanna og kunnáttuleysi bænda í meðferð þeirra. Strútsungar í Þýskalandi eru aldir innanhúss undir hitalömpum og án foreldra sinna. Því verða umsjónar- menn þeirra að reka þá til að hreyfa sig og éta. Of lítil hreyfíng veldur því að fæturnir þroskast óeðlilega og dýr sem verða fyrir þeim skaða verður að slátra. Dýraverndunarsinnar segja ennfremur að ungir fuglar þoli illa kraftfóður sem notað er við strútaeld- ið í Þýskalandi. Það valdi meltingar- truflunum og sjúkdómum sem verða mörgum þeirra að bana. Drepa hver annan vegna hreyfingarleysis Eldisstrútar þurfa að hafa þurrt skýli á veturna en óþarft er að það sé hitað. Þó mega þeir ekki vera inni í húsi of lengi án hreyfingar. Eftir þriggja daga hreyfingarleysi taka þeir til við að gogga hver annan til bana af leiðindum og stressi. í náttúrulegu umhverfi sínu éta strútar kísilsteina til að bæta melting- una. Eldisfuglar í Þýskalandi éta í staðinn flest sem að kjafti kemur í högunum. í þýska tímaritinu Spiege' segir frá því að í maga dauðra strúta hafí fundist smámynt, vasahnífar, naglar og fleira. Umsjónarmenn þeirra þurfa því helst að grandskoða hagana með reglulegu míllibili til að ekki leynist þar skaðlegir hlutir. Strút- ar teljast reyndar ekki til gáfaðra dýra enda vegur heili þeirra ekki nema um 70 grömm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.