Morgunblaðið - 09.10.1996, Side 34

Morgunblaðið - 09.10.1996, Side 34
* 84 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ EINAR ÁRNASON + Einar Kristján Gunnlaugur Arnason fæddist 22. júlí 1925 í Landakoti í Sandgerði. Hann lést í Reykjavík 29. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru þau Arni Magnússon útvegs- bóndi þar og seinni kona hans Sigríður jff- Júlíana Magnúsdótt- ir. Ami var sonur Magnúsar útvegs- bónda í Sandgerði Eyjólfssonar á Ytri- Sólheimum, Eyjólfssonar. Móðir Magnúsar var Steinunn Magnús- dóttir. Móðir Arna var Vilborg Berentsdóttir, bónda í Mört- ungu, Oddssonar. Móðir Vil- borgar var Málfríður Ólafsdótt- ir bónda í Eyjarhólum, Högna- sonar og Ingveldar Jónsdóttur, Högnaætt. Sigríður var dóttir Magnúsar bónda í Geitagili, Ein- arssonar, vinnumanns, Einars- sonar, hreppstjóra á Hrýóti, Ein- arssonar, ættföður Kollsvíkurættarinn- ar, Jónssonar. Móð- ir Magnúsar var Sigríður Magn- úsdóttir, hrepp- stjóra á Hvalskeri, Einarssonar og Guðríðar Bjarna- dóttur frá Hnjóti. Einar kvæntist 5.4. 1963 Maríu Bergmann, f. 12.9. 1935. Þau María eignuðust þrjú böm, Gylfa Björn, f. 18.3. ’64, Hafstein Gaut, f. 8.4. ’65, cand. oecon. sem nýlega lauk MA prófi í stjórnun milliríkjaviðskipta frá Thunderbird háskólanum í Ariz- ona, og Helmu Rut, f. 7.12. ’67, MA í sálarfræði. Fyrir hjúskap eignaðist Einar dótturína Guð- rúnu Magdalenu, f. 29.8. 1957, og á hún 2 börn. Útför Einars fer fram frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Við fráfail Einars Árnasonar mágs míns streyma fram í hugann minningar um mikinn mannkosta- mann. Kynni okkar hófust veturinn 1963 er hann kvæntist systur minni Maríu Bergmann, flugfreyju, en Ein- ar var þá starfandi flugstjóri hjá Loftleiðum hf. { ljóði sínu Minningar kemst Jón Thoroddsen svo að orði: Hauðrið það hylst af skuggum og hjartað fær enga ró, því minninga-bylgjumar brotna um blindsker á lífsins sjó. " Þær líða á hafinu hljóða með huggun, kviða og sorg. En hverfa svo héðan loksins í heldimma tímans borg. Einar var kominn af bændum og sjómönnum hvert sem ættir hans eru raktar. Einar ólst upp við öll venju- leg landbúnaðarstörf og fiskverkun sem unglingur í stórum systkina- hópi. En hann var snemma ákveðinn í því, að bijótast fram til fjár og frama. Hefur honum ef til vill verið innanbijósts sem Agli Skalla-Gríms- syni er hann orti: „Það mælti mín móðir, að mér skyldi kaupa fley og fagrar árar“. Og Einar lagðist í vík- ing. En ekki var mikið mulið undir Iiann. Hann gerði hlutina sjálfur. "“rlann gekk í kvöldskóla í Sandgerði og sótti mótoristanámskeið í Reykja- vík. Stundaði flugnám við Spartan School of Aeronautics í Tulsa, Okla- homa, 1946-1947 og við Air Service Training í Southampton 1951-1952 og hlaut að því loknu bresk flug- stjórnarréttindi og réttindi sem flug- leiðsögumaður. Einar var síðan flugmaður hjá Loftleiðum hf. 1947-1948 og flug- stjóri þar 1948-1964 er hann hóf útgerð. Urðu þar þáttaskil í lífi hans. Hann hafði orðið að hætta flugstjó- rastarfínu vegna sjúkdóms, sem lagðist á hann þar til yfir lauk, Park- insonsveikinnar. En Einar hafði áfram áhrif á þróun fiugmála í land- inu því hann sat í stjóm Flugleiða hf._ allt til ársins 1988. I flugstjórnarstarfinu naut Einar sín vel því traustari og samvisku- samari starfsmaður varð vart fund- inn. En nú hófst útgerðartímabilið í ævi Einars. Hann varð forstjóri og aðaleigandi útgerðarfélaganna Borgarkletts hf. og Búðakletts hf. en þau fyrirtæki áttu og gerðu út Árna Magnússon GK 5 og Arnar RE 21. Þá stofnaði hann útgerðar- félagið Sjóla hf. 1964 ásamt hinum kunna skipstjóra Eggerti Gíslasyni. Það fyrirtæki gerði út Gísla Árna RE 375 til ársins 1985. En nú var heilsu Einars svo kom- ið, að hann varð að hætta umsvifum t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, GUÐJÓN STEINAR EINARSSON bifvélavirki, Marbakkabraut 34, Kópavogi, andaðist í Landspítalanum sunnudag- inn 6. október. Bjarney Magnúsdóttir, Valgerður Guðjónsdóttir, Magnús Guðjónsson, Birgitta Guðjónsdóttir. sínum. Var sorglegt að sjá hinn mikla athafnamann verða sjúkdómn- um að bráð, en hann fylgdist alltaf vel með atvinnulífi landsmanna. Slíkur var áhugi hans á framkvæmd- um öllum og atvinnurekstri. Ávallt var ánægjulegt að koma á hið glæsilega heimili þeirra og veitt var að mikilli rausn. Mörgum er minnisstæð afmælisveisla Einars er hann varð fimmtugur og tóku þau hjón á móti gestum á Fjölnisvegi 9, með þeim hætti að aðdáun vakti. Einar gat verið manna harðastur í viðskiptum, en hann átti til aðra hlið, en það var einstök hjálpsemi og fyrirgreiðsla við ættingja og vini. Nutu margir Einars þegar mikið lá við. En þegar rnenn standa yfir moidum Einars Árnasonar verða lík- lega karlmennska hans og æðruleysi minnisstæðust. Aldrei heyrðist frá honum æðruorð. Hann var hetja á borð við Þóri Jökul Steinfinnsson og Gunnlaug ormstungu, ef vitna má til Islendinga sagna. Einar gerði víðreist um dagana og hafði kynnst mörgum þjóðum og menningu þeirra. Hann hafði numið hátækni í flugi og útgerð. En Einar glataði aldrei sínum einkennum og uppruna. Hann var alla tíð hinn ís- lenski útvegsbóndi svo sem verið höfðu forfeður hans. Einars Árna- sonar er gott að minnast. Saga hans er hvatning til ungra manna um það, að þeir eigi möguleika í lífinu þótt ekki séu mikil efni í öndverðu. Að lokum er ekki annað eftir en að kveðja og þakka samfylgdina. Samúðarkveðjur til Maríu og barn- anna, svo og annarra ættmenna, frá okkur Rannveigu. „Guð mun þerra hvert tár af aug- um þeirra og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur, neyð né kvöl er framar til.“ (Op. 24.4.) Hilmar Björgvinsson. Mig langar til að kveðja gamlan og góðan æskuvin með örfáum lín- um; Einar Árnason frá Landakoti í Sandgerði, sem lést að heimili sínu í Reykjavík þann 29. september síð- astliðinn. Við Einar ólumst upp svo að segja á sömu þúfunni í Sandgerði og vor- um mestu mátar allt frá því við mundum fyrst eftir okkur. Við bröll- uðum margt ungir og hressir strákar á okkar æskuárum og á þessum árum var gott að búa í Sandgerði. Þarna voru aðstæður fyrir fjörkálfa eins og okkur nánast eins og sér- hannaðar. Öll atvinnuflóran eins og hún lagði sig, að ógleymdum bú- skapnum með sínum árstíðabundnu verkum sem við fengum svo sannar- lega að taka þátt í. Við kynntumst því fljótt öllu og öllum, því forvitnin var svo mikil og allt var svo spennandi og skemmti- legt og margs er að minnast. Til dæmis þegar við lékum okkur niðri við sjóinn eða vorum úti í haga að gæta að hestunum. Þá var og fót- bolti að verða mjög vinsæll og ég man hvað við Einar vorum sárir yfir að mega ekki vera einir af stofnend- um knattspymufélagsins Reynis í þá gömlu góðu daga, þar sem við vorum ekki orðnir 14 ára gamlir. En seinna tókum við Eiiiar þátt í stofnun skátafélagsins Stafnbúa sem Valdimar Össurarson kennari tók að sér að stjóma. Og árið 1938, aðeins þrettán ára gamlir, stofnuð- Glæsileg kaffi- Maðbord, faliegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar ísíma 5050925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR 8ÍT£L LOFTLEIDMí um við Einar saman okkar fyrsta fyrirtæki, þegar við keyptum fjörug- an graðhest sem reynst hafði mönn- um mjög erfiður. Ökkur tókst hins vegar með lempni að temja folann og fengum við dágóðan pening fyrir hann. Nú, þegar litið er yfir farinn veg, hrannast upp minningar vináttu og tryggðar í gegnum árin og oft þegar við hittumst rifjuðum við líka upp þessa gömlu góðu daga í Sand- gerði. En hér yrði of langt mál að fara að tíunda allar þær góðu stund- ir. Þær geymi ég með sjálfum mér. En um leið og kveð gamlan vin og félaga vil ég fá að þakka sam- fylgd þessa góða drengs. Eg og ijölskylda mín sendum öll- um aðstandendum Einars okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi og geymi minningu hans. Skúli Eyjólfsson. Nú eru liðin 40 ár frá því við kynntumst Einari Árnasyni. Þessi kynni hófust vegna sameiginlegs áhuga okkar á bridsspilinu og í þessi 40 ár höfum við meira og minna spilað saman í keppnum og heima- klúbbum. Með okkur öllum tókst mikil vinátta. Til að byija með var tími Einars naumari en okkar hinna vegna vinnu hans sem flugstjóra hjá Loftleiðum, en hann bætti það upp síðar meir er hann aðeins 38 ára að aldri varð að hætta öllu flugi þar sem hann greindist með Parkinson veiki. Allt í einu varð hann að hætta því starfi sem hafði átt hug hans allan frá því á unglingsárum er hann tók þá ákvörðun að læra til flugs. Til að safna fyrir námskostnaði vann hann ungur maðurinn hörðum höndum bæði til sjós og lands og tókst að ljúka flugprófi með láði frá Tulsa í Bandaríkjunum aðeins 22 ára gamall. Fyrsta starf hans sem flugmaður var á síldarleitarflugvél, en síldarleit var stunduð á sumrin síldarleysisárin eftir stríð. Síðan varð hann flugmaður og flugstjóri hjá Loftleiðum. Það voru mikil erf- iðleikaár hjá Loftleiðum og stóð til að leggja félagið niður. Þá stóðu allir starfsmenn félagsins saman ásamt fleirum við að lengja lífdaga þess. Það tókst og tókst vel! Þegar Loftleiðir höfðu rétt úr kútnum fannst Einari rétti tíminn til að fást við útgerð og lét hann smíða fyrir sig síldar- og loðnuskip í Harstad í Noregi og fékk það heim 1963 og skírði það Árna Magnússon í höfuð- ið á föður sínum. Árið 1965 kom síðan Amar, stærra og meira skip, og 1966 GSsli Árni, stærsta skip síld- arflotans. Þá var hann búinn að mynda félag með mesta aflamanni á síld- og loðnuveiðum, Eggérti Gíslasyni. Samvinna þeirra stóð samfleytt til 1984. Eftir það hafði Einar ekki lengur heilsu til að fylgj- ast með útgerðinni og seldi Eggerti hlut sinn í fyrirtækinu, en vinátta þeirra hélst alla tíð. Eins og sjá má á þessum orðum var Einar óvenju hugumstór. Á að- eins fjórum árum hefur hann látið smíða þijú ný fiskiskip bestu tegund- ar á sínum tíma. Hann bar af öðrum er við þekkjum að dugnaði og dáð. Hann sýndi einnig mikla hetjudáð í baráttu sinni við sjúkdóm sinn í yfir 30 ár og lét hann ekki aftra sér frá að lifa með reisn til síðasta dags. Daginn sem Einar lést höfðum við vinirnir ákveðið að fara austur í Þrastarskóg í sumarhús, en okkur leist ekki á veðurútlitið og hættum við þá ferð, en þá um kvöldið hélt Einar í sína síðustu ferð, ferðina sem okkur öllum er búin. Einar var alltaf höfðingi heim að sækja og við vinir hans þökkum honum samfylgdina og vináttuna. Einnig vottum við börnum hans ættingjum og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúð. Agnar Jörgensson, Guðmundur Pálsson, Róbert Sigmundsson. Vinur minn, Einar Árnason, fyrr- verandi flugstjóri, er látinn. Fyrir tæpum 40 árum kynntist ég Einari fyrst. Það var á leið frá Hamborg til Reykjavíkur haustið 1958. Þetta varð söguleg og jafnframt óvenjuleg ferð en Einar var þar flugstjóri Hún tók hátt á annan sólarhring í öllum þremur DC 4-flugvélum Loftleiða á þeim tíma , Heklu, Eddu og Sögu. Allar urðu þær fyrir hreyfilbilun og þurfti að snúa við inn til Stavangurs- flugvallar á þremur hreyflum til við- gerða og flugvélaskipta. Einar var afburða flugstjóri og það kom glöggt fram í þessari ferð. Rósemi hans, öryggi og öll framkoma var slík að traust farþeganna á flugstjóranum varð algjört og það olli engum áhyggjum að lenda þrisvar í sömu ferð í þremur flugvélum með þijá af fjórum hreyflum virkum. Ég átti eftir að kynnast Einari betur í tímans rás og mín kynni af honum voru þau, að þar fór dreng- skaparmaður og traustur vinur. Ein- ar má telja til frumheijanna í ís- lenskum flugmálum. Hann var í hópi fyrstu flugmanna Loftleiða hf. og sat í stjórn Loftleiða hf. í tvo áratugi. Einar fæddist í Landakoti, Sand- gerði, 22. júlí 1925. Á fimmtugsaf- mæli Einars flutti vinur hans Krist- ján Guðlaugsson stjórnarformaður Loftleiða honum frumort ljóð sem ég leyfi mér að vitna í að hluta hér á eftir: í Sandgerði er sjórinn fagur er sumarið fer í hönd. Lognaldan leikur þar stundum við lága og brimsorfna strönd. Móðir hans, Sigríður Magnúsdótt- ir, var ættuð að vestan en faðir hans, Árni Magnússon, var Suðurnesja- maður, útvegsbóndi og sjómaður. Einar var alinn upp við sjó. Hann fór til sjós á unglingsárum og stund- aði sjóinn í nokkur ár. Þú kynntist þessu öllu í æsku, þér ægði ei brimsins skafl. Þú tefldir af dirfsku við djúpin og dróst þaðan kjark og afl. En hugur hans var bundinn há- loftunum og hann ákvað snemma að gerast flugmaður. Hann lagði fyrir allt sem hann aflaði og hóf nám í kvöldskóla til enskunáms. Um tví- tugt taldi hann sig hafa aflað nægi- legs fjár til þess að halda utan til Bandaríkjanna og láta drauminn rætast og það gerði hann. Frá upphafi allra vega í æsku þú stefndir hátt, og lagðir á nýjar leiðir um loftið heiðskírt og blátt. Einar lauk flugnámi frá Spartan School of Aeronautics í Tulsa, Okla- homa, árið 1947 og síðar var hann við flugám í Southamton í Bretlandi og öðlaðist þar bresk flugstjórnar- réttindi hin meiri. Hann var flug- maður hjá Loftleiðum hf. á árunum 1947-1948 og flugstjóri hjá sama félagi á árunum 1948-1964. Hann flaug ýmsum gerðum flugvéla þess félags og má þar nefna Stinson Reliant, Grumman Goose, Katalínu, Douglas DC 4, yfirleitt nefndar „Skymaster “ og DC 6 B, „Cloud- master“-vélum. Hann tók jafnframt virkan þátt í félagsmálum og var meðal annars formaður FÍA, Félags íslenskra at- vinnuflugmanna 1952-53. Hann var líka virkur þátttakandi í mörgum þeim ákvörðunum og atburðum sem mótuðu íslenska flugsögu þvf hann var kjörinn í varastjórn Loftleiða hf. á sögulegum aðalfundi á árinu 1953 og í aðalstjórn árið 1960 og sat í stjóm þess félags allt til stofnunar Flugleiða hf. á árinu 1973. Stjórn Loftleiða hf. var mun virkari á þess- um árum í daglegum rekstri en al- mennt gerist í hlutafélögum. Saga Loftleiða var vissulega ævintýri, en það er ekki afreks- eða framkvæmda-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.