Morgunblaðið - 17.10.1996, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Víða erfiðleikar í fiskvinnslu á Norðurlandi vegna hækkandi hráefnisverðs og lækkandi afurðaverðs
Astandið sér- staklega slæmt í bolfiskvinnslu Mörg fískvinnslufyrirtæki víðs
vegar um Norðurland hafa undanfarið sagt upp starfsfólki vegna erfiðleika í rekstri. * ic; j
Kristján Kristjánsson leitaði f' .
upplýsinga um stöðu mála 12; ’ ■ Ék! ’ ,±Jm
ATVINNUÁSTAND í fisk-
vinnslu á Norðurlandi er
víða slæmt og þá sérstak-
lega í bolfiskvinnslunni. Fiskiðjan-
Skagfírðingur á Sauðárkróki hefur
nýlega sagt upp um 90 manns,
60 á Sauðárkróki og um 30 á
Hofsósi. Þá hefur Hraðfrystihús
Ólafsfjarðar sagt upp öllu sínu
starfsfólki, alls um 60 manns og
hyggst leggja niður bolfískvinnsl-
una um áramót. Útgerðarfélag
Akureyringa hf. hefur sagt upp
rúmlega 20 starfsmönnum í lönd-
unarhópi fyrirtækisins og hyggst
bjóða þann rekstur út. Auk þess
Morgunblaðið/Kristján
BREYTINGAR standa yfir í vinnslunni hjá Útgerðarfélagi Akureyringa og er þegar búið að koma
fyrir lausfrysti og pökkunarlínu. Þessa dagana er verið að setja upp einn stærsta fiskiflokkara
landsins sem keyptur er frá Marel. Áður voru 20-30 manns í flokkun og vigtun hjá fyrirtækinu en
með tilkomu flokkarans munu 5-6 manns vinna við það verk. Á myndinni eru Jón Benediktsson
og Hermann Guðmundsson frá Marel og Sigurpáll Pálsson frá ÚA.
hefur tveimur verkstjórum, einum
á Akureyri og öðrum á Grenivík
verið sagt upp vegna skipulags-
breytinga. Söltunarfélag Dalvíkur
og Strýta á Akureyri hafa sagt
upp fólki í rækjuvinnslu fyrirtækj-
anna, um 25 manns og jafnframt
sagt upp vaktavinnusamningnum.
Karl Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ól-
afsfjarðar, segir að þar sé nú ver-
ið að vinna bolfisk en hann sér
ekki fyrir sér slíka vinnslu eftir
áramót. „Við erum að skoða hér
ýmsar leiðir varðandi framtíðina
og það mun ekki skýrast fyrr en
BLABSINS
iiman vegglia heimili
Meðal efnis:
• Nútíma eldbúsið
• Nýjungar í gólfefnum
• Leitin að rétta
húsbúnaðinum
• Ttxknivaðing
heimilisins
• Gardínur og ráðgjöf
• Lýsing og Ijós
• Vinnuaðstaðan heirna
• Bamaherbergið
• Rúm og rúmdýnur
• Borðbúnaður
• Málverk, myndir
og speglar
• Litir og litaval
• Þrif
• Nýjungar o.fl.
Sunnudaginn 27.október
/ hitium árlega blaðauka Innan veggja heimilisins verður fjallað vítt og breitt
utn heimilið á líflegan og skemmtilegan hátt.
Tekið verður hús á fólki og lesendum gefin góð ráð í máli og myndum.
í blaðaukanum verður m.a. rætt við innanhússarkitekt og ráðgjafa um hönnun, samsetningu húsmuna, gardínur
og lýsingu. Einnig verður sýnt hvemig ávextir, blóm og grænmeti geta lífgað upp á heimilið. Þá verða
nýjungar í gólfefnum, litum og innréttingum skoðaðar og leitast verður við að kynna það nýjasta á markaðnum.
Anna Eltnborg Gunnarsdóttir og Agnes Amardóttir,
sölufulltrúar í auglýsingadeild, veita allar nánari upplýsingar í sima 569 1171 eða með símbréfi 569 1110.
Skilafrestur auglýsingapantana
er til kl. 12.00 mánudaginn 21. október.
- kjarni málsins!
nær dregur áramótum hvert fram-
haldið verður. Hins vegar er ekk-
ert sem bendir til þess að við
munum vinna hér bolfisk eftir ára-
mót,“ sagi Karl.
Ekki fá allir vinnu aftur
Jón Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Fiskiðjunnar-Skagfirðings,
segir að uppsagnir starfsfólks séu
til komnar vegna endurskipulagn-
ingar. Hann segir alls óvíst með
framhald saltfískvinnslunar á
Hofsósi, þar sem nánast öllum
starfsmönnum fyrirtækisins var
sagt upp. Á Sauðárkróki var um
60 starfsmönnum af rúmlega 100
sagt upp störfum.
„Þrátt fyrir þessar uppsagnir eru
40-50 manns í landvinnslunni hjá
okkur. Við erum ekki að hætta í
landvinnslu en munum aftur laga
okkur að aðstæðum á hveijum tíma
og byggja á því fólki sem eftir
verður. Eg get alla vega ekki séð
að allur þessi hópur sem fengið
hefur uppsagnarbréf fái starf hjá
okkur í náinni framtíð,“ segir Jón.
Uggandi um framtíðina
Kaupfélag Eyfirðinga rekur
frystihús á Dalvík og í Hrísey og
segir Magnús Gauti Gautason
kaupfélagsstjóri að staðan í bolfísk-
vinnslunni sé bæði mjög erfið og
slæm. „Við erum að vinna í því að
fínna flöt á því að halda þessari
vinnslu áfram. Sú vinna er ekki
komin nægilega langt og því engar
ákvarðanir verið teknar um fram-
haldið. Því miður eru____________
ekki mörg teikn á lofti
um að hagur bolfisk-
vinnslunnar batni, heldur
þvert á móti og maður
er frekar uggandi um “■
framtíðina miðað við núverandi
aðstæður," sagði Magnús Gauti.
Yfir í uppsjávarfiskinn
Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar, segir að þar á bæ
hafi menn verið að færa sig frá
bolfiskvinnslunni og yfir í aðra
vinnslu. „Okkur hefur fundist hrá-
efnisverð óeðlilega hátt og ekki
getað byggt á því. Við höfum því
verið að færa okkur yfir í vinnslu
uppsjávarfisks, loðnu og síld. Síð-
an eigum við alltaf birgðir af
frosnum rússafíski og vinnum
hann þess á milli. Rússafískinn
kaupum við eftir hendinni og höf-
um getað fengið nóg af honum til
þessa. Við höfum enga heimild til
að kaupa inn hráefni á verði sem
afurðaverð getur ekki borgað og
safnað skuldum. Þannig hefur
ástandið verið í töluvert langan
tíma, við höfum ekki tekið þátt í
því og ætlum ekki að gera það.“
Jóhann segist sjá fyrir sér að í
Vofir yfir að
ástandið geti
versnað
framtíðinni muni fyrirtækið
minnka botnfiskvinnsluna enn
frekar en aftur auka vinnslu upp-
sjávarfisks. „Með sjókælingu á
uppsjávarfiski á geymslutími hrá-
efnisins eftir að aukast og um leið
munu æ fleiri frystihús taka þátt
í þeirri vinnslu og að sama skapi
minnka botnfiskvinnsluna," segir
Jóhann. Hjá fyrirtæki hans vinna
60-70 manns og er næg atvinna
á Þórshöfn.
Hjá Þormóði ramma á Siglufirði
er aðaláherslan á rækjuvinnslu og
starfa um 80 manns á þrískiptum
vöktum í þeirri vinnslu, alls 20
tíma á sólarhring sex daga vikunn-
ar. Unnar Már Pétursson, skrif-
stofustjóri fyrirtækisins, segir erf-
itt að spá í framtíðina. „Afurða-
verð hefur verið að lækka og það
er ekkert sem bendir til þess að
það verði nein geysileg hækkun
aftur. Þetta er því það umhverfi
sem við verðum að búa við í dag
og við erum sæmilega bjartsýnir
á framhaldið."
Unnar Már segir að bolfisk-
vinnsla fyrirtækisins hafi gengið
hálfbrösuglega eins og hjá öðrum
fyrirtækjum. Um 40 manns teng-
ist bolfiskvinnslunni og hefur hrá-
efnisöflun gengið nokkuð vel.
Víða mikil vinna
Aðalsteinn Baldursson, formað-
ur Verkalýðsfélags Húsavíkur og
formaður fiskvinnsludeildar VMSI
segir stöðu fískvinnslunnar í Þing-
eyjarsýslu þokkalega, víða sé mik-
il vinna og fyrirsjánlegt
að hjólin fari að snúast
enn hraðar þegar síld og
loðna fari að veiðast.
„Hvað Norðurland varð-
ar má segja að ástandið
sé upp og ofan, víða eru stöndug
fyrirtæki og mikil vinna en annars
staðar róa menn lífróður til að
bjarga rekstrinum, þetta er annað-
hvort í ökkla eða eyra,“ segir
Aðalsteinn.
Matthildur Siguijónsdóttir,
varaformaður Verkalýðsfélagsins
Einingar og stjórnarmaður í fisk-
vinnsludeild Verkamannasam-
bandsins, segist gera sér fulla
grein fyrir þeim erfiðleikum sem
er í bolfiskvinnslunni í dag. „Hins
vegar sýna afkomutölur físk-
vinnslufyrirtækja methagnað og
aflatölur frá síðasta fiskveiðiári
sýna að aldrei áður hafí jafnmikill
afli borist á land. Miðað við þetta
ætti staða fyrirtækjanna að vera
þokkaleg og ég er því sæmilega
bjartsýn á framtíðina og á góðan
árangur í komandi kjaraviðræð-
um. I þeim viðræðum eru grunn-
kaupshækkanir og starfsöryggi
stærstu málin.“
Valdimar Guðmarsson, formað-
ur Verkalýðsfélags A-Húnavatns-