Morgunblaðið - 17.10.1996, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 25
LISTIR
Andi
Grundtvigs
BOKMENNTIR
Skáldsaga
HUGSANLEGA HÆFIR
eftir Peter Höeg. Eygló Guðmunds-
dóttir íslenskaði. Mál og menning
1996,242 bls. Bókin kom fyrst út í
Danmörku 1993.
DANSKI rithöfundurinn Peter
Höeg varð stórt nafn í dönskum
bókmenntum er hann sló í gegn
með skáldsögu sinni Lesið í snjóinn
1992, sem kom út í
íslenskri þýðingu
1994. Hugsanlega
hæfir er önnur af tveim
bókum sem koma nú
út í íslenskri þýðingu,
en hin er Konan og
apinn sem væntanleg
er á haustmánuðum.
Hugsanlega hæfir
segir frá þremur ung-
mennum sem vistuð
eru á uppeldisstofnun-
um, fyrst á vegum rík-
isins, en síðar liggja
leiðir þeirra saman í
einkaskóla þar sem
fram fer einhvers kon-
ar tilraun til að blanda
saman venjulegum
börnum og börnum sem koma frá
erfiðum heimilum og uppeldisstofn-
unum. Þessi einkaskóli, sem kallað-
ur er Biehl-kólinn eftir skólastjóra-
num, þar sem andi Grundtvigs lifir,
þess er innleiddi lýðskólana sem
Islendingum eru kunnir.
Frásagnarmaður, sem er einn
þremenninganna, leiðir frásögnina
og rifjar upp veru sína og tjáir til-
finningar sínar gagnvart hinum
meginpersónum sögunnar, Katar-
ínu _sem misst hafði foreldra sína
og Ágústi sem framið hafði voða-
verk á foreldrum sínum.
Textinn er byggður upp á stutt-
um brotum og þar skipa heimspeki-
legar hugleiðingar sögumanns stór-
an sess. Það er einkum tvennt sem
frásagnarmaður reynir að öðlast
skilning á, þ.e. annars vegar upplif-
un hans á tímanum og hins vegar
samspil valds og tilrauna sem
byggðar eru á hugmyndum Dar-
wins um þá hæfustu enda vísar tit-
ill verksins til þess.
Viðfangsefnið er því kannski
nokkuð danskt, þ.e. vandamál tengt
hinum samfélagslegu stofnunum,
sem hveijar taka við af annarri;
vöggustofa, barnaheimili greining-
arstöð, skóladagheimili, meðferðar-
heimili, uppeldisheimili og öryggis-
gæsludeild.
Tími verksins er seinni hluti sjö-
unda áratugarins, sem aftur setur
mark sitt á innviði viðfangsefnisins
í sögu Höegs. En þrátt fyrir að við-
fangsefnin séu hin félagslegu
vandamál verða heimspekihugleið-
ingarnar eiginlega þungamiðja sög-
unnar og verða fyrirferðarmeiri í
textanum en ná ekki að fléttast
nógu sannfærandi saman við aðra
þætti verksins.
Persónusköpun Höegs byggist á
samspili frásagnarmanns og ann-
arra persóna, sérstaklega Katarínu
sem sögumaður hafði fellt hug til,
og Ágústs sem er farinn tilfmninga-
lega og kerfið getur
ekki komið til hjálpar.
Aftur á móti verða full-
trúar kerfisins helst til
of einsleitir, þó að
reynt sé að setja þá í
samhengi við ríkjandi
hugmyndir líkt og
skólastjórinn Biehl sem
byggir hugmyndir sín-
ar á kristnum hug-
myndum svo og nátt-
úruvísindalegum hug-
myndum gagnvart ein-
staklingum sem orðið
hafa fyrir tilfinninga-
legum áföllum.
Þrátt fyrir að Hugs-
anlega hæfir sé samfé-
lagsleg krufning reynir
Höeg að skapa spennu í textanum
og tekst honum þar nokkuð vel upp
á köflum, en miðbik verksins er
dálítið þvælið og ruglingslegt, en
þar gengur frásögnin of hægt fyrir
sig og verður fyrir vikið langdregin.
Hugsanlega hæfir sver sig í ætt
við póstmódemíska skáldsögu, á
þann hátt að textinn tekur fyrir
viðfangsefni sem kennt er „vanda-
mal“ en Höeg beitir öðram efnistök-
um, þ.e. reynir að skapa ákveðna
spennu meðfram hugleiðingum um
heimspeki, og ok stofnanafargsins
þar sem valdið ríkir.
Textinn er oft á tíðum mjög sam-
anþjappaður með nákvæmum lýs-
ingum og er það er í takt við það
bragð að gera tungumálið stofnana-
legt með smásmygli þess er lýsir
heiminum á vísindalegan hátt.
Þannig að oft á tíðum er því textinn
mjög upplýsandi um innviði danska
kerfisins líkt og um rannsakanda
sé að ræða. Allt þetta tekst vel til
en aftur á móti tekst ekki alveg
jafn vel með persónusköpun því hún
er ekki nógu hárbeitt og persónum-
ar heldur líflausar og hálfgerð fé-
lagsleg „tilfelli" sem skortir per-
sónuleika.
Ekki hafði ég dönsku útgáfuna
en þýðingin var læsileg og ekki
fann maður fyrir neinum málhnökr-
um.
Einar E. Laxness
Peter
Höeg
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
HALLDÓR Guðmundsson, Árni Einarsson, Sigurður Svavarsson
og Birgir Finnbogason í bókakaffinu.
Kaffihús í bókabúð
KAFFIHÚS hefur verið opnað í
bókabúð Máls og menningar á
Laugavegi 18 í Reykjavík. Það er
rekið af eigendum Kaffibrennsl-
unar Súfistans í Hafnarfirði.
Kaffihúsið er á annarri hæð bóka-
búðarinnar og segjast forráða-
menn Máls og menningar ætla að
standa reglulega fyrir uppákom-
um þar. Fjörutíu gestir rúmast
við borð.
Sigurður Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Máls og menningar,
segir það gamlan draum að opna
bókakaffi í búðinni og eftir að
afgreiðslutíminn var lengdur
hefði þótt kjörið að ráðast í verk-
ið. Búðin og kaffihúsið eru opin
til 22,00 alla daga vikunnar.
„Með bókakaffinu," segir hann
„opnast möguleikar til að efna til
menningarviðburða, til dæmis er
Sigurdís Harpa Arnardóttir
myndlistarmaður með sýningu
núna en hún málar á bækur.“
Næsta fimmtudag verður svo ung-
skáldakvöld.
Sigurður segir að bókakaffið
eigi að vera kyrrlátur staður og
munu nýjustu bækurnar og tíma-
ritin liggja frammi á vögnum til
lestrar yfir ijúkandi kaffibollum.
Birgir Finnbogason rekur
kaffihúsið, en hann flytur inn
handtíndar kaffibaunir frá 18
mismunandi ræktunarsvæðum.
Hann opnaði Súfistann í Hafnar-
firði árið 1994. í bókakaffinu á
Laugavegi verður Birgir einnig
með grænmetisrétti, kökur og
vínveitingar. En reykingar eru
bannaðar.
Listhús 39
Handmót-
aðir reyk-
brenndir
leirvasar
SIGRÍÐUR Ágústsdóttir opnar
sýningu á handmótuðum, reyk-
brenndum leirvösum, laugardag-
inn 19. október kl. 15 í Listhúsi
39, Strandgötu 39, Hafnarfirði.
Sigríður
stundaði nám
í Englandi og
Frakklandi á
áttunda ára-
tugnum og
hefur rekið
eigið verk-
stæði undanf-
arin sex ár,
auk þess að
hafa kennt
leirmótun í
opnum vinnu-
stofum hjá
Reykjavík-
urborg mörg undanfarin ár.
Sigríður er einn þeirra 13 mynd-
listarmanna sem standa að rekstri
Listhúss 39, en þar eru margs
konar listmunir á boðstólum ásamt
því að sérstakar sýningar eru í
rými bakatil.
Sýningin stendur til 4. nóvem-
ber og er opin virka dagakl. 10-18,
laugardaga kl. 12-18 og sunnu-
daga kl. 14-18.
SIGRÍÐUR Ág-
ústsdóttir opn-
ar sýningu á
handmótuðum,
reykbrenndum
leirvösum á
laugardag.
HOFÐI
^0REAGAN%
^ GORBAJSJOV %
' L. H Ö F Ð I V
w,
OPINN ALMENNINGI
• Helgina 19.-20. október gefst fólki kostur á að skoða
húsið Höfða í Reykjavík frá kl. 11.00 - 17.00.
í tilefni að nú eru 10 ár frá því að leiðtogafundur Reagans
og Gorbatsjov var haldinn í húsinu.
• Leiðsögn verður um húsið á hálftíma fresti
frá kl. 11.00 - 16.00 báða dagana.
Skrifstofa borgarstjóra
mm
\Í.—líi Av..& .iL. >
Brauðostur kg/stk.
k 20% LÆKKUN
VERÐ NU:
VERÐ ÁÐUR:
ÞÚ SPARAR:
593 kr.
kílóið.
149 kr.
kílóið.
á hvert kíló.
OSTAOG
SMJÖRSALAN SH