Morgunblaðið - 17.10.1996, Síða 26

Morgunblaðið - 17.10.1996, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Y erktakasaga BOKMENNTIR Sagnfræöi SAMEINAÐIR VERKTAK- AR Eyþór Þórðarson tók saman. 205 bls. Útg. Sameinaðir verktakar hf. Reyiqavík, 1996. HÖFUNDUR bókar þessarar gerir grein fyrir markmiðum sínum í formála. Fyrst kveðst hann hafa sett saman þátt um _ Keflavíkur- flugvöll. í framhaldi af því hafi hann svo tekið sér fyrir hendur að safna heimildum um Sameinaða verk- taka. Sú samantekt varð að lokum uppi- staðan í bókinni. Áhugi höfundar og elja verður hvergi í efa dregin. Hins vegar vantar nokkuð á að honum hafi tekist að vinna úr efni sínu sem skyldi. Tilvitnanir birt- ir hann margar og sumar langar, allt að heilar þing- ræður sem unnt hefði verið að end- ursegja með fáum orðum. Á einum stað tekur hann upp gamlan mynd- artexta; »myndin sýnir ...« og svo framvegis. En hvar er þá myndin? Hana mun hvergi að finna í bók- inni ef rétt er skilið! Óþarfar endur- tekningar eru of margar. Höfundur- inn veit þó af þeim, því allvíða læt- ur hann þess beinlínis getið; »Eins og fram hefur komið« ... »Eins og síðar kemur fram« og þar fram eftir götunum. Ósjaldan hefði höf- undur mátt vera gagnorðari. Nær samanlagður texti hans sjálfs þó varla yfir meira en helming bókar- innar, sennilega miklu minna ef allar tilvitnanirnar eru reiknaðar frá. Þar sem höfundur hefur haft góðan aðgang að heimildum verður að líta svo á að sögulegar stað- reyndir hljóti að vera í lagi, þar með talin ártöl, mannanöfn og þess háttar. Meiri nákvæmi mætti hins vegar gæta þegar höfundur talar vítt og breitt. í Sögulegum aðdrag- anda, sem hann kallar svo, segir t.d.: »Að lokinni heimsstyijöldinni síðari í maí 1945 minnkaði atvinna hér á landi og lauk fímm ára tíma- bili mikillar atvinnu og hagsældar í íslensku þjóðlífi.« Af orðum þessum mætti ætla að hér hafi hvaðeina breyst til hins verra strax við stríðslokin. Því fór auðvitað fjarri. Allttil ársloka 1946, og raunar lengur, hélst rífandi vinna og hátt kaup, enda miklar fram- kvæmdir í gangi um allt land. Það var fyrst með árinu 1948, þegar gjaldeyrissjóðurinn var upp urinn, að aftur tók að syrta í álinn. Við endurkomu hersins vorið 1951 var ástandið orðið mjög alvarlegt eins og höfundur tekur réttilega fram, þúsund manns án atvinnu í Reykjavík, fimmtíu þúsund manna bæ. Auk verktakasög- unnar leitast höfundur við að lýsa daglega líf- inu í Vallarvinnunni. Einn kaflinn ber t.d. fyrirsögnina: »Sameinaðir verktakar innleiddu bingóspilið í íslenskt þjóðfélag.« Beinlínis rangt mun það ekki vera. Réttara væri þó að segja að bingóspilið hafi kom- ið með varnarliðinu, enda kemur það fram í kaflanum. Um stíl höfundar er fátt eitt að segja; efnið býður naumast upp á tilþrif í frásögn. Varla er hægt að álasa höfundi þótt hann segi að byggja flugvöll þar sem annað heyr- ist varla í íjölmiðlum nú orðið. Forð- um var sagt að reisa hús, smíða brú og leggja veg eða flugvöll. Ennfremur var talað um hafnargerð en aldrei um byggingu hafnar. í síðari hluta bókarinnar eru birt gögn, mörg og mikil, bæði prentuð og ljósrituð; ennfremur atriða- og myndaskrá; auk ritaskrár höfundar sem nær yfir hálfa fjórðu síðu. Hann telst því varla vera neinn byijandi í ritlistinni. Erlendur Jónsson Eyþór Þórðarson LISTIR PERRIAND á stólnum sem hún á heiðurinn af þótt hann beri nafn Corbusiers. skugganum Nýjar bækur • Út ER komin bók eftir Sigurbjörn Þorkelsson sem ber heitið, Þá munu steinarnir hrópa. í bókinni segir höfundur sautján smásögur sem hann byggir á sönnum atburðum víða að úr veröldinni. „Atburði hefur höfundur víða um- skrifað nokkuð og jafnvel fært í stílinn á köflum, án þess þó að kjarni þeirra raskist," segir í kynningu. Sögurnar segja allar af fólki sem komist hefur í kynni við Biblíuna. Sögunum fylgja orð úr Biblíunni, ís- lenskar bænir eða sálmar sem höf- undi eru hugleiknir. Sigurbjörn Þorkelsson er fædd- ur árið 1964 og hefur starfað sem framkvæmdastjóri Landssambands Gídeonfélaga á íslandi frá 1987. Þá munu steinarnir hrópa er önnur bók hans. Hún er innbundin, 72 bls. Út- gefandi er höfundur sjálfur. Urn útlit, umbrot og filmuvinnslu ogprentun sá Offsetþjónustan ehf. Bókin fæst íKirkjuhúsinu, Lauga- vegi 31, skrifstofu KFUM ogKFUK við Holtaveg, Versluninni Jötu, Há- túni 2, bókaverslunum Máls og menningar, hjá Eymundsson, hjá höfundi sjálfum og víðar. Sigurbjörn Þorkelsson Setið í STÓLINN á myndinni þekkir flest áhugafólk um hönnun en það sama á ekki við um konuna sem á honum liggur. Stóllinn er gjarnan kallaður „Le Corbusier“ eftir hinum heimsþekkta hönnuði en það var hins vegar konan unga, sem liggur í stóln- um, sem hannaði hann að langmestu Ieyti. Charlotte Perriand heitir hún og starfaði með Cor- busier og Pierre Jeann- eret um margra ára skeið. Paul Thompson, forstöðumaður Hönnun- arsafnsins í London, þar sem stendur yfir sýning á verkum Perriand fram í lok mánaðarins, telur að verk hennar hafi ekki verið metin að verðleik- um, hún hafi starfað í skugga hins heimsþekkta Corbusier. Perriand starfar enn þótt kom- in sé yfir nírætt og á meðal nýrri verka hennar má nefna stól sem hún hannaði fyrir Nútímalista- safnið í New York og japanskan garðskála fyrir Uneco í París. Ahugamenn um hönnun tengja nafn hennar þó fyrst og fremst CHARLOTTE Perriand ásamt Corbusier og Jeanneret (fyrir aftan). við Corbusier en erfitt hefur reynst að greina að hvar hennar verki sleppti og hans tók við. Sjálf hefur Perriand lítið viljað láta uppi um samstarf þeirra og samskipti en nú kann að verða breyting á því hún er nú að leggja lokahönd á bók um Cor- busier. „í bárufari“ Sigurður Þórólfsson Á tali hjá stúlku sem segir 6 OST OG HÖNNUN Listasafn Kópavogs SILFUR/GULL/ EÐALSTEINAR/GRJÓT SIGURÐUR ÞÓRÓLFSSON Opið alla daga frá 12-18. Lokað mánudaga. Til 20. október. Aðgangur 200 kr. TVENNT vekur athygli við gripi silfursmiðsins Sigurðar Þórólfsson- ar, fyrir hið fyrsta þarf hann að hafa meira fyrir gerð og mótun þeirra en aðrir menn, og svo er einfaldleikinn gegnumgangandi í þeim. Sigurður er hagur halur, sem áður hafði fengist við að skera út í tré, en sneri sér að erfiðara og harðara efni er afköstin þrengdu að húsakosti fjölskyldunnar. Um er að ræða 30 silfurskúlptúra og nær tug skipslíkana úr gulli og silfri, sem í sumum tilvikum eru skreytt eðalsteinum. Verkin eru frekar smá en njóta sum hver stuðnings fjörusteina í uppsetn- ingu, auk þess að vera hluti og undirstaða þeirra ásamt blágrýti. Þá er vinnsluferlið sýnt á tveim skjám og er góð viðbót, bæði til að gestir átti sig betur á tilurð verkanna og svo hinni miklu vinnu og einbeitni að baki þeirra. Aðdáunarverð er vissulega hin mikla einbeitni gerandans í ljósi aðstæðna, og hér sann- ast á sláandi hátt við- kvæði Giovannis Bol- traffio, nemanda Leon- ardos, „Þolinmæði þrautir vinnur allar.“ Formtilfinningin að baki verkanna er þó mikilsverðari og að listamaðurinn stenst flestar freistingar í átt að yfirdrifinni hand- lagni, hreinni völundar- smíði og að hlaða yfir- borðið fáfengilegu skrauti. Þótt orða megi það svo, að Sigurður sé í senn hagur og völundur í höndun- um, eru verkin borin uppi af af- markaðri formtilfinningu og honum gengur mun síður til að sanna umheiminum, að hann geti þetta þrátt fyrir allt, en að þjóna upp- runalegri og gildrí sköpunarþörf. Helst kristallast hún í mjög einföld- um verkum, til að mynda „Oft er í holti" (14), „Kútter Stefnir" (28) og „Kórall" (30), sem öll eru unnin í silfri og blágrýti. Nefni ég þessi þijú verk helst fyrir þá sök, að þau myndu njóta sín vel við stækkun og þá sem sérstakir minnisvarðar, eða sértæk skúlptúrverk ef menn vilja hafa það heldur. Hina eðlislægu sköpunarþörf Sigurðar má einnig marka af því, að hann sinnti henni lengstum sem tómstundaiðju, en með tímanum urðu aðstæður og atvik til þess að hann uppgötvaði að hún entist hon- um allan daginn og alla daga. Yarð það til þess að hann dreif sig til að taka próf í silfursmíði fyrir fjór- um árum. Það er einmitt þessi kennd og sköpunarárátta sem er hin verðmætasta og réttasta að baki námsþörf í listum og listíðum og telst fátíð á tímum er fólk fer í skóla til að „læra“ list. Í þeim tilvikum er Sigurður eftir- gerir sögufræg skip, kemur hið ein- falda formskyn hans mjög vel fram, því hér er það algjörleiki formsins sem ræður ferðinni, en smáatriðum sleppt. Öll eru skipslíkönin afar vel mótuð, en ævintýralegast er þó „Gullna-Hindin", hið nafntogaða skip sæfarans Sir Francis Drake. Helst má finna að lýsingu verk- anna, sem kemur úr of mörgum áttum og er full-hvell, þannig var ógjörningur að ná frambærilegum ljósmyndum á venjulega myndavél. Uppsetningin er einföld og auðvelt að nálgast verkin. Bragi Ásgeirsson KYIKMYNPIR Rcgnboginn SEX „GIRL 6“ ★★'/2 Leikstjóri og framleiðandi: Spike Lee. Handrit: Suzan-Lori Parks. Að- alhlutverk: Theresa Randle, Isaiah Washington, Spike Lee, Peter Berg, Debi Mazar. Fox Searchlight Pictur- es. 1996. í EINU af meistaraverkum Rob- erts Altmans, „Short Cuts“, fór Jennifer Jason Leigh með hlutverk húsmóður sem lifði á símaklámi en ekkert af því kynlífshjali sem hún sagði í símann og eiginmaðurinn heyrði og þráði að hún segði við sig fékkst hún til að orða við hann; hún leit ekki við 'honum. Síminn veitti henni hins vegar tjáningarfrelsi. Hún gat sagt allt við ókunnuga menn sem hún átti aldrei eftir að hitta. Það sama á við um aðalpersónuna í nýj- ustu gamanmynd Spike Lee, Sex eða „Girl 6“. Hún vinnur hjá stóru og virðulegu fyrirtæki sem selur sím- aklám og verður gersamlega gagn- tekin af starfinu og sekkur sér æ dýpra í heim símaklámsins sem verð- ur sífellt groddalegri. Hún er líklega í einskonar leit að sjálfri sér en í stað þess að finna sig í tilverunni týnir hún sér í því ábyrgðarleysi og ópersónulegu kynnum sem síminn veitir henni. Hún kýs að vera í GSM- sambandi við umheiminn. Líta má á Sex sem afturhvarf til litlu gamanmyndarinnar Hún verð- ur að fá’ða er markaði upphaf kvik- myndaferils Spike Lees. Myndin er gerð eftir handriti Suzan-Lori Parks og er smávægileg og persónuleg dæmisaga um unga konu á barmi taugaáfalls. Hún þarf að reyna ýmislegt áður en hún kemst að því að hún þurfti aldrei að leita, hún var búin að finna sig í lífinu sem upprennandi leikkona nógu stolt til að sýna ekki brjóstin á sér frammi fyrir leikstjórum. Lee segir sögu hennar nokkuð skemmtilega og af sínu kímilega innsæi og fær til liðs við sig kumpána eins og Quentin Tarantino og John Turturro og Ron Silver í örhlutverkum ásamt Ma- donnu, sem smellur einstaklega vel í hlutverk símamellumömmu. Sjálf- ur fer Lee eins og venjulega með þýðingarmikið hlutverk vinar ungu konunnar. Stúlka 6 eins og aðalpersónan er kölluð finnur sér fyrirmyndir í kven- hetjum svertingjamynda áttunda áratugarins og gamanþáttum sjón- varpsins og Lee hefur yndi af að skreyta myndina með uppdiktuðum senum af þeim vettvangi og gera lítið úr slíkum fyrirmyndum. Theresa Randle fer ágætlega með hlutverk ungu leikkonunnar og sýnir vel hvernig símaástríðan einangrar hana frá umhverfinu. Stúlka 6 er ekki einn af burðarbitunum á ferli leikstjórans góða en það er góður styrkur í henni. Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.