Morgunblaðið - 17.10.1996, Side 27

Morgunblaðið - 17.10.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 27 Við endur- flutning Esju ÉG MAN fyrst eftir Karli 0. Runólfssyni á æfingu í safnaðarheim- ili hér í borg, í hópi ungra reykvískra lúð- urþeytara. Hann var veðurbarinn að sjá; ég vissi aldrei af hveiju; eins konar Friðrik Frið- riksson tónlistarinnar. Svo sá ég hann aftur á skólatónleikum, þeg- ar ég var tólf ára, og hreifst af manninum; og loks á tónleikum í Háskólabíói 1968, þá 17 ára gamall, er sin- fónían Esja var frum- flutt. Verkið er mér hugstætt æ síðan, þótt ég hafi skynjað þá og nú, að það er barn síns tíma. En hvernig voru straumar tíðar Karls? Það var ekki beinlínis mulið undir menn í þá daga. Líf tónlistar- mannsins var púl og puð. Karl stjórnaði lúðrasveit barna, lék í danshljómsveitum, í Útvarpshljóm- sveitinni og síðar í Sinfóníuhljóm- sveit íslands, sinnti félagsmálum lúðrasveita um landið, og samdi í hjáverkum sönglög, kammerverk og hljómsveitarverk. Yfirferðin var ótrúleg. Ég ímynda mér því, að það hljóti að hafa verið óviðjafnanleg tilfinning fyrir Karl að eygja frum- flutning sinfóníu sinnar, Ésju, 1968. Frumflutningurinn varð raunar ekki sem skyldi; önnur verk á efnis- skránni hafa hugsanlega notið for- gangs stjórnandans. Hljómsveitar- raddir Esju voru hroðvirknislega unnar, og útkoman því harla skrautleg, og eflaust nokkur von- brigði fyrir Karl, sem þó sté keikur á ijalirnar og meðtók lófatak vina sinna og áheyrenda. Ég man, að þessi frumflutningur fór svolítið fyrir bijóstið á mér; mér fannst að það hefði átt að standa betur að honum. Og ég þóttist þess viss, að einhver myndi fyrr eða síðar vekja Esju af Þyrnirósarsvefninum. Mig óraði hins vegar ekki fyrir því að það kæmi óbeinlínis í minn hlut, en það er annað mál. Nú hefur verkið verið prófarkalesið og æft í sinni upprunalegu mynd. Esja er að vakna til lífsins á ný. Og hvernig kemur Esja undan vetri? mætti spyija. Vel, en það er að mörgu að hyggja. Maður verður óneitanlega hugsi and- spænis þessu verki. Ég held að fyrsta spurn- ingin hljóti að vera sú, hvernig ein lítil þjóð hefur efni á því að liggja líkt og ormur á gulli sínu, í stað þess að draga það fram og sýna það, sér og gestum til ánægju. Þetta er hins vegar ekki óþekkt fyrirbæri í öðrum löndum; Finnar vanmátu tónskáldið Madetoja, sem hrærðist Verkið hefur verið próf- arkalesið og æft í sinni upprunalegu mynd, seg- ir Guðmundur Emils- son. Esja er að vakna til lífsins á ný. í skugga Sibeliusar. Það kom reynd- ar í hlut Sinfóníuhljómsveitar ís- lands að koma verkum Madetoja í aðgengilegt form. Kannski hefðu forráðamenn hennar átt að líta sér nær, ekki bara til Jóns Leifs, heldur líka til Karls 0. Runólfssonar og annarra. Við getum reyndar sagt það sama um tónskáldin okkar nú á tímum, sem mega þola sama af- skiptaleysið og forverarnir. Auðvitað hlýtur maður líka að skoða Esju með gagnrýnum gler- augum. Verkið er ekki fullkomið. En það er merkilegt, ekki síst frá sjónarhóli íslenskrar tónlistarsögu. Það er síðrómantískt, enda vart við öðru að búast af manni, sem komst Nýkomin ódýr GRC Attalus plasthúðun náttfatnaður, leikfóng • Fjölbreytt vandaö úrval af efnum • Fullkomnar plasthúðunarvélar • Vönduð vara - betra verð og gjafavara. Wjfjlœsimegjcm Yý í leiðinni H GLtsibx, s. 553 3305 jgjg J.nSTVmDSSONHF. —== Skipholti 33.105 Reykjavík. sími 533 3535. ekki i kynni við framsæknar hug- myndir tónskálda eftirstríðsáranna fyrr en á sjötugsaldri. En innan þessa rómantíska ramma nýtur Esja sín vel, og margt er þar frum- legt og fallega gert. Hljóðfæraskip- an er hefðbundin og miðast við Sin- fóníuhljómsveit íslands, eins og hún var á þessum árum. Notkun hljóð- færanna tekur augljóslega mið af þessu. Það vantaði t.d. fjórða horn þá stundina í raðir hljómsveitarinn- ar. Karl kallar þá á fyrstu básúnu til að fylla í fjögurra radda horn- hljóm, sem aftur gefur tilteknum köflum sérkennilegan blæ. Eins var sellódeildin fámenn, og því fylgja fagottin sellóum og bössum líkt og skugginn. Að þessu þarf stjórnand- inn að huga nú og draga úr þeirri einhæfni, sem úr þessu getur orðið. Hljóðfallseinkenni verksins eru al- þjóðleg, ef frá er talið scherzo 3. þáttar, sem er í rímna- og vikivaka- stíl. Sama gildir um hrynjandi, hún er ekki séríslensk, heldur alþjóðleg. Til dæmis eru herlúðraköll áberandi í trompettum og málmblásurum, sem vart verður skilið nema með tilliti til Esju-sagna eða sagna af Kjalarnesi og bardögum þar, og hugsanlega gætir þar keltneskra áhrifa. Stefjaefnið er oft áhuga- vert, ekki síst hægu stefin, sem verða fljótt áleitin og bera sum hver einkenni evrópskra þjóðlaga. Framvinda verksins er epísk; það er sögð „saga“, og hún er drama- tísk. En kannski ris verkið ekki hæst i áhersluköfiunum, heldur þeim lágværari og myrkari. Og þar, allt í einu, eiga þeir samleið, Jón Leifs og Karl. Þar bregður fyr- ir sanníslenskri forneskju og rökk- urtrega, líkt og í upphafi verksins, þar sem básúnur, oft persónu- gervingar undirdjúpanna og hins illa, leika upphrópun, ásamt sellóum og bössum, sem slaghljóðfærin svara mjög hvasst. Auðvitað eru klisjur í Esju, og þá aðallega þegar hljómsveitin leikur fullskipuð. Þeir kaflar verða á stundum æði líkir óperuforleikjum í anda Verdis. Það sama má reyndar segja um hljóma- ferli verksins. En slíkt fýrirgefst jafnharðan, þegar glittir í frumleg- an og óvæntan tónvef. I sem fæstum orðum: Island er ríkara nú en áður. Við liggjum ekki lengur á gullinu, heldur veitum því verðskuldaðan sess. Höfundur er tónlistarráðunautur Ríkisútvarpsins. PRIISCESS MARCEl.LA JLFUKLrHJLM Með hrnm BORGHESE andfítsferemi fyígir þessi i glæsiíegi kaupauki* Dagkrem feakakrem Body lotion Ilmprufa 2 varalitir “ Ttikmnrkað magn. ÚTSölUSTAbÍR llygen, Krinp • Sóíbaftstofan, Grafarvogi Mjódd - spos, Háaloitisbraut - Sautján, Laugavegi urnosja, Koflavíli • Akranoss Apótek - Ninja, Vostmannaeyjum. HJÁ ANDRÉSI Rýmingarsalan heldur áfram 10-50% afsláttur Dæmi: 3 teg. smókinga. Verð aðeins 14.900 Stakar smókingbuxur. Verð 2.900 Vatidaðar vörur á vcegu verði ANDRÉS Skólavörðustíg 22A, s. 551 -8250. Póstkröfuþjónusta. ^rmaginn vandamál? Sílicol f;r riáttúruífKil bcjötifrfni f;f:rn vinriur gföíjn óþír:íjiriflurn í mucjr'j og fityrk'lr fefirfdvefi Ífkíjrricjríð oc| b&ln. Sílicol /nrkrjr cjncjn n/jbít, /'í'.'jurri rnijc\• jr; nrir\riurn, / i n ú t. j r > n c j i f u p p þ n rn b 1j og bæði niðurgangi og harðlífi. Silicol hentar öllum! Silicol hjálpar Vinsælasta heilsuefnið í Þýskalandi, Svíþjóð og Bretlandi! Silícol er hrein nóttúruafurð ón hliðnrverkana. Ef vill -þá er hægt að snúa Valby hornsófanum í hvora átt sem er. Láttu þaö eftir þér- komdu og sxoðaðu Valby strax í dag. * og komdu og skoðaðu Valby Við tökum vel á móti þér. VERIÐ VELKOMIN Verðdæmi á Valby 3-1-1 eða Valby 2H3 til 24 mán. Meðalafborgun Kr. 7.850,- á mánuði með vöxtum og kOStnaðÍ. jaRHf!". V/SA Við opnum alltaf kl. 9 HÚSGAGNAHÖLLIN Bíldshöfði 20-112 Rvík - S:587 1199 sófmett eða hormófa fyrfr ióíín? Efsvo er, þá skaltu koma og líta á Valby sófasettið því það er bæði vandað og þægilegt sófasett. Hátt bak og nautsterkt leður á slitflötum gerir það að verkum að Valby sófasettið er frábær kostur fyrir íslensk heimili. Margir leðurlitir. 2H2 kr. 152.320,- 2H3 kr. 158.640,- 3ja 1 stóll 1 stóll kr. 158.640,- 3ja 2ja 1 stóll kr. 168.640,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.