Morgunblaðið - 17.10.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 37
I
)
>
V
>
I
I
I
J
I
í
i
i
i
i
i
i
i
Cj
i
Í
i
i
i
4
verslun um land allt, ekki bara í
Hafnarfirði.
Það hallaði svo skyndilega undan
fæti vegna sjúkleika og Jóhann
sagði skilið við kaupmennskuna að-
eins fertugur. Tók hann að sér störf
skrifstofustjóra Sjóvá-umboðsins á
lögfræðiskrifstofu Árna Grétars
Finnssonar, auk þess sem hann
gerðist umboðsmaður Flugleiða í
Hafnarfirði. Þeim störfum gegndi
hann til sjötugs.
Jóhann Petersen kynntist ungur
starfsemi KFUM og K. Hann gerð-
ist þar liðsmaður og öðlaðist vináttu
forystumanna, eins og Jóels Fr. Ing-
varssonar skósmíðameistara. Hann
endurgalt það með miklu starfi í
þágu samtakanna hér í Hafnarfirði
og var sérstakur áhugamaður um
starfsemi sumarbúðanna í Kaldár-
seli.
Sjálfsbjargarviðleitnin var Jó-
hanni í blóð borin. Hann var maður
frelsis til orðs og athafna og skip-
aði sér í raðir ungra sjálfstæðis-
manna, ævinlega sterkur og áhrifa-
mikill baráttumaður fyrir sjálfstæð-
isstefnuna í ræðu og riti. Blaðið
Hamar naut starfskrafta hans.
Hann var valinn til forysty sjálf-
stæðismanna í Reykjaneskjördæmi
og formaður kjördæmisráðs
1972-77. Á vegum þingflokks sjálf-
stæðismanna sat hann í húsnæðis-
málastjórn ríkisins um árabil.
Jóhann Petersen var ekki lang-
skólagenginn. Greind hans kenndi
honum hins vegar að menn geta
bætt sér það upp með sjálfsnámi
og það gerði hann vissulega. Trúi
ég að þar hafí reynst honum vel
nágranni hans, Steinn Sigurðsson
fyrrum skólastjóri. Hvar sem Jó-
hann lét til sín heyra vöktu hug-
myndir hans og tillögur ævinlega
athygli og mótuðu oftar en ekki þær
niðurstöður sem teknar voru. Mátti
vel heyra að hann var víðlesinn.
Jóhann Petersen var gæfumaður
í lífi sínu. í meira en 50 ár hefur
eiginkona hans, Guðríður Guðjóns-
dóttir Petersen, verið honum til
halds og trausts og aldrei brugðist.
Vissi ég vel hversu mikils hann mat
hana. Böm þeirra eru fjögur, öll
búsett með fjölskyldur sínar í Hafn-
arfirði.
Vinur minn Jóhann Petersen er
nú kvaddur, traustur og heilsteyptur
maður sem aldrei brást og alltaf var
boðinn og búinn til aðstoðar. Ég á
fáum mönnum jafnmikið að þakka
og vini mínum Jóhanni.
Við Sigrún og fjölskylda okkar
þökkum honum samfylgdina og biðj-
um honum Guðs blessunar. Guðríði,
bömum þeirra og fjölskyldum send-
um við samúðarkveðjur.
Matthías Á. Mathiesen.
Frágangur
afmælis-
og minn-
ingar-
greina
Mikil áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í texta-
meðferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svo-
kallaðra ASCII skráa sem í
daglegu tali eru nefndar DOS-
textaskrár. Þá eru ritvinnslu-
kerfin Word og WordPerfect
einnig nokkuð auðveld úr-
vinnslu.
Það eru vinsamleg tilmæli
blaðsins að lengd greina fari
ekki yfir eina örk a-4 miðað
við meðallínubil og hæfilega
línulengd - eða 2.200 tölvu-
slög Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við frá-
fall og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
HERDÍSAR SIGURLÍIMAR
GÍSLADÓTTUR
frá Hellnafelli,
Grundarfirði.
Börn, tengdabörn, ömmu-,
iangömmu- og langalangömmubörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
LAUFEY V. ÞORVARÐARDÓTTIR,
Hæðargarði 35,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 18. október kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent
á Hjartavernd.
Birna K. Árnadóttir, Óskar Kristjánsson
Böðvar S. Árnason, Alda Sigurðardóttir,
Ragnhildur Árnadóttir, Bjarni Eiðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÁRNI PÉTURSSON
aðstoðarskólastjóri,
Brekkubyggð 4,
Garðabæ,
sem andaðist miðvikudaginn 9. október
sl., verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
föstudaginn 18. október kl. 13.30.
Lára K. Guðmundsdóttir,
Þórunn Anna Árnadóttir,
Þorsteinn Júlíus Árnason
Lokað
Lokað í dag frá kl. 12.00-16.00 vegna jarðarfarar
JÓHANNS PETERSEN.
Nýform húsgagnaverslun,
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRARINN TORFASON
frá Áshól,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
föstudaginn 18. október kl. 13.30.
Jarðsett verður í Hafnarfjarðarkirkju-
garði.
Unnur Katrfn Þórarinsdóttir, Konráð Einarsson,
Ólafur Þórarinsson, Kristín Jónsdóttir,
Torfhildur Þórarinsdóttir,
Rannveig, Silja, Þórarinn og Auður.
t
Kæri frændi okkar og vinur,
SIGURSTEINN GUÐMUNDSSON,
sem andaðist 12. október, verður jarðsunginn frá Breiðabólstaðar-
kirkju laugardaginn 19. október kl. 14.00.
Vandamenn.
t
Móðir okkar,
STEINUNN GUÐMUNDA
ÓLAFSDÓTTIR
frá Lækjarhvammi,
síðasttil heimilis
á Kambsvegi 19,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugar-
daginn 12. október.
Jarðarförin fer fram frá Krosskirkju, Aust-
ur-Landeyjum, laugardaginn 19. október
kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ingibjörg Ágústsdóttir,
Gréta Ágústsdóttir
og Ingvi Ágústsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og mágur,
INGÓLFUR HANNESSON,
Skólastíg 14a,
Stykkishólmi,
verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 19. októ-
ber kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á dvalarheimilið eða Stykk-
ishólmskirkju.
Maria Jónsdóttir,
Ingveldur Ingólfsdóttir, Jens Óskarsson,
Eva Rún Jensdóttir, Sigríður Jónsdóttir.
Þakskífur úr steini hafa lengi verið húsaprýði í grannlöndum
okkar. BM*Vallá framleiðir nú þakskífur sem þróaðar eru
sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður og standast ströngustu
kröfur um frostþol og endingu.
BM-VAIIÁ
Söluskrifstofa
Breiðhöfða 3
112 Reykjavík
Þakskífurnar eru sérstaklega fallegar og setja glæsilegan
svip jafnt á ný hús sem gömul.
Þakskífurnar frá BM»Vallá eru viðhaldsfríar. Þær ryðga ekki
og þær þarf aldrei að mála.
Þakskífurnar eru mjög þéttar og auðvelt er að leggja þær.
Kynntu þér þetta hagkvæma og spennandi þakefni.
Pantaðu ókeypis bækling með ítarlegum upplýsingum
m.a. um lögn og frágang.
m
ÍST ISO 9001
Pantaðu bækllng í síma 377 4200 • Grænt númer 800 4200 • Netfang: bmvalla.sala@skima.is