Morgunblaðið - 17.10.1996, Blaðsíða 40
HÍI l NÚ AUCIÝ'
40 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N U/A UGL ÝSINGAR
- tækifæri hjá EJS
Vegna aukinna umsvifa opnast enn ný og spennandi
tækifæri hjá EJS. Um er að ræða störf á sviði
nýjustu upplýsingaíækni hjá framsæknu fyrirtæki.
™Bl|lllBll7
(Microsoft Solution Framework)
er deild innan hugbúnaðarsviðs EJS. Hún veitir þjónustu
í formi ráðgjafar, hönnunar og hugbúnaðarsmíði,
sem felst í því að nýta grunnhugbúnaðinn frá Microsoft
(Office og BackOffice) til uppbyggingar upplýsingakerfa
viðskiptavina.
http://www.ejs.is/msf.
• Hugbúnaðarsérfræðingar - MSF lausnir:
Leitað er að hugbúnaðarmönnum til þróunar á
lausnum fyrir Microsoft Windows NT og BackOffice,
áhugasömum einstaklingum sem eiga auðvelt með
hópvinnu og hafa brennandi áhuga á nýjustu
hugbúnaðartækni, s.s. ActiveX, Java og OLE.
Unnið er í Visual Basic, Visual C++, Java og
SQL Server.
• Þjónustusérfræðingur - MSF lausnir:
Leitað er að áhugasömum einstaklingi sem
á auðvelt meó hópvinnu, hefur mikla þjónustulund
og brennandi áhuga á nýjustu tækni í Microsoft
Windows NT og BackOffice.
Upplýsingar um störfin veitir Ásgrímur Skarphéðinsson,
deildarstjóri MSF lausna. Umsóknir berist EJS fyrir
1. nóvember merktar: Starfsumsókn - MSF lausnir.
nrr__________
öiónusfð
nu annast þjonustu, raðgjot og
uppsetningu á tölvunetum, vélbúnaði og hugbúnaði,
auk þjónustu við Microsoft notendahugbúnað fyrir mörg
af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Um er
að ræða Windows NT netkerfi ásamt, Microsoft
BackOffice lausnum, Internettengingum, samskiptum
við önnurtölvuumhverfi o.fl.
• Sérfræðingar í netþjónustu:
Leitað er að einstaklingum sem tilbúnir eru til að
takast á við það nýjasta í tölvuheiminum. Menntun
t.d. í tölvunarfræði, kerfisfræði, verkfræði eða
tæknifræði er æskileg. Þekking á Microsoft
hugbúnaði og uppbyggingu netkerfa einnig æskileg.
Upplýsingar um störfin veitir Helgi Þór Guðmundsson,
framkvæmdastjóri þjónustusviðs.
Umsóknir berist EJS fyrir 1. nóvember, merktar
Starfsumsókn - Netþjónusta.
EJS er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði
upplýsingatækni. Þjónusta EJS nær til flestra hliða
nútíma upplýsinga- og samskiptatækni, alltfrá sölu og
þjónustu á heimsþekktum vél- og hugbúnaði, til nýsmíða
* og þróunar á hugbúnaði og lausnum fyrir atvinnulífið,
hér á landi sem í útlöndum.
EJS leggur metnaó sinn í að bjóða starfsöryggi, jafnrétti,
sanngjörn laun og jákvætt, gefandi starfsumhverfi.
Áhersla er lögð á fræðslu og þjálfun starfsfólks,
sjálfstæði og hópvinnu.
Sérfræöingar EJS
netþjónustu og MSF lausna
sækja Microsoft námskeió
og gangast undir próf sem
» veita réttindin "Microsoft
Certified Professional" (MCP).
EINARJ. SKÚLASON HF
Grensásvegi 10, sími 563 3000
Sími 563 3000 • Fax 568 8487
http://www.ejs.is
Saumastörf
Óskum að ráða starfsfólk til framleiðslu á
Flís-polartec-fatnaði og
66°N-regnfatnaði.
Örugg vinna, góður vinnuandi og vinnuað-
staða. Starfsþjálfun fyrir nýja starfsmenn.
Bónuskerfi.
Komið og ræðið málin við Pálínu, verkstjóra
okkar, í Faxafeni 12. Alltaf heitt á könnunni.
66°N, Faxafeni 12, símar 558 9485/86,
(næsta hús við Bónus,
gengið inn vestanmegin).
WfffBH iC
Húsavíkurkaupstaður
Kennarar
Við Borgarhólsskóla, Húsavík, er laus kenn-
arastaða frá áramótum til vors vegna barns-
burðarleyfis. Um er að ræða dönskukennslu
í 9. og 10. bekk. samfélagsfræði o.fl.
Nánari upplýsingar gefa Halldór Valdimars-
son, skólastjóri, vs. 464 1660, hs. 464 1974,
og Gísli Halldórsson, aðstoðarskólastjóri,
vs. 464 1660, hs. 464 1631.
Laus störf
Eftirtalin störf hjá Flugmálastjórn eru laus til umsóknar:
Starf fulltrúa (50%) í skírteinadeild loftferðaeftirlits á Reykjavíkurflugvelli.
Starfið er fólgið í móttöku, símvörslu og afgreiðslu mála er varða útgáfu
skírteina einstaklinga. Stúdentspróf og góð enskukunnátta eru áskilin.
Starf fulltrúa í flugumferðarþjónustu á Reykjavíkurflugvelli. Krafist er góðr-
ar tölvukunnáttu og þekkingar á Access, Coreldraw, Pagemaker, Power
Point, Word og Excel. Einnig er krafist góðrar enskukunnáttu.
Starf f lugvallarvarðar á Patreksfjaröarflugvelli. Starfið er veitt til eins árs.
Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist
Flugmálastjórn fyrir 28. október 1996.
Nánari upplýsingar og umsóknareyöublöö veitir starfsmannahald
Flugmálastjórnar, sími 569 4100.
Deildarstjóri
bókhalds
Verðbréfafyrirtæki óskar eftir að ráða deildar-
stjóra sem hefur umsjón með bók- og reikn-
ingshaldi fyrirtækisins. Hann mun einnig taka
þátt í uppbyggingu og rekstri tolvukerfis.
Kröfur um hæfni:
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi viðskipta-
fræðimenntun af endurskoðunarsviði eða
sambærilega menntun. Reynsla./ bókhaldi
og reikningshaldi er mikilvæg. Kröfur eru
gerðar til agaðra vinnubragða, ^amstarfs og
liðsvinnu.
í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar
upplýsingar um menntun og fyrri störf. Farið
verður með allar upplýsingar sem trúnaðar-
mál og öllum umsóknum verður svarað. Þeim,
sem telja sig uppfylla þær kröfur, sem að
ofan greinir, er boðið að senda inn umsókn
til KPMG Sinnu ehf. fyrir 19. október 1996.
Rekstrar- og stjórnunarráðgjöf
Vegmúli 3 Slmi 588-3375
108Reykjavlk Fax 533-5550
KPMG Sinna ehf. veitir ráðgjöf á sviði stjómunar- og
starfsmannamáia og einnig sérhæfða ráðningarþjónustu.
KPMG Sinna ehf. er í samstarfi við KPMG Management
Consulting.
Framtíðarstarf
Fyrirtæki í prentiðnaði óskar eftir starfskrafti.
Starfið felst í pappírsskurði og ýmiss konar
vélavinnu við frágang á prentverki. Viðkom-
andi þarf að geta unnið sjálfstætt, vera hand-
laginn, natinn við vélar og vandvirkur.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
24. október, merktar: „Fjölbreytni - 855“.
Trésmiðir
- verkamenn
Ármannsfell hf. vantar trésmiði - verka-
menn til starfa strax.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást
á skrifstofu okkar, Funahöfða 19.
Ármannsfell hf.,
sími 577 3700.
Viðtalstími samgöngu-
ráðherra á Akureyri
Samgönguráðherra, Halldór
Blöndal, verður með viðtals-
tíma í Kaupangi miðvikudag-
inn 23. október frá kl. 10-12
og 13.30-16.30.
Skráning í símum 462 3557
fyrir hádegi og 462 1500,
462 1504 eftir hádegi.
Samgönguráðuneytið.
Sjómannafélag Reykjavíkur
Frá Sjómannafélagi
Reykjavíkur
Allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör fulltrúa á
20. þing Sjómannasambands Islands, svo
og kjör trúnaðarmanna Sjómannafélags
Reykjavíkur, fer fram að viðhafðri allsherjar-
atkvæðagreiðslu.
Framboðslistar þurfa að hafa borist kjör-
stjórn fyrir kl. 12.00 á hádegi 18. október
1996 á skrifstofu félagsins í Skipholti 50D.
Trúnaðarmannaráð
Sjómannaféiags Reykjavíkur.
Til leigu
í verslunarmiðstöðinni Torginu í Hverafold 1-5
í Reykjavík (þar sem Hagkaup er) 270 fm rými
sem mætti skipta niður í 2-3 einingar.
Ýmsa þjónustu vantar í hverfið, sem telur
nú um 12 þús. manns, og fer ört fjölgandi,
s.s. skóbúð, gleraugnasölu, kvenfataverslun,
herrafataverslun, Ijósmyndastofu, sportvöru-
verslun og margt fleira kæmi til greina.
Upplýsingar veitir Arnar hjá Firmasölunni í
símum 568 3040 og 896 3601.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Áskirkja
Aðalsafnaðarfundur Ásprestakalls verður
haldinn sunnudaginn 20. október nk.
kl. 15.15 (eftir messu).
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sóknarnefnd.