Morgunblaðið - 17.10.1996, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 45
BRÉF TIL BLAÐSINS
Einkennilegir
viðskiptahættir
Frá Stefáni G. Stefánssyni:
MIKIÐ er rætt um tryggingar og
tryggingafélög þessa dagana, og
kannski ekki að ástæðulausu. Ekki
get ég sagt að ég hafi þurft að
kvarta yfir viðskiptum við trygg-
ingafélög í þau 30 ár sem ég hef
haft þar viðskipti, en nýlega varð
ég þó fyrir reynslu, sem mér fínnst
eiga erindi á síður fjölmiðla.
Tryggingafélagið sem hér um
ræðir er Trygging hf. Þar hef ég
haft viðskipti, í yfír 20 ár, og
húseiganda- og heimilistryggingu
að staðaldri allan þennan tíma.
Dag einn í ágúst er mér sent stutt
og útskýringalaust bréf í ábyrgð,
þar sem mér er sagt upp bæði
húseiganda- og heimilistryggingu,
frá og með næsta gjalddaga. Eng-
ar útskýringar voru gefnar sem
ástæða fyrir uppsögn þessari. Þar
sem ég þarfnaðist frekari upplýs-
inga um ástæðu fyrir uppsögninni
hringdi ég í Tryggingu hf. og fékk
að tala við þann aðila, sem undir-
ritaði uppsögn mína og innti eftir
ástæðu.
Að sögn þess aðila var í gangi
gæðakönnun innan fyrirtækisins
hjá þeim og í henni hafi komið í
Ijós að þeir hafí þurft að greiða
út tjón vegna trygginga minna um
600.000 - á síðustu 8-9 árum og
væri það ástæða fyrir uppsögn-
inni!!! Ekki var talað um að engin
tjón höfðu verið greidd út í 10 ár
þar á undan. Ennþá á ég bágt
Þjóðarátak
Frá Skúla Einarssyni:
ÉG HEF verið að lesa í blöðum grein-
ar eftir tvo bæjarráðsmenn (á hættu-
svæðum?) sem telja sjálfsagt að setja
á alla landsmenn nefskatt. Ég er í
sjálfu sér ekki á móti aðstoð við fólk
í mörgum tilfellum, en ég tel að fólk
sem vill búa á hættusvæðum geri
það á eigin ábyrgð og leggi þar með
sig og börn sín í hættu. Að mínu
viti er þetta ævintýramennska sem
fólk verður að axla ábyrgð á sjálft.
Því tel ég að peningum sé betur
varið í að aðstoða fólk til þess að
hefja búskap í öðru bæjarfélagi þar
sem viss grundvallaröryggisatriði
séu fyrir hendi, þeim og börnum
þeirra til hagsældar. Nú segir þetta
fólk að rætur þeirra liggi hér í þessu
ákveðna byggðarlagi, en ísland er
svo lítið að hér eru allir skyldir að
einhveiju leiti burtséð frá búsetu.
Ég kýs að lifa í nútíðinni og set
öryggi barna og annarra í fyrirrúmi
og er það ekki vitað mál að þegar
höfuðskepnurnar bregða á leik og
valda náttúruhamförum verður það
ekki stöðvað með spítum og sementi.
Sægreifana burt
Kannski er ekki of seint í rassinn
gripið, en ég vil endilega losna við
sæfgreifa og bændahöfðingja úr röð-
um alþingismanna (t.d. fjárveitinga-
nefnd), því þeir hugsa bara um sig
og sína. Sægreifarnir hugsa bara
um jarðgöng til að flytja físk, hvað
ætli það kosti? Hvað þá á milli af-
skekktra staða sem eru að fara í
eyði! Bændahöfðingjarnir hugsa aft-
ur á móti bara um vegalagningu að
býlum sem eru að fara í eyði. Ég
vil ekki að þessir herrar hafí svona
mikil áhrif meðan þeir hafa bara
nokkur hundruð atkvæði á bak við
sig. Á meðan hafa reykvískir þing-
menn nokkur þúsund atkvæði, en
miklu minni áhrif hlutfallslega. Þetta
eru mál sem þurfa að komast á
hreint.
Samtök eldri borgara
Þar sem ég sé að verkalýðsforyst-
an er á svo lágu plani (ekki Hlíf í
Hafnafírði) fínnst mér að fólk ætti
að taka sig saman og fylgjast með
fyrir hvern þeir eru að vinna, því
með að skilja ofangreindar skýr-
ingar Tryggingar hf., til hvers er
maður að tryggja? Auk þess er
ofangreind ijárhæð kannski svipuð
og sæmilegt tjón á bifreið eftir
árekstur. Er þeim tjónvöldum sagt
upp tryggingum sínum? Nei, þeir
missa hluta af bónusnum í mesta
lagi.
Meirihluti ofangreindrar tjóna-
greiðslu Tryggingar hf. er vegna
tjóns er varð á baðherbergi húss
míns. Árið 1993 fór að bera á
raka og flísar að losna á baðher-
bergi. Var haft samband við
Tryggingu hf. og sendu þeir menn
til að athuga og þá um leið að
gera við það er ylli þessu ástandi.
Rifið var frá baðkari og fl. og
fullyrt að ástæða rakans væri að
niðurfall baðkars væri í ólagi, og
var gert við það og hlutunum kom-
ið í samt lag aftur. Þar sem þó
nokkuð tjón hafð orðið á baðher-
berginu og meira en þetta bilaða
niðurfall gæti valdið óskaði ég
eftir því að aðrir möguleikar yrðu
athugaðir. Ekki var á það hlustað
og tjónið skrifað á ofangreint nið-
urfall. Síðan var baðherberginu
komið í samt horf aftur. Fyrr á
þessu ári var allt komið í sama
horfið og enn verra, flísar losna
af veggjum og dúkur á gólfi að
losna. Var haft samband við
Tryggingu hf. á ný, og sömu við-
gerðarmenn komu og í fyrri við-
gerð 1993. Var nú ráðist til at-
- nei, takk!
ekki vinna þeir fyrir gamlingja eða
sjúka, meta þá síðan eftir verkum
þeirra á Alþingi íslands og gefa
þeim prik ef þeir standa sig vel.
Besta úrræðið hjá eldra fólki er að
ganga í félag eldri borgara hvar sem
það býr á landinu, því þar eru þau
samtök skipuð af góðu fólki sem
vill og getur barist fyrir réttlátum
kröfum okkar. Þar er rétti vettvang-
urinn til þess að mynda afl sem
þessir herrar verða að taka tillit til
og sýna þeim fulla hörku því þá
munar um hvert atkvæði þegar að
kosningu kemur.
Fimmtán prósentin til baka takk!
Hvað ætli öll þessi tilfærsla og
brask með frystihús og fiskvinnslu-
stöðvar kosti? Og hver borgar brús-
ann?
Allir með strætó?
„Allir með strætó enginn með
Steindóri," var sungið einu sinni, en
nú er þessu öfugt farið hjá blessuðu
fólkinu, maður gæti haldið að þetta
hefði verið leikskólaverkefni fyrir
sex til sjö ára börn. Sem sagt þetta
kerfi er eins og lokaður póker.
Nú þar sem við erum byrjuð að
ræða um strætó má benda á að
þótt að meirihluti strætisvagnabíl-
stjóra sé mjög kurteis og þeir liprir,
þá eru nokkrir sauðir sem kunna
ekki að umgangast fólk og setja
þeir svo sannarlega svartan blett á
annars mjög góða stétt. Svo vonum
við bara að allir geti sungið „allir
með strætó og enginn tneð Steindór"
með bros á vör.
E.s. Ég vil benda því fólki sem á
númerslausa og eða óskráða bíla á
það, að það hefur ekkert leyfi til að
leggja þessum druslum á annarra
manna bílastæði fleiri mánuði og
má lögum samkvæmt láta fjarlægja
þær hvenær sem er, á kostnað eig-
anda þeirra.
SKÚLI EINARSSON,
Tunguseli 4, Reykjavík.
lögu, og kom í Ijós að rör, er lágu
í góífi voru í sundur, og ekki á
einum stað heldur á þrem stöðum,
og eitt þeirra mun verra en hin.
Má leiða að því líkum að þar hafi
í raun verið kominn tjónvaldurinn
frá 1993, og ekki var krufínn. Nú
var gert við þessi rör og enn á
ný baðið endurbyggt og mér bætt
tjónið að svo miklu leyti sem um
samdist. Af þessu má ráða að ef
Trygging hf. hefur þurft að greiða
óeðlilega miklar tjónagreiðslur
vegna trygginga minna, þá má
segja að sökin liggi hjá þeim og
verktökum þeirra. En mér sem
tryggingartaka sagt upp trygging-
um vegna þess að ég sé óhagstæð-
ur í viðskiptum. Til hvers eru
tryggingar eiginlega?
Eftir ofangreinda reynslu mætti
halda að ofangreint tryggingafé-
lag losi sig við kúnna sína um leið
og ekki er hægt að hagnast á
þeim, og þeir verði fyrir ófyrirséðu
tjóni. En í svona tilfellum líður
tryggingartaka eins og hann sé
dæmdur tryggingasvikari.
Til að kóróna allt siðleysið, hafði
ég samband við einn af yfírmönn-
um Tryggingar hf. og var hann
mjög hissa á umræddri uppsögn,
en talaði um gæðakönnun þá, sem
væri verið að gera í fyrirtækinu.
Vildi hann allt fyrir mig gera sem
hægt væri, en til þess að hann
gæti kippt hlutunum í liðinn aftur
væri nauðsynlegt að ég kæmi með
bílatryggingarnar mínar til þeirra,
og þá gætu þeir líklega kippt upp-
sögninni til baka!!!
Eftir þetta samtal var viðskipt-
um mínum við Tryggingu hf. lok-
ið, og gekk ég frá tryggingum
mínum við annað tryggingarfélag,
sem ég vona að virði viðskiptavini
sína betur.
Ekki veit ég hvort það sé algild
regla tryggingafélaga að segja
upp tryggingum hjá viðskiptavin-
um sínum ef þeir verða fyrir tjóni.
Tel ég það ekki vera, nema uppi
sé grunur um tryggingasvik eða
álíka af hálfu tryggingartaka.
Einnig þekkir maður þá reglu að
tryggingar hækka við aukna
áhættu.
Vona ég að þetta dæmi sé eins-
dæmi og ekki algeng aðferð trygg-
ingarfélaga til að halda hagnaði
háum. Trygging hf., bless.
STEFÁN G. STEFÁNSSON,
Mánabraut 5, Kópavogi.
Reykvíkingar!
Reglulegum fundi
Borgarstjórnar Reykjavíkur
sem haldinn verður í dag,
fimmtudag kl. 17:00, verður
útvarpað á Aðalstöðinni FM 90.9.
Skrilstola
borgarsljóra
CLARINS KYNNING
-P A R I 5-
Fimmtudag,
föstudag og laugardag
verða
snyrtisérfræðingar
Clarins á staðnum.
•
Þeir munu veita
persónulega ráðgjöf
og kynna Body Lift
ásamt ýmsum
nýjungum.
•
Munið
vildarkortin.
Kringlunni, sími 568 9033