Morgunblaðið - 17.10.1996, Síða 46
;6 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Hvers vegna not-
ar þú Rautt Ebal
Glnseng?
Herdís Einarsdóttir,
hrossabóndi og tamn-
ingamaöur: Þab gefur
mér kraft og lífsglebi vib
leik og störf.
Kristinn Hugason, hrossa^
ræktarrábunautur B.Í.: í
mínu starfi reynir á at-
hygli, snerpu og andlegt
jafnvægi undir fullu álagi.
Þess vegna nota ég og
mæli meb Raubu Ebal
Ginsengi.
Sigurbur Marínusson,
tamningamabur: Þab gef-
ur mér þab sem upp á
vantar.
Rautt E&al Ginseng
skerpir athygli og
eykur þol.
Gail flísar
—k
tri \U 11 k! m
J1H-
Stórhöfða 17, við Guliinbrú,
sími 567 4844
Nuddnám
Kvöld- og helgarnam
hefst þann 6. janúar
næstkomandi.
■ Námið tekur l'/2 ór.
■ Kennt er: Klassískt nudd, slökunarnudd,
íþróttanudd, heildrænt nudd og nudd við
vöðvaspennu.
■ Nuddkennari: Guðmundur Rafn Geirdal
■ Utskriftarheiti: Nuddfræðingur.
■ Námið er viðurkennt af Félagi islenskra
nuddfræðinga.
■ Gildi nudds: Mýkir vöðva, örvar bláðrás,
slakar á taugum ag eykur velliðan.
Nánori upplýsingar eftir hádegi virka daga
í símum 567 8921 og 567 8922
Nuddskóh Guðmundan
Pantaðu tímanlega
Athugaðu vel hvarþú
fœrð mest og bestfyrir
peningana þína
Við vorum ódýrari ífyrra
og erum það enn
Innifalið í minnstu myndatöku eru:
6 stk. 13x18 cm,
2 stœkkanir 20x25 cm
og ein stœkkun 30x40 cm í ramma.
Ljósmyndastofan Mynd,
sími 565 4207.
Barna- og
fjölskylduljósmyndir,
sími 588 7644.
Ljósmyndastofa
Kópavogs,
sími 554 3020.
3 ÓDÝRARI
- kjarni malsins!
ÍDAG
skák
llm.sjón Margcir
Pcturssan
Staðan kom upp í deilda-
keppni Skáksambands ís-
lands um síðustu helgi.
Arinbjörn Gunnars-
son (2.240), Skák-
sambandi Vestfjarða,
var með hvítt, en
Jóhann Hjartarson
(2.565), Taflfélagi
Garðabæjar, hafði
svart og átti leik.
Hvítu riddararnir
eru báðir illa stað-
settir og það not-
færði svartur sér:
19. - Rxf3+! 20.
Bxf3 — Rxe4 21.
Bxe4 — Hxe4+ 22.
Re3 - Dg5! 23.
Dd5? (Tapar strax.
Skárra var 23. Hcl
þótt svartur standi til
vinnings eftir 23. — Bb5)
23. - Hxe3+ 24. Kf2 -
Df6+! 25. Kxe3 - He8+
26. Kd3 — Bb5+ og hvítur
gafst upp.
BRIDS
llmsjón Guómundur Páll
Arnarson
FYRSTA afkast varnarinn-
ar er ætíð upplýsandi. Ef
varnarspilari hendir frá
öflugum fjórlit í blindum,
er líklegt að hann eigi
a.m.k. fimm spil í litnum.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ 93
V ÁDG4
♦ K62
♦ ÁK82
Vestur Austur
♦ KD8 ♦ G742
¥ K972 !| T 10865
♦ DG54 IIIIU « .
+ G4 * D10765
Suður ♦ Á1065 T 3 ♦ Á109873 ♦ 93
Vestur Norður Austur Suður
1 grand Pass 2 lauf
Pass 2 hjörtu Pass 3 tíglar
Pass 4 tíglar Pass 5 tíglar
Pass Pass Pass
Útspil: Spaðakóngur.
Fullur bjartsýni drap
sagnhafi strax á spaðaás og
spilaði meiri spaða, enda
nauðsynlegt að trompa einn
Haustmót T.R.Fjórða um-
ferð í A flokki fer fram í
kvöld kl. 18 í félagsheimili
TR Faxafeni 12. I annarri
umferðinni á þriðjudags-
kvöld urðu þau úrslit mark-
verðust að Jón Viktor
Gunnarsson náði að leggja
rússneska stórmeistarann
Mikhail Ivanov að velli.
Þeir Þröstur Þórhallsson,
Rausis, Lettlandi og Thor-
björn Bromann, Danmörku
höfðu unnið tvær fyrstu
skákir sínar.
til tvo spaða í borði. Vestur
tók slaginn á spaðadrottn-
ingu og spilaði þriðja spaðan-
um, sem var trompaður. Síð-
an kom tígulkóngur. Austur
henti laufi og vestur kurraði
ánægjulega.
I sagnhafasætinu var
Frakkinn José Le Dentu.
Hann taldi fullsnemmt að
gefast upp og ákvað að spila
upp á innkast á vestur í lok-
in, þar sem hann yrði að
gefa til baka annan tromp-
slaginn. Le Dentu tók hjarta-
ás og trompaði hjarta. Fór
svo inn á laufás og trompaði
aftur hjarta. Vestur sá hvað
verða vildi og fylgdi lit með
hjartakóng! Þannig vildi
hann afvegaleiða sagnhafa
og fá hann til að trompa lauf,
en ekki hjarta.
Snjöll blekking, en Le
Dentu hafði ekki gleymt
fyrsta afkasti austurs - sem
var lauf. Hefði hann byijað
á því að kasta laufi frá fjór-
lit með fimm ónýt hjörtu?
Tæplega. Þess vegna hélt Le
Dentu sínu striki, spilaði laufi
á kóng og trompaði fría
hjartadrottningu. Og vestur
fylgdi lit.
Nú voru þijú spil eftir á
hendi. I blindum voru tvö
lauf og mjög mikilvæg tíg-
ulsexa. Heima átti sagnhafi
einn spaða og Á10 í trompi.
Og vestur var með DG5 í
trompi. Le Dentu spilaði
spaða og vestur varð að
sætta sig við einn trompslag.
• b c d • f o h
SVARTUR á leik
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
*
Afram stelpur
í TILEFNI kvenna-
ferðarinnar til Dublin á
vegum Samvinnuferða-
Landsýnar 6.-10. október
sl. viljum við vinkonumar
koma á framfæri þakk-
læti til fararstjóranna
Eddu Björgvinsdóttur og
Sóleyjar Jóhannsdóttur.
Þær stóðu sig frábærlega
og voru hinar óvæntu
uppákomur þeirra til þess
að gera þessa ferð
ógleymanlega.
Ragnhildur, Petrína
og Laufey
Tilurð vísu
FYRIR margt löngu
heyrði ég vísu sem hljóð-
ar svo hafi ég lært hana
rétt:
Manni drambs er mjög svo
fums,
matinn brams að slumsa,
fellur gums um höku hrams,
hann er sumsé klumsa.
Gaman þætti mér að
frétta um tilurð þessarar
vísu, ef einhver veit og
man. Ég heyrði söguna,
en man ekki til að fara
með. Aðra vísu heyrði
ég um mat og borðsiði
og er hún svona:
Treður í sig miklum mat,
mjög er hroðinn diskur.
Gæti etið á sig gat,
yrði soðinn fiskur.
Gunnar Gunnarsson
Syðra-Vallholti
Varmahlíð
Tapað/fundið
Hring-ur
tapaðist
GULLHÚÐAÐUR
hringur sem er mjög
sérstakur í laginu
tapaðist aðfaranótt
sunnudags líklega á
skemmtistaðnum
Casablanca í Lækjargötu.
Hringurinn sem er ekki
sérlega verðmætur er
eigandanum afar kær og
biður hann skilvísan
finnanda að hringja í
síma 562-2103.
Veski
tapaðist
SVÖRT nælontuðra sem
ætluð er undir vegabréf
og flugmiða tapaðist í
Kringlunni sl. mánudag.
I tuðrunni var seðlaveski
sem í var aleiga eiganda.
Skilvís finnandi er
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 581-2535
eða hafa samband við
næstu lögreglustöð og er
fundarlaunum heitið.
Penni
fannst
BLÁR og silfraður
Parker-penni með áletr-
uninni Aron og eftirnafni
fannst í Flugleiðavél í
Keflavík í september.
Upplýsingar um pennann
eru veittar í síma
553-9865.
Með morgunkaffinu
KEMUR einhver og
bjargar okkur? Og ég á
ekki spjör til að fara í.
Víkveiji skrifar...
MORGUNBLÖÐIN að heiman
eru það sem Svíar sakna
mest þegar þeir sækja námskeið
og fyrirlestra í útlöndum. Þetta
kemur fram í niðurstöðum könnun-
ar sem blaðaútgefendur í Svíþjóð
stóðu fyrir. 48% Svíanna sögðust
sakna morgunblaðanna mest, 27%
söknuðu kvöldblaðanna, 38% sökn-
uðu sænska kaffisins, 17% sænska
matarins og 7% sögðust sakna
sænska sjónvarpsins mest.
í forystugrein norrænna útgef-
enda er spurt hvort þetta segi
kannski meira um sænskan mat
heldur en morgunblöðin sænsku,
en síðan segir í riti útgefenda að
þessar tölur staðfesti að blöðin séu
mjög kær vinur í lífi fólks.
XXX
LESANDI hafði samband við
blaðið og gerði athugasemd
við notkun orðsins maríulax. Hann
sagði að á síðari árum hefði mjög
færst í vöxt að nota þetta orð og
þá um fyrsta lax sem veiðimaður
fengi. Upphafleg notkun þessa orðs
tengdist hins vegar alls ekki lax-
veiðum. Rétt væri að tala um maríu-
fisk sem fyrsta fisk veiðimanns. Sá
fiskur gæti alveg eins verið þorskur
eða ýsa og reyndar miklu frekar
heldur en lax.
Skrifari fletti upp í Orðabók
Menningarsjóðs og þar segir svo
um maríufisk: „Fyrsti fiskurinn sem
(ver)maður veiðir í fyrstu sjóferð
sinni.“
XXX
TAP í landsleikjum í knatt-
spyrnu, gegn Litháum og
Rúmenum, hefur vakið umræðu um
stöðu og styrk íslenskrar knatt-
spyrnu. Spurt hefur verið hvort við
höfum dregist aftur úr á þessu sviði
íþróttanna. Ekki ætlar skrifari að
leggja dóm á það en eigi að síður
er það athygli vert að íslenskir
knattspyrnumenn eru fáir í fremstu
röð með erlendum liðum eins og oft
hefur verið. Á sínum tíma voru
Ásgeir Sigurvinsson, Arnór Guð-
johnsen, Pétur Pétursson og Atli
Eðvaldsson, svo dæmi séu tekin,
framarlega í flokki liða, sem Iéku
í erfiðustu knattspyrnudeildum
Evrópu. Fleiri íslenskir knatt-
spyrnumenn léku á þessum árum
erlendis.
íslendingar hafa oft borið sig
saman við Norðmenn og lengi vel
vorum við jafnokar þeirra á fót-
boltavellinum. Nú hafa frændur
okkar norskir siglt fram úr og
spyija má hvort það sé vegna betri
aðstöðu allan ársins hring og betri
grunnþjálfunar heldur en hér á
landi.
Staðreyndin er alla vega sú að í
Englandi leikur um tugur norskra
leikmanna með liðum i úrvalsdeild-
inni og fleiri í neðri deildunum.
Meðal þessara leikmanna er ungur
leikmaður, Solskjær að nafni, sem
er sá leikmaður í Englandi sem
hvað mesta athygli hefur vakið í
vetur og fleiri norska sólargeisla
mætti nefna. Norðmenn hafa þann-
ig úr mun stærri og sterkari hópi
atvinnumanna að velja heldur en
íslenski landsliðsþjálfarinn.