Morgunblaðið - 30.10.1996, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.10.1996, Blaðsíða 17
MÖMUftBEÁÐlÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1996 17 VIÐSKIPTI Eining um Sam- sung og Fokker Amsterdam. Reuter. HOLLENZKA sjónvarpið hermir að samningamenn Samsung-flugiðn- aðarfyrirtækisins í Kóreu hafi náð samkomulagi í aðalatriðum um að fyrirtækið taki við stjóm Fokker- flugvélaverksmiðjanna. Talsmaður ríkisstjómarinnar kvaðst þó ekkert vita um slíkt sam- komulag. „Engin skýrsla um niður- stöður af viðræðum em í undirbún- ingi á þessari stundu,“ sagði hann. Hollenzka sjónvarpið NOS hermdi að samningamenn Sams- ungs, hollenzka ríkisstjórnin og skiptaráðendur hefðu gert grein fyrir samkomulagi í aðalatriðum um að Samsung taki við stjórn Fokk- ers, í skýrslu um niðurstöður af viðræðum 25. október. Stjórn Samsungs mun ákveða einhvern næsta daga hvort ganga skuli að þessum skilmálum og ef komizt verður að þeirri niðurstöðu er búizt við að endanlegt samkomu- lag verði gert í lok vikunnar að sögn sjónvarpsins. Samsung er eini marktæki aðil- inn sem hefur látið í ljós áhuga á Fokker síðan fyrirtækið var lýst gjaldþrota 15. marz þegar aðal- hluthafinn, Daimler Benz Ae- rospace, hafð hætt fjárhagsstuðn- ingi sínum vegna mikils taps á rekstri Fokkers. Franskir kjósendur gegn sölu Thomsons París. Reuter. Reuter MEIRIHLUTI franskra kjósenda er mótfallinn þeirri fyrirætlun ríkis- stjómarinnar að selja hið skulduga ríkisfyrirtæki Thomson SA einka- fyrirtæki fyrir einn franka til mála- mynda smkvæmt skoðanakönnum viðskiptablaðsins La Tribune Des- fosses. Samkvæmt könnuninni eru 72% ósamþykkir því að Thomson verði seldur fjölgreinafyrirtækinu Lag- ardere. Tólf af hundraði vom hlynntir sölunni vegna mikilla skulda fyrirtækisins. Franska stjómin vill einkavæða og selja Thomson og leyfa Lagard- ere að halda hergagnaarminum CSF og selja rafeindafirmað Thom- son Multimedia suður-kóreska risanum Daewoo Electronics, einnig fyrir einn franka. Fjörutíu og fimm af hundraði kváðust andvígir einkavæðingunni, en 34% voru fylgjandi henni. Sextíu og sex af hundraði sögðu að ríkið ætti ekki að afsala sér bágstöddu ríkisfyrirtæki, jafnvel þótt því væri haldið á floti með fé skattborgara. Tuttugu og tveir af hundraði vildu einkavæðingu, jafn- vel þótt um sölu til erlends aðila væri að ræða. Sólarorkan knýr ökutækin NÚ stendur yfir keppni öku- tækja, sem knúin eru áfram af sólarorku, þrjúþúsund kilómetra leið þvert yfir Ástralíu frá Darw- in til Adelaide. 47 bílar og 15 hjól hófu keppnina, en á þriðja degi hennar hefur sólarbifreiðin á myndinni sem er frá Honda forystuna og er um 100 kílómetr- um á undan næsta keppanda sem er frá Sviss. Vefnaðariðnaður OROBLU KYNNING 20% AFSLÁTTUR af öllum OROBLU sokkabuxum færist til Asíulanda Genf. Reuter. ATVINNA í vefnaðariðnaði, fataiðn- aði og skógerð hefur minnkað um meira en 40% á 20 árum og fram- leiðslan flutzt til þróunarlanda að sögn Alþjóðavinnnumálastofnunar- innar, ILO. ILO segir í nýrri skýrslu að störf- um í þessum greinum hafi fjölgað mest í Asíu, eða um 597% í Malajs- íu, 416% í Bangladesh, 385% í Sri Lanka og 334% í Indonesíu á árunum 1970-1990. Á sama tíma fækkaði verka- mönnum í þessum greinum til muna í þróuðum löndum — um 58% í Þýzkalandi, 55% í Bretlandi, 49% í Frakklandi og 31% í Bandaríkjun- um. Flestir án atvinnu í Finnlandi Á árunum 1980-1993 jókst at- vinnuleysi mest í Finnlandi að sögn ILO eða um 72%, en næst komu Svíþjóð og Noregur, þar sem at- vinnuleysi jókst um 65%, og Austur- ríkij þar sem aukningin var 52%. Á sama tíma jókst atvinna mest á Máritíus eða um 345%, Indónesíu 177%, Marokkó 167%, Jórdaníu 161% og Jamaica og Malaysíu 101%. í Bandaríkjunum starfa 1.6 miHj- ónir verkamanna í umræddum grein- um og hefur þeim fækkað úr 2.5 milljónum 1980, samanborið við 5.3 milljónir í Kína, þar sem starfsmönnum í greinunum hefur fjölgað umn tvær milljónirt síðan 1980 að sögn ILO. Stofnunin segir að rúmlega 60% fatnaðar heims komi frá þróunar- löndum. Hlutdeild Asíu er mest eða 32%. Útflutningur er mestur frá Kína eða 13% Þótt vefnaðarvöruframleiðsla sé enn mest í iðnvæddum löndum hefur ársframleiðsla aukizt um aðeins 0,2% að jafnaði á síðustu 20 árum samanborið við 3,6% í Asíu sam- kvæmt skýrslu ILO. miðvikud. 30. okt. og fimmtud. 31. okt. kl. 13.00-18.00. ■ PLAISIR 40 DEN Frábærar lycra stuðnings/nudd- sokkabuxur - 40 den. Venjulegt verð 595 kr. - kynningarverð 476 kr. Ath. Leitið ekki langtyfir skammt - lægsta verðið á 0R0BLU sokkabuxunum er á íslandi LYFJA Lágmúla 5 - Sími 533 2300 BÍLATORG FUNAHÖFÐA 1 S. 587-7777 lögg. bifrei&asali Nissan Primera 2.0 SLX nrg. f95, blásans., sjálfsk. Verð 1.530.000. Skipti. MMC L-300 4x4 Mazda MX 3 árg. ‘90, blár og hvítur, ck. lOOþiís. árg. ‘92, rauðiir, sajttlecsingar, kin. Vcrð 1.160.000. Atb. skipti. rafmagnsriiður, álfclgur, spoiler, ek. 79 þús—km. V. 1.250.000. Skipti. Honda Accord EXi árg. ‘92, silfursans., sjálfsk., topplúga, álfelgur, ek. 67 þús. km. Veið 1.290.000. Ford Explorer Eddy Bauer Nissai. árg. ‘91, vínrauður, einn með öllu, árg. ‘9• ek. 82 þtts. km. Verð 2.150.000. Verð 1.1 Arnþór Grétarsson, sölumadur ÚTVEGUM BILALAN - VANTAR ALLAR GERÐIR BILA A SKRA VW Garavelle árg. ‘92, bvitur, 10 manna, Verð 950.000. KIA Sportage Tbyota Corolla XLt Spccial árg. ‘95, vtnrauðttr, uppb., 31“ Series dckk, álfelgur, toppgritid, ek. 11 þús. árg. ‘95, dökkblár, ek. 17 þús. kvt. km. Verð 1.850.000. Skipti. Verð 1.120.000. Einnig áig. ‘94. L)odge lntrcpia árg. ‘95, grœnsans., sjálfsk., V-6 3300 vél, ek. 15 þús. km. Eintt góður. Verð 2.750.000. Skipti. Eancer 1600 GLXi árg. ‘93, blásans., 4ra d., 5 g., sam- l<esingai; rafrnagnsi~iíðut; topplúga, álfetgui; spoiler, ek. 56 þ. km. V 1.050.000 Einn eigandi Staðgreitt. loyota LMfidcruiser ka árg. ‘92, dökkgrát; álfelgur, topp/úga, ek. 104 þús. km. Verð 3.190.000. Skipti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.