Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR aldur færist yfir segjum við gjaman: „Það haustar að“. Þá finnum við að líður að lokum í lífi manna og gróður tekur að sölna. „Allt eins og blómstrið eina“ kvað Hallgrímur sálmaskáld, einn skær- asti blysberi kristninnar fyrr og síð- ar á þessu landi. Sá sálmur minnir okkur á fegurð lífsins og jafnframt á fallvaltleikann og dauðann sem er örugg lokahöfn í lífi hvers manns. Það var eitt síðsumarkvöld árið 1995 þá veiðimenn höfðu lokið kvöldvaktinni og voru komnir heim ti! búða sinna, að mér flaug í hug að nú væri vel til fundið að ganga til árinnar í kvöldhúminu og flytja henni e.t.v. hinstu kveðju. Aldrei að vita hvort jafngott tækifæri gæfist, þar sem vetur færi senn í hönd. Enginn á það víst að sjá vor á ný, allra síst þeir sem heilsulitlir eru. Mér bauð í grun að margt myndi geta borið á góma hjá mér og ánni eftir löng og náin sam- skipti. Mér þótti því vissara að stinga í vasa minn glasi með nitrom- estöflum. Sterk geðhrif gátu haft ófyrirsjáanleg áhrif á veikburða lík- ama minn. Eg settist inn í bílinn og stefndi að Mjósundi sem er rétt fyrir ofan Æðarfossa í Laxá í Aðal- dal. Hvergi er jafn gott að hlusta á hljóminn í Laxá eins og þar sem hún breytir oft um tón eftir því hvernig golan stendur. Ég stöðvaði bílinn spölkorn frá ánni, steig út og labbaði hægt niður á bakkann. Hér ætlaði ég að eiga helga stund. Ég reyndi að skýla mér fyrir hafgol- unni með því að setjast í skjól við stóra hvönn og hávaxnar starir. Það lét nokkuð hátt í ánni þegar hún steypti sér fram af flúðum og féll í fossum. Fyrr en varir datt hafgol- an niður og áin skipti um tón, hætti í dúr og breytti yfir í moll. Það var stafalogn og vaýnsflöturinn sléttur eins og spegill. Ég sá ský himinsins speglast í honum, sólin var horfin bak við Kinnarfjöllin og skuggarnir teygðu sig niður klettabeltin einsog fingur á svörtum óvætti. Senn blés aflandsnæturgolan og ýfði vatns- flötinn. Speglunin á ánni hvarf og hún breytti um lit, varð dökk í strenginn, næstum blásvört og ómar fossanna hljóðnuðu. Langt úr suðri barst fagur strengjakliður sem gaf til kynna að nú væri í vændum minnst tveggja daga sunnanátt. Áin sagði að bændur gætu lokið hey- skap. Ef til vill voru þeir að horfa á sjónvarpið og heyrðu því ekki boð árinnar. Þeir skilja ekki að veð- urspáin í sjónvarpinu er byggð á líkum, en merkjamál árinnar boðar staðreyndir. Mér varð næstum bilt við er ég heyrði mikið skvamp. Ég horfði út á miðja ána og sá að helj- armikill hængur hafði stokkið upp- úr henni í um eins metra hæð. Hann sat næsta kjur í loftinu andar- tak en féll svo í djúp árinnar með miklum dynk. Mér fannst hann segja: „Sjáðu mig, ég er einn af meisturum árinnar. Eg læt aldrei ginnast af agninu." Ég hugsaði með mér, ég veit að hrygnan liggur við hlið þína en þú verður að stökkva af og til svo hún viti að þú sért traustsins verður. Fjölskyldulífið í ánni var erfítt og hentaði ekki ístöðulitlum. Rétt í þessu heyrði ég garg í öndum. Meðfram bakkanum synti græn- höfðakolla og fast á eftir henni tveir ungar, nei, ekki ungar, heldur tvær ungar endur. Kollan hafði veður af mér en sá ekki ástæðu til að óttast mig._ Ég las kafla úr lífsbók henn- ar. Á síðastliðnu vori hafði hún átt fallegan stegg sem vildi stunda ástalífið af kappi, en þá er hún lagð- ist á eggin varð hann ábyrgðarlaus og speglaði sig í pollum og tjörnum og gerðist kroppsdýrkandi. Hann stundaði og gjálífi með öðrum steggjum og gleymdi fjölskyldunni. Ondin erfiðaði og úr eggjum hennar komu margir ungar. Þá var hún orðin mögur, ungarnir hennar þurftu mat, hún fann læk og synti niður hann með hópinn sinn og út á ána. Ungarnir sóttust eftir flugum og ýmsu öðru góðgæti til að geta dafnað vel. Varla var öndin komin út á ána þegar flugvargar, komnir af hafi, sáu hana. Þeir flugu hátt í loft upp og steyptu sér yfir anda- fjölskylduna með ógnar hraða, opn- BJÖRN á Laxamýri með hund sinn á árbakknum. Rennt í hylinn Hjá Fjölva er komin út bókin Rennt í hylinn og með undirtitlinum Bjöm á Laxamýri á tali við ána sína. í bókarkynningu segír að í þessarí bók sé Bjöm G. Jónsson á eins konar eintali við ána sína sem hafi nánast verið allt hans líf. Hann renni færi sínu jafnt í hyl árinnar og minninganna. Hér birtist brot úr fyrsta kaflanum, Á tali við ána. HJÓNIN Elín Vigfúsdóttir og Jón H. Þorbergsson með börnum sínum, Hallgrími, Sigríði, Vigfúsi, Þóru og Birni. uðu kjaftinn og görguðu. Vesalings ungarnir trylltust af hræðslu og hlupu á vatninu í allar áttir. Öndin rétt náði að koma tveimur ungum hvorum undir sinn væng, en vargur- inn tíndi hina upp og gleypti þá í heilu lagi. Þetta þótti honum góður málsverður og flaug yfir ána og vestur á sandinn fyrir handan og svaf þar fram á kvöld. Öndin var hnípin en passaði vel upp á þessa tvo unga og gaf vargnum aldrei á þeim færi. Hvað hún hugsaði veit enginn, e.t.v.: „Hvar er þessi aum- ingi, sem var maki minn, núna á stund neyðarinnar. Nógu var hann duglegur þegar hann vildi fara und- ir föt hjá mér í vor.“ Nú var ég kominn í samband við ána og við gátum hafið spjallið, hún var reyndar að flýta sér til sjávar því stöðugt barst nýtt vatn sem þurfti að komast leiðar sinnar. Ég sat rólegur, þurfti aldrei framar að flýta mér, en spurði: „ Hvernig var þetta, mér hefur lengi boðið í grun að ég ætti lítið í þér, en þú meira í mér?“ Ég beið hljóður eftir svari sem barst skjótt. „Auðvitað áttir þú aldrei neitt í mér en ég átti þig frá upphafí." Loks rann allur sann- leikurinn upp fyrir mér heiður og tær, rétt eins og þegar fjallstindur- inn rífur af sér næturþokuna og ljómar í morgunsólinni nakinn og skær. Þegar samskipti mín og árinnar eru riijuð upp kennir margra grasa og ég byija á fyrstu kynnum. Ég minnist mín sem 15—16 ára ungl- ings á eftirstríðsárunum en þá urðu miklar breytingar í þjóðlífinu. Þeir sem voru lausir og liðugir horfðu til borgarljósanna og ekkert gat stöðvað ferð þeirra til þéttbýlisins enda varla von og stoðaði hvorki að bjóða gull né græna skóga til að fá vinnandi hönd til að starfa í dreifbýli. Á þessum tímum átti ég mér draum um að fara í nám, verða lögfræðingur eða kannski prestur. Það væri áhugavert að fylgjast með fólki í blíðu og stríðu og líka að verða góður ræðumaður. En áin mín var á allt öðru máli, það eru til nógir prestar og hún hafði næg verkefni handa mér sem enga bið þoldu. „Það koma hér ræningjar ítrekað þegar þeir vita af mikilli laxgengd, koma á bátum frá hafi, þótt þeir viti að fisk sinn eigi þeir að veiða í sjónum. Samt sigla þeir bátum sínum upp í ósinn í góðu veðri og leggja net sín þvert fyrir ána og draga svo til lands. Með því móti er góð veiðivon, en þetta er fiskur sem mínir þegnar eiga að fá.“ FEÐGININ Björn á Laxa- mýri og Halla Bergþóra með góðan feng. Ég sá að þarna var mér mikill vandi á höndum, ég var aðeins 16 ára unglingur, feiminn, kjarklítill og veikburða gegn kjarkmiklum sjómönnun sem stundað höfðu veiðiþjófnað í mörg ár og töldu sig hafa fullan rétt til þess. Ég sá enga leið hvernig undan þessari áskorun árinnar minnar yrði vikist. Sá orð- rómur var á kreiki að á Húsavík væri ekki vandkvæðum bundið að fá keyptan lax ef vel væri með far- ið, en ef eftir var spurt vissi enginn neitt. Brátt dró til tíðinda. Eitt góð- viðriskvöld, þegar aðstæður voru ákjósanlegar til ádráttar, lagði ég leið mína niður í Ærvík sem er við ósa Laxár, en þangað var um klukkustundargangur. Klukkan var að byija að ganga eitt að nóttu. Jeppi var til á bænum og sæmileg- ur vegur langleiðina. Ég hafði farið þess á leit að fá bílinn til afnota í þetta verkefni þar sem jeppinn var ekki í annarri notkun þann tíma. Þá var annað viðhorf til bíla en nú, heimamenn höfðu litla trú á verk- efni mínu og töldu að bíllinn hefði forgang og hlífa mætti hjólum hans, ég gæti einfaldlega gengið. Mér sárnaði þessi viðbrögð en minntist aldrei á bílinn framar þótt ferðirnar á þessu og næstu sumrum yrðu óteljandi. Oft fór ég þreyttur af stað eftir vinnudag og kom heim enn þreyttari eftir þvæling nætur- innar og þá varla vinnufær daginn eftir. En þessa téðu nótt, sem varð viðburðarík, var ég kominn niður að Ærvík um klukkan tvö. Þar var ekkert óvanalegt að sjá og ég fór að dunda mér í fjörunni eins og unglingum er títt, gleymdist gætnin og ég lenti í öldu sem bleytti mig uppá miðja kálfa og trosnaðir strigaskórnir fylltust af sandi og sjó. Allt í einu heyrði ég taktfullt vélarhljóð í mikilli nálægð og fól mig í skyndi bak við stóran stein. Báturinn leið inní ána, þrír menn voru um borð. Það lá vel á þeim og þeir voru með spaugsyrði á vör- um. „Ef hann gengur þá er hann á ferðinni núna, við tökum Búðar- dráttinn núna,“ sagði einn þeirra og bætti við: „Það er nú ekki skaði skeður þó að við tökum nokkra fiska, ég held að ekki geri til þótt þessir grósserar úr Reykjavík séu ekki með físk á í hveiju kasti.“ Það var hlegið og fleiri brandarar látnir fjúka, sumir í grófara lagi. Þegar komið var upp fyrir Búðar- dráttinn stökk maður frá borði og óð til lands með band í hendi en hinir sigldu á ská yfir ána og renndu jafnóðum neti frá borði. Ég gekk í rólegheitum til mannsins í fjörunni. Þetta var samanrekinn sjómaður, áberandi blár og rauður í andliti og ég þóttist vita að hann hefði marga salta dropana strokið fram- an úr sér um dagana. Þegar hann varð mín var, varð honum mjög bilt við. Hann gleymdi bandinu, á því slaknaði og þegar í stað tóku fiskar að stökkva yfir netið. Það var kallað reiðilegri röddu frá bátnum: „Hver djöfullinn gengur á?“ í sama mund komu bátsveijar auga á mig og það hafði ekki góð áhrif á þá, báturinn stöðvaðist og netið lagðist niður á botninn og kastið því orðið ónýtt. Bátsveijar tóku að inn- byrða netið uppí bátinn. Nú var sjó- maðurinn í landi orðinn verulega reiður. Hann lét skammirnar dynja á mér. „Þú, drengræfill, þér væri nær að fara heim og láta skipta um bleiu á þér frekar en að vera hér að abbast uppá fullorðið fólk.“ Ég settist á stein í fjöruborðinu. Þótt undarlegt sé var skárra að sitja undir skömmum en standa undir þeim. Sjómaðurinn hélt áfram: „Veistu að það er glæpsamlegt að njósna um fólk?“ Mér fannst nú nóg komið, horfði ofaná blauta skóna mína og svaraði þijóskulega: „Ég má alveg vera hérna, en hvað um þig, mátt þú vera hérna, átt þú hér eitthvert löglegt erindi?“ Ég hefði kannski ekki átt að segja þetta, því nú sneri sjómaðurinn sér að mér og stóð yfir mér ógnandi. Hann var enn rauðari og blárri í framan en fyrr og mér var ráðgáta hvemig það gat orðið. Ég sat kyrr á steininum, átti ekki annarra kosta völ. Ég vissi að sjómaðurinn hafði ráð mitt í hendi sér. Nú rann báturinn að með hinum tveimur. Fátt var um kveðjur og enn dundu skammir. Ég svaraði engu til, enda tilgangslaust. Orðfæri þeirra og illyrði voru mun fjölbreytt- ari og kjarnmeiri en mín. Þeir ræstu vélina, fóru um borð og stímuðu niður ána. Það síðasta sem ég heyrði til þeirra var að einhver hrópaði: „Snautaðu heim, aumingi, og láttu þurrka framan úr þér horinn." Ég labbaði heim eftir atburði næturinnar. Sandurinn í skónum særði mig og ég fór úr þeim utan við útidyr. Tærnar orðnar sjósoðnar en með sokkafitinni þurrkaði ég mesta sandinn af er sat milli tánna og gekk til herbergis míns. Klukkan var að ganga sex og ekki langt til vinnudags. Ég komst úr utanyfir- buxunum en hneig þá niður á kodd- ann. Mér gafst ekki tími til að sofna, ég hafði misst meðvitund. Við morgunverðarborðið minntist ég á atburði næturinnar en talaði óglöggt og var svefndrukkinn. Eitt- hvað hafði síast út því vart hafði fjósverkum verið lokið er hraðboði kom í fjósið og sagði að ég skyldi strax þvo af mér mjaltir og fara í skárri föt því formaður Laxárfé- lagsins biði með bíl sinn í gangi, því nú skyldi farið til sýslumanns. Ég var mun betur fyrir kallaður en um morguninn því meðan kýr voru handmjólkaðar komst ég upp á lag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.