Morgunblaðið - 24.11.1996, Page 18

Morgunblaðið - 24.11.1996, Page 18
18 B SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNUA/ JCZI Y^IKIC^AR LANDSPÍTALINN .../' jbágu mannúðar og vísinda... GJORGÆSLUDEILD Hjúkrunarfræðingar Stöður hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild I og gjörgæsludeild II (vöknun) eru lausar til umsóknar. í boði er sveigjanlegur vinnutími m.a. fastar næturvaktir. Á gjörgæsludeild I er rými fyrir 11 sjúklinga. Þar dvelja 1500-1600 einstaklingar á ári (börn og fullorðnir) með margvísleg heilsuf- arsvandamál. Á gjörgæsludeild II (vöknun) er rými fyri 12-16 sjúklinga og þar dvelja um 3300 sjúklingar árlega. Störf hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild Landspítalans eru fjölbreytt. Þar starfar sam- stilltur hópur fólks, sem hefur að markmiði að veita skjólstæðingum sínum og ástvinum þeirra sem besta umönnun og stuðning. Við óskum eftir hjúkrunarfræðingum, sem hafa áhuga og metnað í starfi og eru fúsir til að axla ábyrgð. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af gjörgæslu-, hand- eða lyflæknishjúkrun. Boðinn er aðlögunartími sem felur í sér fyrir- lestra og handleiðslu reyndra hjúkrunarfræð- inga. Nánari upplýsingar veitir Lovísa Baldursdótt- ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 560 1000 eða 560 1300 og Anna Día Brynj- ólfsdóttir, deildarstjóri, í síma 560 1370 eða 560 1000. HANDLÆKNINGADEILDIR Hjúkrunarfræðingar Stöður hjúkrunarfræðinga á handlækninga- deildum spítalans eru lausar til umsóknar frá áramótum. í boði er aðlögunartími eftir þörfum hvers og eins undir leiðsögn reyndra hjúkrunar- fræðinga. Nánari upplýsingar veitir Kristín Sophusdótt- ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 560 1000. Umsóknarfrestur er til 15. desember nk. Umsóknir gilda í þrjá mánuði. GEÐDEILD LANDSPITALANS Dagskrárstjóri Dagskrárstjóri óskast á áfengisdeild Land- spítalans að Teigi. Þekking og reynsla á meðferð fíkla nauðsynleg. Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðmunds- son, læknir, í síma 560 2890. Hjúkrunardeildarstóri Deildarstjóri óskast í 100% starf á geðdeild Landspítalans á Kleppi (deild 14). Um er að ræða 14 rúma legudeild með góðri starfsaðstöðu. Umsóknarfrestur er til 15. desember nk. Upplýsingar veitir Margrét Sæmundsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 560 2600/2652. Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á geð- deild Landspítalans á eftirtaldar deildir: 1) Deild 27, endurhæfingardeild á Vífilsstöð- um. 2) Deild 28, endurhæfingardeild í Hátúni 10a. 3) Deild 32C, móttökudeild á Landspítalalóð. Um er að ræða fjölþætta og áhugaverða hjúkrun. Starfshlutfall og vaktir eftir sam- komulagi. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Guðnadótt- ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 560 2649. Umsóknarfrestur er til 15. desember nk. Umsóknir gilda í þrjá mánuði. SÝKLAFRÆÐIDEILD LANDSPÍTALANS Ritari Ritari óskast sem fyrst á sýklafræðideild Landspítalans. Um er að raeða 100% starf. Nánari upplýs- ingar veitir Ólafur Steingrímsson, yfirlæknir, í síma 560 1900. ELDHÚS LANDSPÍTALANS Deildarstjóri í eldhúsi Landspítalans er laus 100% staða deildarstjóra yfir innkaupum. Um er að ræða árs afleysingu. Æskilegt er að viðkomandi sé með starfsreynslu af sambærilegri vinnu og vanur að vinna með töivur. Nánari upplýsingar veitir Valgerður Hildi- brandsdóttir, forstöðumaður eldhúsa Rík- isspítala, í síma 560 1509 eða 560 1543 kl. 9.00-10.00 mánudag og miðvikudag. Forstöðumaður tölvudeildar Stórt verslunar- og þjónustufyrirtæki í Reykjavik óskar eftir að ráða forstöðumann tölvudeildar. Starfið felst í að hafa yfirumsjón með daglegum rekstri tölvukerfis ásamt því að þróa tölvumál fyrirtækisins og endur- skoða vinnuferla. Við leitum að einstaklingi með reynslu af stjórnun. Viðkomandi þarf að þekkja Windows umhverfið ítarlega ásamt forritum sem því tengist s.s. Access, Word og Excel sem og AS/400 umhverfið. Æskilegt er að viðkomandi hafi háskóla- menntun í tölvunarfræðum. Viðskipta- þekking s.s. bókhald, innkaup og fjármál er einnig til bóta. Góð laun eru í boði fyrir réttan aðila. Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar „Tölvur 588" fyrir 2. desember n.k. Hagvangur hf Skeifan 19 108 Reykjavík Sími: 581 3666 Bréfsími: 568 8618 Netfang hagvang@tirÆkyrr.is Heimasíöa http://www.apple.is /hagvangur HAGVANGUR RADNiNGARMÖNUSIA Rétt þekking á réttum t/ma -fyrir rétt fyrirtæki Erfðafræði Laust er til umsóknar starf deildarstjóra við matvæla- og heilbrigðissvið Hollustuverndar ríkisins. Starfið felst í framkvæmd laga nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur. Óskað er eftir háskólamenntuðum manni og er sérþekking eða starfsreynsla á sviði erfða- fræði æskileg. Starfsmaður mun vinna með ráðgjafanefnd, sem hefur sérfræðiþekkingu á þessu sviði, að gerð leiðbeininga, reglu- gerða og eftirliti með notkun, sleppingu, dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera. Einnig markaðssetningu matvæla sem eru framleidd með notkun erfðabreyttra lífvera eða sem innihalda afurðir þeirra. Rannsóknastarf Laust er til umsóknar starf rannsóknamanns við rannsóknastofu Hollustuverndar ríkisins. Starfið felst í undirbúningi og framkvæmd örverurannsókna á umhverfis- og matvæla- sýnum. Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun eða reynslu á sviði örverurannsókna. Umsóknir skulu berast fyrir 1. desember nk. Nánari upplýsingar veita Jón Gíslason og Franklín Georgsson, sími 568 8848. Hollustuvernd ríkisins, Ármúla 1a, pósthólf8080, 128 Reykjavík. Ráðgjöf, þjónusta, eftirlit og rannsóknir á sviði matvæla, mengunarvarna og eiturefna. Hársnyrtifólk! Nema á 3. ári bráðvantar að komast á samning hjá hársn- yrtistofu á stór-Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar í síma 557 3250. Fjölhæfur ritari Lítið, framsækið þjónustufyrirtæki leitar að fjölhæfum ritara til þess að annast af- greiðslu viðskiptavina, símavörslu, auk hefð- bundinna ritarastarfa. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund og helst að kunna á t.d. Excel/Word. Áhugasamir sendi umsóknir til afgreiðslu Mbl. fyrir 29. nóvember, merktar: „R -4064“. Ertu sjálfstæð, samviskusöm og þjónustulunduð ? Stórt og traust fyrirtæki óskar eftir að ráða manneskju í fullt starf, til að ráða og stjórna stórum hópi fólks og vera í miklum samskiptum við viðskiptavini fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæð, þjónustulunduð, skipulögð, samviskusöm og vera kurteis og þægileg í framkomu. Vinnutími er frá kl.l3:00 virka daga. Mánaðarlaun eru kr. 120-140.000.-. Boðið verður upp á góða starfsþjálfun. Að fenginni reynslu er ljóst að þetta starf höfðar ekki síður til kvenna en karla. Nánari upplýsingar veita Kristín Gísladóttir og Guðrún Hjörleifsdóttir hjá STRÁ-GALLUP Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember. Ráðning sem allra fyrst. Umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem opin er alla virka daga frá kl.10-16. ÍGALLUP I STARFSRÁÐNINGAR Morkinni 3,108 Reykjavik Sími: 588 3031. bréfsúni: 588 3044 lililliil m í I Guðný Harðardóttir STRÁi i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.