Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samtök opinberra starfsmanna Hugsanlegt samstarf Flugleiða og Flugfélags Norðurlands Morgunblaðið/Rúnar Þór Björnsson BIÐRÖÐ íslendinga við bíl Guðmundar. Biðröð eftir íslenskum fiski Á NOKKURRA vikna fresti má sjá á Rasmus Rask stúdentagörð- unum í Óðinsvéum í Danmörku langa röð af Islendingum. sem komnir eru til að kaupa fisk af landa sínum, Guðmundi Guð- mundssyni. Hann hefur búið í Danmörku síðastliðin 11 ár og vinnur sem verkstjóri í saltfisk- verkun í Lemvig á Jótlandi. Guðmundur sér um að útvega íslendingum víða í Danmörku lostæti úr hafinu við Island og hefur það mælst vel fyrir. Síðast- liðin fimm ár hefur hann ekið reglulega með fullan bil af fiski til Álaborgar, Árósa, Horsens, Óðinsvéa og fleiri staða þar sem eftirspurn eftir góðum fiski er mikil. Það eru ekki aðeins Islend- ingar sem versla við Guðmund, t.d. finnst Grænlendingunum harðfiskurinn sælgæti. „Þetta er nú eiginlega bara tómstundagaman hjá mér,“ sagði Guðmundur þegar ljósmyndari smellti af honum mynd við fisksöl- una á sunnudaginn. Eftir kaffi- sopa ók Guðmundur rakleitt heim til að blanda pækil fyrir mánu- dagsmorgun og það er greinilegt að þar fer maður sem hefur í mörg horn að líta. Krefjast bóta fyrir glötuð réttindi BSRB, KÍ og BHM krefjast þess að fá bætur vegna réttinda sem samtökin segja að hafi verið tekin af þeim með lögunum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Rannveig Sigurðardóttir, hagfræð- ingur BSRB, segist gera ráð fyrir að samtök opinberra starfsmanna muni fylgja þessari kröfu eftir með því að kreijast viðbótarlaunahækk- unar. Lögin um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna voru harð- lega gagnrýnd af BSRB, KÍ og BHM, en samtökin telja að með þeim hafi ýmis kjaraleg réttindi þeirra verið skert. í haust náðu samtökin samstöðu um að leggja fram sameiginlega kröfugerð á hendur ríkinu um að það bætti þeim í kjarasamningum það sem þau kölluðu glötuð réttindi. Þar er m.a. átt við lengingu á uppsagnarrétti og breytingar á biðlaunarétti. Rannveig sagði að samtök opin- berra starfsmanna hefðu ekki reiknað út hvað þessi skerðing á réttindum vigtaði þungt í launaum- slagi opinberra starfsmanna, enda væri hætt við að það leiddi til þess að kjaraviðræðurnar snerust upp í viðræður um forsendur. Ákvæði frestað Samtök opinberra starfsmanna hafa auk þess óskað eftir viðræðum um veikindarétt, fæðingarorlof, starfsöryggi og fleira. Rannveig sagði að samtök opinberra starfs- manna vildu að samið yrði um svo- kölluð viðbótarlaun, sem kveðið er á um í 9. grein laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Samtökin hefðu óskað eftir að gildistöku greinarinnar yrði frestað og teknar upp viðræður á samn- ingstímanum um hvernig hún yrði framkvæmd. Af hálfu samninganefndar ríkis- ins hafa verið settar fram hug- myndir um breytt launakerfi, breyt- ingar á vinnutíma og breytingar á endurmenntun. Umræður um fjáraukalög Hækkun vegna líf- eyris bankastjóra SAMKVÆMT frumvarpi til fjáraukalaga, sem tekin voru til ann- arrar umræðu á Alþingi í gær, er meðal annars gert ráð fyrir, að fjár- máiaráðuneytið fái 25 milíjóna kr. aukafjárveitingu vegna endurmats á eftirlaunagreiðslum fyrrverandi bankastjóra Útvegsbanka íslands fyrir tímabilið desember 1993 til ágústmánaðar 1996 og að ríkissjóður muni vegna þessa endurmats bera 7 millj. kr. kostnað á ári til viðbótar við það sem þegar hefur verið gert ráð fyrir í fjárlögum. Ofbýður réttlætiskennd Bryndís Hlöðversdóttir, þingmað- ur Alþýðubandalags, gagnrýndi ýmsa þætti frumvarpsins og fór fram á að ráðherra útskýrði, hvers vegna gert væri ráð fyrir þessu kostnaðars- ama endurmati á eftirlaunum fyrr- verandi bankastjóra. Kristín Hall- dórsdóttir, Kvennalista, sagði það ofbjóða réttlætiskennd sinni, að út- völdum einstaklingum væru tryggð ríkuleg eftirlaun með þessum hætti á sama tíma og almennur ellilífeyrir lækkaði. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra greindi frá því, að fjármála- ráðuneytið fari með málefni Útvegs- bankans gamla, þ.e. eftirlaunakjör fyrrum bankastjóra hans. Sam- kvæmt upplýsingum Friðriks voru eftirlaun bankastjóranna til ársins 1993 miðuð við laun hæstaréttar- dómara, en þá var því fyrirkomulagi breytt þannig, að laun bankastjóra Landsbankans, sem ákveðin eru af bankaráði, voru lögð til grundvaliar. Seðlabankinn gerði á þessu ári, að beiðni fjármálaráðuneytisins, út- reikninga á því, hvaða áhrif þessi breyting hefði á eftirlaunagreiðslur þeirra 15 einstaklinga, sem enn eiga rétt á ejftirlaunum sem fyrrum starfs- menn Útvegsbankans eða eftirlifandi makar þeirra. Niðurstaða þessa end- urmats varð sú, að á umræddu tíma- bili hefðu greiðslurnar átt samtals að vera um 24,7 milljónum kr. hærri. Þess vegna kæmi þessi upphæð ekki fram fyrr en á fjáraukalögum nú. Sorpurðun á Vesturlandi Úrskurður kærður til ráðherra ÁBÚENDUR nokkurra jarða í ná- grenni Fíflholta í Hraunhreppi, Borgarbyggð, hafa kært til um- hverfisráðherra úrskurð Skipulags ríkisins varðandi fyrirhugaða sorp- urðun þar. Samkvæmt úrskurði Skipulags ríkisins um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna, sem fyrir lá 24. október sl., var fallizt á hina fyrir- huguðu urðun sorps í Fíflholtum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Að mati kærenda var í úrskurðinum ekki tekið tillit til nokkurra um- hverfisþátta, sem þeir telja að hafi ekki verið kannaðir sem skyidi og hafi slíka þýðingu, að urðun sorps á staðnum sé ekki réttlætanleg. Samkvæmt ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum frá 1993 hefur umhverfisráðherra átta vikna frest til að kveða upp úrskurð. Mun sá úrskurður geta fallið á þijá vegu. í fyrsta lagi getur ráðherra ákveðið að staðfesta úrskurð Skipulags rík- isins óbreyttan, í öðru lagi farið fram á að nánari könnun verði gerð á þeim þeim þáttum sem kærendum þykir ábótavant og í þriðja lagi get- ur hann hafnað því að jörðin Fífl- holt þjóni sem sorpurðunarstaður. Lögin um mat á umhverfisáhrif- um kveða einnig á um, að áður en framkvæmdaaðila sé heimilt að hefja urðun á tilteknum stað verði rekstrarleyfi frá Hollustuvernd rík- isins að liggja fyrir. Slíkt leyfi mun að sögn Lúðvíks Gústafssonar hjá þeirri stofnun aðeins verða gefið út að því tilskildu, að það verði tryggt, að sigvatn frá urðunar- staðnum verði hreinsað í samræmi við ákvæði mengunarvarnareglu- gerðar. Lengi leitað að nýjum urðunarstað Samtök sveitarfélaga á Vestur- landi hafa lengi leitað nýs urðunar- staðar fyrir heimilissorp í kjördæm- inu, en það er nú urðað á fimm stöðum sem dreifðir eru um kjör- dæmið og þykja mjög mishentugir til að gegna hlutverki urðunarstaða, ekki sízt frá sjónarmiðum umhverf- is- og mengunarverndar. Auk Fíflholta hefur jörðin Jörvi í Kolbeinsstaðahreppi einnig verið til könnunar sem hugsanlegur urð- unarstaður. Þar munu minni vand- kvæði tengd umhverfisverndarsjón- armiðum vera því til fyrirstöðu að sá staður verði fyrir valinu, en hags- munir í ferðaþjónustu munu vera nokkrir í næsta nágrenni. i t I I I ÝSA, rækja og humar eru ofarlega á lista hjá íslendingum en það var enginn með skötu í ár. Fokkervélamar yrðu áfram í rekstri í innanlandsflugi FOKKER-flugvélar Flugleiða yrðu áfram í rekstri í innanlandsflugi jafnvel þótt á yrði sú breyting næsta sumar að Flugleiðir hætti innan- landsflugi og Flugfélag Norðurlands taki það alfarið að sér. Að sögn Páls Halldórssonar, yfirmanns inn- anlandsflugs hjá Flugleiðum, verður einni af fjórum Fokkei"vélum félags- ins þó væntanlega skilað, en vélin er í leigu hjá Maersk-Air í Dan- mörku. Eins og greint var 'frá í Morgun- blaðinu í gær hafa Flugleiðir að undanförnu átt í viðræðum við ís- landsflug og Flugfélag Norðurlands um hugsanlegt samstarf um innan- landsflug. Hefur meðai annars verið til umræðu að Flugleiðir hætti innanlandsflugi og Flugfélag Norð- urlands taki það alfarið að sér. Páll Halldórsson sagði að þessa dagana verið væri að kanna allar mögulegar leiðir til að sjá hvernig innanlandsfluginu yrði best borgið, og reynt yrði að hraða þeirri vinnu eins og hægt væri. „Ég held að það muni skýrast mjög fljótt hvort við förum þessa leið eða höldum þessu óbreyttu. Við erum með ákveðna starfsemi hér á Reykjavíkurflugvelli og ég held að hvernig sem fari þá verði ekki mikil breyting á því,“ sagði hann. Áhrif á störf flugmanna Kristján Egilsson, formaður Fé- lags íslenskra atvinnuflugmanna, sagði að félaginu hefði ekki borist neinar upplýsingar þess eðlis varð- andi hugsanlegar breytingar á inn- anlandsfluginu að ástæða þætti til þess í dag að eyða mikilli vinnu í að velta vöngum yfir því. „Satt að segja bíðum við ósköp rólegir hér á þessum bæ gagnvart þessu því við höfum heyrt þetta oft áður,“ sagði Kristján. Hann sagði að viðbúið væri að töluverðar breyt- ingar yrðu hvað varðar starf flug- manna hjá Flugleiðum taki Flugfé- lag Norðurlands alfarið að sér innanlandsflugið. „Hins vegar eiga menn töluverð réttindi miðað við okkar núgildandi kjarasamning hjá Flugleiðum, þann- ig að það verður sjálfsagt jafnflókið mál og það var á sínum tíma að setja saman tvö flugfélög. Við höf- um hins vegar hvorki haft tíma né vilja til að setja okkur inn í þessi mál fyrr en það liggur ljósar fyrir hvað er verið að tala um,“ sagði Kristján.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.