Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU AUGL YSINGAR _______MENNTASKÓLINN 1 KÓPAVOGI_ Ferðamálaskólinn - Hótel- og matvælaskólinn - Leiðsöguskólinn Digranesvegur • IS 200 Kópavogur • ísland Slmi / Tel: 544 5530, 544 5510 • Fax: 554 3961 Rekstur mötuneytis Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir mat- reiðslumanni frá áramótum til að taka að sér rekstur á nýju mötuneyti fyrir nemendur og kennara skólans. Opnunartími er frá 09.00-14.00 og miðað er við 2-3 starfsmenn. Allur búnaður er fyrir hendi í skólanum. Nánari upplýsingar veitir skólameistari eða deildarstjóri matreiðsludeildar í síma 544 5510. Skólameistari. Löglærður fulltrúi Laust er til umsóknar starf löglærðs fulltrúa við embætti sýslumannsins á Sauðárkróki. Laun eru skv. kjarasamningi opinberra starfsmanna. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist sýslumanninum á Sauð- árkróki fyrir 1. janúar 1997. Sauðárkróki 9. desember 1996. Ríkarður Másson. Skólastjóra vantar við Grunnskóla Djúpavogs til afleysinga frá 1. febrúar 1997 eða fyrr og út þetta skólaár. Skólinn er með um 100 nemendur og er hann í fögru umhverfi. Nánari upplýsingar gefur Anna, skólastjóri, í síma 478 8836. Umsóknarfrestur er til 20. desember nk. Djúpavogshreppur Fangelsismálastofnun ríkisins auglýsir 8 embætti fanga- varða á Litla Hrauni laus til umsóknar. Um skilyrði þess að vera ráðinn fangavörður er vísað til reglugerðar nr. 11 frá 8. janúar 1996. Umsóknarfrestur er til 31. desember 1996. Fangelsismálastofnun ríkisins, 9. desember 1996. Þroskaþjálfi í Hofsstaðaskóla vantar áhugasaman þroskaþjálfa eða starfsmann með sambæri- lega menntun í rúmlega hálft starf frá 1. jan- úar 1997. í starfinu felst að sinna fötluðum nemanda og aðstoða bekkjarkennara við kennslu og nám nemenda sem af ýmsum ástæðum þurfa sérstakan stuðning. Umsækjendur þurfa að geta unnið á PC tölvu. Upplýsingar um starfið veita skólastjórnendur í síma 565 6720 og grunnskólafulltrúi í síma 565 8066. Umsóknum um starfið, þar sem tilgreina skal aldur og fyrri störf, skal skila til skóladeildar, íþrótamiðstöðinni Ásgarði, eða á bæjarskrif- stofu, Sveinatungu við Vífilsstaðaveg. Bæjarritari. í Tjarnarborg bráðvantar leikskólakennara eða fólk með sambærilega uppeldismenntun. Ef þú ert ábyrgðarfull og skapandi, þá hafðu samband. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Inga Rósa Joensen, í síma 551 5798. Ferðaskrifstofa Óskum eftir að ráða starfsmann á ferðaskrif- stofu á Selfossi. Reynsla nauðsynleg. Skriflegar umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merktar: „Selfoss - 880", fyrir 17. des. nk. Framkvæmdastjóri óskast til að veita dvalar- og hjúkrunarheimili aldr- aðra í Víðnesi á Kjalarnesi forstöðu. Áskilin er menntun á sviði viðskipta- og rekstrarhagfræði eða á sviði heilbrigðis- og félagsmála, ásamt haldgóðri þekkingu og reynslu af stjórnun og rekstri. Óskað er eftir framkvæmdastjóra með þekk- ingu á öldrunarmálum, bæði á sviði heilbrigð- is- og félagslegrar þjónustu, hæfni í mannleg- um samskiptum, sem og sjálfstæðum vinnu- brögðum og frumkvæði í starfi. Skriflegar umsóknir, ásamt meðmælum, sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu fyrir 18. þessa mánaðar merktar: „Rekstrarstjórn Víðiness." Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Ritari framkvæmdastjóra Þjónustufyrirtæki í alþjóðaviðskiptum óskar eftir að ráða ritara sem fyrst. Starfið felst m.a. í eftirfarandi: • Almenn ritara- og móttökustörf. • Bréfaskriftir á íslensku og ensku. • Símavarsla og skjalavarsla. Menntun og hæfniskröfur: • Góð menntun og málakunnátta. • Geta unnið sjálfstætt og skipulega. • Starfsreynsla í ritarastörfum nauðsynleg. • Hafa góða samskiptahæfileika og þjón- ustulund. • Hér er um ábyrgðarstarf að ræða, þar sem reynir á frumkvæði og að leysa aðkallandi verkefni í fjarveru framkvæmdastjóra. Skriflegar umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri störf, óskast sendar til afgreiðslu Mbl., merktar: „Ritari - 877", fyrir 14. desember. Fræðslumiðstöð Reykjavíkur auglýsir lausar stöður við grunnskóla í Reykjavík: Laugarnesskóli Kennara vantar í Laugarnesskóla vegna for- falla frá 15. janúar til loka skólaárs. Um er að ræða 1/2 stöðu í 2. bekk og starf í heilsdagsskóla. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar- skólastjóri í síma 588 9500. Selásskóli Sérkennara vantar eftir áramót vegna barns- burðarleyfis, 2/3 staða. Einnig vantar við skólann umsjónarmann heilsdagsskóla. Starfið felst í umsjón með gæslu 6-10 ára nemenda. Uppeldismenntun æskileg. Fullt starf. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar- skólastjóri í síma 567 2600. 9. desember 1996. Fræðslustjórinn ÍReykjavik. Menntaskólinn á Egilsstöðum 700 Egilsstaðir, sími 471 2500 Laus störf á vorönn 1996: 1. Stærðfræði, 100% staða. Starfið felst í kennslu stærðfræðiáfanga á eðlisfræði- braut og náttúrufræðibraut ásamt deild- arstjórn í stærðfræði. 2. Eðlisfræði, 75% staða. Starfið felst í kennslu eðlisfræðiáfanga á eðlis- og nátt- úrufræðibraut. 3. Danska, 75-100% staða. Starfið felst í forfallakennslu í dönsku vegna fæðingar- orlofs frá 15. febrúar 1997. Laun samkvæmt kjarasamningi HÍK/KÍ og ríkisins. Starfsemi Menntaskólans fer fram á Egils- stöðum og Eiðum. Húsnæðishlunnindi í boði og flutningsstyrkur. Einnig er auglýst eftir stundakennurum til að kenna eftirtaldar greinar á vorönn 1997: Ferðaþjónusta FER103 (6 klst./viku), mark- aðsfræði MAR102 (4 klst./viku), þjónustu- samskipti SAM102 (4 klst./viku), verslunar- reikningur VER102 (4 klst./viku). Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist skólameistara Mennta- skólans á Egilsstöðum, sem einnig veitir nánari upplýsingar í símum 471 2501 og 471 3820. Umsóknarfrestur er til 17. desember 1996. Skólameistari. Skrifstofustarf Ferðaþjónusta GCI international, sem er alþjóðlegt ferða- þjónustufyrirtæki, óskar eftir ungum og kraftmiklum einstaklingi til þess að sinna erilsömu starfi á skrifstofu GCI á íslandi. Hæfniskröfur: Auðvelt með að vinna undir álagi. Góð tölvukunnátta. Mjög góð enskukunnátta. Drífandi og opinn persónuleiki. Geta unnið óreglulegan vinnutíma. Geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Terry Bissell hjá GCI á íslandi í síma 511 1850 milli kl. 10.00 og 13.00. Sölufulltrúi GCI international óskar eftir sölufulltrúa. Við bjóðum upp á: Mjög góða frama- og ferðamöguleika fyrir rétt fólk. Við óskum eftir: Umsækjendum á aldrinum 21-40 ára. Kraftmiklum og opnum persónuleika. Góðri enskukunnáttu. Reynsla í sölumennsku er ekki áskilin, því viðkomandi aðilar fá fulla þjálfun. Nánari upplýsingar veitir Terry Bissell hjá GCI á íslandi, sími 511 1850, milli kl. 10.00 og 13.00. Starfsmann í móttöku Starfsmann vantar í móttöku GCI á íslandi. Hæfniskröfur: Góð framkoma. Mjög góð enskukunnátta. Sjálfstæði. Glaðlyndi. Vinnutími: Kvöld og helgar. Nánari upplýsingar gefur Gregg Collins hjá GCI á íslandi í síma 511 1350 milli kl. 10.00 og 12.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.