Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 68
•UYUNDJII HÁ TÆKNI TIL FRAMFARA Bg Tæknival SKEIFUNNI 17 SlMI 550-4000 ■ FAX 550-4001 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1. 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK Miðstjórn ASI setur fyrirvara við undirritun samninga Vilja að ríkið tryggi jöfnun lífeyrisréttinda MIÐSTJÓRN ASÍ segir í umsögn um frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lífeyrisréttindum opin- berra starfsmanna að ekki verði hægt að ganga frá kjarasamningum fyrr en það liggi fyrir hvernig ríkis- sjóður ætlar að tryggja öllu launa- fólki sama lífeyrisrétt. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, sagði að miðstjórn ASÍ beindi kröf- um sínum að ríkisstjórninni en ekki vinnuveitendum vegna þess að á síðasta ári hefðu ASÍ og VSÍ geng- ið frá samkomulagi um að áfram yrði greitt 10% iðgjald í lífeyrissjóð- ina. Um þetta hefði verið ágætt samkomulag í röðum beggja aðila. Nú hefði ríkisstjórnin markað nýja Morgunblaðið/Davíð Pétursson Fjölskyldan heggur jólatré ÞAÐ er orðið hluti af jólaundir- búningnum hjá mörgum fjöl- skyldum að fara upp í sveit til að velja og höggva eigið jólatré í skóginum. Hópur starfsfólks Marels hf. var nýlega á ferð hjá Skógrækt ríkisins í Hvammi í Skorradal í þessum erinda- gjörðum og varð úr því ágæt ferð. ■ Velja eigið/17 stefnu um að greitt yrði 15,5% ið- gjald vegna hluta launþega. „Þess vegna gerum við þá kröfu að stjórn- völd tryggi okkar fólki þennan mis- mun sem er á réttindunum. Við viljum fá svör við því áður en við göngum frá kjarasamningum hvernig stjórnvöld ætla sér að greiða úr þessu máli,“ sagði Grétar. Umsögn miðstjórnar ASÍ um frumvarpið er birt í nýjasta tölu- blaði Vinnunnar. Þar er minnt á þá stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar að jafna lífeyriskjör lands- manna. Miðstjórnin kveðst líta svo á að ríkisstjórnin hafi með fram- lagningu frumvarpsins lýst því yfir að þau réttindi sem almennu lífeyr- issjóðirnir bjóða upp á séu óviðun- andi og nauðsynlegt sé að auka þau. Mismunun eftir félagsaðild Miðstjórn ASÍ vekur athygli á því að 6.000-8.000 félagsmenn ASÍ eru starfandi hjá hinu opinbera og flestir þeirra falli undir lögin um réttindi og skyldur opinberra starfs- manna. „Miðað við aðildarákvæði frumvarpsins er hér verið að stefna að því að þessir félagsmenn, sem vinna sömu störf á sambærilegum kjörum og félagsmenn samtaka opinberra starfsmanna og greiða sama iðgjald af sínum launum til lífeyrissjóða, eigi að njóta ríflega helmingi verri lífeyriskjara bara vegna þess að þeir eru félagsmenn í almennu stéttarfélögunum og af engri annarri ástæðu. Slíkt gengur auðvitað ekki upp. Málið snýr í sjálfu sér alveg nákvæmlega eins ef horft er til launafólks á almenn- um vinnumarkaði, sem í krafti ijölda sins verður að greiða lang- stærstan hluta af þeim kostnaði sem af þessu kerfi hlýst með skött- um sínum en á samt að njóta mun verri lífeyriskjara. Slíkt gengur ein- faldiega ekki upp í okkar samfélagi - um það verður aldrei sátt.“ Morgunblaðið/Ásdís HAFÞÓR Ingi Magnússon og Jónína Guðjónsdóttir fóru með flugvél FN áleiðis til Gautaborgar þar sem þau fá ný líffæri. Tvö til líffæraflutn- inga í Gautaborg TVEIR íslendingar gangast vænt- anlega undir líffæraflutninga á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gauta- borg í dag. Flogið var með sjúkling- ana utan í nótt. . Unglingspiltur á Akureyri er í meðferð hjá læknum sænska sjúkrahússins vegna væntanlegra lifrarskipta. Að sögn Nick Cariglia, sérfræðings í lyf- og meltingar- færalækningum við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, eru tvær og hálf vika síðan pilturinn kom heim. í gærkvöldi var hringt frá Svíþjóð og látið vita að lifrin væri til. Einnig Iunga fyrir konu í Hafn- arfirði sem beðið hefur í sextán mánuði eftir nýju líffæri. Nick segir að ákveðið hafi verið að slá þessum sjúkraflutningum saman. Flugfélag Norðuriands sendi Metro-vél sína strax af stað með piltinn frá Akureyri og var komið við á Reykjavíkurfiugvelli til að taka konuna. Fólkið gengst væntanlega undir líffæraflutningana í dag. Héraðsdómur kveður Vífilfelli óheimilt að nýta rekstrartap Nútímans Fyrirtækinu gert að greiða 221 milljón króna HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur úrskurðað að Vífílfelli hf. hafi verið óheimilt að nýta ónotað rekstrartap, til frádráttar frá tekjuskatti, frá Fargi hf. (áður Nútímanum hf.) og gamla Álafossi hf. á árunum 1989-93. Vífil- fell keypti fyrirtækin í árslok 1988 og ónýtt rekstrartap þeirra nam sam- tals 425 milljónum króna á þávirði. Með þessum dómi hefur héraðsdómur ■ staðfest áður upp kveðna úrskurði skattstjórans í Reykjavík og Yfir- skattanefndar um sama mál. Málinu hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Málið er margþætt og snýst um álagningu opinberra gjalda á Vífil- fell á tímabilinu 1989-93. Skattyfir- völd gerðu athugasemdir í fjölmörg- um iiðum við skattskil fyrirtækisins á þessu tímabili og endurákvörðuðu opinber gjöld á það í árslok 1994. Sú endurákvörðun var staðfest með úrskurði skattstjóra um mitt ár 1995 og úrskurði Yfirskattanefndar í októ- ber síðastliðnum. 310 milljóna króna fjárnám Hinn 10. nóvember 1995 gerði sýslumaðurinn í Reykjavík fjárnám í fasteign Vífilfells hf. að Stuðlahálsi 1, iðnaðarhúsi, vörugeymslum, skrif- stofubyggingum ásamt vélum og tækjum fyrir um 310 milljónir króna auk dráttarvaxta og kostnaðar. Fjárnámið var gert að kröfu Gjald- heimtunnar í Reykjavík í samræmi við áðurnefndan úrskurð skattstjór- ans í Reykjavík. Vífilfell skaut þess- um úrskurði til dómstóla en með dómi héraðsdóms nú eru nær öll at- riði hans staðfest. Áður en héraðs- dómur úrskurðaði í málinu hafði Yfirskattanefnd þó fallist á að Vífil- felli hefði verið heimilt að nýta sér frestunar- og frádráttarheimildir, sem skattstjórinn hafði ekki tekið til greina. í samræmi við það var upp- hæð fjárnámsins lækkuð um 89 millj- ónir króna og niðurstaðan er því sú að Vífilfell þarf að greiða ríkissjóði 221 milljón. Héraðsdómur úrskurð- aði að málskot skyldi ekki fresta fullnustuaðgerðum en felldi hins veg- ar niður málskostnað. Héraðsdómararnir Helgi I. Jóns- son, Sigurður Hallur Stefánsson og Stefán Svavarsson dæmdu í málinu. Stefán skilaði sératkvæði þar sem fram kemur að hann sé efnislega sammála meirihluta dómsins um af- stöðu til nýtingar á yfirfærðu tapi. Stefán telur hins vegar, með tilvísun í 2. málsgrein 97. greinar skatta- laga, að rannsókn skattyfirvalda hefði átt að vera lokið innan tveggja ára. Hún hafi hins vegar tekið sex ár og yrði Gjaldheimtan að bera hall- ann af aðgerðarleysinu. Hreinn Loftsson, lögmaður Vífil- fells, vildi lítt tjá sig um málið í gær en sagði þó að þegar hefði verið tek- in ákvörðun um að kæra úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar. „Niður- staða meirihluta dómsins er athyglis- verð, ekki síst vegna þess að álit minnihlutaaðilans, sem var eini sér- fróði meðdómandinn í málinu, sýnist vera í fullu samræmi við nýleg dóma- fordæmi Hæstaréttar um túlkun 2. málsgreinar 97. greinar skattalaga. Hefði niðurstaða dómsins verið í samræmi við sératkvæðið hefði Vífil- fell þurft að greiða 40 milljónir í stað 221 milljónar," segir Hreinn. Fjármálaráðherra um áfengisverzlun Einkaaðil- um verði heimiluð smásala FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð- herra telur eðlilegt, að stefnt sé að því að einkaaðilum verði heimil- að að sjá um smásölu áfengis, að uppfylltum almennum en ákveðn- um skilyrðum. Til að svo megi verða þurfi hins vegar að breyta lögum. Þetta kemur fram í svari ráðherrans við skriflegri fyrirspurn Viktors B. Kjartanssonar vara- þingmanns Sjáifstæðisflokksins, sem dreift var til þingmanna á þriðjudagskvöld. í svarinu segir, að það sé stefna íjármálaráðherra „að fela eigi eign- arhald og rekstur á einstökum út- sölustöðum áfengis einkaaðilum í eins ríkum mæli og lög leyfa.“ Nýja útsölustaði eigi að bjóða út; engin gild rök hafi verið færð fyrir því að áfengisútsölur þurfi, frekar en vín- veitingahús, að vera í ríkisrekstri. Hins vegar er tekið fram, að ríkið hafi mikilvægu eftirlitshlutverki að gegna gagnvart sölu á áfengi, sem æskilegt sé að sjálfstæður aðili, óháður verzlunarhagsmunum, sinni. Ennfremur kemur fram í svarinu, að fjármálaráðherra hefur beint þeim tilmælum til stjórnar ÁTVR að gera grein fyrir framlegð og arðsemi einstakra útsölustaða fyrir- tækisins. Tilgangur þessa sé sá að sýna fyrirtækinu meira rekstrarað- hald og undirbúa þann möguleika að rekstur núverandi útsölustaða, sem alfarið eru á ábyrgð ÁTVR, verði boðinn út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.