Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM EGILL Stardal og Knútur Bjarnason. BIRNA Sigurðardóttir og Hjörtur Hjartarson. Morgunblaðið/Ásdís BRIAN Pilkinton, teiknari mynda í bókinni, ræðir við Olaf E. Friðriksson og eiginkonu hans, Þórdísi Zoega. Útgáfuteiti skotveiði- bókar ÚTGÁFUTEITI í tilefni af út- komu bókarinnar Skotveiðar í ís- lenskri náttúru eftir Ólaf E. Frið- riksson var haldið á Hótel Holti nýlega. Bókinni, sem hefur verið í vinnslu síðastliðin fimm ár, er ætlað að vera til fróðleiks og upp- lýsingar fyrir alla sem stunda skotveiðar eða hafa áhuga á að kynna sér þær. Ljósmyndari Morgunblaðsins fór í teitið. SNÖRURNAR, Guðrún Gunnarsdóttir, Eva Ásrún Albertsdóttir og Erna Þórarinsdóttir. Skemmtilegt að syngja sveitatónlist Snörurnar hafa gefið út sína fyrstu plötu með sveitatónlist eftir ýmsa höfunda. Á umslagi disks- ins er kennt hvernig dansa á svokallaðan línudans og segjast þær með plötunni vilja breyta dans- menningu þjóðarinnar. „ÞAÐ hefur gætt einhvers misskiln- ings með það að við köllum okkur stundum ríkisraddirnar en ástæða nafngiftarinnar er að við höfum sungið svo mikið fyrir ríkið,“ segja þær Eva Ásrún Albertsdóttir, Guð- rún Gunnarsdóttir og Erna Þórarins- dóttir, sem skipa Snörurnar, en margir þekkja þær úr bakraddasveit í Eurovision-keppnum. Þær hafa einnig komið víða við hver í sínu lagi. „Við Erna erum búnar að syngja í hljómsveitum síðastliðin tuttugu ár,“ segir Eva, „við erum örugglega búnar að fara 30 hringi í kringum landið með ýmsum hljómsveitum sem óþarfi er að teija upp enda þekkir þjóðin okkur ágætlega." Engin jólabóla Þær segjast þó aldrei hafa gert neitt svipað þessari plötu áður. „Það er skemmtilegt að syngja sveitatón- listina. Við erum sannfærðar um að platan er einungis sú fyrsta af mörg- um sem frá okkur eiga eftir að koma og hún er ekki bara jólabóla sem springur heldur mun hún lifa áfram. Vinsældir þessarar tegundar tón- listar hafa farið vaxandi og hug- myndin að plötunni hefur í raun ver- ið lengi að fæðast og margt orðið til að hvetja okkur í gerð hennar. Smám saman púsluðust hlutirnir þannig saman að við ákváðum að hrinda hugmyndinni í framkvæmd nú í haust. Við tókum grunnana að lögunum upp á tveimur dögum og eftirvinnsla tók stuttan tíma,“ segja þær og Erna bætir við, „við þurftum að klára þetta á mettíma því ég var komin á steypirinn og það var alltaf mesta spennan þegar við hittumst á morgnana hvort hægt væri að klára upptökur eða ekki, það er hvort ég væri komin upp á fæðingardeild að eiga barnið.“ Hressileg lög Þær segja vinsældir sveitatónlist- arinnar fara vaxandi víða og að í Bretlandi til dæmis séu tvö lög á topp tíu en til gamans má geta þess að Friðrik Karlsson gítarleikari leikur í þeim báðum. Auk þess sem Snörumar heimfæra bandarísk lög og texta upp á íslensk- una er á plötunni nýtt lag sem Magn- ús Eiríksson samdi sérstaklega fyrir þær sem og tvö eldri lög færð í „co- untry-búning“. Margir færir tónlist- armenn lögðu þeim lið við gerð plöt- unnar og tóku Snörurnar sérstaklega fram að Guðmundur Pétursson gítar- leikari hefði til dæmis leikið á átta gítara í einu lagi og að hann hefði farið á kostum á plötunni. Textasmiðir plötunnar eru meðal annarra Friðrik Erlingsson, Valgeir Skagfjörð og Magnús Eiríksson. Snörurnar segja íslensku ekki vera mjög „sveitalegt" mál og því þurfti að taka ýmsar sveigjur og beygjur til að forma textana að lögunum. „Það er ákveðin hrynjandi í þessari tónlist sem erfitt er að heimfæra á íslenskuna en við erum mjög ánægð- ar með útkomuna." Björgvin sveitasöngvari Mörgum dettur sjálfsagt Hallbjöm Hjartarson frá Skagaströnd í hug þegar sveitatónlist ber á góma. Snör- umar segjast vera sér meðvitandi um að þær séu engir frumkvöðlar á þessu sviði og ekki Hallbjöm heldur því Björgvin Halldórsson er frægasti sveitasöngvarinn á íslandi, að þeirra sögn. „Hann er búinn að syngja sveitasöngva lengst allra, með Lonely Blue Boys, Brimkló, og Sléttuúlfunum og hefur gert það frábærlega vel.“ Þær segja sérstöðu plötunnar kannski helst vera tengsl hennar við línudansinn sem er að ryðja sér hér til rúms en Jóhann Örn Ólafsson danskennari hefur búið til línudansa við öll lögin og einn þeirra, við lagið Óveður, er skýrður út á textablaði plötunnar. „Jóhann notar plötuna við danskennslu, bæði í línudansi og í öðrum dönsum. Okkur finnst þetta dansinnlegg skemmtilegt. Það væri gaman ef fólk gerði meira að því að klæða sig upp á og fara út að dansa eins og tíðkaðist hér áður fyrr,“ segja Snörurnar sem munu skemmta á Hótel íslandi næstu helgar. Gleðileikurinn B-I-R-T-i-N-G-U-R “ Hafnarfjarénrleikhúsið Næsta sýning: HERMÓÐUR Lau. 4. jan. OG HAÐVOR Vesturgata 11, Hafnarfirði. Gíeðifeg jdf MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 61 i# ÞJOÐLEIKHUSIÐ Smíðaverkstæðið kl. 20.30: sími 551 1200 LEITT HUN SKYLDI VERA SKÆKJA eftir John Ford Fös. 27/12 - lau. 28/12. Athygli er vakin á að sýningin er ekki við hæfi barna. Bkki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Litla sviðið kl. 20.30: í HVÍTU MYRKRI eftir Karl Ágúst Úlfsson Sun. 29/12. Athugið að ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. ••• GJAFAKORTíLEIKHÚS ••• •••SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF ••• Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13.00—18.00, miðvikudaga til sunnudaga kl. 13.00—20.00 og til kl. 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10.00 virka daga. Sími 551 1200. áB^LmKFÉLAG^Í|á g^REYKJAVÍKURjg 1897-1997 Stóra svið kl. 20.00: FAGRA VERÖLD eftir Karl Ágúst Úlfsson, byggt á Ijóðum Tómasar Guðmundssonar. Frumsýning 11. janúar 1997 Stóra svið kl. 14.00: TRÚÐASKÓLINN eftir F. K. Waechter og Ken Campbell. Sun. 29/12. Litja svið kl. 20.30: DOMINO eftir Jökul Jakobsson. Frumsýning 9. janúar 1997. SVANURINN eftir Elizabeth Egloff. Lau. 28/12, örfá sæti laus, sun. 29/12. Leynibarinn kl. 20.30 BARPAR eftir Jim Cartwright. Fös. 27/12, fáein sæti laus, lau. 28/12. Fáar sýningar eftir! Miðasalan er opin daglega frá kl.13.00 til 18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Auk þess er tekið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00 -12.00 GJAFAKORT LEIKFÉLAGSINS FRÁBÆR JÓLAGJÖF FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA! BORGARLEIKHÚSIÐ Sími 568 8000 Fax 568 0383 Höfdaboro'in ri„/,inrJnísimi r/T%„„& J ■AL IH— „Gefin fyrir drama Itessi dama..." Kl. 20:30: fim. 12.12, nokkur sæli laus. Söosto sýning fyrir jól. Leikfélag Kópavogs sýnir barnaleikritið: t • \ :ui vm Kl. 14: sun. 15.12, síðosto sýning fyrir jól. ■ (ra Sýningar teknar upp ettir áramót. Miöasala í simsvara alla daga s. 551 3633 VINSIELASTA LEIKSÍNING ÁRS!NS S’ÍNlíBORbARLEIKHúSlltU Sími568 8000 KASMil BARNALEIKRITIt) eftir MAíJNUS SCHEVIN& '"leikstióri, BALTASAR KORMÁKUR Lau. 28. des. kl. 14, sun. 29. des. kl. 14, örfó sæti lous. MIÐASALA I OLLUM HRAÐBONKUM ÍSLANDSBANKA „Ekta fin skemmtun." DV „Ég hvet sem flesta til að verða ekki af þessari skemmtun." f Mbl. Sun. 15. des. kl. 20, örfé sæti Inus, Sí&asta sýning fyrir jól, sun. 29. des. kl. 20. K . „Sýningin er ný, fersk og bráðfyndin." „Sífellt nýjar uppákomur kitla hláturtaugarnar.“ ^ Inu. 28. des. kl. 20. Veitingahúsið Cofe Ópera býður rikulego leikhúsmaltið fyrir eðo eftir sýningar ú oðeins kr. 1.800. loftkastalinn Seljavegi 2 Mióasala í síma 552 3000. Fax 5626775 Opnunartími miðasölu fró 10 * 20. í sambandi við neytendur frá morgni til kvölds! - kjarni málsins! »r íslands I imtudaginn 12. des. kl. 20.00 Hljómsveitarstjóri og einleikari: Guillermo Figueroa t/W Samuel Scheidt: Antonio Vivaldi: Giovanni Gabrieli: Giovanni Gabrieli: Hector Berlioz: George F. HSndel: In dulce jubilo Árstíðirnar Canzon septimi toni nr. Canzoni nr. 27 & 28 Fióttin frá Egyptalandi Fiugeldasvítan Miöasala á skrifstofu hljómsveitarinnar og við innganginn /5 SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ISLANDS . Háskólabíói við Hagatorg. sími 562 2255
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.