Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 63
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 19S6 63
4
morgunblaðið
i
9
I
I
ð
f
f
I
<
I
4
4
4
<
4
i
i
i
i
I
(
(
I
(
(
I
I
(
(
LEIK- og söngkonan Ma-
donna kom fram á hátíðinni,
í fyrsta skipti siðan hún ól
barn í síðasta mánuði.
GÍTARLEIKARINN Carlos
Santana hefur staðið Iengur
en flestir í framvarðasveit
bandarísks rokks.
Billboard verð-
laun afhent
BILLBOARD tónlistarverðlaunin
voru afhent við hátíðlega athöfn
i Las Vegas í Bandaríkjunum í
vikunni. Margir þekktir tónlistar-
menn fengu þar verðlaun fyrir
framlag sitt til listgreinarinnar á
árinu og fyrir ævistarf sitt.
SÖNGKONAN vinsæla Toni
Braxton sést hér með Rythm
& Blues verðlaun sín.
Nýjar plötur
írsk tónlist
í blóðinu
írsk tónlist nýtur vinsælda víða um heim
og þá ekki síst hér á landi. Hljómsveitar-
menn í Pöpum, sem sendu frá sér tónleika-
skífu fyrir skemmstu, segja að íslending-
um líki írsk tónlist svona vel af því
þeir séumeð hana í blóðinu.
HLJÓMSVEITIN Papar hefur
starfað alllengi með ýmsum
mannabreytingum. Fyrir
skemmstu kom út frá sveitinni
þriðja breiðskífa hennar sem
mjög er mörkuð írskum áhrifum
og svipar þannig til fyrstu plötu
Papanna, em í millitíðinni hefur
sveitin leikið ýmiskonar tónlist,
þar á meðal diskó.
Papar segja að þeir séu að
gefa út tónleikaplötu meðal ann-
ars til að undirstrika að þeir hafa
fært sig enn lengra í að leika
írska tónlist, en á plötunni eru
lög sem sveitin hefur verið að
þróa undanfarin ár, ýmis írsk
þjoðlög eða lög sem þeir félagar
hafa útsett fyrir írska hljóðfæra-
skipan og í írskum anda. Platan
er tekin upp á krá í Hafnar-
stræti sem kennir sig við írland,
heitir reyndar Dyflinarbúinn, eða
Dubliner.
„Við gerum mikið af því að
endurútsetja lög, því þessi þjóð-
legu írsku lög eru oft ekki mjög
áheyrileg við fyrstu hlustun. Við
erum ófeimnir við að henda út
hljómum sem okkur finnst óþarf-
ir, en bæta við því sem okkur
PAPAR, Ingvar Jónsson, Dan Cassidy, Georg Ólafsson,
Eysteinn Eysteinsson, Vignir Ólafsson og Páll Eyjólfsson.
finnst betur eiga við og stundum
er ekkert eftir af upprunalega
laginu nema laglínan. Það má
því segja að við séum oft að end-
ursemja lögin, en við höfum líka
fengist við að frumsemja lög í
írskum anda þó þau séu ekki á
disknum,“ segja þeir.
Papar segja að á plötunni sé
sýnishorn af tónleikadagskrá
þeirra sem hafi verið að mótast
og þróast undanfarin hálft annað
ár, en sum laganna voru í mótun
skömmu áður en platan var tekin
upp.
Ferill Papanna hefur verið
breytilegur og hljómsveitin breytt
um svip eftir mannaskipan, en
þeir segja að nú sé hún fastmót-
aðri en áður og mannskapur sam-
hentari. „Það má segja að nýir
menn hafi komið með nýjar
áherslur, en undanfarin misseri
höfum við verið feimnir við að
stíga skrefið til fulls í írsku tón-
listina, en allt frá því hljómsveit-
in varð til höfum við gælt við það
að helga okkur þeirri gerð tónlist-
ar,“ segja þeir félagar og vísa til
þess að nafn sveitarinnar segi
sitt, aukinheldur sem írsk áhrif
hafi verið sterk á fyrstu plötu
sveitarinnar.
Aðspurðir um hvað valdi því
að írsk tónlist njóti slíkra vin-
sælda um heim allan sem raun
ber vitni segja Papar að ekki sé
vafi á að hin mikla gleði sem
einkenni tónlistina hafi mest að
segja. „Mörgum fínnst Irar vera
þunglyndir og jafnvel daprir, en
þegar kemur að tónlistinni er hún
full af grípandi gleði _ sem allir
finna. Hvað okkur íslendinga
varðar þá hlýtur tónlistin að
höfða mjög til okkar, því arfleifð-
in segir til sín og írsk tónlist
hefur verið vinsæl hér á landi í
gegnum aldirnar, við erum með
hana í blóðinu."
Papar eru með hefðbundna
írska hljóðfæraskipan með Dan
Cassidy á fíðlu og síðan með
banjó, gítara, trommur, bassa og
harmonikku. Það eina sem vantar
er tinflauta og þeir segja að það
komi að því að einhver í hljóm-
sveitinni taki að sér að blása í
slíka flautu.
írskum áhrifum Papanna hef-
ur verið vel tekið að þeirra sögn
og þeir segja að þeir hafí líka
fengið fyrirspurnir að utan; þann-
ig hafí þýsk umboðsskrifstofa
haft samband við þá félaga og
boðist til að skipuleggja fyrir þá
tónleikaferð á ýmsar tónlistarhá-
tíðir helgaðar írskri tónlist, en
þar í landi og víðar í Evrópu sé
nóg að gera á þeim vettvangi.
„Það hafa líka aðilar í fleiri lönd-
um haft samband við okkur og
sett fram álíka hugmyndir sem
við erum að skoða í dag.“ segja
þeir og finnst ekkert sérkennilegt
við þá tilhugsun að íslensk hljóm-
sveit ferðist til að mynda um
Þýskaland og leiki írska tónlist.
Papar leika helst á krám og
knæpum, en halda líka böll og
þeir segja að ekki sé gott að leika
írska tónlist eingöngu á böllum.
„Á böllum þarf annað til en á
krám og þá leikum við alhress-
ustu írsku lögin og fléttum inn í
dagskrána vinsælum popplögum,
annað er ekki hægt,“ segja þeir
en bæta við að mest gaman hafi
þeir af því að leika írsku tónlist-
ina eingöngu, hún hafí eitthvað
sérstakt við sig og textarnir séu
skemmtilega frábrugðnir öðrum.