Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 53 Jólatón- leikar í Fíladelfíu AÐ VENJU verða jólatónleikar á aðventunni í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, Hátúni 2. Tónieikarnir verða miðvikudaginn 11. desember og hefjast kl. 20.30. Að þessu sinni verður selt inn á tónleikana því verið er að endurnýja hljóðkerfi kirkjunnar og er þetta tækifæri m.a. notað til að safna fyrir þeim kaupum. Á þess- um tónleikum leikur lofgjörðarhópur Fíladelfíu, undir stjórn Oskars Ein- arssonar tónlistarstjóra, mikið hlut- verk. Lofgjörðarhópurinn hefur ein- beitt sér að gospelsöng sem er söng- ur af lífi og sál. Einsöngvarar úr hópnum syngja með en auk þeira koma fram Anna Júlíana Þórólfsdótt- ir sem notar tækifærið og kynnir nýja plötu sem hún var að senda frá sér og ber nafnið Söngur til þín, en Lofgjörðarhópurinn syngur einmitt með henni á þeirri plötu. Tríó Þóru Grétu leikur og syngur og unglinga- hljómsveitin Operation Big Beat hef- ur af þessu tilefni bætt jólasöngvum við dagskrána. Á tónleikunum verða tekin samskot til bágstaddra en árum saman hefur söfnuðurinn staðið fyrir jólagjöfum til þeirra sem minna mega sín. Húsið er öllum opið svo lengi sem húsrúm leyfir. Aðgangseyrir er kr. 500 og miðar seldir við inngandinn og í versluninni Jötu, Hátúni 2. Fabula í Tjarnarbíói ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Margrétar Kristínar vegna nýútkominnar plötu hennar, Fabula, verða í Tjarnarbíói í kvöld og heljast kl. 21. Með henni munu leika: Einar Scheving á trommur, Róbert Þórhallsson á bassa, Eðvarð Lárusson á gítar, Agnar Már Magn- ússon á hljómborð og Szymon Kuran á fiðlu. Laufey Geirlaugsdóttir og Alma María Rögnvaldsóttir syngja bakraddir. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. Gengið á milli Skeifu og Kringlu HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer í miðvikudagsgöngu í dag, 11. des- ember, og verður slegið á létta strengi. Gengið verður um og á milli verslunarsvæða í Sogamýri og Kringlumýri og kynnst gerð auglýs- ingaskilta. í ferðinni hittir hópurinn einn af mönnum mánaðarins á leið til byggða og í lokin verður boðið upp á hressingu í veitingagarði. Mæting er við Hafnarhúsið kl. 20. Farið verður með SVR inn í Grensás og gengið um Skeifu, kíkt í búðar- glugga og skoðaðar útiskreytingar. Þaðan farið eftir Grensásvegi og upp að Austurveri og áfram í Kringluna. Þar verður gengið um sali og skoðað- ar inniskreytingar. Að því loknu verður gengið niður að göngubrúnni við Kringlumýrarbraut, síðan með ströndinni og um Öskjuhlíð niður í Miðbæ. Allir eru velkomnir í ferð með Hafnargönguhópnum. Jólafundur hjá Nýrri dögun NÝ DÖGUN, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, hatda sinn árlega jólafund annað kvöld kl. 20 í Safn- aðarheimili Digraneskirkju. Nemar úr Söngskóla Reykjavíkur syngja. Sr. Gunnar Sigurjónsson í Digranes- kirkju flytur hugvekju. Ný dögun hvetur syrgjendur til að koma. Að- gangur ókeypis. STEKKJARSTAUR sem kem- ur fyrstur og ætlar að laum- ast í fjárhúsin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og kikja á ærnar. Jóladagskrá í Húsdýra- g-arðinum í FJÖLSKYLDU- og húsdýragarð- inum verður tekið á móti jólasvein- unum þrettán frá og með 12. des- ember til 23. desember kl. 15. Það er vinur okkar Stekkjarstaur sem kemur fyrstur og ætlar hann að laumast í fjárhúsið og kíkja á ærn- ar. Næstur er Giljagaur sem fer beinustu leið í fjósið, og koma þeir bræðurnir síðan einn af öðrum. Rauðklæddi jólasveinninn er aldrei langt undan og kemur jafnvel með þeim gömlú. Gott er að eiga ljúfa og rólega stund nú í jólaamstrinu í káffihúsi Fjölskyldu- og húsdýra- garðsins sem er með jólatilboð á kakó og piparkökum í desember. Garðurinn er opinn virka daga frá kl. 13-17, lokað miðvikudaga, opið um helgar kl. 10-18. Aðgangseyrir 0-5 ára ókeypis, 6-16 ára 100 kr., fullorðnir 200 kr. og ellilífeyrisþegar ókeypis. Félagsmiðstöð á alnetinu FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Vitinn í Hafnarfirði opnar sérstaka spjallrás fyrir unglinga, sem hafa aðgang að Alnetinu, í dag, miðvikudag. Vitinn hefur verið með heimasíðu í tæplega ár á slóð http: //www.trek- net.is/at.vitinn á alnetinu. Heimas- íðan hefur hlotið góðar viðtökur en hefur nokkuð takmarkað gildi. Mik- ill áhugi unglinga á alnetinu varð kveikjan að stofnun þessa tilrauna- verkefnis, segir í fréttatilkynningu. Frá og með miðvikudeginum 11. desember verður spjallrás opin á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 19-22 til reynslu. Stefnt er að því í byijun að kanna viðbrögð og fá gagnrýni á spjallrás Vitans. Eitt ákveðið umræðuefni verður í gangi í hvert skipti, þar sem ungl- ingum er boðið að ræða málin við aðra unglinga og starfsmann og geta þeir verið hvar sem er á land- inu, eða jafnvel heiminum, einnig verður hægt að opna einkarás og ræða sín hjartans mál við reyndan starfsmann, hvort sem um er að ræða vandamál eða annað. Kvöldvaka Ferðafélagsins FERÐAFÉLAG íslands heldur kvöldvöku með suðrænum blæ mið- vikudagskvöldið 11. desember, í stóra salnum, Mörkinni 6. í upphafi leiða þau Laufey Sig- urðardóttir fiðluleikari og Páll Eyj- ólfsson gítarleikari ítalska tónlist, en út er að koma hljómdiskur með leik þeirra. Þau eru bæði tónlistar- menn í Reykjavík og hafa víða kom- ið fram á Islandi og erlendis. Að því loknu sýnir Haukur Jóhannes- son jarðfræðingur myndir og segir frá Hawaii-náttúruparadís í miðju Kyrrahafi. Aðgangur kr. 500 (kaffi og meðlæti innifaliðj. Allir velkomn- ir, félagar sem aðrir. Samkoman hefst kl. 20.30. Nýja Hengilsritið verður til sölu á félagsverði, kr. 1.500. Jólafundur LAUFS JÓLAFUNDUR LAUFS verður haldinn í húsakynnum félagsins á Laugavegi 26, gengið inn Grettis- götumegin, fimmtudaginn 12. des- ember og hefst hann kl. 20.30. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson flytur hugvekju og Sigurður Trausti Kjartansson og söngfélagar flytja jólalög ásamt gestum. Félagsmenn og velunnarar eru velkomnir. Veit- ingar verða heitt súkkulaði með rjóma, kaffi og öl að ógleymdum jólasmákökum. Verð kr. 200. LEIÐRÉTT Kökubók Hagkaups HÖFUNDUR Kökubókar Hagkaups er Jóhannes Felixson en nafnið mis- ritaðist í Morgunblaðinu í gær. Er beðist velvirðingar á þessum mistök- um. Kökubókin er efst á bóksölulista Félagsvísindastofnunar. Röng mynd VEGNA mistaka við vinnslu blaðsins birtist í gær frétt um nýja löggjöf á Evrópska efnahagssvæðinu með alls óviðkomandi mynd af þýzka kanzlar- anum og forseta Frakklands. Beðizt er velvirðingar á mistökunum. Rangt nafn ÞAU mistök urðu við birtingu kafla úr bókinni Ekki dáin - bara flutt að nafn annars höfunda bókarinnar misritaðist. Hann heitir Páll Ásgeir Ásgeirsson, en ekki Pálsson eins og misritast hafði. Er viðkomandi beð- inn velvirðingar á þessum mistökum. UONDUÐ BOK FRA ORMSTUNGU Kcviru htik .*W, • Kitiunlo .WÍCMt' aefmum í§7 Verðlaunasaga frá slóðum Vestur-lslendinga um ævintýri Thors litla við veiðar úti á ísnum með afa sínum. Besta bók ársins 1994 í Kanada fyrir börn undir 7 ára aldri. „Þessi saga er einstaklega vel samin, spennandi, falleg og bæði vekjandi og fræðandi.“ Sigrún Klara Hannesdóttir, Morgunblaðinu „Yndisleg bók ...“ Lóa AIdísardóttir, Degi- Tímanum Guðrún B. Guðsteinsdóttir íslenskaði ti iii THOR W.n.VAU, AUIVSO N VK'í;i ORMSTUNGA * bókaútgáfa Enginn hægindastóll í heimi jafnast á við Lazy-boy! Með einu handtaki er skemill dreginn út og maður líður þægilega aftur -mjög einfalt. Lazy-boy®er tilvalin jólagjöf fyrir allar mömmur og ömmur, afa og pabba! Lazy-boý hægindastóllin fæst í mörgum gerðum og stærðum. Einnig er Lazy-boý fáanlegur í leðri. Lazy-boý kostar frá kr. 34.580,- í áklæoi. Munið bara að Lazy-boy fæst aðeins í Húsgagnahöllinni. Verið velkomin. Góð greiðsiukjör til margra mánaða. i V75A HÚSGAGNAHÖLLIN Bildshöfði 20 -112 Rvík - S:587 1199
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.