Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMIIMGAR MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 45 \ I I < í i ( ( ( ( ( ( ( I I BRYNDIS KRISTJÁNSDÓTTIR + Bryndís Kristj- ánsdóttir fædd- ist á Húsavík 11. desember 1964. Hún lést í Landspít- alanum 2. desem- ber 1996 síðastlið- inn. Foreldrar hennar eru Krist- ján Sigurðsson frá Lundarbrekku í Bárðardal, f. 22. júlí 1942, og fyrsta kona hans, Ragn- hild Hansen, frá Halldórsstöðum í Laxárdal, S-Þing., f. 19. apríl 1943. Krislján og Ragnhild skildu. Hann er nú bifvélavirki í Borgarnesi, kvæntur Ragnhildi Guðrúnu Guðmundsdóttur frá Brjáns- læk, f. 5. júlí 1943. Ragnhild Hansen býr í Reykjavík. Systkini Bryndísar eru: 1) Sigurður, f. 1961, maki, Sigríð- ur Einarsdóttir, eiga þijú börn og búa í Reykjavík. 2) Krist- jana, f. 1969 maki, Örn Árna- son, eiga eitt barn, búsett í Reykjavík. 3) Páll Þór, f. 1972, ókvæntur, býr með móður sinni í Reykjavík. Eiginmaður Bryndísar var Gísli Rafn Jónsson, f. 20. apríl 1964. Foreldr- ar hans: Jón Árni Sigfússon, f. 23. október 1929, bif- reiðarsljóri, Víkur- nesi, Vogum í Mý- vatnssveit, og kona hans, Þorbjörg Sig- ríður Gísladóttir, f. 27. nóvember 1930, d. 4. júlí 1996 frá Helluvaði í Mý- vatnssveit. Bryndís og Gísli Rafn eiga Arnar Rafn, f. 26. 1991, og Fannar Rafn, f. 11. maí 1996. Bryndís og Gísli Rafn höfðu byggt sér íbúðarhús, Arnarnes í Voga- hverfi í Mývatnssveit. Hann er í samstarfi með föður sínum í rekstri langferðabíla og þau hugðust byggja afkomu sína á þeim rekstri og ferðaþjónustu. Bryndís lærði félagsráðgjöf og hafði starfað sem félagsráð- gjafi á Akureyri. Utför Bryndísar fór fram frá Reykjahlíðarkirkju 7. desem- ber. tvo syni: desember Áratugurinn 1960-1970 var tími framfara og bjartsýni í Bárðardal. Undir lok þess áratugar áttu heima á Lundarbrekku milli 20-30 manns. Elst af þessu fólki voru annars vegar hjónin Marína Baldursdóttir frá Lundarbrekku og Sigurður Sigurgeirsson frá Stafni í Reykja- dal. Hins vegar tengdamæðgurnar Jónunna Jónasdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir frá Húsavík. Einka- sonur Jónunnu og eiginmaður Guð- rúnar var Sigurður Baldursson, synir þeirra eru Kristján og Jónas. Sigurður lést af slysförum 1955. Hann var hálfbróðir Marínu og þau voru jafnframt systrabörn. Næsta kynslóð voru börn og tengdabörn þeirra systkina, Marínu og Sigurðar Baidursbarna. Þriðja kynslóðin voru barnabörnin þeirra. Tólf voru þau, sem samtímis áttu heima á Lundarbrekku, fædd á árunum 1958-1969. Mikill sam- gangur og tengsl voru milli fjöl- skyldnanna og barnahópurinn stóri lék sér stöðugt saman, ekki árekstalaust alltaf. En innan hóps- ins mynduðust sterk vináttubönd sem aldrei hafa rofnað. Mér hefur orðið minnisstæður Þorláksmessu- dagur 23. desember 1971. Yngsta dóttir mín, Guðrún var þá 5 ára. Á Þorláksmessu var venja á þessum árum að þvo allt og þrífa eftir föng- um og skreyta svo að kvöldinu. Mér þóttu þetta einatt langir og lýjandi dagar. En nú brá útaf van- anum. Litla heimasætan, 7 ára gamla, hún Bryndis sem átti heima „uppi á Hól“ bankaði upp á strax að morgni. Hún var að heimsækja Guðrúnu frænku sína og fá hana til að syngja með sér jólalög sem hún var búin að læra. Sú yngri kunni miklu minna, en hún var fljót að læra og þessar litlu söngkonur eltu mig herbergi úr herbergi og sungu jólalög allan daginn. Sú eldri skrapp heim í mat og drykk en kom jafnharðan aftur því sönggleðin var ótakmörkuð. Satt að segja varð ég heldur ekki leið á að hlusta og er ekki viss um að ég hafí hlustað á skemmtilegri söngskrá um dagana. Fyrr en varði var dagur að kvöldi kominn og allt orðið hreint og fág- að. Bryndís litla fór heim með þakk- læti okkar fyrir vel heppnaðan dag. Næsta vor, 1972, fluttu svo fjöl- skyldur frændanna Kristjáns og Hjartar til Húsavíkur. Fundum fækkaði og fólkinu á bæjunum líka. Nú ríkir sorg og söknuður í huga okkar. Framundan þó jólin, hátíð ljóss og friðar, en það voru einmitt þau sem voru kveikjan að söngnum, sem Bryndís leiddi á Þorláksmessu- dag 1971. Góður guð, léttu byrðarnar, sefaðu sorgina, mildaðu sársaukann. Gefðu trú, von og kærleika. Eiginmanni, litlu drengjunum, tengdaföður, föður og móður, systkinum og öðrum aðstandend- um, vottum við Sigurgeir og dætur okkar, Friðrika, Marína og Guðrún, dýpstu samúð. Hjördís Krístjánsdóttir. Þegar skammdegismyrkrið er sem svartast lýsum við upp í kringum okkur með birtu aðventuljósanna og búum okkur undir komu hátíð ljóss og friðar. Annan desember síðast liðinn þegar mér bárust fregnir af láti frænku minnar, Bryndísar Kristj- ándóttur, lagðist dimmur skuggi myrkurs og sorgar yfir og bjarmi ljósanna náði ekki að lýsa inn í huga minn. Ég eins og fleiri spyr, hvers vegna er hún hrifin burt svo hastar- lega frá ungum sonum og ástríkum eiginmanni. Ég veit að svara er ekki að vænta, trúin og minningarnar verða að lýsa upp hugann og með tímanum verða þær bjartar og ýta myrkrinu á braut._ Elsku Biyndís. í dag, 11. desem- ber, var afmælið þitt, þá ríkti gleði og tilhlökkun í huga okkar bamanna á Lundarbrekku þegar við vorum að alast upp. Þá var fyrsti laufa- brauðsdagurinn á Lundarbrekku og við komum öll saman og skáram í kökumar og sungum jólalögin. Minn- ingamar frá glöðum æskuáram birt- ast mér hver af annarri, fullar gleði og miklum söng. Ifyrstu átta æviárin þín ólumst við upp hlið við hlið og áttum saman sælar og sárar stundir æskunnar. Þannig vora mynduð vin- áttu- og frændsemisbönd sem voru sterkari en svo, að fjarlægð og að- skilnaður næði að slíta þau. Við vor- um nánar á þann hátt sem uppran- inn tengdi okkur. Síðastliðið vor átti ég því láni að fagna að vera samtíða þér á fæðingardeild FSA, þegar Fannar Rafn fæddist. Þær stundir sem við áttum þá vora mér dýrmæt- ar, dýrmætari en þig granaði. Á erfiðum stundum sast þú hjá mér og hlustaðir, þú miðlaðir til mín kjarki og hlýju á þinn sérstæða hrein- skilna hátt sem einkenndi þig. Fyrir þessa daga vil ég sérstaklega þakka, sem og allar aðrar samverastundir. Elsku frænka, megi minningin um dugnað þinn, kjark og æðru- leysi létta þunga sorgar og myrk- urs úr hugum ástvina þinna. Kom, huggari, mig hugga þú kom, hönd og bind um sárin, kom, dögg og svala sálu nú, kom, sól og þerra tárin, kom, hjartans heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós og lýstu mér, kom, líf, er ævin þver, kom, eilífð bak við árin. (V. Briem.) Góður guð styðji og styrki ykk- ur, Gilli, Arnar og Fannar. Krist- ján, Stjana, Siggi, Palli, Ragga og fjölskyldur, aðrir ástvinir allir; inni- legar samúðarkveðjur. Marína Sigurgeirsdóttir. Allt í einu er hvundagurinn ekki lengur hvundagur, heldur rofinn af símtali með slæmum fréttum. Fréttum af láti ungrar konu sem á lítil börn og eiginmann. Ungrar konu sam ætlaði að gera svo margt með fjölskyldunni í framtíðinni á nýju heimili. Maður situr hljóður, dofinn við símann. Horfir á að- ventuljósin í glugganum sem spá gleði jólanna, gleði barnanna. Allt er breytt. Tárin renna niður kinnarnar, vegna lífsins. Af hverju Bryndís? Minningarnar streyma fram í hugann líkt og myndir. Bryndís í háskólanum. Ég á aldur við mömmu hennar, en það mynd- aðist leyniþráður á milli okkar. Stundum héldum við að hann hefði orðið af því að við vorum í sama stjörnumerki, en nú veit ég að hann varð til vegna væntumþykju. Bryndís á kaffistofunni í Odda. Hnarreist með brúnu augun glamp- andi, hlý, falleg, svolítið kærulaus. Vandamál dagsins urðu að smá- málum. Alltaf til í að gera eitthavð skemmtilegt. Við Bryndís og Harpa á Birki- melnum yfir kaffi og rúnstykkjum að ræða lífið og tilverana. Bryndís að segja frá Gilla. Aug- un eins og stjörnur, hann var svo æðislegur. Hélt að hún hefði fært aðeins í stílinn, en hann var æðis- legur. Við Bryndís í verknámi í Danmörku. í hláturskasti þegar erfiðleikarnir virtust óyfirstígan- legir. Hamingjan þegar Gilli kom í heimsókn. Að fara með þeim til Hamborgar og Kaupmannahafnar. Eins og að fylgjast með hamingjup- ari í brúðkaupsferð. Bryndís í Búlg- aríu í skólaferðalagi - að skála í kampavíni af því að hún náði síma- sambandi við Gilla. Bryndís móðir. Hún hefði ekki trúað því að það væri svona yndis- legt. Bryndís að segja frá framtíð- inni, húsinu sem þau voru að byggja, öll börnin sem hún ætlaði að eiga, allt sem hún ætlaði að gera í sveitinni með Gilla sínum. Og nú er ekkert, engin framtíð. Elsku Gilli og litlu börnin ykkar. Megi ljós minninganna lýsa ykkur í myrkri sorgarinnar. Ástvinum votta ég einlæga samúð. Kristjana Sigmundsdóttir, Svíþjóð. Ég varð felmtri sleginn þegar ég fletti Morgunblaðinu á laugar- daginn var og las minningargreinar um Bryndísi Kristjánsdóttur skóla- systur mína. Við Bryndís vorum saman í nem- endaráði Ármúlaskóla, fyrir einum þrettán eða fjórtán árum, ásamt þeim Eiríki, Rögnu og Guðjóni, og það er skrýtið hvernig lífið leiðir stundum saman alls ólíka einstakl- inga. Þetta var skemmtilegur vet- ur, fullur af ævintýrum, sem sum hver voru bijálaðri en önnur. Mér kemur í hug rómverska skikkju- veislan, sem við héldum um hávet- ur í félagsheimili nærri höfðuborg- inni, nú eða þegar við kynntum skólaball, með því að höggva í sundur melónur með sveðju á svo til hveiju einasta borði stofnunar- innar. En þessi vetur var ekki bara hreinasta skemmtun, heldur voru skoðanaskiptin oft snörp, það var jafnvel rifist heiftarlega á fundum nemendaráðsins og stundum fannst okkur námið taka full mikinn tíma frá félagsstarfinu. Þannig er það, þegar maður er ungur og hjartað að springa af lífsþrótti og núna, þessum árum síðar, fínnst mér við enn vera ung og nægur tími fram- undan. Þess vegna var það mikið áfall, að sjá að hún Bryndís væri dáin, horfin burt frá fjölskyldunni sinni, Gísla Rafni Jónssyni, og drengjunum sínum tveimur. Ég votta þeim samúð mína og bið Guð að styrkja þá á þessari efiðu stundu. Ég er þakklátur fyrir sam- verustundirnar með Bryndísi á skólaárunum, og brosið hennar. Þorsteinn J. Hver minning dýrmæt perla að iiðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingiþj. Sig.) í dag hefði kær vinkona okkar orðið 32 ára og langar okkur því til að minnast hennar með nokkrum orðum. Við erum afar þakklátar fyrir þau kynni sem við höfðum af henni, þó við hefðum kosið að hafa þau lengri. Bryndís og Gilli fluttu inn í sitt nýja glæsilega hús fyrir einu og hálfu ári og við það jukust kynni okkar frá því sem áður var. Alltaf var gott að koma í Arnarnes, okk- ur ætíð tekið fagnandi og af mik- illi gestrisni. Með tilkomu Bryndísar inn í þetta litla samfélag okkar jókst samgangur og samheldni unga Vogafólksins og má þar nefna matarveislur okkar, þar sem allir lögðu eitthvað af mörkum. En þó Bryndís sé ekki hér á meðal okkar lengur, þá munum við halda áfram að koma saman og með því getum við heiðrað minningu hennar því hún var aðalfrumkvöðull í því sam- bandi. Bryndís lagði mikla áherslu á að rækta frændgarðinn og efla vin- áttuna. Hún var mikil fjölskyldu- manneskja og aðdáunarvert var að sjá hversu samheldin þau hjón voru í hveiju því sem þau tóku sér fyrir hendur. Heimili þeirra bar þess merki og var það sérstaklega smekklegt og hlýlegt. Þó að Bryndís sé farin frá okkur munum við halda áfram að fara í Arnarnes og heimsækja Gilla og drengina og eiga ljúfar stundir þar eftir sem áður. Bryndísi þökkum við allar ljúfu samverustundirnar sem við áttum með henni. Stórt skarð hefur verið höggvið í vinahópinn og eigum við eftir að sakna hennar sárt. Elsku Gilli, um leið og við og íjölskyldur okkar vottum þér, Arn- ari Rafni og Fannari Rafni okkar innilegustu samúð þá veistu að þú getur alltaf leitað til okkar ef þú þarft á að halda. Hrafnhildur og Gunnhildur. Ó, Jesú bróðir besti og bamavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. (P. Jónsson.) Hún Bryndís er dáin, okkur finnst það svo ótrúlegt, svo órétt- látt. Það er svo stutt síðan við Vogakonur sátum saman í Arnar- nesi og funduðum um undirbúning fyrir hinn árlega Slægjufund. Það var létt yfir okkur og mikið spjallað og hlegið, jafnvel látið að því liggja að við myndum líka sjá um Slægju- fund að ári, það yrði okkur tilefni til að hittast oftar og eiga notaleg- ar kvöldstundir saman. Eins og alltaf var gott að koma í Arnarnes, vel á móti okkur tekið og myndarlega veitt. Bryndís tók því vel að vera kynnir á Slægju- fundi og skilaði því með miklum sóma og skörungsskap þó að senni- lega hafi sá sjúkdómur sem leiddi hana til dauða eitthvað verið farinn að þjá hana. Bryndís var ákaflega hreinskipt- in og sagði sínar skoðanir. Hún var líka ákveðin driffjöður í hópnum og var farin að tala um að við Vogakonur ættum endilega að hitt- ast að Slægjufundi loknum og gleðjast yfir því hversu vel tókst til hjá okkur. Þegar röðin kemur að okkur næst að sjá um undirbún- ing Slægjufundar munum við eflaust minnast Bryndísar með söknuði og notalegra samveru- stunda okkar Vogakvenna í Amar- nesi. Við þökkum Bryndísi yndislegar stundir. Fullvissar þess að við eig- um eftir að funda saman síðar. Við vitum að nú er Bryndis í góðum höndum hjá Obbu tengdamóður sinni sem kvaddi okkur fyrir aðeins tæpu hálfu ári síðan. Élsku Gilli og litlu drengirnir ykkar tveir. Við vottum ykkur okk- ar dýpstu samúð. Megi guð styrkja ykkur i ykkar miklu sorg. Vogakonur. HELGIEIRÍKSSON + Helgi Eiríksson fæddist í Reykjavík 28. febrúar 1954. Hann lést i Reykjavík 24. nóvember siðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 3. desember. Gilwell, liður kvöld yfir vatnið ágúst - bláskuggar lyftast lita sjóndeildarhring og ljósið það seytlar bak við Úlfljótsvatnsfjall en töfrar yfir og allt um kring. En ugla vakir glottir hrafn hamast spæta í leynum sig hreiðra gaukar en dúfan baukar og dvergar smíða í steinum. Ilmvatn, dregur fossa af íjalli leyfir jörðinni að anda angar gróður og lyng og þokan hún læðist að um lágnættisbil en ljósið kveður og fer í hring. (Sigurður Júlíus Grétarsson) Þegar við Gilwellungar 1996 fengum þær sorgarfréttir að Helgi Eiríksson hefði orðið bráðkvaddur vorum við öll harmi slegin. Ekki hefði okkur dottið í hug vikuna sem við áttum saman að Úlfljótsvatni, í ágústlok, að nú tæpum 3 mánuð- um síðar væri hann ekki lengur á meðal okkar. Það sem við munum aldrei gleyma er þegar Helgi yfirkennari kom úr daglega skokkinu sínu ásamt skólastjóranum, Sigurði Júl- íusi, sæll á svip og kláraði það með því að sýna sérstök afbrigði af Miiller og frábrugðnum teygjum. Kvöldin voru ekki síðri en dag- arnir. Á kvöldvökunum sem þá voru haldnar sungum við hátt og snjallt undir styrkri stjórn þeirra Helga og Sigurðar skólastjóra þar sem spekúlerað var út í það óendanlega um tóntegundir og slíkt á meðan við hugsuðum: „Á aldrei að byija að syngja?“ Er við minnumst þess- ara kvöldvaka lifir hæst er Helgi stjórnaði Von Spiro. Allt lék á reiði- skjálfi og barist var við að grípa hlutina sem hrundu af skápnum. Þar sem húsið hristist og við hlógum okkur máttlaus hélt Helgi „Von Spiro“ ótrauður áfram með einsöng sinn, og það var ekki fyrr en eftir sönginn að hann tók eftir öllum hlutunum þar sem þeir voru á víð og dreif um herbergið. Við munum sakna þín sárt en í hjarta okkar býr vissan um að þú sért kominn heim. Við vottum aðstandendum Helga okkar dýpstu samúð. Með skátakveðju, Gilwellungar 1996.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.