Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 27 KRISTINN Árnason. Þegar ástín er sjúkleg NORMA E. Samúelsdóttir rithöf- undur gefur út bókina „Bniises in the Colours of a Rainbow" fyrir þessi jól en áður hefur hún komið út á íslensku undir titlinum Mar- blettir í öllum regnbogans litum. Þýðandi bókarinnar er móðir Normu, Hulda V. Ritchie, og mynd á bókarkápu er eftir Klöru D. Sig- urðardóttur, dóttur Normu. Bókin er þriðja ljóðabók höfundar en einnig hefur hún gefið út þijár skáldsögur. Ljóð úr bókinni birtust fyrst í bókinni Full Strength Angels - New Writing Scotland, sem kom út fyrr á þessu ári, en Norma á ættir að rekja til Skot- lands. „Sú bók er gefin út af háskólaforlagi í Glascow en sama for- lag var fyrst til að gefa söguna Trainspotting út, sem síðar var gerð umtöluð bíómynd eftir. Ljóð mín komust inn í þessa bók því faðir minn er skoskur og ég er þarna með sem skoskur höfundur,“ sagði Norma í samtali við Morgunblaðið en hún hefur einnig átt ljóð í fleiri erlendum Norma E. Samúelsdóttir ritum með fjölþjóðleg- um ljóðum. Norma segir ljóð sín vera mikið byggð á eigin reynslu. „Ég var í sambandi við mann sem átti við vímuefna- vanda að stríða og bókin segir í raun sögu af því sambandi. íslensk útgáfa bókar- innar er þó frábrugðin ensku útgáfunni að því leyti að þar heldur konan tryggð við manninn en í þeirri ensku skiljast leiðir þeirra. Þetta er því töluvert endur- skoðuð útgáfa. Ég hef þroskast töluvert síðan ég skrifaði bókina fyrst. Bæði maðurinn og konan eru nú sigurvegarar í lokin og þau fara sínar eigin leiðir. Ég er í raun- innni að vinna mig aftur út úr þessu sambandi." Norma segist hafa skáldsögu í smíðum þar sem hún vinnur enn meira úr samband- inu og taki það þar fyrir ásamt tveimur öðrum samböndum manns og konu. „Ástin hjá þessu fólki á það sammerkt að vera sjúkleg. Konufjallið og sumarblómin smáu á sú bók að heita,“ sagði Norma. Kristinn Arnason leik- ur í Laugar- neskirkju í TILEFNI af nýútkomnum geisla- diski heldur Kristinn Árnason tón- leika í Laugarneskirkju á morgun, fimmtudaginn 12. desember. Tón- leikarnir hefjast kl. 20.30. Kristinn lauk BM-gráðu frá Man- hattan School of Music og lærði auk þess í Englandi og á Spáni. Hann hefur haldið fjölda einleikstónleika á íslandi, Ítalíu, Bandaríkjunum og í Wigmore Hall í London. Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp, leikið með Kammersveit Reykjavíkur og hefur þegið starfslaun listamanna frá íslenska ríkinu. Diskurinn sem nú kemur út er annar geisladiskur Kristins. Á hon- um er að finna verk eftir F. Sor og M. Ponce. Fyrsti diskur Krist- ins, sem kom út í fyrra, var tilnefnd- ur til íslensku tónlistarverðlaun- anna, auk þess sem Kristinn var tilnefndur til menningarverðlauna DV fyrir 1995. ------» ♦ ♦------ Nýjar plötur • ÚT er kominn hljómdiskur með Lnufeyju Sigurðardóttur fiðlu- leikara og Páli Eyjólfssyni gítar- leikara. Þau eru bæði starfandi tón- listarmenn í Reykjavík og hafa komið víða fram á Islandi og er- lendis. Á hljómdiskinum eru eingöngu verk eftir ítalska höfunda en það eru sónötur eftir Coreili, Tartini og Paganini. Grein í bæklingnum sem__fylgir hljómdiskinum er eftir dr. Önnu M. Magnúsdóttur og Reyni Axels- son hefur þýtt á ensku. Hljómdisk- urinn var tekinn upp í Áskirkju í sumar. Upptökustjóri var Haíldór Víkingsson. Skref gefur diskinn út en Japis sér um dreifingu. Verðið er 1.699 kr. ------».--------- Englar og hörpur HÖRPULEIKARARNIR Domenica Cifarelli og Marion Herrera leika tónlist í húsnæði Kvennakórs Reykjavíkur, Ægisgötu 7, í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30. Þá munu Guðrún Bergmann og Helga Jónsdóttir lesa englasögur við kertaljós. Aðgangseyrir er 400 kr. árgerð 1997 Þýsk framleiðsla KIA Sportage, árgerð 1997, er kominn frá Þýskalandi þar sem hann er framleiddur í hinum þekktu Karmann bílaverksmiðjum. KIA Sportage er jeppi sem hentar vel íslenskum aðstæðum og er hlaðinn þægindum. Hann er duglegur utan vega og mjög lipur í borgarakstri. Að auki er hann stærri en þig grunar! ♦ »~» Jólasamsöngur KVENNAKÓR Reykjavíkur, Létt- sveitin & Senjoríturnar standa fyrir jólasamsöng á Ægisgötu 7 fimmtu- dagskvöldið 12. desember kl. 20.30. Seldar verða léttar veitingar og er aðgangur ókeypis. Allir eru velkomnir. KIA Sportage kostarfrá: 2.030.000 0 HEKLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.