Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Kaupþing hf. og sparisjóðirnir kaupa Alþjóða líftryggingafélagið hf. Ahersla á tengsl langtíma- spamaðar og líftrygginga KAUPÞING hf. og sparisjóðimir hafa keypt allt hlutafé í Alþjóða líf- tryggingafélaginu hf. Iðgjöld félags- ins á síðasta ári námu 91 milljón króna og hefur félagið verið rekið með hagnaði síðustu níu ár. Sigurð- ur Einarsson, forstjóri Kaupþings, segir að rekstur verðbréfafyrirtækis eins og Kaupþings og líftryggingafé- laga sé í raun nátengdur og lögð verði áhersla á samtengingu lang- tímasparnaðar og líftrygginga. Sigurður benti á að Kaupþing ræki lífeyrissjóðinn Einingu og margvísleg tengsl væru á milli reksturs af þessu tagi. „Við sjáum fyrir okkur ýmsa nýja möguleika til hagræðingar og hagsbóta fyrir viðskiptavinina. Við getum þróað nýja þjónustuþætti og síðast en ekki síst er hægt að nýta sparisjóð- ina og nálægð þeirra við viðskipta- vini sína til þess að markaðssetja og selja þessa þjónustuþætti sem Alþjóða líftryggingafélagið hefur verið með,“ sagði Sigurður. Hann sagði að þeir væru að kaupa mjög öflugt fyrirtæki. Það væri með umtalsverð viðskipti og trausta eig- infjárstöðu. Markaðshlutdeild þess á sínu sviði væri 20% og það væri með yfír átta þúsund viðskiptavini. Alþjóðleg þróun Sigurður sagði að í nágranna- löndunum hefði sú þróun átt sér stað í auknum mæli að boðið væri upp á heildarlausnir fyrir viðskipta- vini á þessum vettvangi. Þeir teldu að þróunin yrði sú sama hér á landi. „Þó líftryggingamarkaðurinn sé tiltölulega lítill hér á landi enn sem komið er, borinn saman við markað- inn í nágrannalöndunum, þá er þetta kannski sá markaður sem mun vaxa hvað hraðast á næstu árum,“ sagði Sigurður ennfremur. I fréttatilkynningu sem gefin var út vegna kaupanna segir að með sameiginlegum rekstri gefist marg- þættir möguleikar á hagræðingu til hagsbóta fyrir viðskiptavini. „í þeim efnum munu Kaupþing hf. og spari- sjóðirnir leggja sérstaka áherslu á samhæfingu lífeyrissparnaðar og persónutrygginga og kappkosta að veita einstaklingum úrvalsþjónustu á því sviði. Vonast er til þess að styrkur Kaupþings hf. auk reynslu Alþjóða líftryggingafélagsins hf. fari saman og efli félögin í vaxandi samkeppni á íjármála- og trygg- ingamarkaðnum, en auk líftrygg- inga hefur félagið lagt sérstaka áherslu á sjúkdómatryggingar." Rekstur Alþjóða líftryggingafé- lagsins verður með óbreyttu sniði þrátt fyrir þessa breytingu á eignar- aðild. Hjá félaginu hafa starfað fimm manns auk umboðsmanna og mun Ólafur Njáll Sigurðsson áfram gegna stöðu forstjóra. Hlutabréf Póls Rafeindavara á OTM Að mestu íeigu einnar fjölskyldu HLUTABRÉF Póls Rafeindavara hf. á ísafírði verða skráð á Opna tilboðsmarkaðnum og má búast við að einhver tilboð um sölu bréfa komi fram í kjölfarið. Fyrirtækið er nú að stærstum hluta í eigu einnar fjölskyldu, þ.e. Harðar Ing- ólfssonar með 45,8% hlut, Ingólfs Eggertssonar með 16,8% og Arnar Ingólfssonar með 16,7%, en hlut- hafar eru alls 25 talsins. Póls Rafeindavörur voru stofn- aðar af 12 fyrrum starfsmönnum Póls Tækni í janúar 1991, en starf- semin var upphaflega í sérstakri deild sem sett var á stofn í Pólnum árið 1978. Fyrirtækið hefur þróað og framleitt tölvuvogir og var Póls tölvuvogin raunar fyrsta ís- lenska tölvuvogin. Helstu vörur fyrirtækisins eru skipavogir og samvalsvélar, en þar að auki framleiðir það ýmsar aðrar vélar og vogir t.d. flokkara, pall- vogir, stimpilklukkur, pósthúsvog- ir o.fl. Stærstur hluti framleiðslunnar fluttur út Stærstur hluti framleiðslunnar hefur verið fiuttur út, einkum til Noregs, Nýja-Sjálands, Danmerk- ur, Bandaríkjanna, Portúgals og Japans. Fyrirtækið réðst í útflutn- ingsátak fyrir þremur árum og Póls Rafeindavörur hf. Tíu mánaða uppgjör Milljónir króna Rekstrarreikn. Rekstrartekjur Rekstrargjöld Hagnaður án vaxta Fjármagnsgjöld Hagnaðurt. skatta Hagn. at regl. starfs Hagnaður tímabils Efnahagsreikn. Eignir: \ Veltufjármunir Fastaljármunir Eignir samtals Jl/1-31/10[ 1996 112,7 99,0 13,7 (2,4) 11,3 6,4 ' 31/10 1996 1995 122,3 120,6 1,7 iML ÍL6L m 31/12 1 1995 1 Sku/dlr oo eigiOtó: i Skammtímaskuldil 26,0 Langtímaskuldir 30,7 Eigið fé Skuldir og eigið fé Sjóðstremi Veltufé frá rekstri 8,8 1,6 30,8 88,7 22,0 75,9 Jl/1-31/10 19961995 hefur salan aukist um 29% að meðaltali á ári undanfarin fjögur ár. Rekstrartekjur fyrirtækisins fyrstu tíu mánuði ársins námu alls tæpum 113 milljónum borið saman við 122 milljónir allt sl. ár. Hagn- aður tímabilsins nam alls um 7,4 milljónum, en á sl. ári varð um 900 þúsund króna tap. Eigið fé var í lok október tæplega 31 millj- ónir króna. . VIB seldi 12% hlut í Nýherja hf. Bréf sem ekki seld- ust í almennu hluta- flárútboði 1995 VERÐBRÉFAMARKAÐUR ís- landsbanka hf. seldi í gær nánast allan sinn hlut í Nýheija hf. að nafnvirði 28,8 miiljónir króna á genginu 2,51 eða fyrir um 72,3 milljónir. Þetta er um 12% af heild- arhlutafé fyrirtækisins. Þá áttu sér stað viðskipti með nokkra smærri hluti í Nýherja og seldust samtals bréf að nafnvirði tæpar 30 milljón- ir í gær fyrir tæpar 75 milljónir. VIB eignaðist bréfin á árinu 1995 þegar Nýheiji hf. bauð út nýtt hlutafé að nafnvirði 40 millj- ónir króna á genginu 1,95. Fyrir- tækið veitti sölutryggingu í útboð- inu og þurfti að leysa til sín þau bréf sem ekki seldust á almennum markaði. Kepptu við Opin kerfi hf. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins var gengið frá kaupun- um í gær til hóps fjárfesta, en eng- inn einn var með afgerandi stóran hluta bréfanna. Meðal þessara aðila voru nokkrir af eldri hluthöfum fyr- irtækisins sem vildu koma í veg fyrir að Opin kerfi hf., keppinautur Nýhetja, eignaðist stóran hlut í fyr- irtækinu og gæti gert tilkall til stjórnarsætis. Þessi hópur sendi inn tilboð í bréfín sem reyndist mun hagstæðara en tilboð Opinna kerfa. Umtalsverð hækkun varð á gengi bréfanna í þessum viðskiptum ef miðað er við gengi bréfanna síðustu daga á Opna tilboðsmarkaðnum. Hafa bréf verið seljast á genginu 2,20-2,25. Viðskipti með hlutabréf í Hraðfrystistöð Þórshafnar 6.-10. desember1996 Nær þre- földun á gengi HLUTABRÉF í Hraðfrystistöð Þórs- hafnar hf. hafa nær þrefaldast í verði á síðustu fimm dögum eða frá því fyrirtækið var skráð á Opna til- boðsmarkaðnum á föstudaginn var. Fyrstu viðskipti með bréfín áttu sér stað á genginu 1,25 á föstudaginn, en þar var um að ræða bréf að nafn- verði 2 milljónir króna. Um hádegi í gær seldust hins vegar bréf að nafnverði 37 þúsund krónur á geng- inu 3,55. Samanlögð viðskipti með bréf í félaginu á Opna tilboðsmarkaðnum til þessa nema tæpum níu milljónum að nafnvirði og markaðsverðið er rétt rúmar 16 milljónir króna. Til viðbótar áttu sér stað þrenn við- skipti utan markaðar á mánudag, og námu þau alls að nafnvirði 754 þúsund krónum, en markaðsvirðið var tæpar 1.400 þúsund krónur. Ellefu kauptilboð í hlutabréf í félag- inu voru inni á Opna tilboðsmark- aðnum í gær og voru þau á gengi frá 1,00 og upp í 3,35 hæst. Fjögur sölutilboð voru inni á markaðnum á genginu 3,75 og upp í 4,00. Landsbréf undirbjuggu skráningu Hraðfrystistöðvar Þórshafnar á Opna tilboðsmarkarkaðinn. Loftur Ólafsson hjá Landsbréfum sagði að þessi mikla hækkun sýndi mikinn áhuga á hlutabréfum í félaginu og að framboðið hefði verið lítið. Hann sagði að viðskipti með hlutabréf í félaginu til þessa hefðu dreifst á marga aðila. Yankee-bréf ríkissjóðs skráð í kauphöllinni íLúxemborg SKULDABRÉF ríkissjóðs, sem gefín voru út árið 1994 á Banda- ríkjamarkaði, hafa verið skráð í kauphöllinni í Lúxemborg. Bréfín voru gefin út til 10 ára á hinum svonefnda Yankee-markaði fyrir útgefendur utan Bandaríkjanna í febrúar 1994 og nam fjárhæð þeirra 200 milljónum dala. Bréfín bera fasta vexti 6 ‘A% til loka láns- tímans. Að sögn Ólafs ísleifssonar, framkvæmdastjóra alþjóðasviðs Seðlabankans, voru bréfin voru skráð í Lúxemborg fyrir atbeina bandaríska verðbréfafyrirtækisins Merrill Lynch, sem stóð ásamt öðrum að útgáfunni á sínum tíma, og er skráningin gerð til að auð- velda viðskipti með bréfin. Banda- ríska Iögfræðifyrirtækið Shear- man & Sterling annaðist hina laga- legu hlið málsins. Ólafur bendir á að með skráningunni breikki hópur þeirra fjárfesta sem geti keypt bréfin. Nú bætist við fjárfestar sem setji það skilyrði að bréf séu skráð í kauphöll í Evrópu. Skrán- ingin geri bréfin söluhæfari og bæti því stöðu eigenda bréfanna. Hún sé því jafnframt til hagsbóta fyrir ríkissjóð sem útgefanda þeirra. Sparisjóður vélstjóru myndavélaveeðistl tm9 m/m m m tmmm %Jr tLr w/m m Wf Wmd m mrm m Wrm m m m 9 m m mrm m/m W mm* m 4/íí ** ** ■ m (# to&r Æ Securitas og Sparisjóður vélstjóra gerðu nýlega samning um að myndavélavœða útibú bankans. Securitas býður mjög öruggar lausnir á viðráðanlegu verði. Öryggi í viðskiptum Sparisjóðsins hefur verið aukið til muna með myndavélaeftirliti Veldu öryggi í stað áhættu - veldu Securitas 9% Siðimúla 23 ‘108 Reykjavtk Sími: 333 5000 Hallgrímur Jónsson frá SparisjóÖi vélstjóra og Sigurður Erlingsson frá Securitas handsala samninginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.