Morgunblaðið - 11.12.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 11
FRÉTTIR
Deilt um lög-
sögumörk und-
ir Vatnajökli
SVEITARSTJORNIR í Skútustaða-
hreppi og Jökuldal eru ekki á eitt
sáttar um lögsögumörk hreppanna,
sem jafnframt eru sýslumörk N-
Múlasýslu og S-Þingeyjarsýslu, milli
Vatnajökuls og ármóta Jökulsár á
Fjöllum og Svartár. Arnór Bene-
diktsson, oddviti Jökuldæla, segist
þess fullviss að viðræður hreppanna
leiði til þess að sátt finnist í málinu.
Mismunandi ýtrasta afstaða hrepp-
anna ræður því til hvors sveitarfé-
lagsins háhitasvæðið í Kverkfjöllurn
kann að teljast og mannvirki, ferða-
mannaskálar og flugbraut á svæð-
inu.
Á hinu umdeilda svæði rennur
Jökulsá á Fjöllum á sandi og eyrum
og er farvegur hennar breytilegur,
að sögn Arnórs Benediktssonar, odd-
vita Jökuldalshrepps. Hann segir að
ágreiningur um lögsögumörkin hafi
komið upp á yfirborðið í sumar en
í ágúst sendi Skútustaðahreppur
Jökuldælingum erindi með ósk um
viðræður vegna málsins.
Jökuldælir hafa að sögn Arnórs
miðað við og hafa taíið að óumdeild
hreppamörk til þessa hafi verið þau
að dregin væri lína frá Fossi í Svartá
í vörðu á Dyngjujökulsaurum. Mý-
vetningar hafa hins vegar viljað
miða við línu frá Fossi í Svartá að
austurbrún Kverkfjalla.
Á fundi sem viðræðunefndir sveit-
arfélaganna áttu vegna málsins 28.
ágúst sl. varð til málamiðlunartil-
laga, sem feiur í sér að svæðinu
yrði svo að segja skipt í tvennt milli
hreppanna en meirihluti hrepps-
nefndar Jökuldalshrepps hafnaði
þeirri tillögu og sendi fyrir um það
bil mánuði Mývetningum bréf og
greinargerð með frekari rökstuðn-
ingi í málinu. Arnór sagði í samtali
við Morgunblaðið aðspurður um
framhald málsins að það réðist af
svari Mývetninga. „En ég á von á
að þetta leysist, ég á alls ekki von
á illdeilum."
Hann áréttaði að ágreiningur
hreppanna sneri eingöngu að lög-
sögumörkunum; spurningunni um til
hvors sveitarfélagsins þetta land
skuli teljst en taki ekki til eignar-
halds á landinu.
^ Hreppa-, sýslu- og
kjördæmamörk eru
G ' dregin að mynni Svart-
ár í Jökulsá á fjöllum
Holuhraun
Únda-
hraun
DYNGJUJOKULL
BRUAR-
JÖKULL
) Krafa Jökuldals-
hreppinga yj ^
Stækkað svæbi
Krafa Skútustaða-
hreþpinga
Gjafir sem berast forseta íslands
Eignaskrá haldin frá 1. ág-
úst og reglur í undirbúningi
KORNELÍUS Sigmundsson for-
setaritari segir að teknar séu alvar-
lega athugasemdir Ríkisendur-
skoðunar um að nauðsynlegt sé að
halda skrá yfir gjafir til forseta
íslands og að settar verði reglur
um hvetjar skuli teljast eign þjóð-
arinnar og hverjar persónuleg eign
forsetans.
Að sögn Kornelíusar var gerð
skrá yfir eignir forsetaembættisins
á Bessastöðum við forsetaskiptin
1. ágúst síðastliðinn.
„Við munum taka á þessu og
þetta verður leyst á komandi vikum
og mánuðum. Að sjálfsögðu er til
eignaskrá á Bessastöðum yfir allt
sem þar er innanhúss, bæði smátt
og stórt. Við erum hins vegar að
tala um að hefja innan skamms
skráningu á öllu því sem við bætist
jafnóðum," segir hann.
Kornelíus segir ennfremur að
skoðað verði hvernig setja megi
reglur um gjafir til forseta að feng-
inni þessari ábendingu Ríkisendur-
skoðunar. Hann segir að oft sé þó
erfitt að greina á milli persónulegra
gjafa til forsetans og opinberra
gjafa sem teljast eign embættisins.
„Við getum tekið sem dæmi að
þegar forsetinn var á ferð í Bolung-
arvík og kom þar inn í hannyrða-
verslun var honum færð ullarhúfa
að gjöf. Spurningin er sú hvort hún
sé eign þjóðarinnar eða hvort ætl-
ast sé til að forsetinn beri hana
sjálfur? Að sjálfsögðu eru allar
stærri gjafir eign þjóðarinnar, eins
og til dæmis málverk sem forseti
fékk í opinberri heimsókn sinni til
Danmerkur á dögunum. Það er að
sjálfsögðu þjóðareign og hangir nú
uppi á vegg á Bessastöðum, merkt
sem slíkt. Auðvitað verður erfitt að
draga skýra línu þarna en þetta
verður allt skoðað á næstunni,"
segir hann.
Skoðunarferðir hópa
Að sögn Kornelíusar hefur nú
verið opnað fyrir heimsóknir al-
mennings til Bessastaða. Er þegar
farið að taka á móti einstökum
hópum í skoðunarferðir á staðinn,
þar sem gestir geta skoðað gjafir
sem embættinu hafa borist, húsa-
kost og innbú. Þessar heimsóknir
hafa ekki verið skipulagðar á
ákveðnum dögum heldur er orðið
við óskum um skoðunarferðir þegar
þykir henta og hafa þó nokkrir
hópar nú þegar komið í slíkar ferð-
ir, að sögn Kornelíusar.
Ferðakostnaður rúmast ekki
innan dagpeningamarka
í umfjöllun urn forsetaembættið
í endurskoðunarskýrslu sinni vekur
Ríkisendurskoðun sérstaka athygli
á að reglur fjármálaráðuneytisins
leyfi ekki greiðslu dagpeninga skv.
sérkjörum til annarra en upp eru
taldir í reglum ráðuneytisins. Korn-
elíus segir að fjármálaráðuneytið
hafi ákveðnar reglur um greiðslu
dagpeninga til forseta, ráðherra og
æðstu embættismanna þjóðarinnar.
Það sem Ríkisendurskoðun eigi við
með athugasemd sinni sé að þegar
lægra settir embættismenn eru á
ferðalagi í fylgd með forseta hafi
komið fyrir að ýmiss kostnaður,
s.s. gistikostnaður, hafi verið það
hár að hann hafi ekki rúmast innan
dagpeningamarkanna.
„Forseti gistir ef til vill ívið betur
en aðrir sem eru einir á ferð og
velja sér gististað eftir eigin höfði,
og þá hefur verið greitt til viðbótar
til þess að bæta fólki þennan mis-
mun,“ segir Kornelíus.
Störf Evu Klonowski
réttarmannfræðings
í Bosníu
BréfBildts
komið til
forsætis-
ráðherra
BRÉF sem Carl Bildt, sendifulltrúi
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu,
skrifaði tl að óska eftir að Eva
Klonowski réttarmannfræðingur
fengi leyfi frá störfum til að stjórna
uppgreftri ijöldagrafa, hefur nú
borist Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra. Þegar Eva kom heim í stutt
leyfi frá störfum í Bosníu í lok októ-
ber frétti hún að starf hennar á
Landspítalanum verið lagt niður.
Hún vakti þá athygli á að Carl Bildt
hefði í bréfi til forsætisráðherra
sérstaklega óskað eftir að hún fengi
leyfi frá störfum á íslandi til að
geta haldið áfram rannsóknum í
Bosníu. Forsætisráðuneytinu hafði
þá ekki borist bréfið.
Á leiðtogafundi Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu í Lissabon
nýlega óskaði Davíð eftir skýring-
um Bildts á erindinu. Bildt útvegaði
þá afrit af bréfinu og afhenti for-
sætisráðherra. Bréfið er dagsett 25.
október. í fréttatilkynningu frá for-
sætisráðuneytinu segir að afrit hafi
nú einnig verið sent heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra.
I bréfinu er bent á mikilvægi
þess fyrir sættir stríðandi aðila í
Bosníu að grafa upp og bera kennsl
á líkamsleifar þeirra sem horfið
hafa, og að Eva muni leiða tvo
þætti þessa starfs. Af þessum sök-
um óskar Bildt eftir að „ríkisstjórn-
in láni dr. Klonowski til embættis
míns til þessara starfa, eða veiti
henni átta mánaða leyfi frá störfum
við Háskóla íslands til þess að hún
geti stjórnað þessum verkefnum."
Éfc
HúiVvaUli
/0) SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 *Sími 568 9066
- Þar fœröu gjöfina -
SPENNA,
DULÚÐ
OG MÖGNUÐ
ÚR ÁLÖGUM eftir Stephen King
Stephen
- einn magnaðasti
spennubókahöfundur
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA