Morgunblaðið - 11.12.1996, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hækkun á verði áburðar
22 þúsund króna
kostnaðarauki
fyrir meðalbúið
BILL Clinton Bandaríkjaforseti heilsar upp á Gísla Theódórs-
son, matreiðslumeistara. Clinton þáði heiðursfélaganafnbót í
Club des Chefs des Chefs en meðal annarra heiðursfélaga í
klúbbi matreiðslumeistaranna, sem var stofnaður 1977, má
nefna má nefna Ronald Reagan, fv. Bandaríkjaforseta, og
Jean Chretien, forsætisráðherra Kanada.
Þjóðhöfðingi
hittir kokkana
BOÐUÐ hækkun áburðarverðs hjá
Aburðarverksmiðjunni hf. um 7,25%
þýðir kostnaðarauka upp á um 22
þúsund krónur fyrir meðalbúið, sem
ver 310 þúsund krónum til kaupa á
tilbúnum áburði á vori hverju, að
sögn Sigurgeirs Þorgeirssonar, fram-
kvæmdastjóra Bændasamtaka Is-
lands.
„Þetta er umtalsverð hækkun og
auðvitað ekkert fagnaðarefni fyrir
bændur," segir Sigurgeir. Hann seg-
ir að jafnvel þó að innflutningur á
áburði hafi verið gefinn frjáls um
áramótin 1994-95 hafí sáralítið verið
flutt inn af áburði. „Það þýðir vænt-
anlega að verksmiðjan hafi verið að
bjóða áburð á nokkum veginn sam-
keppnishæfu verði undanfarin tvö
ár, en nú virðist hún líka vera farin
að tapa.“
Hvað varðar fréttir af fyrirhug-
aðri sölu Áburðarverksmiðjunnar
segir Sigurgeir að jafnvel þó að verk-
smiðjan verði seld liggi það ekki
endanlega fyrir að hún hætti að
framleiða áburð. En ef svo færi að
áburðarframleiðslu yrði hætt í land-
inu og farið yrði að flytja inn allan
áburð er það einkum tvennt sem
Sigurgeir telur áhyggjuefni fyrir
bændur.
„Þetta er mjög lítill markaður, sem
þýðir að það er ólíklegt að erlendir
áburðarframleiðendur verði tilbúnir
að framleiða jafnmargar sérhæfðar
áburðartegundir fyrir íslenskan jarð-
veg og íslensk tún og Áburðarverk-
smiðjan hefur gert. Þannig má leiða
að því iíkum að menn fái ekki fylli-
lega áburð við sitt hæfi. Hitt er svo
það að köfnunarefnisáburðurinn sem
framleiddur er hér, sem er köfnunar-
efni framleitt beint úr loftinu með
vatnsorku, er eins hreinn og ómeng-
aður áburður og hægt er að hugsa
sér og auðvitað skiptir það miklu
máli fyrir ímynd landbúnaðarins. Nú
er ég ekki að fullyrða að slíkur áburð-
ur sé ekki til annars staðar en það
er a.m.k. áríðandi að vera mjög á
varðbergi gagnvart því hverskonar
áburður er fluttur inn.“
Sigurgeir telur hætt við því að
samkeppnin verði fyrst og fremst í
verðlagi á kostnað gæða og segir
nauðsynlegt fyrir bændur að vera
vakandi yfír því að láta ekki flytja
inn hvað sem er. Hann segir að auð-
vitað væri það bændum mjög að
skapi ef verksmiðjan gæti starfað
áfram en hinsvegar væru þeir ekki
tilbúnir að borga mikinn fómarkostn-
að í formi dýrari áburðar.
MATREIÐSLUMEISTARAR
þjóðhöfðingja hvaðanæva úr
heiminum hittast og bera sam-
an kokkabækur sínar í félags-
skap sem kallast C.C.C., eða
Club des Chefs des Chefs.
Að þessu sinni var árlegur
fundur Club des Chefs des
Chefs haldinn í Washington og
San Francisco í Bandaríkjunum
og þar hittust 27 snillingar í
matreiðslu, þar á meðal yfir-
kokkar Bretlandsdrottningar,
yfirkokkur Bandaríkjaforseta,
yfirkokkurinn í höll fólksins í
Beijing, yfirkokkur Finnlands-
forseta, matreiðslumeistari for-
seta Fílabeinsstrandarinnar og
Gísli Theódórsson, matreiðslu-
meistari forseta íslands undan-
farin 12 ár.
Heiðursfélagi
Fundurinn hófst í Washing-
ton, þar sem kokkarnir eyddu
heilum degi í Hvíta húsinu og
skoðuðu leyndardóma þess og
hittu síðan húsráðandann, Bill
Clinton Bandaríkjaforseta sem,
auk þess að þiggja heiðursfé-
Iaganafnbót í C.C.C. og útsaum-
aðan kokkajakka sem vegsemd-
inni fylgdi, ávarpaði allan hóp-
inn og heilsaði síðan mat-
reiðslumeisturunum hverjum
og einum.
Gísli Theódórsson, sagði að
þeir Clinton hefðu skipst á kurt-
eislegum ávarpsorðum: „Nice
to meet you,“ en að öðru leyti
hefði þeim lítið farið á milli.
Gísli hefur verið í þessum fé-
lagsskap í fjögur ár, og tók við
sæti íslands þar af Hilmari
Jónssyni matreiðslumeistara.
Hann sagði að í hitteðfyrra
hefðu matreiðslumeistararnir í
C.C.C. hist í Tælandi, á síðasta
ári í Kanada og næsta ár væri
áformað að þeir kollegarnir
hittist og ræði málin um borð
í skemmtiferðaskipinu Queen
Elizabeth.
Uppsagnir vegna hráefnisskorts
Samningsbrot
atvinnurekenda
AÐALSTEINN Baldursson, for-
maður fískvinnsludeildar Verka-
mannasambandsins, lýsir undrun
sinni og óánægju með uppsagnir
fiskverkafólks fyrir jól og áramót
vegna hráefnaskorts. „I febrúar
1995 voru gerðar miklar breytingar
á kauptryggingarsamingi verka-
fólks til að eyða þeim tilefnum til
uppsagna vegna hráefnisskorts sem
tíðkaðar höfðu verið í fiskiðnaði.
Þeir lofuðu okkur í kjölfar þess
munnlega að ekki þyrfti að koma
til slíkra uppsagna. Atvinnurekend-
ur hafa brotið þennan samning,“
segir Aðalsteinn.
„Síðastliðið sumar upplifðum við
að fyrirtæki voru að senda fólk
heim í launalaus frí vegna hráefn-
isskorts. í þessum hópi voru jafnvel
þau fyrirtæki sem eiga hvað mestan
kvóta og flest skip á landinu. Það
er ekkert samhengi milli kvóta og
þess hvort tekst að halda vinnslu
allt árið. Það eru til fyrirtæki með
lítinn kvóta sem tekst að skipu-
leggja sig þannig að aldrei verði
hráefnisskortur. Ónnur, sem hafa
aðgang að miklum kvóta, eru jafn-
vel orðin hráefnislaus um mitt sum-
ar,“ segir Aðalsteinn.
„Með uppsögnum fyrir jól og
áramót verða menn fyrir mikilli
tekjuskerðingu og oft á tíðum er
ekkert auglýst hvenær vinna hefst
aftur. Þetta er ömurlegasta jólagjöf
sem fyrirtæki geta gefið starfsfólki
sínu. Auk þess er það að okkar áliti
skýrt lögbrot ef fyrirtæki sem eiga
eftir kvóta loka vegna hráefnis-
skorts."
Ekki rétt að tala um uppsagnir
Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, telur
ekki rétt að tala um uppsagnir í
þessu sambandi. Hann segir að
samkvæmt síðustu kjarasamning-
um sé ekki lengur heimilt að segja
kauptryggingunni upp sérstaklega,
en að áfram sé inni ákvæði frá eldri
samningi þess efnis að fyrirtækjum
sé heimiit að tilkynna vinnslustöðv-
un með eins mánaðar fyrirvara.
Þá sé um tvennt að ræða, annars
vegar að starfsfólk sé áfram á
launaskrá í fyrirtækinu og hins
vegar að það fari á atvinnuleysis-
skrá meðan á vinnustöðvuninni
stendur. Arnar segir fyrmefnda
möguleikann mun meira notaðan
nú, eftir síðustu kjarasamninga.
Hann segir vissulega rétt að eitt-
hvað sé um vinnslustöðvanir víðs-
vegar um land en þó sé heldur
minna um slíkt nú heldur en oft
áður.
„Sumstaðar hefur sú hefð skap-
ast að starfsfólk fer i nokkurs kon-
ar jólafrí, í kringum 18. desember
og er vel fram yfir áramót. í ein-
staka tilfellum er þetta fram í miðj-
an og allt til loka janúar en það
eru undantekningartilvik.
Víða er þetta þannig að tveggja
vikna tímabil í kringum jól og ára-
mót er lítið unnið enda skip ekki
mikið á sjó. Þannig hefur þetta
verið víða um land til margra ára.
Svo er alltaf eitthvað um það að
fyrirtæki tilkynni vinnslustöðvun
með mánaðar fyrirvara og hún get-
ur staðið allt frá hálfum mánuði
upp í mánuð og jafnvel sex vikur,
en það er frekar sjaldgæft," segir
Arnar.
Hann kveðst búast við því að flest
fiskvinnslufyrirtækin verði komin í
gang aftur um miðjan janúar og
að sum þeirra stoppi ekki nema
rétt yfir jól og áramót. Hjá þeim
sem aðeins stöðvi vinnslu í stuttan
tíma verði starfsfólk áfram á lauría-
skrá en þar sem vinnustöðvunin sé
langvarandi fari starfsfólkið á at-
vinnuleysisbætur á meðan.
Lítið tekjutap
Arnar segir tekjutap fiskvinnslu-
fólks ekki mikið þó að það fari á
atvinnuleysisbætur um stundarsak-
ir, þar sem það sé oftast aðeins á
tímavinnutöxtum og bónuslaust á
þessum árstíma hvort eð er vegna
lítils hráefnis. Hann segir það al-
þekkt í kringum jól og áramót að
sjósókn sé lítil og hráefni af skorn-
um skammti.
Hvað varðar þá gagnrýni Aðal-
steins Baldurssonar að ekki sé sam-
hengi milli kvóta og þess hvort tak-
ist að halda vinnslu allt árið segir
Arnar alþekkt að fyrirtækin hafí
kvóta í einhveijum tegundum en
öðrum ekki og að sumar fisktegund-
ir sé erfitt að ná í á ákveðnum tím-
um.
• /
Jólatilboðsven
4.900 kr.
Landmælingar og,
kortagerð Dana á íslandi
Upphaf Landmælinga íslands
Vönduð bók sem fjallar um sögu eins mesta
stórvirkis Dana á stjórnarárum
þeirra hérlendis. ^ .
7Álstf-í1hn&ctr'u>*Á
ólatilboðsverð
2.400 kr. .
Upphleypt íslandskort
Falleg og áþreifanleg gjöf fyrir alla aldurshópa,
ívandaðri gjafaöskju.
_ Fróðlegar
og nytsamar gjafir
Jólatilboðsverð
2.900 kr.
Norðurlandakort
Geisladiskurmeð kortum í mælikvarða 1:2.000.000
af Norðurlöndum og Grænlandi. Auðvelt er
að mæla fjarlægðir og finna örnefni.
r
Islandskort
Yfirlitskort, jarðfræðikort og gróðurmynd.
Þrír disklingar í pakka, fyrír
PC og Macintosh tölvur.
LAINIDMÆLINGAR
ÍSLANDS
Söludeild, Laugavegi 178, Reykjavík. Opið virka daga kl. 9-17 og laugardaga í desember kl. 10-16. Sími 533 4000.
^ Jólatilboðsverð
m 5.400 kr.
Kortasafn í möppu
Níu hlutakort af öllu landinu
Kærkomin gjöf fyrirferðamanninn.
Önnur kortasöfn einnig fáanleg í möppum.