Morgunblaðið - 11.12.1996, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 11.12.1996, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ fluglemr Morgunblaðið/Jón Svavarsson FLOKKUR16-18 ára dansara í suður-ameriskum dönsum. PANS íþróttahúsiö viö Strandgötu „ICELAND OPEN“ Dansíþróttasamband Islands stóð fyrir fyrstu „Iceland Open“ keppninni síðastliðinn sunnudag. Keppendur voru um 150 frá fjór- um löndum. Keppnin gekk vel fyrir sig og var gengi íslenzku paranna nvjög gott. FYRSTA „Iceland 0pen“ keppnin fór fram nú á sunnudaginn að undir- lagi Dansíþróttasambands íslands. Þetta er keppni sem áætlað er að haldin verði árlega, fyrstu helgina í desember. Þessi fyrsta keppni gekk vel fyrir sig og rann ljúflega áfram. Keppendur og gestir voru í hátíðar- skapi eftir laugardaginn og skemmtu sér hið bezta. Reyndar fannst mér alltof fáir gestir í húsinu, því keppn- in var góð og skemmtileg á að horfa. Eins finnst mér alltof mikið um það að pör skrái sig til leiks og mæti svo ekki á keppnina. Þetta getur valdið skipuleggjendum mótsins miklum vandræðum, það er sjálfsögð kurteisi að láta vita ef maður af einhveijum orsökum getur ekki mætt til keppni. Sigurvegarar í flokki 11 ára og yngri urðu Davíð Gill og Halldóra Sif. Þau dönsuðu mjög vel á sunnu- deginum og sigruðu í báðum grein- unum og áttu sigurinn svo sannar- lega skilinn, þau stóðu að mínu mati þónokkuð framar en keppinautar þeirra í báðum greinum. í öðru sæti í báðum greinum urðu Toni og Laura frá Finnlandi. Þetta er mjög kraftm- ikið og skemmtilegt par. Þau eru líf- leg og draga til sín athygli áhorfenda. Eins var með flokk 12-15 ára, Benedikt og Berglind voru afburðap- ar, sérstaklega í suður-amerísku dönsunum. Þau dansa af mikilli inn- lifun og fágun og samstillingin með því bezta sem maður sér. Þau sigr- uðu bæði I suður-amerísku og stand- arddönsunum. í öðru sæti í suður- amerísku dönsunum var par frá Sví- þjóð, David og Linda, kraftmikið og nokkuð skemmtilegt par. Það kom mér á óvart að þau komust ekki í úrslit í standarddönsunum. ísak og Halldóra héldu uppteknum hætti og dönsuðu mjög vel og unnu bronsið í þeim suður-amerísku. Finnar fóru með sigur af hólmi í standarddönsum í flokki 16-18 ára, en Sigursteinn og Elísabet gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í suður-amerísku dönsunum. Þau dönsuðu betur á sunnudeginum, heldur en á Norð- urlandamótinu, reyndar voru þau svolítið stíf fyrst, en úr því rættist fljótt. Þau héldu öllum „pósum“ miklu betur og var heildarsvipurinn mjög góður, enda eru þarna á ferðinni frá- bærir, þrautþjálfaðir dansarar. Silfur- verðlaunin hrepptu Baldur og Karen. Þau voru nokkuð óskrifað blað fyrir keppnina, en sýndu það og sönnuðu að þau eru komin til að keppa um efstu sætin. Karen er ákaflega sterk- ur dansari og eiga þau Baldur eftir að gera það gott í framtíðinni. Gott gengi ís- lenzkra danspara VÍÐIR og Magda sigruðu í flokki 19 ára og BALDUR og Karen dönsuðu af miklum krafti eldri í suður- amerískum dönsum. og uppskáru 2. sætið í 16-18 ára í suður- amer- ískum dansi. DAVÍÐ Gill og Halldóra eru mjög efnilegt par. SNORRI og Dóris dönsuðu vel Þau sigruðu í flokki 11 ára og yngri, í báðum á sunnudag. greinum. Hörð keppni var um efstu sætin í suður-amerísku dönsunum í flokki 19-34 ára. Að lokum stóðu þó Víðir og Magda uppi sem sigurvegarar. Þau eru nýbyijuð að dansa fyrir ís- lands hönd og er fengur að þeim. Magda er einstaklega heillandi dans- ari, sem vinnur ákaflega vel úr því sem hún gerir. Það sama má segja um Árna og Erlu. Þau dönsuðu, að mínu mati, mun betur á sunnudegin- um, heldur en daginn áður, en það vantaði neistann í þau. í flokki 35 ára og eldri sigruðu Jón Stefnir og Berglind í suður- amerísku dönsunum, að mínu mati mjög örugglega, en Finnarnir Jouko og Helja Leppala fóru með sigur af hólmi í standarddönsunum. Eins og áður sagði gekk keppnin vel fyrir sig og var skipulagningin hin ágætasta. Heldur þótti mér þó verðlaunaafhendingin taka langan tíma. Skipuleggjendur þessara móta mega vera ánægðir með helgina, svo og allt dansáhugafólk á íslandi. Er það von mín og trú að keppni sem þessi verði mikil lyftistöng fyrir dansíþróttina á íslandi. Úrslit Flokkur 11 ára og yngri, suður-amerískir dansar Davíð G. Jónsson/Halldóra Sif Halldórsdóttir ísl. Toni Rasimus/Laura Haapaniemi Finnl. Anton Kurttila/Annika Junnonaho Finnl. Sigurður Á. Gunnarsson/Guðbjörg Þrastardóttirísl. Jónatan A. Örlygsson/Bryndís M. Björnsdóttir Isl. Hrafn Hjartarson/Helga Bjömsdóttir ísl. Gunnar Már Jónsson/Sunna Magnúsdóttir ísl. Flokkur 11 ára og yngri, Standard Davíð Gill Jónsson/Halldóra Sif Halldórsdóttir fsl. ToniRasimus/LauraHaapaniemi Finnl. Anton Kurttila/Annika Junnonaho Finnl. SigurðurÁ.Gunnars./GuðbjörgÞrastard. _ Isl. Hrafn Hjartarson/Helga Bjömsdóttir ísland Gunnar Már Jónsson/Sunna Magnúsdóttir lsland Flokkur 12-15 ára, Suður-amerískir dansar Benedikt Einarsson/Berglind Ingvarsdóttir ísl. David Marcusson/Linda Johansson Svíþjóð ísak N. Halldórsson/Halldóra Ó. Reynisdóttir Isl. Markku Hyvarinen/Disa Kortelainen Finnl. Snorri Engilbertsson/Dóris Ó. Guðjónsdóttir ísl. Kai Are Eidheim/Inger Lise Husebö Noregur Flokkur 12-15 ára, Standard Benedikt Einarsson/Berglind Ingvarsdóttir Isl. Markku Hyvarinen/Disa Kortelainen Finnl. Kai Are Eidheim/Inger Lise Husebö Noregur Jani Torkko/Emili Kallio Finnl. ísak N. Halldórsson/Halldóra Ósk Reynisdóttir ísl. Gunnar H. Gunnars./Ragnheiður Eiriksd. ísl. Flokkur 16-18 ára, Suður-amerískir dansar Sigursteinn Stefánss./Elísabet S. Haraldsd. ísl. Baldur Gunnbjömsþ/Karen B. Björgvinsd. ísl. Aleksi Seppanen/Elina Keskitalo Finnl. Petri Torkko/Caroline Laitala Finnl. Martin Synnerö/Jessica Samuelsson Svíþjóð Þorvaldur S. Gunnarss./Jóhanna E. Jónsdóttir ísl. Flokkur 16-18 ára, standarddansar Aleksi Seppanen/Elina Keskitalo Finnl. Petri Torkko/Caroline Laitala Finnl. Þorvaldur S. Gunnarss./Jóhanna E. Jónsdóttir ísl. Hinrik Bjamason/R. Þórunn Óskarsdóttir ísl. Flokkur 19-34 ára, suður-amerískir dansar Víðir Stefánsson/Magda Pozarska ísl. Árni Þ. Eyþórsson/Erla Sóley Eyþórsdóttir ísl. JanToreJacobsen/LenaGranaas Noregur GeirGundersen/IngunnSörlie Noregur Hans T. Björnsson/Kolbrún Yr Jónsdóttir Isl. Mikko Kaasalainen/Katriina Puro Finnl. Flokkur 19-34 ára, Standard Jan Erik Hansen/Marianne Næss Larsen Noregur Bjöm Törnblom/Katarina Tömblom Svíþjóð Michael Burton/Camilla Laitala Finnl. Sami Yli-Piipari/Karita Lehto Finnl. Geir Gundersen/Ingunn Sörlie Noregur Mikko Kaasalainen/Katrina Puro Finnl. Flokkur 35 ára og eldri, suður-amerískir dansar Jón S. Hilmarsson/Berglind Freymóðsdóttir ísl. Bjöm Sveinsson/Bergþóra M. Bergþórsdóttir jsl. Ólafur Ólafsson/Hlíf Þórarinsdóttir ísl. Flokkur 35 ára og eldri, standard Jouko Leppala/Helja Leppala Finnl. Juha Kanto/Leena Kanto Finnl. Jón S. Hilmarsson/Berglind Freymóðsdóttir ísl. Bjöm Sveinsson/Bergþóra M. Bergþórsdóttir jsl. Ólafur Ólafsson/Hlíf Þórarinsdóttir ísl. Jóhann Gunnar Arnarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.