Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 3
sbhi tslðfl f>í uml
BDKll)
„Það eru ekki allir
viðhlæjendur vinir. Það fær
Tómas Tómasson að reyna.
Draumur rætist, þótt ekki sé
það hans draumur, og hann
veldur honum engan veginn -
lengi vel. Bráðskemmtileg saga
og vel skrifuð, um mann sem
þarf að takast á við tvo
heima; innri og ytri, heima og
erlendis, hjónaband og frelsi."
- Súsanna Svavarsdóttir,
bókmenntafræðingur
„Söguþráðurinn i Lávarði
heims er áhugaverður - þetta
er samfélagsádeila sett fram á
irónískan hátt - bókin hélt mér
við efnið allt til enda. Ég fékk
þó varla frið til að Ijúka
lestrinum fyrir öðrum í
fjölskyldunni sem vildu ólmir
byrja sjálfir á bókinni! Bók
sem óhætt er að mæla með.“
- jón Reykdal, listmálari
„Lífleg og skemmtileg frásögn
af alvörumálum. Bók sem ég
mæli hiklaust með.“
- Hrafn Jökulsson, ritstjóri
Alþýðublaðsins
„Lávarður heims ber okkur
mikilvægan boðskaþ.
Raunsæjar lýsingar og
skemmtilegur söguþráður
halda lesandanum fóngnum,-
- Vanda Sigurgeirsdóttir,
landsliðsþjálfari í knattspyrnu
„Lávarður heims er lifleg og
snörþ skáldsaga;
skemmtilegasta bók Olafs
Jóhanns."
- Einar Falur Ingólfsson,
bókmenntafræðingur og
myndstjóri Morgunblaðsins
„Ég hef alltaf verið hrifinn af
bókum Olafs Jóhanns.
Lávarður heims brást ekki
væntingum mínum."
- Guðmundur Björnsson,
aðstoðarpóst- og símamálastjóri
„Ánægjuleg lesning sem kom
mér skemmtilega
á óvart."
- Sigurborg Sigurðardóttir,
yfirlyfjafræðingur
„Ég skemmti mér mjög vel
við lesturinn á Lávarði heims
en um leið hefur bókin
mikilvægan boðskaþ fram
að færa."
- Kolbeinn Kristinsson,
framkvæmdastjóri Myllunnar
„Það vantar allan skáldskaþ I
þetta verk. Það er ekki vottur
af frumleika eða frjórri eða
skaþandi hugsun þarna."
- Kolbrún Bergþórsdóttir,
bókmenntagagnrýnandi
Dagsljóss
„Lávarður heims er ákaflega vel
skrifuð bók sem leitar á hugann
með áleitnum spurningum
löngu eftir að lestrinum er lokið.
Ólafur Jóhann er rithöfundur
sem vex með hverri bók."
- Hallgrímur Óskarsson
verkfræðingur
„Góð bók sem er skemmtilega
skrifuð. Persónurnar eru
minnisstæðar og mæli ég með
henni fyrir alla aldurshópa."
- Guðiaug Þorsteinsdóttir,
læknir og skákkona
„Lávarður heims sver sig i
ætt við það sem Ólafur
Jóhann hefur skrifað áður.
Persónurnar eru
eftirminnilegar og stíllinn
beinskeyttur.
- Vilhjálmur Vilhjálmsson,
formaður Stúdentaráðs
Háskóla íslands
hW
VAKA- HELGAFELL
SÍÐUMÚLA 6, 108 REYK|AVÍK