Morgunblaðið - 12.12.1996, Side 15

Morgunblaðið - 12.12.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 15 LANDIÐ NEYTENDUR Morgunblaðið/Hjalti Sigurbjömsson LIONSMENN og stjórn Félags velunnara Sjúkrahúss Reykjavíkur. Aðventuhátíð á vistheimilinu í Arnarholti Margar nytsamar gjafir bárust Kiðafelli, Kjós - AÐVENTUHÁTÍÐ var haldin í Arnarholti laugardaginn 7. desember sl. Þar voru mættir fé- lagar úr Lionsklúbbnum Víðarri og höfðu með sér söngtexta handa vist- mönnum og starfsfólki. Eftir að forstöðumaðurinn, Ferd- inand Ferdinandsson, hafði boðið fólk velkomið hófst söngur, síðan talaði sjúkrahúspresturinn, Gunnar Hallgrímsson, yfir söfnuðinum í til- efni aðventunnar. Þá tók til máls formaður Lionsklúbbsins Víðarrs, Níels Ámi Lund, og sagði frá starfi klúbbsins undanfarin ár og uppbygg- ingu og innréttingu á húsnæði fyrir endurhæfingardeild Amarholts, en þeir höfðu áður gefíð tæki til endur- hæfíngar á staðnum. Síðan fór fram afhending á sjúkra- lyftara, en með honum er hægt að lyfta fólki úr hjólastólum og flytja á milli staða eða stóla og léttir störf hjúkrunarfólks. Ásgeir Karlsson yfír- læknir þakkaði fyrir gjöfina. Þá voru mætt stjórn Vinafélags Sjúkrahúss Reykjavíkur, þau Egill Skúli Ingi- bergsson, Ottó Mikkelsen og Jóna Vilborg Guðmundsdóttir deildarstjóri og afhentu ýmis tæki svo sem nýj- ustu gerð af hitamælum, tæki til blóðsýnatöku vegna sykursýki og ýmislegt fleira. Á móti öllum þessum gjöfum tóku yfírlænir Arnarholts, Ásgeir Karls- FERDINAND Ferdinandsson, framkvæmdastjóri Arnarholts í lyftunni. Niels Árni Lund, formaður Lionsklúbbins Víð- arrs, (t.v.) og Ásgeir Karlsson yfirlæknir fyrir aftan. son, og Steinunn Agnarsdóttir, deild- arstjóri Arnarholts. Þarna voru einn- ig mætt Magnús Skúlason, aðstoðar- framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur, og Guðný Anna Arn- þórsdóttir, hjúkrunarframkvæmda- stjóri geðdeildar sjúkrahússins. Að lokum þáðu gestir góðgerðir ásamt vistmönnum. Morgunblaðið/Egill Egilsson HURÐASKELLIR og Skyrgámur komu við á Flateyri við mik- inn fögnuð yngri kynslóðarinnar. Kveikt á jóla- trénu á Flateyri Flateyri - Ljósin voru tendruð á jólatrénu á Flateyri við mikinn fögn- uð bæði yngri kynslóðarinnar og ;þeirrar eldri. Fögnuðurinn varð enn meiri þegar Tveir galsafengnir jólasveinar, Hurðaskellir og Glámur, birtust. Þeir ■ kumpánar drifu alla háa sem lága i hringdans og söng í kringum jólatréð í og sungu þeir manna hæst öll gömlu góðu jólalögin. Síðan heilsuðu þeir ; upp á yngri kynslóðina og útdeildu sælgæti úr pokum sínum. Að því loknu kvöddu þeir með því að sníkja sér far til ísafjarðar, en þar biðu þeirra hefðbundin skylduverk jóla- sveina. Foreldrar og börn héldu síðan að mötuneyti Kambs en þar var haldinn jólabasar á vegum Kiwanis, Lions, Kvenfélags Mosvallahrepps og kvennadeildar Björgunarsveitarinnar Sæljóss. Þar gat að líta marga eigu- lega muni, tilvalda í jólagjafir. Eng-ar reglur til um vatns- magnið í jólasteikinni KAUPMENN hafa boðið jólasteik- ina á allt að 50% afslætti að undan- fömu og gæðin eru misjöfn. Engir staðlar eru til um hvert innihald unninnar kjötvöru á að vera og því hefur framleiðendum verið í sjálfs- vald sett hvað í vöruna fer fyrir utan magurt kjöt, þ.e. magn vatns, bindiefna og fitu. Hjá Hollustuvernd ríkisins er nú í smíðum reglugerð um skýrar nafngiftir á kjötvörum. Engir opinberir staðlar „Það hafa engir opinberir staðlar verið til um kjötvörur fram til þessa, sem þýðir að framleiðendur hafa haft sjálfdæmi í nafngiftum á unn- um kjötvörum," segir Ásmundur Þorkelsson matvælafræðingur hjá Hollustuvernd ríkisins. Ásmundur segir hinsvegar að hjá Hollustuvernd hafi undanfarna mánuði verið unnið að sérstakri reglugerð um skýrar nafngiftir á kjötvörum. „Reglugerðin sem verð- ur gefin út á næstu mánuðum tek- ur á þessum málum, finnur heiti yfir kjötvörur og setur reglur um samsetningu þeirra. Oft er vatn 10-15% af þyngd kjötsins „Pækilsprautun er í sjálfu sér eðlileg aðferð við framleiðslu á kjöt- vörum. Það sem vantar hérlendis eru reglur um hvað er eðlilegt magn vatns í kjötvörum", segir Guðjón Þorkelsson matvælafræðingur hjá Rannsóknarstofnun Iandbúnaðar- ins. „Svokölluð pækilsprautusöltun er notuð við að fá jafnari söltun og vinna á móti vatni sem tapast vegna þurrkunar í reykingu svo og fá safaríkara kjöt fyrir bragðið. Þá er verið að tala um að setja pækil í kjötið sem nemur 10-15% af þyngd þess.“ Guðjón segir að hinsvegar sé hægt að ganga lengra og nota ýmis efni og aðra tækni til að binda ennþá meira vatn í kjötið. „Ódýrar kjötvörur innihalda oft meira vatns- magn en 10-15%. - En rýrnar kjötið þá ekki við suðu og sparnaðurinn þar með úr sögunni? „Oft er útkoman óskemmtileg fyrir neytandann og til að kjötið rýrni ekki við suðu þarf það sér- staka meðhöndlun, sjóða þarf það í lengri tima við vægan hita. Það er algengt að leiðbeiningar fylgi um hvernig eigi að sjóða kjötið.“ Lítið geymsluþol „Kjöt með háu vatnsinnihaldi hefur lítið geymsluþol miðað við kjöt sem er verkað á annan hátt. Ef jólasteikin er keypt með löngum fyrirvara geta neytendur því endað með skemmda vöru um jólin." Guð- jón segir alvarlegast að kjötvörur séu ekki merktar það ítarlega að neytendur geti áttað sig á vatns- innihaldi vörunnar. „Starfsmenn Rannsóknarstofn- unar landbúnaðarins unnu fyrir fímm árum tillögur fyrir Hollustu- vernd um merkingar á kjötvörum en enn er engin niðurstaða komin í því hversu rækilega á að merkja kjöt.“ Guðjón segist hinsvegar álíta að það sé réttur neytenda að vita mjög nákvæmlega hvað hann sé að kaupa. „Kaupi neytandinn skinku getur hann verið að kaupa frá 50% kjöt og upp i 100%. í skinkunni sem er 50% kjöt geta síðan verið sojaprótein, bindiefni og vatn. Slík skinka er svosem ágætt álegg en það þarf að segja fólki frá munin- um. Tvær tegundir af skinku, önnur með 50% kjötinnihaldi og hin með 100% kjöti eru ekki sambærilegar. Áfengi er flokkað eftir styrkleika og í raun ætti það sama að gilda um kjötvöru." Hamborgarhryggirnir misjafnir að gæðum Þegar Guðjón er spurður hvort starfsmenn Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins hafi rannsakað jóla- steikina segir hann það hafa verið gert í fyrra. Þá kom t.d í ljós að gæði hamborgarhryggjanna voru misjöfn. „Þeir voru frá því að vera mjög góðir og síðan með miklu vatni ogjafnvel útrunnir á geymslu- þoli. I bestu hamborgarhryggjunum var 95-100% magurt kjöt en það kom fyrir að jólasteikin innihéldi 70% kjöt.“ Guðjón segir að engar mælingar hafi verið gerðar í ár og því viti hann Iítið um ástandið núna. „Mér hefur hinsvegar sýnst að ákveðin merki skeri sig nú úr sem gæðamerki og önnur merki séu komin fyrir ódýra markaðinn." Hrátt hangikjöt varasamt Guðjón segist gjarnan vilja benda þeim lesendum sem hyggjast borða hrátt hangikjöt á að gæta fyllstu varúðar. „Það er engin hætta á matareitrunum ef fólk kaupir sér- stakt hangikjöt sem er verkað á réttan hátt, pækilsaltað, þurrsaltað og þurrkað á eftir í langan tíma.“ Hann segir að hinsvegar haldi margir að nóg sé að taka hvaða hangikjöt sem er, frysta það og skera í sneiðar. „Þetta er mikill misskilningur og sérstaklega þegar pækilsprautað kjöt er annarsvegar. I því kjöti er mikil hætta á örveru- vexti jafnvel þó kjötið sé fyrst sett í frysti áður. Umrædd framleiðslu- aðferð gerir ráð fyrir að kjötið sé soðið fyrir neyslu.“ - Hvernig geta neytendur áttað sig á hvort þeir eru að kaupa vatns- sprautað kjöt eða ekki? „Yfirleitt er innihaldslýsing á vörunni og þar kemur fram hvað notað er i vöruna. Næst á eftir kjöt- inu á að vera vatn þ.e. ef pækil- sprautun er beitt í framleiðslunni. Vissar kröfur fylgja nafni vöru Þegar Ásmundur hjá Hollustu- vernd er spurður hvort vatnsmagn komi fram á kjötvörum í framtíð- inni segir hann svo ekki vera en vissar kröfur fylgja nafni vörunnar og þær verði að uppfylla til að nota megi viðkomandi heiti. Hann segir að heilbrigðiseftirlit hvers sveitarfé- lags muni síðan fylgja því eftir að farið sé eftir reglugerðinni, bera uppskriftir saman við innihaldslýs- ingar og grípa til efnamælinga ef grunur leikur á að ekki sé rétt að málum staðið, segir hann. Þegar Ásmundur er inntur eftir því hvernig eftirliti með kjötvörum sé núna háttað segir hann farið eftir reglugerð um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifíngu matvæla. „Þar eru gerðar ítarlegar kröfur til aðbúnaðar við kjötvinnslu eða matvælavinnslu al- mennt og hvernig eftirliti skuli hátt- að. Bónus Fisher Price leik- föng á 40-55% lægra verði í BÓNUSI í Holtagörðum fást nú Fisher Price barna- leikföng. Leikföngin eru að sögn forráðamanna hjá Bónusi á 40-55% lægra verði en hjá öðrum sem selja leikföng sömu tegundar. „Við kaupum leikföngin millil- iðalaust frá Bandaríkjunum og um er að ræða átta tegundir af leikföngum fyrir krakka frá tveggja til sex ára. Um verulegt magn er að ræða,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson hjá Bónusi. Hann segist kaupa í gegnum stóra verslunarkeðju í Bandaríkjunum og þannig ná verðinu niður. Ennfremur segist hann halda að milliliða- kostnaðurinn sé hár hér á landi og skýri verðlagið í leikfangaverslunum að hluta. Selja ýmislegt annað á hærra verði Haukur Backmann framkvæmdastjóri hjá heildversl- un I. Guðmundssonar, sem flytur inn Fisher Price leik- föng, segist engar skýringar hafa á verðlagningunni hjá Bónusi. „Álagning er fíjáls og þar sem ég hef ekki reikninga né tollskýrslur í höndunum frá Bónusi hef ég ekki hugmynd um hvort verið er að bjóða vör- una undir kostnaðarverði eða selja með mjög lágri álagningu. Þó að Bónus sé að flytja inn eina og eina vörutegund og selja á lágu verði til að draga að sér athygli þá selja þeir ýmislegt á hærra verði en aðrir. Ég er til dæmis að flytja inn hakkavélar frá Moulinex og þær hafa verið seldar ódýrari hjá raftækjaverslunum en í Bónusi."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.