Morgunblaðið - 12.12.1996, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Brauðrist
-heimilistæki
standa undir
nafni!
Mínútugrill
EURO og VISA raðgreiðslur
BRÆÐURNIR
LágmúIa 8 • Sími 533 2 800
TEFAL
-fetiframar
Reuter
PALESTÍNUMAÐUR á lóð sinni í Ras al-Amoud-hverfinu í
Austur-Jerúsalem þar sem ákveðið hefur verið að heimila bygg-
ingu 132 íbúða fyrir gyðinga.
A
Aætlun um gyðingabyggð í A-Jerúsalem
Arafat varar
Israela við
Gaza. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi Palest-
ínumanna, sagði í gær, að áætlun
ísraelsstjórnar um að byggja 132
íbúðir í Austur-Jerúsalem væri brot
á samningum hennar við Frelsis-
samtök Palestínumanna, PLO.
Arafat sagði á blaðamanna-
fundi, að samningsbrotið væri
mjög alvarlegt en ákveðið hafði
verið, að um framtíðarstöðu Aust-
ur-Jerúsalem, sem ísraelar lögðu
undir sig 1967, yrði rætt í sérstök-
um viðræðum. Þær hafa hins veg-
ar legið niðri síðan Benjamin Net-
anyahu tók við stjórnartaumunum
í ísrael í júní sl.
Skipulagsnefnd Jerúsalems-
borgar samþykkti í fyrradag að
leyfa byggingu 132 íbúða í Ras
al-Amoud-hverfínu þar sem
11.000 Palestínumenn búa. Þarf
einnig ráðherrasamþykki við
framkvæmdunum en talið er, að
það geti tekið nokkra mánuði.
Eins og „tímasprengja“
Faisal al-Husseini, helsti fulltrúi
PLO í Jerúsalem, segir áætiunina
vera „tímasprengju“, sem sprung-
ið geti með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum. Átti hann þá meðal
annars við uppþotin í september
þegar Israelar opnuðu forn jarð-
göng nálægt helgistöðum músiima
en þau kostuðu 60 Palestínumenn
og 15 ísraela lífið.
Á þeim tæplega 30 árum, sem
liðin eru síðan ísraelar tóku Aust-
ur-Jerúsalem, hafa þeir umkringt
borgina með ísraelskum íbúða-
hverfum en nú ætla þeir í fyrsta
sinn að hasla sér völl inni í hverf-
um araba. PLO vill, að Austur-
Jerúsalem verði höfuðborg hins
palestínska ríkis en ísraelar líta á
hana sem hluta af sinni „eilífu"
höfuðborg.
ar & glœrur^
Við rýraura til fyrir nýrri vöru og seljum nokkra rafeindavarpa
og glærur (sýningartæki) með verulegum afslætti næstu daga.
Tækin sem um ræðir eru m.a. eftirtalin:
Raleindavarpar Vard áður: TilboAavarð:
InfDCUB LP 550 halogen 640 x 480 kr. 650.000 kr. 300.000
Infocua LP 210 metal halide 640 x 480 kr. 570.000 kr. 450.000
3M MP 8020 metal halidB 640 x 480 kr. 980.000 kr. 550.000
Raf eindagl ■ nr
Infocus PB 550 640 x 480 video/tölvur kr. 420.000 kr. 260.000
InfocuG PB 3600 640 x 480 kr. 360.000 kr. 160.000
Infocus PB 2600 640 x 480 kr. 220.000 kr. 110.000
InfocuB PB 820V 800 x 600 video/tölvur kr. 510.000 kr. 350.000
3M PB 6450 640 x 480 vidBo/tölvur kr. 510.000 kr. 310.000
<Q>
NÝHERJI
RADÍÓSTOFAN
Skiphalt 37 -105 Reykjavík
Sími: 569 7600 - Fax: 569 7629
http://www.nyherji.is
fnfbcus'
Tækin eru öll i fyrsta flokks
ástandi og með 1 árs ábyrgð.
Nánari upplýsingar gefa Sveinn
og Kolbeinn i sima 5G9 7600 á
skrif stof utima.
Spánn
Aðhaldi
mótmælt
Madríd. Reuter.
TALSMAÐUR hægristjórnarinnar
á Spáni fullyrti í gær að aðeins um
15% opinberra starfsmanna hefðu
farið að tilmælum leiðtoga sinna
og lagt niður vinnu í einn dag til
að mótmæla áætlunum um að fella
niður vísitöluhækkun launa.
Fulltrúar stéttarfélaganna voru á
öðru máli, þeir sögðu að allt að 90%
þátttaka hefði verið í aðgerðunum
og töldu að sjúkrahús, skólar, póst-
hús, dómstólar, stöðvar ríkissjón-
varpsins og flugvellir myndu lam-
ast.
Stjórnvöld ákváðu að fella niður
hækkunina til að reyna að tryggja
að Spánn uppfylli skilyrði
Maastricht-samkomulagsins um
aðild að efnahags- og myntbanda-
lagi Evrópu, EMU, árið 1999. Tals-
maður stjómarinnar sagði í gær að
ekki yrði látið undan þrýstingi stétt-
arféiaganna. __|L