Morgunblaðið - 12.12.1996, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
DRENGJAKÓR Laugarneskirk'"
Drengjakór í
Langholtskirkju
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju
heldur jólatónleika í Langholtskirkju
þann 15. desember og heflast þeir
kl. 20. Þar koma fram auk drengja-
kórsins undirbúningsdeild og eldri
kórfélagar. Tónleikarnir bera yfir-
skriftina „Nú gjaldi Guði þökk“.
Stjórnandi er Friðik S. Kristinsson
og einsöngvari Signý Sæmundsdóttir.
Til liðs við kórinn koma ennfrem-
ur: Gunnar Gunnarsson píanó/org-
elleikari, Lovísa Fjeldsted cellóleik-
ari, Martial Nardeau þverflautuleik-
ari, Daði Kolbeinsson óbóleikari,
Ásgeir H. Steingrímsson trompet-
leikari og Eiríkur Örn Pálsson
trompetleikari. Einnig hefur kórinn
fengið til liðs við sig þá Hjálmar
Pétursson bassa og Sigurð Hauk
Gíslason tenór, en þeir eru báðir
félagar úr Karlakór Reykjavíkur.
Aðgöngumiðar á tónleikana fást
í Kirkjuhúsinu, í Laugarneskirkju
og við innganginn.
ar Styður parity og É
á
/
B ■
6Kb byfchronous Pipehne Burst Mocle#JppfæranIeg í TtX^hz Tentium Styður Direct
Ný kynslóð af DAEWOO
bætir enn við afköst og möguleika.
Frábær lausn fyrir þá sem vilja
fylgjast með þróuninni
og njóta lága verðsins
DAEWOO D5450 borbvél
• Styður ECC og EDO minni
• 256KB Synchronous Pipeline Burst Mode skyndiminni
• Uppfæranleg í 200Mhz Pentium
• Styður DirectDraw (AVI og MPEC afspilun í fullri stærð)
• Miro skjákort með 2MB EDO minni
• Intel Triton II HX 430PCI sett
Dæmi um verð (desembertilboð):
stgr. m. vsk.
Með:
• 120Mhz Pentium
• 16MB vinnsluminni
• 1,2GB diski
• 15" skjá
• 8x geisladrifi
• Hátölurum
• 16 bita hljóðkorti
Hafðu samband við sölumenn okkar eða komdu
í verslunina. Við setjum saman með þér pakka
sem hæfir óskum og verðhugmyndum þínum.
Sími 56í
E)*
RAÐGREIÐSLUR
Grensásvegur 10 , bréfasími 568 711 5
Opið á laugardögum kl. 10.00 - 16.00
http://WWW.ejs.is/tilbod • sala@ejs.is
ÞORSTEINN frá Hamri flyt-
ur ljóð í Hallormsstaðaskógi.
Tímarit
• SKÓGRÆKTARRITIÐ, Ársrit
Skógræktarfélags íslands 1996
er komið út.
Skógræktarritið fjallar sérstak-
lega um skógræktarleg efni og
kemur út einu sinni á ári. Pjölmarg-
ir höfundar skrifa styttri og lengri
greinar auk þess sem nýleg Ijóð
eftir þekkt skáld prýða ritið. Fjöld-
inn allur er af ljós- og skýringar-
myndum.
Norrænni skógarráðstefnu sem
haldin var hér á landi í sumar eru
gerð skil m.a. skrifa Jón Loftsson,
skógræktarstjóri, Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrrverandi forseti, og J.P.
Kimmins, prófessor, sem er eftir-
sóttur fyrirlesari, um skógrækt og
náttúruvernd. Guðríður Gyða
Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur,
fjallar um skógartré og sníkju-
sveppi í samnefndri grein. Sigurður
Blöndal, fyrrverandi skógræktar-
stjóri gerir grein fyrir framgangi
sitkagrenis og Ásgeir Svanbergsson
stiklar á stóru í 50 ára sögu Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur. Ólafur
Oddsson, kynningarfulltrúi segir
frá tildrögum ljóðaskóga í Hall-
ormsstaðaskógi og birt ljóð þeirra
skálda sem þar komu mest við sögu.
Sérfræðingarnir Þorbergur Hjalti
Jónsson og Úlfur Óskarsson eru
með grein um landgræðsluskóg-
rækt og bindingu koltvísýrings með
ræktun þeirra. Þorvaldur S. Þor-
valdsson, arkitekt, segir frá rækt-
unarfólki sem lætur ekki deigan
síga í ttjárækt í Hvalfirði.
Kristján Jóhannesson rennismið-
ur segir frá töfrum handverksins
og hvernig hráefninu tré er breytt
í hagleiks- og listagripi. Þá íjalla
þau Ingileif Steinunn Kristjánsdótt-
ir og Aðalsteinn Sigurgeirsson um
leiðir til að finna tré með afburða-
hæfni til vaxtar við lágt hitastig.
Ofurölvi af skógarást er heiti á
grein þar sem Órlygur Hálfdánar-
son bókaútgefandi segir frá. Bæjar-
staðaskógur í 140 ár er kafli þar
sem Guðjón Jónsson, kennari frá
Fagurhólsmýri, segir frá þessum
einstaka birkiskógi. Frostþol og
vaxtartaktur er fræðileg grein eftir
Brynjar Skúlason, skógfræðing en
í henni er sérstaklega fjallað um
lerki.
Skógræktarrítið ergefið útí
5.000 eintökum ogersent tiláskríf-
enda en auk þess erþað selt í lausa-
sölu á skrifstofu félagsins.
Jgmjöftrfcr. 1.980 ;^||
/Q)SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-Í2 • Sími 568 9066
- ÞarfœrÖu gjöfina -