Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 33
GUILLERMO Figueroa er tón-
listarmaður fram í fingurgóma.
Hann starfar jöfnum höndum sem
fiðluleikari og hljómsveitarstjóri,
svo sem hann hefur dreymt um frá
blautu barnsbeini, og flakkar
heimshoma á milli í því augnamiði
að svala listrænum þorsta sínum.
Eins og það sé hægt, getur blaða-
maður hins vegar ekki stillt sig
um að hugsa, svo mikill er áhug-
inn, lífsgleðin og þrótturinn í þess-
um glaðbeitta manni, sem verður
í forgranni á jólatónleikum Sinf-
óníuhljómsveitar íslands í Lang-
holtskirkju í kvöld kl. 20.00.
„Þegar ég stend á sviðinu fyrir
framan hljómsveitina, hvort sem
er með fiðlu eða tónsprota í hönd,
skil ég hvaða tilgangi líf mitt þjón-
ar,“ segir Figueroa, sem er borinn
og barnfæddur á Puerto Rieo en
gekk menntaveginn í New York,
þar sem hann býr í dag. Tónlistin
er honum í blóð borin og hafa fleiri
fjölskyldumeðlimir getið sér gott
orð á því sviði. Þannig stjórnaði
hann um árið flutningi á Þríleiks-
konsert Beethovens á tónleikum í
New York þar sem einleikarar voru
Yvonne Figueroa á píanó, Narcisco
Figueroa á fiðlu og Rafael Figu-
eroa á selló. Guillermo Figueroa
er nú aðalgestastjórnandi Sinfó-
níuhljómsveitar Puerto Rico, auk
þess sem hann hefur um árabil
verið konsertmeistari og stjórnandi
kammersveitarinnar ORPHEUS,
sem hlotið hefur mikið lof fyrir
leik á tónleikum og plötum.
Undrun New York-búa
Figueroa lætur vel af samstarf-
inu við Sinfóníuhljómsveit Islands,
sem hann stjórnar nú í annað sinn.
Hún sé fljót upp á lagið og bersýni-
lega skipuð fagmönnum. „Þrátt
fyrir að efnisskrá tónleikanna
samanstandi af afar ólíkum tón-
smíðum hefði hljómsveitin verið
klár í slaginn eftir tvær æfingar."
Um miðjan áttunda áratuginn
Umdeilt
verk van
Goghs selt
París. Reuter.
EKKI tókst að selja eitt síð-
asta verk hollenska málarans
Vincents van Goghs á uppboði
á þriðjudag, en búist hafði
verið við því að það yrði selt
franska ríkinu fyrir brot af
þeirri upphæð sem verkið er
metið á. Ástæðan er sú að
árið 1989 úrskurðaði franska
menningarmálaráðuneytið að
verkið „Jardin a Áuvers“
(Garður í Auvers) flokkaðist
sem þjóðargersemi og mætti
ekki selja úr landi.
Verkið málaði van Gogh í
júlí 1890, skömmu áður en
hann stytti sér aldur. Var
búist við að um 50 milljónir
franka, um 630 milljónir ísl.
króna, fengjust fyrir mynd-
ina, en það er um fjórðungur
þess sem hún er metin á.
Hæsta boð í hana var þó
aðeins um 32 milljónir
franka.
í dagblaðinu Liberation
segir að „bölvun" hvíli á
myndinni vegna deilnanna um
úrskurð menningarmálaráðu-
neytisins fyrir sjö árum, svo
og efasemda um að van Gogh
hafi málað hana. Fyrrverandi
eigandi myndarinnar fór í mál
við franska ríkið vegna banns-
ins við sölu verksins úr landi.
Hafði hann betur fyrir frönsk-
um dómstóinum og var ríkið
dæmt til að greiða honum 145
milljónir franka, um 1,8 millj-
arða ísl. króna í bætur. Hefur
þessi dómur orðið til þess að
mjög hefur dregið úr tilraun-
um ríkisins til að hindra að
listaverk séu seld úr landi.
LISTIR
Tilgangur lífsins
Morgunblaðið/Golli
GUILLERMO Figueroa verður einleikari í Árstíðunum eftir
Vivaldi: „íslendingar verða án efa ekki í vandræðum með að
skilja Veturinn en það verður þrautin þyngri að koma Sumr-
inu skammlaust til skila við þessi veðurskilyrði.“
Hljómsveitarstjórinn
og fíðluleikarinn
Guillermo Figueroa
frá Puerto Rico
verður í aðalhlutverki
ájólatónleikum
Sinfóníuhljómsveitar
íslands í Langholts-
kirkju í kvöld. Orri
Páll Ormarsson
hitti hann að máli
af því tilefni.
bjó Figueroa um skeið á íslandi
og lék þá sem lausamaður með
Sinfóníuhljómsveit íslands. Hefur
hann fylgst með hljómsveitinni all-
ar götur síðan og sá hana meðal
annars leika á tónleikum í
Carnegie Hall í New York í febr-
úar á þessu ári. „Dómarnir sem
hljómsveitin fékk fyrir þá tónleika
voru frábærir og vöktu nokkra
athygli í New York. Ég held að
fólk hafi almennt ekki gert ráð
fyrir því að Island ætti sinfóníu-
hljómsveit, hvað þá að hún væri
svona góð.“
Að áliti Figueroas er mikilvægt
fyrir sinfóníuhljómsveitir, ekki síst
þær sem eru landfræðilega ein-
angraðar, að kanna nýjar lendur,
svo sem SÍ gerði í Vesturheimi.
„Fyrir það fyrsta vaxa hljóðfæra-
leikarar yfirleitt af slíkum ferðum,
auk þess sem þær geta haft jákvæð
áhrif á ímynd landsins. Listamenn
sem láta til sín taka erlendis hljóta
að hafa jákvæð áhrif á utanríkis-
viðskipti."
Sjálfur kveðst Figueroa alltaf
hafa jafn mikið yndi af því að ferð-
ast — kynnast nýjum löndum, tón-
listarmönnum og áhorfendum. Svo
ekki sé talað um að hitta gamla
vini, svo sem Guðnýju Guðmunds-
dóttur konsertmeistara SÍ, en þau
störfuðu meðal annars saman í
kammersveitinni ISAMER þegar
Figueroa bjó hér á landi. „Það
hefur verið virkilega ánægjulegt
að vinna á ný með Guðnýju en
hún var í leyfi þegar ég stjórnaði
hljómsveitinni fyrir tveimur
árum.“
Samstarfi Guðnýjar og Figueroa
á þessum vetri lýkur reyndar ekki
í kvöld því í apríl næstkomandi
heldur sú fyrmefnda til Puerto Rico
þar sem hún mun flytja Fiðlukon-
sert Benjamins Brittens með sinfón-
íuhljómsveit landsins. Mun Figu-
eroa vitaskuld stjóma flutningnum.
„Ég hlakka mikið til þeirra tónleika
og vonandi á Guðný eftir að hljóta
jafn höfðinglegar viðtökur og ég
hef hlotið hér á landi.“
Sumar í desember
Á tónleikunum í kvöld verður
Figueroa einleikari í einu nafntog-
aðasta tónverki allra tíma, Árstíð-
unum eftir Antonio Vivaldi. „Árs-
tíðirnar eru ákaflega hátíðlegt
verk, sem virðist alltaf falla tón-
leikgestum jafn vel í geð, og það
er sérstaklega spennandi fyrir
mann eins og mig, sem alinn er
upp í hitanum á Puerto Rico, að
fá tækifæri til að flytja það á ís-
landi. íslendingar verða án efa
ekki í vandræðum með að skilja
Veturinn en það verður þrautin
þyngri að koma Sumrinu skamm-
laust til skila við þessi veðurskii-
yrði,“ segir Figueroa og gjóir aug-
unum kankbrosandi út um glugg-
ann. „Við munum þó reyna okkar
besta.“
Figueroa segir að efnisskrá
kvöldsins sé afar áhugaverð og
allir ættu að geta fundið þar eitt-
hvað við sitt hæfi. Tónleikarnir
hefjast á jólasálminum In dulce
jubilo eftir Samuel Scheidt og verð-
ur hann leikinn af málmblásara-
sveit sinfóníuhljómsveitarinnar
sem kemur mikið við sögu í kvöld.
í kjölfarið koma Árstíðirnar en því
næst verða leikin tvö verk eftir
Giovanni Gabrieli (1553-1612),
sem starfaði sem organisti við
Markúsarkirkjuna í Feneyjum,
Canzone septimi toni nr.2 og Canz-
oni nr. 28 & 27.
Jafnframt eru á efnisskrá for-
spil að öðram þætti óratoríunnar
Bernsku Krists, Flóttinn til
Egyptalands, sem Hector Berlioz
samdi 1850, og Flugeldasvíta Ge-
orgs Fr. Hándels, sem samin var
að ósk Georgs 2. Englandskonungs
en með þeim hætti fagnaði hann
lokum styijaldar Englendinga og
Austurríkismanna 1784. Tónlistin
hlaut hina bestu dóma en sama
verður ekki sagt um flugeldasýn-
inguna, sem henni fylgdi við há-
tíðahöldin, því röð af mistökum í
framkvæmd hennar skaut gestum
og gangandi skelk í bringu —
ýmist sprungu flugeldarnir of
snemma eða alls ekki og endaði
sýningin með því að eldur kviknaði
í skotpallinum.
Morgunblaðið/Atli Steinarsson
HER er eitt af fimm verkum Jóhanns Eyfells, sem unnið er úr gúmmíkvoðu. Það er 5X5 metrar að
stærð. Það var sýnt á gólfi í Orlando en verður væntanlega sýnt á vegg á Akureyri á næsta ári.
Verkin eru eingöngu fyrir
augun og hugann
Flórída. Morgunblaðið.
NÝLEGA lauk sýningu á mjög
nýstárlegum verkum Jóhanns
Eyfells í Orlando. Á sýningunni
voru fimm stór verk, þar af
voru fjórar veggmyndir og eitt
gólflistaverk.
Að sögn Jóhanns eru þetta
mjög nýstárleg verk, sem hann
hefur unnið að af og til sl. þrjú
ár. Oll eru verk Jóhanns gríðar-
stór, það stærsta var 5X5 metr-
ar. Verkin nefnast „Rubber
collations" á enskri tungu sem
mætti þýða á íslensku sem
„Gúmmí samfellur“. „Verk
þessi eru eingöngu fyrir augað
og hugann,“ sagði Jóhann í
samtali við Morgunblaðið.
„Maður hefur þessi element en
tilviljunin ræður lokagerðinni.
Stundum fer ég allt að þrjátíu
yfirferðir yfir verki, verkið
byggist á því að hella gúmmíinu
á verkið aftur og aftur,“ sagði
Jóhann.
Jóhann Eyfells hefur lengi
starfað sem kennari í listum við
háskólann í Mið-Flórída. Hann
nýtur mikillar virðingar fyrir
starf sitt. Utan vinnutíma vinnur
hann að listverkasköpun við
heimili sitt í Ovideo á Orlando-
svæðinu og hefur þar skapað
listaverk með mörgum áður
óþekktum aðferðum. Hann hef-
ur haldið fjölda sýninga í Or-
lando en á Islandi sýndi hann
síðast árið 1992.1 ráði er að
hann sýni á Akureyri næsta
sumar. Þá hefur honum verið
boðið að taka þátt í sýningu í
Litháen í vor.
Jólatón-
leikar í
Borgar-
firði
TÓNLISTARSKÓLI Borgarfjarðar
heldur röð jólatónleika, þar sem
hljóðfæranemendur leika bæði
jólalög og ýmis önnur verk, en.
tónleikar söngdeildar munu byggj-
ast að mestu leyti upp á aríum,
dúettum og kórum úr þekktum
óperum. Næstu tónleikar verða í
Borgarneskirkju fimmtudaginn 12.
desmber kl. 18 og föstudaginn 13.
desember kl. 18. Laugardaginn 14.
desember kl. 14 verða jólatónleikar
í Logalandi og sama dag verða
Söngdeildartónleikarnir í Borgar-
neskirkju kl. 18.
Skólinn var stofnaður haustið
1967. í byijun skólaárs í haust
voru nemendur um 200 og kennar-
ar 11. Skólastjóri er Theodóra
Þorsteinsdóttir.
í tilefni þess að skólinn er að
helja sitt þrítugasta starfsár mun
hann standa fyrir ýmsum uppá-
komum í vetur. í byijun nóvember
komu Guðný Guðmundsdóttir
fiðluleikari og Delana Thomsen
píanóleikari og héldu tónleika í
Borgarneskirkju á vegum skólans
og Tónlistarfélags Borgarfjarðar.
í febrúar mun skólinn halda
sérstaka afmælistónleika og þar
munu koma fram nemendur og
kennarar við skólann, bæði núver-
andi og fyrrverandi. í mars mun
skólinn taka á móti gestum frá
öllum tónlistarskólum á Vestur-
landi. Einnig munu nemendur
Tónlistarskóla Borgat'fjarðar
koma fram við ýmis tækifæri í
héraðinu.