Morgunblaðið - 12.12.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 35
AÐVENTUKYRRÐ
TONLIST
Víðistaðakirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Aðventu- og minningartónleikar
Kórs Öldutúnsskóla. Gestir: Hanna
Björk Guðjónsdóttir sópran, Margrét
Pálmadóttir sópran og Svana Vik-
ingsdóttir, píanó. Víðistaðakirkju,
þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20.
ÞESS eru ófá dæmi að tónleikar
ungmennakóra hljóta afbragðsað-
sókn, enda liggur í hlutarins eðli að
tveir eða fleiri hlustendur fylgja yfir-
leitt hveijum söngfélaga. En aðsókn-
in að tónleikum Kórs Óldutúnsskóla
í Hafnarfirði í Víðistaðakirkju
stundu fyrir náttmál sl. þriðjudag
var samt með ólíkindum, því hvert
sæti hafnfirzka guðshússins, sem
landsþekkt ætti að vera fyrir afar
persónulegar myndskreytingar Balt-
asars Samper, var skipað, og rúm-
lega það. Stemningin á staðnum var
því skiljanlega mikil.
Tónleikarnir voru haldnir til minn-
ingar um Berglind Bjarnadóttur,
einn stofnfélaga í kórnum, er lézt
sama dag fyrir tíu árum. Kórinn
hefur nú ár um þrítugt, og margar
stúlknanna úr fyrstu árgöngunum
orðnar mæður með börn í núverandi
kórnum. Það er því ekki ofsögum
TONIIST
Illjómcliskar
KVÖLDLOKKA
W.A. Mozart: Gran Partitta, Kv 361
(370a). Blásarakvintett Reykjavíkur
og félagar. Hljóðritað í Digranes-
kirkju 22. og 25. október 1996. Upp-
tökumaður: Sveinn Kjartansson,
Stafræna hljóðupptökufélagið ehf.
Tónmeistari: Bjami Rúnar Bjarna-
son. Utgefandi: Isdiskar - Klassís.
Dreifing: Jaspis, Klassís 101 1996.
BLÁSARAKVINTETT Reykja-
víkur og félagar eru; óbó: Daði
Kolbeinsson, Peter Tompkins.
Klarinettur: Einar Jóhannesson,
Sigurður I. Snorrason. Basset-horn:
Kjartan Óskarsson, Óskar Ingólfs-
son. Fagott: Hafsteinn Guðmunds-
son, Bijánn Ingason. Horn: Joseph
Ognibene, Emil Friðfinnsson, Lilja
Nýjar bækur
• LITLI grísinn góði er mynd-
skreytt barnasaga eftir Ashildi
Haraldsdóttur. Höfundurinn er
þekkt tónlistarkona. _
í kynningu
segir að hún hafi
frá unga aldri
unað sér í heimi
ævintýra og
myndlistar og
hafi samið sög-
una fyrir ungan
son sinn. Auk
þess myndskreyt-
ir húnsjálfbók-
ina með tíu olíu-
málverkum sem eru prentuð í stóru
broti.
Sagan segir frá litlum grís sem
fijáls og glaður ferða sinna út í
náttúruna.
Fjölvaútgáfa gefur bókina út.
Bókin er 32 bls. öll ílitprentun.
Filmugerð PMS Súðarvogi, en
prentun og bókband hjá Grafík hf.
Verðkr. 1.480.
-------» ♦ ♦------
• ÁSTFANGNAR flugvélar og
önnur eldri ljóð er eftir Kormák
Bragason. Eftir höfundinn hafa
áður komið út bækurnar Spíruskip,
Djúpfryst ljóð, Sjávarbörn og Auga
fyrir tönn.
Mynd á kápubaki er eftir Sigurð
Lárus Bragason. Höfundur gaf bók-
inaút og er hún 52 bls. Bókin er
prentuð í Steinholti.
sagt, að Kór Ödutúnsskóla hefur náð
að verða rótgróin stofnun í tónlistar-
lífi höfuðborgarsvæðisins.
En ekki bara vegna aldurs og stað-
festu. Stúlkumar í KÖ hafa fyrir löngu
getið sér orð meðal beztu unglinga-
kóra landsins. Það er reyndar eitt af
kraftaverkum okkar rótlausu tíma,
þar sem æ fleiri ungmenni verða að
ginningarfíflum mannfirrtrar iðnaðar-
afþreyingar, sumpart vegna hópþrýst-
ings jafnaldra í afskiptum heimi ungl-
inga, að hægt skuli vera að ala upp
hópa sem þennan við agaðan sam-
söng. Um leið er það umhugsunar-
efni, hvort söngáhugaleysi pilta megi
að einhveiju leyti skrifa á reikning
hlutfallslega minni sjálfsþroska þeirra
í þessum aldursflokki, ef ekki skyldi
einnig koma til að virðist kynbundið
dálæti á tímafrekum greinum eins og
íþróttum og upplýsingatækni, því te-
nóra- og bassaskortur í blönduðum
unglingakómm er víða vandamál og
teygir sig sem kunnugt er upp í raðir
fullorðinskóra.
Dagskráin var smekklega valin
með hliðsjón af tilefninu og undir-
strikaði kyrrð og íhugun. “Syngjandi
innganga" fer að verða alsiða á kór-
tónleikum, og í þessu tilviki var
sungin einradda Procession úr hinni
nafntoguðu Ceremony of Carols eft-
ir Britten. Af palli söng kórinn Syng
barnahjörð (Joy to the World) eftir
Valdimarsdóttir, Þorkell Jóelsson.
Kontra-fagott: Rúnar Vilbergsson.
Kontrabassi: Bernard S. Wilkinson.
B-dúr serenata Mozarts „Gran
Patitta" er á margan hátt sérstakt
verk, þó höfundareinkennin leyni
sér ekki fremur en endranær.
Kvöldlokkur voru yfirleitt í fimm
þáttum, Mozart bætir tveimur við
og jók öðru tríói við hvorn menúett
um sig. Til viðbótar við klassíska
oktettinn höfum við hér tvö „bass-
ett-horn“ og kontrabassa, þannig
að þessi frábæri kvintett (Reykja-
Hándel, Hátíð fer að höndum ein,
Úr ljósanna hásal (Adeste Fideles),
slesíska pílagrímssönginn Fögur er
foldin, hið dillandi franska þjóðlag
Bráðum koma jólin við rennilegan
texta Friðriks G. Þorleifssonar, ann-
að alþekkt franskt, Jólanótt (viðlag:
Gloria in excelsis Deo), lítið þekkt
þýzkt-ungverskt lag undir sama
nafni, þar sem kórinn söng falleg
pianissimo-ekkó, og Lift Thine Eyes
eftir Mendelssohn.
Síðasttalda lagið var kröfuharðast
vegna stórra tónbila og mikils tón-
sviðs, en var engu að síður vel sung-
ið, og fyrri jólanóttin heillaði með
tærri háttliggjandi yfirrödd yngstu
telpnanna í viðlögunum; sérkenni-
legum platínuhljómi, sem næst ekki
í kórum fulltíða kvenna.
Gestirnir sungu fyrst ljúfan barca-
role-kenndan dúett eftir Mend-
elssohn, Söng farfuglanna, við
ölduvaggandi píanóundirleik, en síð-
an söng Hanna Björk ein Ave María
eftir Kaldalóns með björtum og vel-
studdum sópran. Var gerður góður
rómur að hvoru tveggja.
„Leikskólakór" KO, réttu nafni
Litli kór, söng nokkur einrödduð
jóla- og barnalög við undirleik kór-
stjórans og fyrirtaks undirtektir, en
að lokum kom megindeildin aftur
upp á pall og söng fimm hugljúf
margrödduð lög með sínu alþekkta
víkur) hefur hvorki meira né minna
en þrefaldast, eða þar um bil. Og
hann leikur einstaklega vel, einsog
venjulega.
En B-dúr serenatan hefur fleira
til brunns að bera en umfangið í
lengd og mannafla. Þetta er Moz-
art einsog hann gerist fínastur og
höfðinglegastur, með tilvísun til að
svona tónlist er nánast ómissandi í
höfð'ngjaveislum og samkomum af
ýmsu tagi, enda er, einsog segir í
bæklingi, að finna blásarasveitir um
alla Evrópu. Hollenska Austur-
agaða og flngerða sniði. Af þeim
lögum stóð upp úr finnska verkið
Vesi Vásyy lumen alle með aðstoð
Erlu Rúnar Siguijónsdóttur á píanó
og Höllu Þorgeirsdóttur á flautu.
Verkið var sérkennileg stílblanda,
er hófst á e.k. framsækinni nýklas-
sík, bryddaði síðan upp á þjóðlegri
fímmskiptri Kalevala-hrynjandi (-.
/-. /-. /- /-) en endaði undir sterkum
en samt furðu smekklegum popp-
áhrifum. Var það ljómandi vel flutt,
og einnig var bragð að austurríska
laginu María í skóginum, þar sem
skærustu sópranínur kórsins tístu
undurtært hátt fyrir ofan veður-
hvolf. Sem sagt: fallegur söngur í
kyrrð og spekt, og auðheyrt, að
stjórnandinn þekkir miðil sinn fram
í fingurgóma.
En vonandi gefast viðeigandi
tækifæri til að láta reyna líka á kraft
og hraða kórsins. Þar eru einmitt
Finnar framarlega í flokki hvað
varðar seiðandi kvennahópsöng, eins
og t.d. kom fram af heimsókn Ser-
ena stúlknakórsins frá Esbo um ár-
ið, eða hinum allt að því búlgarska
harksöng hinna kiijálsku „Snældu"-
níumenninga í frábærum þætti á
Gufunni fyrir skömmu. Það vantar
meiri rytma, meira fútt, í íslenzkan
kvennakórsöng! Eins og kellingin
sagði: Fegurð hrífur, en fjörið blífur.
Ríkarður 0. Pálsson
Indíafélagið er með blásarasveit á
launaskrá suður við Gróðravonar-
höfða. Herhljómsveitir, hirðhljóm-
sveitir og blásarasveitir, sem leika
marsa, menúetta, svítur og syrpur
og útsetningar á óperutónlist
o.s.frv., eru útum allt. Alltaf þörf
fyrir fallega og frísklega músík
(jafnvel líka blíða og angurværa),
hvort sem þú ert aðalsmaður eða
bara venjulegur aðdáandi góðra
rétta og skemmtilegrar nærveru
góðra vina.
En semsagt: Fallegt og höfðing-
legt verk, eða einsog stendur í
bæklingi: „Þetta viðamesta blásara-
verk Mozarts rís eins og klettaborg
og gnæfir hátt yfir aðra tinda í
grendinni" - og teljast þeir sem
næstir stóðu engir þúfnakollar. Og
þá höfum við það - í fínni spila-
mennsku og mjög góðri upptöku.
Verði okkur að góðu.
Oddur Björnsson
Reuter
Hlýtt og
horft á
listaverk
GESTUR á sýningu bandaríska
listamannsins Keith Harring
hlustar á geisladisk með útskýr-
ingum á verkum hans sem eru
nú sýnd í Sydney í Ástralíu. Harr-
ing lést úr alnæmi árið 1990 en
í verkum sínum fjallar hann m.a.
um sjúkdóminn, kynlíf, kynþátta-
hatur, vopnakapphlaup og skort
á umburðarlyndi.
♦ ♦ ♦-----
Tímarit
• UNDIRTÓNAR er sérhæft
tónlistarblað. Markmið með útgáfu
blaðsins er að kynna það sem er
að gerast í íslensku tónlistarlífi og
þá sérstaklega frumsamda tónlist.
I blaðinu er að finna greinar um
nýútkomnar plötur og væntanlega
tónleika. Blaðið verður einnig að
finna á næstu útgáfu Decodeve f-
tímaritsins á slóðanum http://this
is/decode.
Blaðið er „afsprengi" þeirra
Snorra Jónssonarog Isars Loga
Amarssonar sem vinna blaðið í
samvinnu við Hitthúsið.
Þetta tölublað er tileinkaðþeim
íslensku tónlistarmönnum sem eru
aðgefa út tónlist fyrirjólin.
AUTHENTIC AMERICAN SPORTS
U
B
Geisladisíca
GEISLADISKUR
M/12 ELDHEITUM
SMELLUM FYLGIR MEÐ
HVERJU KEYPTU SETTI
(PEYSA+BUXUR)
NÝTT KORTATÍMABIL
JÓLAPAKKAVÆNAR
HREYSTI
VERSLANIR
LAUGflVEGI 51 - S. 551-7717 - SKEIFUNN119 - S.568-1717
Stóra kvöldlokk-
an hans Mozarts