Morgunblaðið - 12.12.1996, Side 38

Morgunblaðið - 12.12.1996, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ María mey snýr aftur BOKMENNTIR Skáldsaga ENDURKOMA MARÍU eftir Bjama Bjamason. Ormstunga, 1996 - 160 síður. Verð kr. 3.190. HÚN ER guðdómleg mærin sem sefur svo undur vær undir gullstirnd- um himni á málverki Kristínar Gunn- laugsdóttur, sem prýðir kápu Endur- komu Maríu eftir Bjarna Bjarnason. Og María þessi, önnur aðalpersóna bókarinnar, er heldur ekki þessa heims. Þegar hún verður kynþroska hættir hún að sjást í spegli. Og um það bil er hún er að ljúka doktors- prófi með hæstu einkunnir sem um getur í samfélagi sögunnar, þá eyð- ist allt sem hún hefur skrifað sem og allar opinberar upplýsingar um hana. María er ólík öllum öðrum, hún er undurfögur, ofurgóð og ósn- ertanleg gyðja sem sumt fólk vill trúa á en aðrir vilja eyða. Sögusviðið er órætt, gæti verið eitthvert Mið-Evrópuland, og sagan er látin gerast í nútímanum, um það vitnar tölva Maríu, en að flestu öðru leyti er sögutíminn æði óljós og gæti allt eins verið fyrir einhverjum öldum. Þetta er ævintýri og sækir sitthvað til bókmennta sem hafa verið í tísku síðustu árin, svo sem töfraraunsæis og heimildaskáld- sagna. Allt getur gerst, svo fremi sem það þjónar frásögninni. Og höf- undurinn leyfir sér líka að leika með undarlega atburði þar sem hann setur ein- hveija mikilfenglegustu goðsagnaveru allra tíma, Maríu mey, hina óflekkuðu jómfrú og móður eingetins sonar Guðs, inn í samtíma okkar. Sagan er í hefð- bundnu minningaformi og hringlaga; maður sest niður til að rita endurminningar sínar og lok bókarinnar eru jafnframt upphaf henn- ar: „Afi var virtur guð- fræðingur við Kristshá- skóla þar til hann var hrakinn frá störfum vegna ásakana um að boða villutrú. Hann skrifaði spádómsrit. .. “ Sögumaðurinn heitir Mikael - ber biblíunafn eins og margar aðrar persónur - og þetta spádómsrit Jóhannesar afa hans hét einmitt Endurkoma Maríu. Spá- dómsritið hafði vakið mikla athygli en Jóhannes var hrakinn frá störfum af æðsta embættismanni kirkjumála, biskupnum svarteygða, Jean Sebast- ían. Mikael hefur alist upp hjá afa sín- um en við fráfall hans heldur Mika- el út í heim og starfar við sirkus í sjö ár - það er hans manndóms- vígsla. Þegar hann snýr aftur smíðar hann mikla sirkusvél - hann er nefniiega uppfmningamaður - og heldur með hana inn í borg nokkra í von um að afla sér tekna. Þar ber fundum þeirra Maríu saman á lestarstöð og ævintýrið hefst; hún er á engan hátt venjuleg kona, karlar með líkamlegar langanir geta ekki snert hana og Mikael þarf að kljást við bisk- upinn Jean Sebastían sem hyggst kanna meydóm Maríu með vélum. Sagan er skrifuð af snerpu og ævintýraleg frásögnin ber lesand- ann með sér. Hann fylgir þeim Maríu og Mikael og upplifanir þeirra eru í senn eins og úr fornri opinberunar- bók og James Bond kvikmynd. Per- sónusköpunin minnir einmitt að ýmsu leyti á kvikmyndir, persónur eru týpur, góðar eða illar og eins og í spennukvikmynd drífur atburða- rásin söguna áfram, einn atburður tekur við af öðrum; höfundur dregur ekki seiminn og sleppir málalenging- um sem hefðu getað freistað margra sem væru að skrifa sögu sem býður upp á jafn fjölbreytilegar vísanir. Og vissulega er þetta ekki bara spennusaga byggð á goðsögum, heldur líka hugljúf saga um ást sem aldrei getur orðið. Hryllingurinn skýtur einnig upp kollinum, og minnir í senn á Særíngarmanninn með Lindu Blair og Meistarann og Margarítu, þar sem María ætlar að gefa Mikael líkama sinn. Það kemur þó fyrir að höfundi dveljist að óþörfu og missi marks, en aldrei eins og í frásögninni af þegar Mikael smíðar tól sem hann kallar „kynlífshjálpartæki óendan- leikans," og lýsir yfir: „ ... Guð skapaði manninn sem kynlífssælu- þraut svo að ég ... gæti leyst hana“ (122). Þessi vél bætir engu við skynj- un lesandans á ást þeirra Maríu, frekar að það geri hana háðulega. Þá virðist höfundur ekki treysta le- sandanum til að sjá í gegnum Jean Sebastían, þegar hann er sagður hafa símanúmerið 999-333, en út- koman úr því dæmi er hið djöfullega númer 666, einföld klisja og ofnotuð. I textanum fer höfundurinn óvenjulega leið þegar hann kýs að afmarka hugsanir Mikaels og Maríu með gráðumerkjum; litlum hringj- um, einhverskonar hugsunarblöð- rum. Það er sérkennilegt en venst þegar á líður. Og þá er skrýtið að skrifa ekki öll nöfn upp á íslensku, það hefði verið eðlilegt að sjá Salome og Judith sem Salóme og Júdit, rétt eins og Gabríel og Samúel. Bjarni Bjarnason hefur áður sent frá sér ljóð, smásögur, skáldsögur og leiktexta sem ekki hafa farið hátt. Hér hefur hann skrifað ævintýralega sögu, sem ætti að vekja athygli á höfundinum, skemmta lesendum og ekki valda neinum vonbrigðum. Einar Falur Ingólfsson. Bjarni Bjarnason Nýjar bækur • BÓK DA VÍÐS. Rit tiJ heiðurs Da víð Da víðssyni eftir 35 ára starfsem prófessor við Háskóla íslands ogyfir- læknir á Land- spítalanum. Bindi I & II. í þessu tveggja binda verki eru yfir 80 greinar eftir samstarfs- menn og fyrrver- andi nemendur próf. Davíðs. Þar eru greinar um frumkvöðla lækningarannsókna á íslandi, sjúkdómslýsingar úr forn- bókmenntum, saga miltisbrands hér á landi, hugleiðingar um ís- land, orku og alheimsumhverfis- mál, grein um tengsl beinbrota- hættu og lifnaðarhátta, svo nokk- uð sé nefnt. Langt viðtal ervið Davíð í ritinu. Þar segir hann frá starfi sínu við Háskóla Islands og á Landspítala og við Rannsókn- arstöð Hjartaverndar í Reykjavík. Formála ritar Ólafur Ólafsson, landlæknir. Útgefandi er Háskólaútgáfan, Háskóla íslands. Ritið er tæplega 1.300 bls. að stærð, prentað í Gutenberg oginnbundið í Guten- berg og í Félagsbókbandin u-Bók- felli; fæst sem pappírskilja eða í hörðu bandi. • UÓÐABÓKIN Frá fjöru til fjalls er eftir Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd. Þetta er þriðja bók höfundar og hef- ur hún að geyma 118 Ijóð og all- margar lausavís- ur. „Að efni til fjalla þau um lífsins mál á ýmsa vegu, um trú og von, gleði, ást og yndi, feg- urð náttúrunnar og flug andans, um sorgir og reynslu, tár og trega. Nokkur Ijóð eru um einstaklinga sem hafa orðið höfundi hugstæðir og önnur um málefni lands og þjóðar í lengd og bráð,“ segir í kynningu. Bókin ergefin út af Skákprenti. Rúnar Kristjánsson Davíð Davíðsson Formin í landinu BÖKMENNTIR Ljósmyndir PANORAMA eftir Pál Stefánsson. Litgreiningar: Prentmyndastofan hf. Prentað á ítaliu. Iceland Review, 1996 - 128 síður. Verð kr. 3.900. í FORMÁLA Panorama, nýjustu bókar sinnar, segir Páll Stefánsson að ljósmyndun sé ekki starf heldur lífsmáti. Og þótt Páll starfi sem ljós- myndari fyrir Iceland Review útgáf- una, er þessi bók vitnisburður um að hann sé vakinn og sofínn að elt- ast við augnablikin, að reyna að túlka landið eins og hann skynjar það. ísland Páls er ekki land blíðviðr- is, eins og hjá mörgum landslagsljós- myndaranum, heldur sýnir hann raunverulegt Iand vinda og veturs, sólar, skammdegis og þoku. Bókin er kennd við myndaform- atið, panórama, en allar myndirnar eru teknar á myndavél sem hefur filmustærð sem er 6 sm á hæð og 17 á breidd. Fram að þessu hefur Páll aðallega notað 35mm vélar og náð að skapa sérstaka sýn á landið með þeim miðli, en það var kominn tími fyrir hann að halda lengra, að nota filmu sem gæfi honum tæki- færi til að miðla meiri og nákvæm- ari upplýsingum innan myndramm- ans, og það er hann einmitt farinn að gera í þessi bók. Með stærri vél er Ijósmyndarinn bundnari niður, hann verður háðari þrífætinum, er lengur að athafna sig fyrir hverja mynd, en Páli auðnast að halda sér- kennum sínum í nýjum miðlinum. Hann heldur áfram að horfa í sí- kvikt ljósið - en líklega er enginn starfandi ljósmyndari hér í dag næmari fyrir fínlegustu blæbrigðum birtunnar - og einbeitir sér að form- um landsins. Þá auðnast honum einnig að fanga augnablik sem snöggur ljósmyndari með litla vél mætti teljast fullsæmdur af, jafnvel þjótandi ljósgeisla eins og myndin Sumarkvöld í Fljótsdal er vitni um, einhver sterkasta mynd sem Páll hefur tekið, af nokkrum tijám sem standa á túni böðuð í óvæntu ljósi og yfir þeim ólgandi vindaský og á bakvið sorti yfir landinu. Panóramaformatið hefur verið í tísku hér á landi síðustu misser- in, en Páll hefur náð að halda sínum ein- kennisstíl og þroskað hann áfram í nýjum miðli; sterk formtilfinn- ing er þar í öndvegi og í bestu myndunum til- raun til að nýta breidd- ina sem lifandi einingu, þar sem eitthvað er að gerast alls staðar í myndrammanum og augað leikur eftir for- munum. Hann nýtir sér einnig þann möguleika hvað stór filman getur sagt margt, dýptarskerpan er mikil og sjónum beint að áferð hlutanna, hvort sem það er lábarið gijót eða iðandi tún. Rökkur í Reyjavík er ein athyglisverðustu myndanna, en þar er horft frá Landakoti, og kirkjan eins og annars heims, skörp og grænleit í forgrunni en aðrir tónar rökkurbleikir; þá er myndin af Kötlu í Mýrdalsjökli, undir skýjabakka, tignarleg í einfaldleika sínum, og sömu sögu má segja um myndir af dularfullri og hrollkaldri Hvalvík á Melrakkasléttu, af Grindavík í ljósa- skiptunum og af Herðubreið á Mý- vatnsöræfum, en þótt þar séu gráir sandar allsráðandi þá er það stór hluti landsins og ægifagur, og furðu- Iega afskiptur af ljósmyndurum. Þá eru aðrar myndir enn einfaldari, far- ið nær formum landins á eftirminni- legan hátt, eins og í Illagili í Jökuld- ölum og Markarfljótsgljúfri. Það kemur líka fyrir að Páli hætti til að endurtaka sig, eins og í fossa- myndum, og gera ekki nægilegar kröfur, eins og í mynd frá Kirkjubæj- arklaustri. En lökustu myndirnar verða að teljast þær þar sem fólki er stillt upp og þá helst börnum, og ætlað að skapa líf eða vera viðmið. Þær myndir verða stífar, jafnvel gamaldags; ólgandi grængresi við Búðarkirkju hefði notið sín vel hefðu starandi börn ekki setið í því og eins ná hjárænuleg ungmenni að eyði- leggja stemmninguna í annars und- arlega heillandi mynd frá Núpsstað. Eins og form ljósmyndanna býður upp á er bókin Panorama löng og lág. Farin hefur verið sú leið að hafa mynd- irnar í tveimur stærð- um. Annarsvegar eru tvær litlar myndir í opnu, umluktar miklu hvítu. Lukkast sú pör- um oft vel, sérstaklega þar sem form og litir eru látin kallast á. Flestar myndir bókar- innar fylla hinsvegar upp í stakar opnur. Gallinn er að þær bijót- ast þá yfir kjöl en ávinningurinn af stærð- inni er mikill og mynd- irnar njóta sín vel. En það er sérkennilega gengið frá myndunum í opnuna, þar sem undir þeim er rúmlega senti- metra hár bekkur fyrir myndatext- ann en á aðra kanta blæðir myndin. Það getur verið truflandi að skoða myndirnar ef umhverfi bókarinnar er órólegt og dregur augað út fyrir síðurnar, en fær það ekki til að renna um innan myndarinnar eins og ger- ist þegar nægilegt hvítt rými er haft umhverfis. Sérstaklega getur þetta verið truflandi við bók eins og þessa, þar sem fegurðin, hrein form- in og fínleg Ijósbrigði litanna bjóða upp á viðkvæmt samræmi sem má lítið við truflun; að láta myndir blæða út af síðunum á alla jafna betur við einfaldari eða villtari myndgerð. Annars er prentunin mjög góð og vel unnið úr fínlegustu litbrigðum myndanna. / Panorama birtir Páll Stefánsson þroskaða og persónulega sýn á ís- land, þetta er heildstæð bók og með- al athyglisverðustu ljósmyndabóka sem hafa verið gerðar um þetta land. Það verður áhugavert að fylgjast með því hvaða leið Páll fer héðan, hvort hann fer að nota enn stærri fílmur, jafnvel 4x5 tommu, en óneitanlega væri gaman að sjá hann taka samtím- ann enn frekar inn í myndheiminn; sýna að landið er ekki lengur ósnert, allsstaðar eru vegir og önnur um- merki mannanna, og mikill sjóður hvað samspil náttúru og þess mann- gerða varðar sem íslenskir ljósmynd- arar eiga eftir að ganga í. Einar Falur Ingólfsson. Nýjar bækur • LEITIN að guði, fyrsta skáld- saga Péturs Guðjónssonar kem- ur í bókabúðir nú í vikunni, en gert er ráð fyrir að hún verði gef- in út snemma næsta árs á þremur öðrum tungumálum: á ensku (en bókin er skrifuð á því máli), spænsku og frönsku. Söguhetja bókarinnar er fertugur New York-búi sem „á ailt en á samt ekkert. Því ákveður hann að leita tilgangs í tilveru sinni. Leit hans að einhverri festu og fyllingu flytur hann heimsálf- anna á milli þar sem hann kynnist helstu trúarbrögðum heims, lendir í margvíslegum ævintýrum og kynnist mjög sérstökum ferðafé- lögum. Að lokum finnur hann það sem hann er að leita að og vel það,“ segir í kynningu. Bókin er þýdd af Eyvindi Er- lendssyni, en hann hefur áður þýtt bók eftir Pétur, „Að lifa er list“ sem kom út árið 1991. Aðrar bækur sem komið hafa út á íslensku eftir Pétur eru: „Bók- in um hamingjuna“ (1981 ogend- urútgefín 1988) og „Erindi við þig“ (1987). Tvær aðrar bækur hafa komið út á erlendum tungu- málum. Útgefandi er Bókaútgáfan Nex- us. Prentun og bókband: Steind- órsprent-Gutenberg. Útlit og hönnun: Hunang. 240 bls., innb. • HLJÓÐBÓKAKL ÚBB UR- /AWhefur gefið út skáldsöguna Islandsförin eftir Guðmund Andra Thors- son í lestri höf- undar. íslandsförin er skáldsaga sem lögð er í munn enskum aðals- manni sem held- ur til íslands á seinni hluta 19. aldar. Ferðin er ævintýraleg og ferðafélagarnir ekki síður. Islandsförin er þriðja skáldsaga Guðmundar Andra. Hinar eru Mín káta angist (1988) og íslenski draumurinn (1991). Bókin kemur samtímis út í prentaðri útgáfu hjá Máli og menningu. Hljóðritun og fjölföldun annaðist Hljóðbókagerð Blindrafé- lagsins. Bókarkápu hönnuðu Ingi- björg Eyþórsdóttir og Þórhildur Elín. íslandsförin er á fjórum snældum og tekur um 5lh klukku- stund í flutningi. Búðarverð er kr. 3.480. • SÖNGDANSAR-II er síðari hefti söngva Jóns Múla Árnason- ar. Með þessu hefti og undanfara þess, Söngdöns- um-I, eru píanó- nótur af öllum (31) lögum Jóns Múla úr fjórum söngvaleikjum loksins fáanlegar í heildarútgáfu. Söngdansar-II inniheldur sön- glögJóns Múla Árnasonar úr Deleríum Búbónis og Allra meina bót í píanóútsetningum Carls Billich og Magnúsar Ingimarsson- ar. Textar Jónasar Árnasonar fylgja hveiju lagi og myndir úr sviðsetningum prýða heftið. „í heftinu er m.a. hinn óborganlegi tónbragur Vikivaki, útsettur að hætti Jóns Múla. Með útgáfunni opnast áhuga- og fagfólki aðgang- ur að list Jóns Múla, Carls Billich og Magnúsar Ingimarssonar í tveimur vönduðum nótuheftum," segir í kynningu. Útgefandi er Nótuútgáfan. Verð kr. 1.150. Jón Múli Arnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.