Morgunblaðið - 12.12.1996, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Kasparov fyrstur til að sigra
SKÁK
6 manna stórmót á
Kanaríeyjum
Las Palmas, 9. —20.
desember
Stígahæsta skákmót allra tíma hófst
á mánudag í Las Palmas á
Kíuiaríeyjum.
MÓTIÐ er langþráður viðburður
fyrir skákáhugamenn því þar munu
Gary Kasparov, heimsmeistari at-
vinnumannasamtakanna PCA, og
Anatólí Karpov, heimsmeistari al-
þjóðaskáksambandsins FIDE, mæt-
ast í fyrsta sinn í tæp þrjú ár. Þetta
er afar mikilvægt mót fyrir þá og
hina sex keppendurna. Vegna óviss-
unnar í skákheiminum er ekki frá-
leitt að líta á sigurvegarann sem
öflugasta skákmann heims.
Mótið er það fyrsta í sögunni sem
nær 21. styrkleikaflokki FIDE, en
til þess þurfa meðalstigin að vera
hærri en 2.750. Stigareikningur
hófst þó ekki fyrr en upp úr 1970
og síðan hefur nokkur stigabólga
átt sér stað. Engu síður er hægt
að færa dágóð rök fyrir því að aldr-
ei áður hafi sex svo öflugir skák-
meistarar áður hist á móti.
LAS PALMAS XXI. styrkleikafl. stig 1 2 3 4 5 6 VINN:
1 Kasparov, Gary RÚS 2.785 XX 14 1 1’/2
2 Anand, Viswanathan IND 2.735 XX ’/2 /2 1
3 Ivanchuk, Vassily ÚKR 2.730 ’/2 XX ’/2 1
4 Karpov, Anatoly RÚS 2.775 y2 1/2 XX 1
5 Kramnik, Vladimir RÚS 2.765 ’/2 XX 1/2 1
6 jQpaloy. Veselin BÚL 2.750 .íl_ XX_
Tefld verður tvöföld
umferð og mætast því
allir innbyrðis með
bæði hvítu og svörtu.
Sex af sjö stigahæstu
skákmönnum heims
keppa. Sá eini sem er
fjarri góðu gamni er
Gata Kamsky. Eftir að
hann tapaði FIDE-
heimsmeistaraeinvíg-
inu fyrir Karpov í sum-
ar mun hann hafa vent
sínu kvæði í kross og
farinn að lesa læknis-
fræði.
Lokið er tveimur
umferðum í Las Palm-
as. Fimm af sex fyrstu skákunum
lauk með jafntefli. Kasparov fékk
óskabyijun er hann náði að svíða
hróksendatafl af Búlgaranum Top-
alov með einkar laglegri tafl-
mennsku:
Hvítt: Topalov, Búlgaríu
Svart: Kasparov,
Rússlandi
Katalónsk byrjun
1. d4 - Rf6 2. c4 -
e6 3. g3 - Bb4+ 4.
Bd2 - Be7 5. Bg2 -
d5 6. Rf3 - 0-0 7.
0-0 - c6 8. Dc2 - b6
9. Re5 - Rfd7 10. Rd3
- Bb7 11. Hdl - a5
12. a3 - Ba6 13. cxd5
- cxd5 14. Be3 - Ha7
15. Rc3 - Hc7 16. Bf4
- Hc8 17. Bxb8 -
Rxb8 18. Hacl - Rc6
19. e3 - Bc4 20. Bfl
- Dd7 21. Rf4 - b5
22. Bxc4 - bxc4 23.
e4?! - Bf6! 24. exd5 - Rxd4 25.
De4 - e5 26. Rh5 - Bg5 27. f4 -
f5! 28. Dg2 - Df7 29. Rxg7 -
Dxg7 30. fxg5 - Dxg5 31. Khl -
e4 32. g4 - Kh8 33. gxf5 - Dxg2+
34. Kxg2 - Rxf5 35. Khl - Rd6
36. Hel - Hf4 37. a4 - Hb8 38.
Gary Kasparov
He2 - Kg7 39. Hcel - Hb4 40.
Nb5?!
Kasparov hefur náð frumkvæðinu
með öflugri taflmennsku í seinni
hluta miðtaflsins. Þetta ber óþolin-
mæði vitni, en lakara var þó 40.
Rxe4 - Rxe4 41. Hxe4 - Hxe4 42.
Hxe4 - c3! sem vinnur á svart. Nú
kemur upp hróksendatafl sem gæti
virst jafnteflislegt, en Kasparov
gjörnýtir möguleika sína) 40. -
Rxb5 41. axb5 - Kf7 42. d6 -
Ke6 43. Hd2 - Kd7 44. Hgl -
Hf7 45. Hel - a4 46. He3 - Hg7
47. Hxe4
47. - a3! 48. He7+ - Hxe7 49.
dxe7+ - Kxe7 50. bxa3 - Hbl+
51. Kg2 - c3 52. He2+ - Kd6 53.
Kf3 - Kd5 54. a4 - Kd4 55. a5
- Hxb5 56. a6 - Ha5 57. He4+ -
Kd5 58. He3 - c2 59. Hc3 - Hc5!
og eftir þennan laglega leik gafst
hvítur upp. Hann sá fram á að þótt
báðir hafí náð að vekja upp drottn-
ingu eftir 60. Hxc5+ - Kxd5 61.
a7 - cl=D 62. a8=D þá fellur hvíta
drottningin eftir 62. - Dhl+.
Guðmundar Arasonar mótið
Mótið hefst á morgun kl. 17 í
íþróttahúsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði. Dregið hefur verið í
fyrstu umferð og tefla eftirtaldir
saman:
Raetsky, Rússlandi - Arnar E. Gunnarsson
Einar Hjalti Jensson - Dunnington, Englandi
Tumer, Englandi - Kristján Eðvarðsson
Jón Viktor Gunnarsson - Martin, Englandi
Kristensen, Danmörku-Bergsteinn Einarsson
Torfi Leósson - Albert Blees, Hollandi
Bruno Carlier, Hollandi - Þorvarður F. Ólafsson
Stefán Kristjánsson - Engquist, Svíþjóð
Jón Garðar Viðarsson - Heimir Ásgeirsson
Jóhann H. Ragnarsson - Guðmundur Gíslason
Sævar Bjamason - Davíð Kjartansson
Björn Þorfinnsson - Björgvin Víglundsson
Bragi Halldórsson - Bragi Þorfinnsson
Susanne Berg, Svíþjóð - Áskell Öm Kárason
Burden, Bandaríkjunum - Einar K. Einarsson
Átta stigahæstu keppendurnir á
mótinu eru erlendir, svo okkar menn
fá verðugt viðfangsefni. Það er þó
engin afsökun fyrir erlendum sigri
og ekki er vikið hænufet frá kröfu
um íslenskan sigurvegara á þessu
móti eins og öðrum alþjóðlegum
skákmótum hér heima.
Margeir Pétursson
RAÐAUGí YSÍNGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
ÝMISLEGT
TIL SÖLU
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Iðnskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða
arkitekt í 1/2 stöðu til teiknikennslu.
Ráðning er frá 1. janúar 1997.
Laun samkv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar veitir viðkomandi kennslu-
stjóri eða skólameistari í síma 552 6240.
Umsóknum skal skila til ritara skólameistara
í síðasta lagi 27. des. 1996.
Öllum umsóknum verður svarað.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðing og sjúkraliða vantar til
starfa hið fyrsta.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
í síma 552 6222.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
MENNTASKÓUNN Í KÓPAVOGl
Ferðamólaskólinn • Hótel- og matvælaskólinn - Leiðsöguskólinn
Digranesvegur • IS 200 Kópavogur • ísland
Sími /Tel: 544 5530, 544 5510 • Fax: 554 3961
Kennarar
Menntaskólinn í Kópavogi auglýsir eftir kenn-
urum í eftirtaldar greinar á vorönn 1997:
Ensku 18 stundir.
Sögu 12 stundir.
Félgsfræði 20 stundir.
Bakaraiðn 1/2 staða.
Launakjör skv. launakerfi Hins íslenska
kennarafélags og ríkisins.
Umsóknarfrestur er til 20. desember.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari eða
aðstoðarskólameistari í síma 544 5510.
Skólameistari.
Fjárfesting - söluhagnaður
Gróið fyrirtæki í iðnaði á kost á tvöföldun í
umfangi og leitar eftir auknu rekstrarfé.
Leitað er að fjárfesti, sem vill t.d. ráðstafa
söluhagnaði, festa fé sitt í fasteignum og fá
góðan arð í langan tíma. Um er að ræða
40-60 milljóna króna fjárfestingu.
Fyrirtækið er í eigin húsnæði, sem er um
3000 fm.
Hugmyndin er að selja hluta þessa hús-
næðis og fyrirtækið leigi það aftur með lang-
tíma leigusamningi.
Tilboð sendist til afgreiðslu Mbl., merkt:
„Q - 3579“, fyrir þriðjudaginn 17. des. nk.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
Auglýsing um umsóknir
um rekstur GSM farsíma-
þjónustu á íslandi
Ríkiskaup, f.h. samgönguráðuneytisins,
óska eftir umsóknum aðila um uppsetn-
ingu og rekstur GSM farsímakerfis, sem
verður eitt af tveimur starfræktum GSM
farsímakerfum á íslandi. Þ.e. veitt verður
eitt leyfi til viðbótar, leyfi Pósts og síma.
Gögn með upplýsingum, sem viðkoma
umsókn fyrir rekstur GSM kerfis á ís-
landi, verða afhent frá og með 17. des-
ember 1996 hjá Ríkiskaupum, Borgar-
túni 7, 125 Reykjavík.
Umsóknargögn verða afhent væntan-
legum umsækjendum gegn 20.000 kr.
greiðslu.
Umsækjendur skulu með umsókn greiða
180.000 kr. sem þóknun fyrir yfirferð
umsóknar. Ofangreindar upphæðir eru
óafturkræfar og verða eingöngu umsókn-
ir frá aðilum, sem staðið hafa skil á þess-
um greiðslum, teknar til yfirferðar.
W RÍKISKAUP
Ú t b o b s k i I a á r a n g r i I
BOKGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844,
B r é f o s i m i 562-6739-Netlang: rikiskaup@rikiskoup.is
Nýkominn fatnaður
fyrir börn og fullorðna á góðu verði.
BÚÐIN |
Garðatorgi, Garðatorgi, s. 565 6550
Óvenjulegt tækifæri
Af sérstökum ástæðum eru til sölu 5 hluta-
bréf í svissnesku fyrirtæki, sem á hundruð
íbúða í Sviss - Austurríki - Þýzkalandi -
Frakklandi - Spáni - Ítalíu - Grikklandi og
víðar.
íbúðirnar eru bæði á skíðastöðum, bað-
ströndum og í borgum.
Fyrir utan að vera góð fjárfesting, gefa hluta-
bréfin rétt til nærri ókeypis dvalar í íbúðunum.
Þeir, sem áhuga hafa á frekari upplýsingum,
vinsamlega sendi nafn og símanúmer til
afgreiðslu Mbl. fyrir 22. desember, merkt:
„Sviss - 102“.
auglýsingar
FÉLAGSÚF
I.O.O.F. 5 = 17812128 = jv
I.O.O.F. 11 =1781212872=M.A.
Landsst. 5996121219 VII
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
í kvöld kl. 20.30: Ljósvaka
í umsjá unga fólksins.
Söngur, drama, veitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
«t«un
Pýramídinn -
andleg
miðstöð
Skyggnilýsingarfundur
Björgvin Guöjóns-
son, miðill, verður
með skyggnilýs-
ingarfund í kvöld
kl. 20.30.
Húsið opnað
kl. 19.30.
Einnig einkatímar.
Símar 588 1415 og 588 2526.