Morgunblaðið - 12.12.1996, Page 52

Morgunblaðið - 12.12.1996, Page 52
NJÓTTU VETRARINS 52 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 AÐSENDAR GREIIMAR MORGUNBLAÐIÐ s, 19 9 6 9 yEGGERT feldskeri Efst á Skólavörðustígnum sími 5511121 \ Launasamanburður og launamunur SAMANBURÐUR á laurium ólíkra og óskyldra starfshópa er fiókið mál. í fyrsta lagi er hann flókinn vegna þess hve viðkvæmur hann er. Við erum líka sum hver á því að láunamunur sé fremur til ills en góðs sérstak- lega ef hann fer yfir ákveðið mark. Þá hef- ur hann tilhneigingu til að breytast í launa- mismunun. Flestum þykir þó ugglaust að hin kalda reynsla kenni að nokkur mun- ur á tekjum fólks eftir því hvar það skipar sér í starfs- stétt sé ekki aðeins réttlætanlegur heldur einnig nauðsynlegur. En við hvað á að miða? Úreltur launamunur Launamunur nú á dögum hvílir að hluta á aðstæðum er ríktu snemma á þessari öld þegar þétt- býli í landinu tók loks á sig raun- verulegt form. Þá varð atvinnulíf landsmanna stöðugt flóknara, sér- hæfing jókst, gamlar stéttir gliðn- uðu og nýir starfshópar komu fram. Launamönnum í eiginlegum skilningi fjölgaði, samkeppni þeirra óx og launamunur fékk nýtt gildi. Áður skipti eignamunur meira máli. Eins og allir vita hafa stórstígar breytingar átt sér stað á öllum sviðum atvinnulífsins frá því um miðja öldina. Þessi þróun hefur hins vegar ekki alltaf skilað sér að fullu í leiðréttingu á launa- hlutföllum. Launamunurinn í sam- félaginu er því að mörgu leyti úr- eltur og ósanngjarn. Sanngjörn viðmið Á hinn bóginn má benda á fjöl- marga þætti sem er fyllilega raun- hæft að taka tillit til við saman- burð á launum enda þótt þeir séu svo afstæðir að niðurstaðan verði seint óumdeilanleg. Þar má nefna þjóðhagslega þýðingu þess starfs sem unnið er sem og félagslegt og menningarlegt gildi þess. Sum- um kann að virðast sem hér vegi hin efna- hagslegi þáttur þyngst og hljóti því að hafa forgang umfram hina. Þar er um furðu skammsýnt sjónarmið að ræða. Spakmælið um að maðurinn þríf- ist illa á brauðinu einu er nefnilega enn í fullu gildi. Þá eru þættir sem telja verður ófrávíkj- anlegt réttlætismál að tekið sé fullt tillit til við samanburð á laun- um. Þar má nefna þá ábýrgð, frumkvæði og sjálfstæði sem krafist er af mis- munandi starfshópum. Hingað til hefur breið samstaða ríkt um að fjárhagsleg ábyrgð skuli metin til launa. Á hitt vantar mikið að eðli- legt tillit sé tekið faglegrar og sér- fræðilegrar ábyrgðar á fjölmörgum sviðum. í tæknisamfélagi nútím- ans veltur afkoma fyrirtækja og þjóðarbúsins í heild þó í stöðugt vaxandi mæli á þekkingu í einni mynd eða annarri. Vægi menntunar Meðal þeirra samanburðaratriða sem óhjákvæmilegt er að taka til- lit til í þessu sambandi er loks sú menntun sem krafist er af hinum ýmsu starfsstéttum. Sá þáttur hef- ur þá miklu sérstöðu að hann er auðvelt að meta til fjár þar sem námskostnaður er mælanleg og nokkuð þekkt stærð. Fjölmargir einstaklingar verða að ráðast í mikinn kostnað af þessu tagi áður en þeir verða gjaldgengir á ýmsum mikilvægum sviðum þjóðlífsins. Þá hefja langskólamenn störf mun eldri en þeir sem velja skemmra nám. Hefur það ekki lítil áhrif á ijárhagslega stöðu þeirra langt fram eftir æfi. Auðvitað hefur lengi verið þörf á því að meta menntun til launa. Það er þó brýnna nú á dögum en nokkru sinni fyrr. Sú kynslóð sem nú stendur frammi fyrir þeirri spurningu hvort skynsamlegt sé Lengi hefur verið þörf á því, segir Hjalti Hugason að meta menntun til launa í ríkara mæli en gert er. að ráðast í langt háskólanám gerir sér fulla grein fyrir að þar með er hún að sníða sér þröngan stakk til lífstíðar í fjárhagslegu tilliti. Fjölmargir sem þessa ákvörðun taka munu til dæmis vart geta eignast þak yfir höfuðið - að minnsta kosti ekki með eins háu risi og nú þykir við hæfi! Láti ungt fólk um of stjórnast af skynsem- inni á næstu árum er æði hætt við að örðugt reynist að manna ýmsar þær stöður í framtíðinni sem mestrar menntunar kreíjast. Þá eigum við vart nema tveggja kosta völ: Að flytja inn vinnuafl og manna framvarðarsveitina með „útlendingum“ eða sitja eftir með gamaldags starfshætti og úrelt vinnutæki. Hætt er við að stoltum íslendingum þyki hvorugur kostur- inn góður þótt vissulega sé ólíku saman að jafna. Samanburður kennara og nemenda Nú skal fúslega viðurkennt að samanburður á faglegri ábyrgð og menntun er fráleitt einfaldur. Hvort skiptir til dæmis meira máli við gerð Hvalljarðarganga ábyrgð og þekking jarðfræðinganna sem kanna jarðlögin sem farið verður í gegnum eða verkfræðinganna sem hanna sjálf göngin? Einn samanburður virðist þó raunhæfur. Það er samanburðurinn milli kenn- ara og nemenda. Fyrir því virðast gild sanngirnisrök að kennarar, til dæmis á háskólastigi, búi að minnsta kosti ekki við lakari kjör en nemendur þeirra um það leyti sem þeir útskrifast. Af háskólakennaranum er þess krafist að hann miðli til nemenda sinna þekkingu sem stenst alþjóð- Trúverðugir fjölmiðlar ÁRIÐ 1876 fæddist í Mexíkó Emiliano Zapata. Þótt hann næði ekki að lifa nema til 1919 (hann var myrtur í fyrirsát) markaði hann eftir- minnileg spor í sögu lands síns. Hann er í minningunni ein mesta frelsishetja Mexíkana. Þótt ekki væri miðað við menntasnauð var rétt- lætiskennd hans slík að jafnvel í nútíman- um, þar sem menn hafa efni á samkennd, finnast ekki hans lík- ar. Þjóðin var fjölskylda hans. Hann var svo magnaður að jafnvel sum Bandarísk blöð fjölluðu á lof- samlegan hátt um gott skipulag hans og mannúðlega stefnu. Illa menntuð, glundroðakennd og grimmdarfull yfirstéttin notaði aft- ur á móti alþýðuna eins og bóndinn búfé sitt. Þegar litið er yfir íslenskt samfélag í dag, undrast maður hina hraðfara afturför þeirra þátta sem hafa með velferð og jafnrétti að gera. Meðan slíkt er hugleitt og lesið er um Zapata, fer maður ósjálfrátt að vonast eftir heiðarlegum al- þýðuvinum í röðum stjórnmálamanna. ís- lenskir stjórnmála- menn berjast ekki fyr- ir láglaunafólk, aldr- aða, öryrkja eða nokk- ur þau mál sem varða misrétti ef þeirra eigin hagsmunum er stefnt í hina minstu hættu. Zapata tók áhættu fyrir fólkið, með lífið að veði. Óverulega áhættu á fé og vinn- utapi taka fáir stjórn- málamenn nú, fyrir aðra en sig sjálfa. Nýlega réðist einn mesti „hags- munapotari" þjóðarinnar á rit- stjóra Morgunblaðsins fyrir að veija eignarrétt þjóðarinnar á helstu auðlind sinni. Stundum þeg- ar ég hlusta á Kristján Ragnarsson veija það að þjóðin sé hlunnfarinn fyrir takmarkaðan hóp auðvalds- seggja, held ég að honum geti ekki verið sjálfrátt. Einkavæðing er þjóðhagsleg þangað til hún fer að kúga og arð- Rekum Ríkisútvarpið með nefskatti, segir Albert Jensson, og leggjum innheimtu- deildina niður. ræna eins og farið er að gerast fyrir opnum tjöldum og án blygðunar. Morgunblaðið hefur sannað að það er fjölmiðill allra landsmanna. Þar birtist efni andstætt skoðun- um þess. Það er sjáifu sér sam- kvæmt. Eigendur Stöðvar 2. ráku Elínu Hirst þegar hún mat sjálfstæða og heiðarlega fréttamennsku um- fram undarlega útfærða hagsmuni eigenda. Greinilega tók Elín ábyrga og óeigingjarna afstöðu í málinu. Stöð 2 er því frekar ótrú- verðug og sjálfri sér ósamkvæm. Vörumst að leggja niður ríkis- sjónvarp. Rekum það með nef- skatti og leggjum innheimtudeild- ina niður. Höfundur er byggingameistari. Albert Jensen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.