Morgunblaðið - 12.12.1996, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ'
■56 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
‘68 kynslóðarinnar
1. janúar 1997 í Súlnasal
Halldór Gunnarsson úr Þokkabót tekur á móti gestum
með klassískri '68 tónlist.
Veislustjóri kvöldsins kemur frá Húsavík:
Sigurjón Benediktsson tannlæknir og
bæjarstjórnarmaður.
Birna Þórðardóttir ritstjóri og baráttukona
flytur hátíðarræðuna tæpitungulaust.
Fjölbreytt söngatriði verða í höndum sönghópsins
Voces Thulis og Bubba Morthens sem syngur
jafnt fyrir farandverkamanninn sem forsetann.
Hljómsveitin Pops leikur fyrir dansi
til a.m.k. kl. 4, 68 lög frá '68.
Þríréttuð glæsileg máltíð
að hætti matreiðslumeistara hótelsins.
Húsið opnar kl. 19.30 fyrir matargesti.
Klukkan 23.00 verður húsið opnað fyrir dansgestum.
Miðaverð 5200 kr.
Gestir á nýársgleði 1996
hafa forgang að miðakaupum til 17. des.
Miðar afgreiddir í söludeild.
-þín nýárssaga!
AÐSENDAR GREINAR
Kvennadeild Reykja-
víkurdeildar Rauða
kross Islands 30 ára
í DAG, 12. desem-
ber, eru liðin 30 ár frá
því að kvennadeild
Reykj avíkurdeildar
Rauða kross íslands var
stofnuð. Á stofnfundinn
mættu hátt á annað
hundrað konur og þar
með var hafið hið mikla
starf sem kvennadeildin
hefur síðan unnið. Það
var Ragnheiður Guð-
mundsdóttir augnlækn-
ir sem átti hugmyndina
að stofnun deildarinn-
ar. Hún hafði kynnst
sj álfboðastörfum
kvenna í Rauða kross
starfi í Bandaríkjunum
og víðar og vissi að mikil þörf var
fyrir slíka starfsemi hérlendis. Ymiss
konar verkefni biðu úrlausnar og það
hafði sýnt sig að félagssamtök
kvenna höfðu átt frumkvæði að
margs konar framfara-
málum. Konur voru öt-
ular og framtakssamar
á mörgum sviðum, ekki
síst í sambandi við
starfsemi til hjálpar og
líknar öðrum.
í þágu sjúkra og
aldraðra
Tilgangur starfsemi
kvennadeildarinnar var
frá upphafi að auka og
efla Rauða kross starf,
sérstaklega í þágu
sjúkra og aldraðra.
Sjálfboðaliðar deildar-
innar völdu sér heitið
sjúkravinir. Fyrstu árin
lögðu félagskonur áherslu á íjáröfl-
un. Til að afla tekna stóðu þær m.a.
fyrir hljómleikum með Eyvind Brems
á íslandi og héldu hlutaveltu í Lista-
mannaskálanum. Mestum hluta
Markmið kvennadeildar
Rauða krossins er, segir
Signrveig H. Sigurð-
ardóttir, að bæta hag
sjúkra og aldraðra.
ágóðans var varið til kaupa á 25
nýjum sjúkrarúmum og sjúkratækj-
um sem lánuð voru sjúkum og öldr-
uðum endurgjaldslaust. Á þessum
fyrstu árum unnu kvennadeildarkon-
ur einnig mikið starf til eflingar
Hjálparsjóði Rauða kross Islands,
bæði með öflun styrktarfélaga og
beinni fjársöfnun.
Árið 1967 var fyrsta sölubúð
deildarinnar opnuð á St. Jósepsspít-
ala, Landakoti og var það nýmæli
hér á landi. Það sama ár hófu félags-
Sigurveig H.
Sigurðardóttir
Þögii R-listans um um-
ferðaröryggi á Kirkjusandi
Umferðarnefnd
Reykjavíkur sam-
þykkti samhljóða á síð-
asta fundi sínum, sem
haldinn var 4. nóvem-
ber sl., ályktun um
umferðaröryggi á Sæ-
braut í tengslum við
þær framkvæmdir,
sem fyrirhugaðar eru á
lóðinni Kirkjusandi
1-5. í ályktuninni lýsir
nefndin áhyggjum
vegna fyrirætlana um
að reisa sex metra
háan hljóðvarnarmúr í
fjögurra metra fjar-
lægð frá Sæbraut og
færir rök fyrir því, að
þetta geti dregið úr umferðaröryggi
á svæðinu. Rökin eru m.a. þau, að
hljóðvarnarmúr þessi nær út fyrir
lóðarmörk fyrirhugaðrar byggingar
og nær inn á helgunarsvæði Sæ-
brautar. Samkvæmt sænskum
stöðlum um umferðaröryggi þyrfti
öryggissvæði án fastrar hindrunar
meðfram stofnbraut að vera 6-9
metrar miðað við
50-90 km aksturs-
hraða.
í ályktun umferðar-
nefndar er þeim til-
mælum beint til borg-
aryfirvalda að fyllsta
umferðaröryggis verði
gætt í tengslum við
fyrirhugaðar fram-
kvæmdir á Kirkjus-
andi. Viðbrögð meiri-
hlutans í borgarstjórn
Reykjavíkur hafa hins
vegar verið þau, að
ræða málið alls ekki,
þrátt fyrir ítrekuð til-
mæli. Á fundi borgar-
stjómar 17. október sl.
hvatti undirritaður fulltrúa R-list-
ans ítrekað til þess að ræða þetta
mikilvæga málefni, en þeir viku sér
undan því. Þegar samhljóða sam-
þykkt umferðarnefndar kom til
umræðu á fundi borgarstjórnar 21.
nóvember sl. viku borgarfulltrúar
R-listans sér enn á ný undan þeirri
skyldu gagnvart umferðarnefnd og
Borgarfulltrúar R-Iist-
ans hafa vikið sér undan
þeirri skyldu, segir
*
Olafur F. Magnússon,
að ræða þetta hags-
munamál borgarbúa.
almenningi í borginni að ræða þetta
hagsmunamál borgarbúa.
Á þessu kjörtímabili hefur undir-
ritaður átt sæti sem fulltrúi sjálf-
stæðismanna í umferðarnefnd
Reykjavíkur og flutt þar margar til-
lögur um umferðaröryggismál. Und-
irrituðum finnst það athyglisvert,
að þær tillögur hans, sem hafa falið
í sér gagnrýni á aðra aðila en meiri-
hlutann í borgarstjórn Reykjavíkur
hafa fengið aðra meðhöndlun en til-
laga hans um umferðaröryggi á
Kirkjusandi, en sú tillaga felur auð-
vitað í sér gagnrýni á borgarsjórnar-
meirihlutann. Þannig fékk tillaga
undirritaðs um umferðaröryggi í
Ártúnsbrekku víðtæka umfjöllun í
borgarstjórn Reykjavíkur fyrr á
þessu ári. Sú tillaga fól í sér gagn-
rýni á ríkisvaldið og vinnubrögð
Alþingis. Að mati undirritaðs hafa
borgarfulltrúar R-listans með þögn
sinni um umferðaröryggi á Kirkjus-
andi sýnt umferðarnefnd Reykjavík-
ur lítil.svirðingu og verið ósamkvæm
sjálfum sér. Með þessu framferði
hafa þeir ekki heldur sýnt lýðræðinu
og borgarbúum nægilega virðingu.
Höfundur er læknir og
vunihorgnrfiilltrúi í Reykjnvik.
ÓlafurF.
Magnússon
ÞÁ SKALTU NÝTA ÞÉR JÓLATILBOÐIP Á VIBON OC KRÆKJA ÞÉR
í ELDSTEIKTAN VÍBONBORCARA Á AÐEINS150 KR.
ALLA VIRKA DACA í DESEMBERÁMILLI KL. 11OC17.
4